Morgunblaðið - 22.11.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
17
Servantur, mynd frá 1945.
— Þú nefndir lögmál markað-
arins áðan. Hefur þú getað lifað af
þinni list, eða hvaða sess hefur
hún skipað hjá þér?
„Listin hefur alltaf skipað heið-
urssess, en ég hef þó ekki haft
hana að aðalstarfi. Okkar kynslóð
þurfti að hafa hliðarstarf. Kjar-
val, Ásgrímur og fleiri, þeir lifðu
af sinni list, en við höfðum önnur
störf með. Þetta hygg ég að hafi
að ýmsu leyti verið gott, svo mikið
er að minnsta kosti víst, að við
þurftum ekki að vera upp á mark-
aðinn komnir í list okkar."
Féll ífræðin
upp úr 1960
— Það er þá heldur ekki af
þeim sökum, sem þú ert nú í löngu
leyfi frá listmáluninni?
„Nei, ekki er það, en ég féll í
fræðimennsku upp úr 1960, og nú
síðustu árin hef ég alveg helgað
mig þeim hlutum. Þannig var að
með stofnun tímaritsins Birtings
1955, féll það i minn hlut að fjalla
um byggingalistina. Þá langaði
mig til að kanna hvað við ættum
af húsagerðarlist hér á landi, og
áður en varði var ég farinn að
ferðast um landið og kanna hina
húsagerðarlistalegu sögu þess!
Þetta heillaði mig mjög, og brátt
var hugur minn allur í þessum
rannsóknum, þótt ég gerði mér
liklega ekki grein fyrir þvi fyrst í
stað. En þetta fór að rekast á
myndlistina, og þótt ég reyndi að
skipta vikunni niður á milli þess-
ara „afla“, þá gekk það ekki til
lengdar. Þvi hef ég nú frá 1977
helgað mig þessum rannsóknum
einvörðungu. Það þarf þó ekki
endilega að þýða að ég snúi mér
aldrei að myndlistinni aftur. Ég
hef áður tekið mér svona fri og
snúið aftur.”
— Er hægt að segja i stuttu
máli hvað það er, sem þú ert að
fást við núna?
„Þetta er allt í sama farvegi:
Rannsóknir gamalla heimilda,
húsa og húsarústa, til að komast
að þvi hvernig hér hefur verið
byggt og búið fyrr á öldum. Um
leið hef ég svo fengist við endur-
byggingu gamalla húsa. Enn hef
ég slegist í hóp þeirra, sem barist
hafa fyrir friðun gamalla bygg-
inga, og þar finnst mér tímamót
hafa orðið við friðun húsanna á
Bernhöftstorfunni i Reykjavík. —
En fyrst og fremst er ég að kanna
heimildir um byggingar hér á
landi á fyrri öldum.“
Stærstu timburhús
á Norðurlöndum
— Hvað er það, sem komið hef-
ur þér mest á óvart í rannsóknum
á þvi hvernig menn hafa búið og
byggt á íslandi á fyrri öldum?
„Meðal þess, sem ég hef komist
að, er að hér á landi byggðu menn
stórt á miðöldum. Dómkirkjurnar
á Hólum og i Skálholti voru
stærstu timburhús á Norðurlönd-
um og þótt viðar væri leitað, 50
metra langar og annað eftir þvi.
íslendingar hafa löngum grátið
sina glötuðu, glæstu fortið, en þeir
myndu gráta enn meir, ef þeir
vissu i raun hve mikið þeir hafa
misst. Kirkjurnar tvær, sem ég
nefndi, voru til dæmis svo glæsi-
legar og svo íburðarmiklar, að erf-
itt er að imynda sér það. Til eru
skrár yfir gripi þessara guðshúsa,
þessara listasafna, sem sýna að
þar voru hundruðir gripa, flestir
þeirra göfug listaverk, innlend og
erlend. Gripirnir úr miðaldadóm-
kirkjunni á Hólum einni saman
myndu nægja til að fylla Þjóð-
minjasafnið. Þessar kirkjur voru
stafkirkjur, þær stærstu sem
byggðar hafa verið, og víða um
land stóðu miklar stafkirkjur,
sumar með sama lagi og norsku
stafkirkjurnar, sem enn standa. —
Það er kaldhæðnislegt, að upp úr
1700, þegar Árni Magnússon er að
bjarga handritunum og flytja þau
út til Kaupmannahafnar, þá
standa hér enn kirkjuleg bygg-
ingarlistaverk, minnisvarði um
glæsta tíma íslandssögunnar, sem
þá voru margar að hruni komnar,
en varð ekki bjargað. Handritun-
um bjargaði Árni á hinn bóginn,
og fyrir bragðið eigum við ríku-
legan bókmenntarf og mikla hefð í
bókmenntum. — Hefð í bygg-
ingarlist eða öðrum greinum sjón-
listar eigum við hins vegar af
skornum skammti. Það er til
skammar, að ekki skuli fyrir löngu
vera búið að stofna hér lista-
sögustól við háskólann og íslensk-
an arkitektúrskóla."
— Anders Hansen
ri IDIII4II I IID
rUnUniLLUri
Hillustærðir: 30x80 og 50x80
Uppistöður: 61, 112 og 176 cm.
Útsölustafiir: REYKJAVlK: JL-Húsið húsgagnadeild, Liturinn Siðumúla 15, KÓPAVOGUR: Byko
Nýbýlavegi 6, HAFNARFJÖRÐUR: Málur Reykjavikurvegi 10, KEFLAVÍK: Dropinn, AKRANES:
Verslunin Bjarg, BORGARNES: K.B. Borgarnesi, HELLISSANDUR: K.B,, ÓLAFSVlK: Verslunin
Lára, STYKKISHÓLMUR: Húsið, PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jðnasar, BOLUNGARVÍK: Jðn Fr.
Einarsson, ISAFJÖRÐUR: Húsgagnaverslun ísafjarðar, HVAMMSTANGI: Versl. Sig. Pálmas.,
BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga, SAUÐÁRKRÓKUR: Hátún, SIGLUFJÖRÐUR: Bólsturgerðin,
ÓLAFSFJÖRÐUR: Versl. Valberg, DALVlK: Versl. Sogn, AKUREYRI: Grýtan Sunnuhlfð, HÚSAVlK:
Kaupfélag Þingeyinga, EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Versl. Dröfn,
NESKAUPSTAÐUR: Nesval, REYÐARFJÖRÐUR: Lykill, FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Versl. Þór, VlK,
Kaupfélag V-Skaftfelling, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldur og Einar, SELFOSS: Vöruhús K.Á.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888
TOYOTA-SAUMAVELAR
KOSTABOÐ Á KJÖRGRIPUHI
PÁLÍNA KR. 8438
T0Y0TA-VARAHLUTAUMB0ÐIÐ
ÁRMÚLA 23 — SÍMI 81733
m te -ÍJÍÍil
8 £ MetsöluUcid á hverjwn degi!