Morgunblaðið - 22.11.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
Rökkrið var
fullt af ilmi jarðar
Bókmenntír
Jenna Jensdóttir
K.M. Peyton:
Flambards-setrið
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi
Mál og menning
Reykjavík 1983
Breski rithöfundurinn K.M.
Peyton er þekktur meðal unglinga
hér á landi fyrir Patricks-bækurn-
ar í þýðingu Silju Aðalsteinsdótt-
ur. Flambardssetrið er 7. bók hans
sem út kemur á íslensku. Hún er
fyrsta bókin af þrem sem höfund-
ur skrifaði um jarðeigandann
Russel og ættingja hans. Kom sag-
an út á ensku 1967.
Sagna gerist laust eftir alda-
mótin og segir frá lífi fólksins á
Flambardssetrinu fyrst og fremst,
þótt margir fleiri komi þar við
sögu.
A setrinu er allt i niðurníðslu —
en vitnar þó flest um horfið veldi.
Húsbóndinn Russel er bundinn við
hjólastól vegna slyss sem hann
hlaut er hann datt af hestbaki á
veiðum. Kona hans er látin en
synir þeirra tveir, Mark og Vil-
hjálmur, alast upp hjá honum og
eru í kringum fermingaraldur
þegar sagan hefst. Mark er eldri.
Dick, hestadrengurinn, er einnig á
setrinu, svo og ráðskona og vinnu-
fólk.
Lífið á Flambardssetrinu snýst
raunverulega allt um hesta og
veiðar. Russel i hjólastólnum —
miskunnarlaus og kvalinn sjálfur
— stjórnar öllum og öllu af hörku
og mannvonsku og kvelur aðra að
sinni vild. Drengirnir eiga báðir
að verða góðir reiðmenn og veiði-
menn.
En hugarheimur þeirra er eins
ólíkur og útlit þeirra. Mark hávax-
inn svarthærður piltur og lífs-
þrótturinn geislaði af honum.
Vilhjálmur lítill veiklulegur —
hræddur. Engu að síður verður
Vilhjálmur að læra að sitja hest
og taka þátt í hinum spennandi
veiðum. Æstir veiðimen — trylltir
hundar — ákafir hestar sem
stökkva yfir hvað sem á vegi
þeirra verður, og fórnardýrið ref-
ur eða eitthvert annað umkomu-
laust dýr, sem berst vonlaust fyrir
lífi sínu.
Vilhjálmur hatar veiðiferðir og
útreiðar af öllu hjarta, en harð-
ráður faðir beitir valdi sínu og
drengurinn tekur þátt í hildar-
leiknum, dettur af hestbaki og
Tónleikar í
Háskólabíói
Tónlist
Ragnar Björnsson
Efnisskrá:
Leifur Þórarinsson: Haustspil 83.
J. Ibert: Konsert fyrir flautu og
hljómsveit.
F. Mendelssohn: Sinfónía nr. 5 í
d-moll.
Einleikari: Manuela Wiesler.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Frumflutningur íslenskra1
tónsmíða vekur ætíð eftirvænt-
ingu hjá ísl. tónleikagestum og
svo var einnig nú. Lausleg at-
hugun sem Jón Þórarinsson'
gerði á aðsókn að sinfóníutón-
leikum bendir til þess að aðsókn
að þeim tónleikum þar sem
„landinn kemst að“ sé síst minni
og mætti það verða bending til
þeirra sem ferðinni ráða.
„Haustspil 83“ kallar Leifur sin-
fónískt ljóð sitt, sem hér var
frumflutt. Að sumu leyti fer
Leifur öðrum höndum um efnið í
þessu verki sínu en áður hefur
heyrst hjá honum. Stefjaúr-
vinnsla hans er þó hér hin sama,
og þar nær Leifur stundum
meistaratökum. í Haustspili eru
hugmyndirnar mjög skýrt fram-
settar og aðgengilegar. Áberandi
í þessu verki er góð „instrument-
ation" og svo, að á stundum
minnti undirritaðan á þann
stóra snilling á þvl sviði —
Mahler. „Haustlitir 83“ búa yfir
mikilli ljóðrænu, sem mér
fannst, því miður, ekki fá að
njóta sín sem skyldi í flutningn-
um. Skýrt taktslag er ágætt útaf
fyrir sig, en svo markerað má
það ekki vera að hljóðfæraleik-
arinn fái ekki tíma til að „inton-
era“ — mynda tóninn. Eyra
hljóðfæraleikarans er öruggara
skilningarvit til nákvæmnis en
augað í þessu tilfelli og eyra
tónlistarmannsins er yfirleitt
hægt að treysta. Kannske var
vöntunin á þessum ljóðræna
þætti ástæðan fyrir þvi að ekki
var hrópað „bravo“ eftir flutn-
inginn. En til hamingju með
Haustspilið, Leifur.
Manuela Wiesler kom eins og
engill og lék eins og engill heldur
yfirborðskenndan flautukonsert
Iberts. Manuela er afbragðs
listamaður með tækni sem á
stundum virðist takmarkalaus.
Meiri ró og þroski er kominn yfir
leik hennar en áður var. Manu-
ela á vonandi glæsilega framtíð
fyrir sér sem flautuleikari, en
ennþá finnst undirrituðum þó
vanta þá fyllingu og mýkt í tón-
inn sem gera mundi leik hennar
ómótstæðilegan. Flautukonsert
Iberts er á köflum mjög við-
kvæmur í flutningi, einnig fyrir
hljómsveit og stjórnanda, en
Páll hélt þessu öllu saman. Hins
vegar fannst mér síðasti þáttur-
inn fullhægur, eða öllu heldur
þunglamalegur, hversvegna ekki
að slá þáttinn á einum í staðinn
fyrir tveim? Það er að vísu erfið-
ara fyrir stjórnandann, en gefur
þættinum annað yfirbragð.
Fimmta sinfónia Mendels-
sohns, sem venjulega er talin í
d-moll, ekki D-dúr, eins og
stendur í efnisskrá, er furðu
mislit tónsmíð, sambland af
ódýrum vinnubrögðum og „geni-
aliteti" höfundar. Sinfónían er
tækifærisverk, hefst með mótífi
úr þýskri „Liturgi", sem Wagner
notaði síðar í Parsifal — „Grals-
mótívið". Scherzo-þátturinn,
Allegro vivace, var að mínu mati
alltof hægur og hafði hvorki viv-
ace- né scherzo-yfirbragð. Síð-
asti þátturinn er einskonar fant-
asía um sálmalagið „Vor Guð er
borg á bjargi traust“. Sinfónían
fékk engan hljómgrunn, þegar
hún var frumfíutt undir stjórn
höfundar og hún náði heldur
ekki fluginu að þessu sinni.
Mjög ánægjulegt var að sjá og
heyra þá fjölgun sem orðin er í
hljómsveitinni og gjörbreytir
jafnvægi milli strok- og blást-
urshljóðfæra. Á móti 12 fyrstu
fiðlum vantaði þó t.d. 2—4 selló,
mætti það leiðréttast sem fyrst.
Ragnar Björnsson
slasast.
Þannig var aðkoman á Flam-
bardssetrinu þegar munaðarlausa
telpan Kristína fluttist þangað til
móðurbróður síns, Russels. Hún
hafði frá því hún missti foreldra
sína, tveggja ára gömul, búið hjá
frænkum sínum. Og frá þeim
hafði hún óljósa hugmynd um það
að seinna ætti hún að giftast eldi
frænda sínum, Mark, svo að auður
sá er foreldrar hennar létu eftir
sig kæmi á Flambardssetrið.
„Kristína var tólf ára og dálítið
þybbin. Hún var að byrja að fá
brjóst (og þótti það heldur verra),
húðin fíngerð og rjómalit, og hún
bar sig vel enda höfðu frænkur
hennar sífellt verið að skipa henni
það. Svipurinn var varkár, vanari
því að sýna hlýðni en lifandi
svipbrigði. En dökkbláu augun
voru einlæg, munnsvipurinn
rólegur og hárið mikið og brúnt
M
Það varðar Russel miklu að
Kristína læri að sitja hest og taki
þátt í veiðiferðum. Hann verður
sannarlega ekki fyrir vonbrigðum.
Hún er iðinn nemandi hjá kenn-
ara sínum, hestadrengnum Dick,
og veiðiferðir heilla hana.
Árin líða. Lífið gengur sinn
gang á Flambardssetrinu — og
það er enginn hægagangur.
Drengurinn Dick og systir hans
Fjóla, sem er þjónustustúlka á
setrinu, kikna undan ofurvaldi og
hörku, andleg nekt lítilmagnans
verður algjör I umkomuleysi og fá-
tækt. Þau eiga sér ekki uppreisnar
von. Örlög þeirra eiga greiðan að-
gang að tilfinningum lesandans.
Neikvætt viðhorf hödundar til
Fjólu breytir þar engu um.
Kristína lifir í stormum mikilla
geðhrifa þeirra feðga. Þótt útrás
hins ormétna sálarlífs þeirra sé
með mörgu móti er ljóst að Krist-
ínu er gert mjög erfitt fyrir. Börn-
in á Flambardssetrinu eru komin
á æskuárin og bræðurnir tveir líta
frænku sína, Kristínu, girndar-
augum.
Vilhjálmur hefur snúið baki við
lífinu á Flambardssetrinu og fyrir
það þolað harðar refsingar föður.
Hann gengur af gleði og ákefð á
vit nýrrar tækni. — Flugvélar, það
er hans líf.
Það kemur að því að Kristína
veður að gera upp hug sinn í ásta-
málum. Þótt höfundur hjálpi
henni mjög opinskátt tilfinninga-
lega held ég að lesandi sé ekki al-
veg viss nema hugur hennar verði
annar í næstu bók.
Lýsingar höfundar á umhverf-
inu eru stórbrotnar og af snilld
sameinar hann mann og hest og
lætur þá verða litróf jarðar.
Þetta er góð saga og hún er
handa öllum sem velta lífinu fyrir
sér. Þýðing er mjög vönduð og
frágangur ágætur.
15
Ríkisstjórnin um Kýpur:
Sjálfstæðis-
yfirlýsingin
í berhögg
við SÞ
Á FUNDI ríkisstjórnarinnar 18. nóv-
ember var Kýpurmálið á dagskrá,
segir í fréttatilkynningu frá utanrík-
isráðuneytinu.
„Taldi ríkisstjórnin einhliða
sjálfstæðisyfirlýsingu tyrkneska
þjóðarbrotsins á Kýpur ganga í
berhögg við samþykktir Samein-
uðu þjóðanna og tilraunir þeirra
til að finna lausn á sambúðar-
vandamálum á Kýpur.
Ríkisstjórnin telur stjórn
Kyprianous, forseta, einu lög-
mætu stjórn lýðveldisins Kýpur,“
segir í fréttatilkynningunni.
SERSEAKT
VERDTILBODÁ
BÖKUNAR
VÖRUM
Gerið verösamanburð og sparið
Sykur pr. kg. 14.50,-
Hveiti, Pillsbury 5 Ibs. 48.50.-
Hveiti, Falke 2 kg. 24.70,-
Smjörlíki, Ljóma 500 gr. 24.70.-
Púðursykur, Ijós V2 kg. 13.45.-
Florsykur 'U kg. 12.10.-
Síróp, Golden 500 gr. 54.90.-
Verslið tímanlega fyrir jól
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njarðvík