Morgunblaðið - 22.11.1983, Side 19

Morgunblaðið - 22.11.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 19 Svíþjóð: Enginn eigandi enn að gámunum Stokkhólmi, 21. nóvember. AP. HERT var á öryggisgæzlu í gær í höfninni í Helsingjaborg, þar sem fjórir gámar eru geymdir með bandarískum tölvuútbúnaði, að því er talið er. Gámunum er ætlað að fara til Sovétríkjanna, en bandarísk stjórnvöld hafa áður lagt bann við að tölvuútbúnaður eins og þarna er um að ræða og framleiddur er í Bandaríkjunum, verði fluttur út til Sovétríkjanna. Vopnaðir lögreglumenn með hunda sér við hlið gæta gámanna. „Skemmdarverk eru ekki útilokuð, svo að við erum við öllu búnir“, var haft eftir talsmanni sænskra stjórnvalda í dag. Embættismenn úr sænska utan- ríkisráðuneytinu komu saman í gær í því skyni að ræða, til hvaða ráða grípa skuli. Carl Johan Aberg aðstoðarutanríkisráðherra sagði í útvarpsviðtali: „Enn hefur enginn eigandi gefið sig fram og þangað til gengið hefur verið frá tollskjölum, gerist ekkert í mál- inu“. Blaðið Sunday Times í London hefur skýrt svo frá, að bandarísk stjórnvöld telji, að gámarnir geymi VAX-11-782 tölvuútbunað frá Bandaríkjunum, sem unnt er að nota til þess að stýra kjarn- orkueldflaugum. Gámarnir voru fluttir til Helsingjaborgar með sænsku skipi m/s „Elgaren", sem kom frá Suður-Afríku. Metfé fyrir son Shergars Thomastown Castle, írlandi, 21. nóvember. AP. AFKVÆMI írska veðreiðahestsins Shergars, misserisgamall foli, var selt í dag fyrir metfé, um 12 milljónir ísl. kr. Folinn er sagður vera „lifandi eftirmynd föður síns“. Sami kaupandinn var einnig að móður hans og gaf fyrir hana öllu meira, eða um 19 milljónir dollara. Flak ísraelsku þotunnar skammt frá flugvellinum í Beirut. Árásir ísraela Beirút, 21. nóvember. AP. HERÞOTUR ísraela gerðu um helgina loftárásir á stöðvar Amal-fylkingar shita í fjöllun- um austur af Beirút og Bekaa- dal. Loftvarnarbyssur Sýrlend- inga og shita svöruðu skothríð- inni og grönduðu einni þotu, en alls tóku tólf þotur þátt í árás- unum. síðan að sjálfsmorðsbílstjóri ók á ísraelska herstöð í Líbanon á dögunum og drap tugi manna. Ýmsir hafa orðið til að fordæma harðlega árásir fsraela, svo sem Sovétmenn og Sýrlendingar, sem segja þær sönnun þess að Banda- ríkin ætli sér að ráða Miðaust- urlöndum óskipt. Flugmaður ísraelsku þotunnar náði að varpa sér út í fallhlíf áður en hann sakaði, en þotan hrapaði skammt frá flugvellin- um í Beirút. Líbanskir stjórn- arhermenn handtóku flugmann- inn, en slepptu honum síðan. Þetta var þriðja árás ísraela á stöðvar Amal-fylkingarinnar Erkibiskupinn i E1 Salvador: Um 2000 manns fylgdust með uppboðinu þegar folinn var seldur en hann var sleginn bresku fyrir- tæki, sem höndlar með veðhlaupa- hesta. Talsmaður fyrirtækisins sagði, að hesturinn hefði verið keyptur í umboði nokkurra manna beggja vegna Atlantsála. Verðið, sem fékkst fyrir folann, er það mesta, sem þekkist í Evrópu, en þó höfðu sumir gert ráð fyrir enn hærra verði eða allt að 23 milljón- um ísl. kr. Mesta verð, sem fengist hefur fyrir folald, er um 18 millj- ónir kr. og fékkst í Bandaríkjun- um í fyrra. Shergar var stolið 8. febrúar sl. og þrátt fyrir ákafa leit hefur ekk- ert til hestsins spurst síðan. Árið 1981 vann hann það afrek að vinna Derby-veðreiðarnar, var tíu hest- lengdum á undan næsta hesti, og fylgdi þvi síðan eftir með sigri á írsku Derby-veðreiðunum. Hann var metinn á 13 milljónir dollara. Kennedy ástsælasti forsetinn New York, 21. nóvember. AP. TUTTUGU árum eftir lát sitt er John F. Kennedy sá forseta Bandaríkjanna, sem er í mestum metum meðal þjóðarinnar. Kemur þetta fram í skoðanakönnun, sem bandaríska tímaritið Newsweek birti í gær, sunnudag. Fram kemur einnig, að Banda- ríkjamenn telja að margt hefði farið betur ef Kennedys hefði notið við áfram, t.d., að þjóðin hefði ekki lent í þvi feni, sem Víetnam var henni um langan aldur. Flestir eru líka þeirrar skoðunar, að Lee Harvey Oswald hafi ekki verið einn að verki. Um þriðjungur aðspurðra ósk- aði þess, að Kennedy væri forseti Bandarikjanna nú en sá, sem komst næstur honum, var Franklin D. Roosevelt. 10% töldu, að best væri komið með hann sem forseta nú og á hæla honum komu þeir Harry Truman og Ronald Reagan með 9 og 8%. Jimmy Carter hafði 5% eins og Abraham Lincoln, Eisenhower var með 4% og Nixon 3%. Langflestir lofuðu Kennedy fyrir manngæsku og sögðust trúa því, að fátæku fólki vegnaði betur nú ef hann væri enn ofar moldu. Bindum enda á vargöldina S»n Salvador, Manatrua, 21. nóvember. AP. i Salvador, Managua, 21. nóvember. AP. ELLEFU stjórnarhermenn féllu um helgina í átökum við skæruliða í El Salvador. Erkibiskupinn í landinu hefur skorað á landsmenn að binda enda á ofbeldisverkin og hætta víga- ferlum. Stjórnin í Nicaragua segir, að uppreisnarmenn fylki nú liði á suðurlandamærunum og muni brátt ráöast inn í landið. Að sögn yfirvalda í E1 Salvador féllu 11 stjórnarhermenn í árásum skæruliða á tvo bæi í Cabanas- héraði, Dolores og Cuyanteque. Seinna réðust þeir á þriðja bæinn í héraðinu og eru að sögn að reyna að ná á sitt vald stóru landsvæði við landamæri Honduras. Stjórn- arherinn hefur gert loftárásir á stöðvar skæruliða á þessum slóð- um en ekki er vitað um árangur þeirra. í messu sl. sunnudag í dóm- kirkjunni í San Salvador skoraði erkibiskupinn í landinu, Arturo Rivera y Damas, á landsmenn sína að hætta vígaferlunum, sem hefðu kostað 47.000 manns lífið á fjórum árum. „í nafni almáttugs guðs, höfundar lífsins, skulum við hætta vígaferlunum. Ekki fleiri morð, ekki fleiri hótanir, ekki flei^i mannrán eða annað, sem dregur manninn, ímynd guðs, í svaðið," sagði Damas. Dauðasveitir hægrimanna hafa varað Damas við að halda fleiri ræður í þessum dúr en hann hefur Vandamál Póllands ekki leyst með verðhækkunum V*rejá, 21. nóvember. AP. LECH Walesa, friðarverðlaunahafi Nóbels, ræddi um helgina við ýmsa forystumenn Samstöðu, sem farið hafa huldu höfði að undanförnu og lýsti yfir samþykki við áform þeirra um mótmælaaðgerðir gegn þeirri ákvörðun stjórnvalda, sem f vænd- um er, um að hækka vöruverð í land- inu um 10—15%. „Verkafóllk getur ekki fallizt á verðhækkanirnar og það er skylda Samstöðu að skipuleggja baráttu verkamannanna,“ sagði í yfirlýs- ingu, sem Walesa og fjórir forystumenn aðrir frá Samstöðu létu frá sér fara í dag. Með þessari yfirlýsingu gegn verðhækkununum, sem ráðgerðar eru um áramót, hefur Walesa tek- ið undir mótmæli kaþólsku kirkj- unnar, en hún lét frá sér fara yfir- lýsingu á föstudag, þar sem sagði, að vandamál Póllands yrðu ekki leyst með verðhækkunum. beint spjótum sínum bæði að hægri- og vinstrimönnum og er jafnan mikið fjölmenni þegar hann predikar. Stjórn sandinista i Nicaragua segir, að mikið lið skæruliða hafi safnast saman við suðurlanda- mærin, í Costa Rica, og muni ráð- ast inn í landið á hverri stundu. Skæruliðar í Nicaragua hafa að undanförnu ráðist á marga bæi í landinu og segja sandinistar árás- irnar undanfara allsherjarinnrás- ar Bandaríkjamanna inn í landið. RÆÐST VIÐ UM KÝPUR. Spyros Kyprianou, forseti Kýpur, og Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, ræddust við fyrir skemmstu um Kýpurmálið. Kyprianou er til vinstri á myndinni. Fjölmennir úti- fundir á Kýpur Nikósíu, 21. nóvember. AP. ■■■ ÁFORMAÐ var, að þeir Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Spyros Kypri- anou, forseti Kýpur, hittust að máli í dag í því skyni að finna leið til lausnar þeirri deilu, sem upp er komin við það, að Kýpur-Tyrkir sögðu sig úr lögum við Kýpur-Grikki í síðustu viku og stofnuðu sitt eigið lýðveldi. Til mikilla fjöldafunda kom jafnframt í dag í Nikósíu á Kýpur, þar sem menn af báðum ofan- greindum þjóðernum söfnuðust saman og voru ekki nema 500 metrar á milli fundarstaðanna. Voru um 100.000 manns á fundi Kýpur-Grikkja, en um hálf millj- ón þeirra býr í Nicosíu. Sagði Lell- os Demetriades, borgarstjóri í Nikósíu, að þetta væri fjöllmenn- asti útifundur í sögu borgarinnar. Útvarpsstöð Kýpur-Tyrkja skýrði svo frá í dag, að „tugþús- undir tyrkneskumælandi manna" hefðu safnazt saman í Nikósíu til þess að mótmæla ályktun Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna frá því á föstudag, þar sem sjálfstæð- isyfirlýsing tyrkneska hlutans var lýst „ógild að lögum“. Var sagt, að fundarmenn hefðu hrópað: „Niður með Bretland," en það voru ein- mitt Bretar, sem létu kalla saman Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til þess að fjalla um Kýpurdeil- una. Um 120.000 Tyrkir eru bú- settir í Nikósíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.