Morgunblaðið - 22.11.1983, Síða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
Landsfundur Alþýdubandalagsins:
Hin nýja flokksforusta, talið frá
vinstri: Svavar Gestsson, formaður,
Vilborg Harðardóttir varaformaður,
Margrét Frímannsdóttir gjaldkeri
og Helgi Guðmundsson ritari.
menn í verkalýðsarmi flokksins
deildu hart á flokksforustuna og
höfðu menn m.a. á orði að vandi
flokksins væri ekki fólginn í lög-
um hans heldur flokksforustunni,
sem skipta þyrfti um. Sambands-
leysi flokks og verkalýðshreyf-
ingarinnar var iðulega á vörum
ræðumanna og sagði Karl Sigur-
bergsson m.a. að farið væri í laga-
breytingarnar með offari. Hann
gerði að tillögu sinni, er hann tók
til máls um fundarsköp eftir að
meginkafli lagabreytinganna
hafði verið samþykktur, að Al-
þýðubandalagið fengi heitið „mar-
flöt grasrótarsamtök" til sam-
ræmis við nýyrðasmíði um önnur
stjórnmálasamtök.
Meginkafli lagabreytinganna
var borinn sérstaklega upp og
samþykktur með 162 atkvæðum
gegn 18. Þegar lögin í heild komu
til atkvæða voru sjö andvígir, og
bað Lúðvík Jósepsson fyrrverandi
formaður flokksins um að mót-
atkvæði væru talin, en hann var
einn af þeim sjö sem greiddu at-
kvæði gegn þeim.
Þá urðu harðar deilur á fundin-
um um tillögur í utanríkismálum,
sem greint er sérstaklega frá ann-
ars staðar í blaðinu. Afstaða þing-
flokks vegna tillögu allsherjar-
nefndar landsfundarins um sveit-
arstjórnarmál var harðlega for-
dæmd af sveitarstjórnarmönnum
og sagði Logi Kristjánsson bæjar-
stjóri á Neskaupstað m.a. í um-
ræðum um það mál, að yfirskrift
fundarins, „Framtíð án fjötra",
ætti ágætlega við sveitarstjórn-
armenn innan Alþýðubandalags-
ins, og að sér væri óskiljanleg af-
staða þingmannanna. Frávísun-
artillaga Skúla Alexanderssonar
alþm. við sveitarstjórnarmálatil-
löguna var síðan samþykkt með 54
atkvæðum gegn 43.
Þá urðu einnig miklar umræður
um tillögu varðandi sölueinokun á
eggjum og kjúklinga- og svína-
kjöti. Allsherjarnefnd lagði til að
þeirri tillögu yrði vísað til mið-
stjórnar og var það samþykkt með
57 atkvæðum gegn 34. Sterk sam-
staða kvenna var áberandi á þess-
um landsfundi og kom hvað skýr-
ast fram í kjöri varaformanns
flokksins.
Landsfundurinn samþykkti
stjórnmálaályktun undir heitinu
„Avarp til íslendinga". Auk þess
voru samþykktar tillögur um jafn-
réttismál, menntamál, utanrík-
ismál o.fl.
Lagabreytíngar samþykktar,
þrátt fyrir harða andstöðu
- Vilborg Harðardóttir kjörin varafor-
maður, Svavar endurkjörinn formaður
LANDSFUNDI Alþýðubandalagsins lauk á sunnudagskvöld. Svavar Gests-
son var endurkjörinn formaður flokksins, Vilborg Harðardóttir útgáfustjóri
var kjörinn varaformaður og Helgi Guðmundsson trésmiður og bæjarfulltrúi
á Akureyri ritari, en ekki komu fram tillögur um aðra í þau embætti.
Margrét Frímannsdóttir kennari og oddviti á Stokkseyri var kjörin gjaldkeri
með 186 atkvæðum, en hún hlaut tilnefningu kjörnefndar í embættið. Fram
komu úr sal tillögur um tvo aðra í embættri gjaldkera, Hilmar Ingólfsson
skólastjóri og bæjarfulltrúi í Garðabæ hlaut 32 atkvæði, Haraldur Jóhanns-
son hagfræðingur 3 atkvæði, auðir og ógildir seðlar voru 3.
Landsfundurinn samþykkti eft-
ir harðar deilur ný lög flokksins,
sem m.a. gera ráð fyrir uppstokk-
un á félagakerfi flokksins. Með
breytingunni geta aiþýðubanda-
lagsmenn stofnað „sérgreinda"
hópa, eins og þeir voru kallaðir í
tillögum á fundinum, um einstök
áhugamál og hafa þessar einingar
sama rétt og hin svæðisbundnu fé-
lög höfðu til kosninga fulltrúa á
landsfundi o.fl. Þá fela nýju lögin
í sér kvótaskiptingu kynja, þannig
að hvort kyn skal nú eiga a. m. k.
40% fulltrúa í öllum stofnunum
flokksins. Nýju lögin fólu einnig í
sér fjölgun í miðstjórn flokksins
þannig að á fundinum voru síðar
kjörnir 70 miðstjórnarmenn, auk
20 varamanna.
Harðar deilur voru á fundinum
um lagabreytingarnar. Forustu-
Vildu ekki
fagna rás II
TILLAGA um að landsfundur Alþýðubandalagsins fagnaði stofnun rás-
ar II í Ríkisútvarpinu, sem skrefi í átt til lýðræðislegrar fjölmiðlunar í
landinu og fól einnig í sér heillaóskir til starfsmanna rásar II, átti ekki
upp á pallborðið hjá landsfundarfulltrúum á sunnudag. Eftir harða
ádeilu landsfundarfulltrúa á flutningsmenn sáu þeir þann kostinn
vænstan að draga tillöguna til baka.
Flutningsmenn voru Þorbjörn
Broddason og Vilborg Harðar-
dóttir. Þorbjörn sagði m.a. að al-
þýðubandalagsmenn hlytu að
fagna þessu jákvæða skrefi í átt
til frjálsrar fjölmiðlunar og í
sama streng tók nýkjörinn vara-
formaður flokksins, Vilborg
Harðardóttir, sem bað fundar-
menn að samþykkja tiilöguna og
fagna með því þessu skrefi sem
væri vissulega í rétta átt.
Steingrímur J. Sigfússon sagð-
ist ekki geta tekið undir orðin
„lýðræðisleg fjölmiðlun". Hann
kvaðst telja að helst vantaði
neðst í tillöguna orðin „gleðileg
jól“. Gerði Steingrímur það að
tillögu sinni að tillögunni yrði
vísað til framkvæmdastjórnar.
Óttar Proppé sagði tillöguna
gjörsamlega út í bláinn og allt of
seint fram komna. Hann hvatti
fundarmenn til að fella hana.
Sigríður Þóra kvað mál þetta
líta öðru vísi við landsbyggðar-
fulltrúum, þeirra hagur væri
fremur að fá betri hlustunarskil-
yrði en nýjar rásir. Hún nefndi
sem dæmi að Keflavíkurútvarpið
heyrðist ekki víða á landinu.
Flutningsmenn drógu síðan
tillöguna til baka.
Ólafiir Ragnar og Ásmundur
Stefánsson atkvæðahæstir
- Þröstur Ólafsson á varamannabekk í miðstjórn
SJÖTÍU miöstjórnarmenn og 20
varamenn voru kjörnir á landsfundi
Alþýóubandalagsins um helgina.
Flest atkvæði hlutu Ólafur Ragnar
Grímsson eða 270 og Ásmundur
Stefánsson 263 atkvæði, en kjör-
nefnd hafði gert tillögu um þá báða
sem aðalmenn. Þröstur Ólafsson,
sem kjörnefnd stakk einnig upp á
sem aðalmanni, náði aftur á móti
ekki kjöri. Hann hafnaði í 11. sæti á
varamannabekk með 161 atkvæði.
Kjörnefnd gerði tillögu um
Kjartan Ólafsson ritstjóra sem
aðalmann. Hann hlaut aftur á
móti fæst atkvæði þeirra sem
kjörnir voru varamenn, ásamt
Kristjáni Valdimarssyni starfs-
manni Reykjavíkurdeildar ABR,
Ragnari Árnasyni hagfræðingi og
Helgu Birnu Gunnarsdóttur eða
153. Haukur Már Haraldsson, sem
ekki hlaut tilnefningu kjörnefnd-
ar, féll í kosningunni, hlaut aðeins
121 atkvæði.
Samkvæmt nýju lögunum fjölg-
ar miðstjórnarmönnum úr 46 í 70,
auk formanns, varaformanns, rit-
ara og gjaldkera, sem eru nú
sjálfkjörnir í miðstjórn. Kjör-
nefnd gerði tillögur um aðal- og
varamenn, en stungið var upp á 19
til viðbótar úr sal.
Svonefnd punktaregla gildir við
kjör í miðstjórn, þannig að rita
skal tölustafinn 3 við þrjú nöfn,
tölustafinn 2 við önnur þrjú og 1
við 74 nöfn. Þá voru kjósendur
skyldugir að kjósa fjóra úr
Reykjaneskjördæmi, þrjá úr Vest-
urlandskjördæmi, þrjá úr Vest-
fjarðakjördæmi, fjóra úr Norður-
landskjördæmi eystra, þrjá úr
Austurlandskjördæmi og þrjá úr
Suðurlandskjördæmi. Sjálfkjörnir
voru þrír úr Norðurlandskjör-
dæmi vestra og sjö úr Æskulýðs-
fylkingunni, þar sem þessir aðilar
buðu fram jafnmarga og kjósa
skyldi úr þeirra röðum. Samtals
greiddu 219 atkvæði þar af voru 19
atkvæðaseðlar ógildir.