Morgunblaðið - 30.11.1983, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.11.1983, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1983 ísraelar fá aftur klasa- sprengjur Washington, 29. nóvember. AP. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að stofna til aukinnar hernaðarsamvinnu við ísraela og í því sambandi hafa Bandaríkjamenn aflétt banni við sölu á klasasprengjum til ísrael, að sögn embættismanns í Hvíta húsinu. Embættismaðurinn staðfesti að þegar hefðu klasasprengjur verið sendar til ísrael, en bann var sett við sölu sprengjanna vegna meintr- ar misnotkunar ísraela á þeim í inn- rásinni í Líbanon. Reagan átti annan viðræðufund með Yitzhak Shamir forsætisráð- herra í Kvíta húsinu í dag. Búist var við að helzta umræðuefnið yrði efnahagsástandið í Israel, en Reag- an hefur fallist á að aðstoða ísraela út úr fjárhagsörðugleikum sínum. Hundum útrýmt Peking, 29. nóvember. AP. Útrýmingarsveitir í Peking hafa drepið um 200 þúsund hunda í borg- inni undanfarnar sex vikur, en nærri lætur að það sé helmingur allra hunda í borginni. Bann við hundahaldi í Pek- ing gengur í gildi 1. desember næst- komandi. „Fólkið sjálft hefur fargað tug- þúsundum hunda," sagði borgar- starfsmaður. Tilkynnt var um bann- ið 11. október og hefur mikil útrým- ingarherferð verið í gangi síðan. Borgarstarfsmaðurinn sagði að herferðinni yrði haldið áfram og ef hundar sæust á reiki í borginni yrðu þeir umsvifalaust drepnir á staðn- um. Hundahald var bannað í Peking af heilbrigðisástæðum, og sérstakar útrýmingarsveitir, sem telja 200 manns, voru settar á laggirnar. Hermt er að margir hundaeigend- ur hafi selt borginni hunda sína en fjölmargir hafi lógað sinum hund- um sjálfir og étið kjötið. Þeir sem reynast sekir að hundahaldi eftir 1. desember verða dæmdir í fjársektir. Mikið kókaín- magn gert upp- tækt á Kastrup Kaupmannahófn, 29. nóvember. AP. Tveir Brasilíumenn, annar þeirra fyrrverandi háttsettur embættismaður, hafa verið kærðir fyrir að reyna að smygla 42,5 kflóum af kókaíni og 28 kflóum af marijúana til Danmerkur. Er kókaínfundurinn sá mesti í Evrópu og er söluverðmæti eiturefnanna talið nema 100 milljónum danskra króna. Hald var lagt á fíkniefnin í flugstöðinni á Kastrup-flugvelli er 10 manna hópur Brasilíumanna kom til Kaupmannahafnar. Reyndust eiturefnin í þremur ferðatöskum, sem tilheyrðu mönn- unum tveimur, Anebal Maia de Albuquerque Pereira og Ivan Pedro Julio Schiffer. Pereira er fyrrum póst- og símamálastjóri Brasilíu. Við yfirheyrslur lýsti Pereira sig saklausan af smygltilrauninni en Schiffer játaði að hafa átt marijúana-efnið en kvaðst enga vitneskju hafa um kókaínið. Mennirnir hafa verið dæmdir í 28 ára fangelsi hvor og settir í ein- angrun. Trúarofsóknir í Litháen: Prestur ákærður fyrir óhróður um Sovétrfkin Moskvu, 29. nóvember. AP. RÉTTARHÖLD yfir presti einum frá Litháen, sem er á meðal helztu and- ófsmanna úr röðum kaþólskra manna í Sovétríkjunum, eru hafin í borginni Vilnu, höfuðborg Litháen. Skýrði sovézka fréttastofan TASS frá þessu í dag. Presturinn, sem heitir Sigitas Tankevicius, er ákærður fyrir að hafa notfært sér predikunar- stólinn og prestsstörf sín til þess að bera út óhróður um Sovétríkin. Var hann handtekinn í Vilnu 6. maí sl., sama dag og réttarhöldum lauk yfir öðrum presti, séra Al- fonsas Svarinskas. Þeir Tankevicius og Svarinskas — en sá síðarnefndi var dæmdur í 7 ára vist í nauðungarvinnubúðum — áttu báðir þátt í því að koma á fót samtökum til verndar trúfrelsi manna. Samtök þessi voru stofnuð 1978 og segja stofnendur þeirra að það hafi orðið þeim mikil hvatn- ing, er fyrsti pólski biskupinn var kjörinn páfi, það er Jóhannes Páll páfi II. Þessir tveir menn hafa vefengt sovézk lög, sem m.a. banna trú- fræðslu barna. Tankevicius, sem er 44 ára að aldri, hefur hvað eftir annað mátt sæta hótunum frá sovézku leynilögreglunni KGB vegna starfsemi sinnar. Stjórnvöld í Marokkó: Vilja aðstoð Dana við þróun sjávarútvegsins Mikill markaður að opnast í Marokkó fyrir vélar og tækniþekkingu varðandi sjávarútveg ið, að við höfum mikinn áhuga á að auka fiskveiðarnar og þar með bæta hag landsmanna. — í fiskiskipaflota Marokkó- manna er mest af litlum skipum eða bátum, sem stunda veiðar með ströndum fram, en úthafs- flotinn telur í allt um 50.000 brúttótonn. 30% aflans fara í niðursuðu, 40% í bræðslu, 26% fara í beina neyslu sem ferskur fiskur og 4% eru söltuð eða fryst. — Meginmarkmiðið nú er að nýta auðlindirnar í hafinu til að fæða landsmenn, auka útflutn- inginn og atvinnuna. í þeim til- gangi þarf að nýta betur hafnar- aðstöðuna í Agadir og í bænum Tan Tan í suðurhiuta iandsins og meginhiuta flotans, strandveiði- skipin, þarf að búa betri tækjum og endurnýja að einhverju leyti. — Alaoui, ráðuneytisstjóri, lagði að síðustu áherslu á það við Börsen, að grundvöllur væri fyr- ir mjög víðtæku samstarfi Dana og Marokkómanna í sjávarút- vegsmálum. Hér á landi fer nú fram mikil umræða um nauðsyn þess að draga úr sókninni í þorskstofninn en til þess verður að fækka fiskiskipunum eða flnna þeim önnur verkefni innanlands eða utan. Með tilliti til þessa kann eftirfarandi frétt að vekja áhuga einhverra en hún birtist í danska blaðinu Börsen 24. nóvember sl. og fer hér á eftir nokkuð stytt. SENDINEFND háttsettra mar- okkanskra embættismanna hef- ur að undanförnu verið á ferð í Danmörku til að kynna sér fisk- veiðarnar og fiskiðnaðinn í land- inu og gera Danir sér vonir um vaxandi samstarf þjóðanna um þessi mál í framtíðinni. í for- svari fyrir sendinefndinni er Ardellah Alaoui, ráðuneytis- stjóri í marokkanska sjávarút- vegsráðuneytinu, og í viðtali við Börsen sagði hann m.a.: — Að sjáifsögðu hafði ég kynnt mér dönsk sjávarút- vegsmál áður en hingað kom og ég bjóst líka við miklu af þessari forystuþjóð meðal evrópskra fiskveiðiþjóða. Ég hef heldur ekki orðið fyrir vonbrigðum. Hafrannsóknamiðstöðin í Hirtshals og rannsóknaskipið Dana taka öllu því fram, sem við höfum áður séð, og það er ekki síst þess vegna, sem við vonum, að Danir muni taka mikinn þátt í að þróa fiskiðnaðinn í Marokkó. Heimsókn marokkönsku sendinefndarinnar á sér stað á þeim tíma þegar viðræður fara fram við stjórnvöld í Marokkó um aukin kaup á danskri iðnað- arvöru og verkkunnáttu og það er í tengslum við þessa samn- inga sem 12—15 Marokkómenn munu koma til Danmerkur á næsta ári til að læra þar réttu handtökin við togveiðar. Um þau viðfangsefni, sem við blasa í marokkönskum sjávarútvegi, nefndi Alaoui þetta sem dæmi: — Strandlengja Marokkó við Miðjarðarhaf og Atlantshaf er 3400 km löng og í landinu býr 21 milljón íbúa. Fiskveiðarnar eru hins vegar í miklum ólestri. Fyrir tveimur árum, árið 1981, færðum við landhelgina út í 200 Danska hafrannsóknaskipið Dana vakti mikla aðdáun Marokkó- mannanna. mílur og ráðum nú yfir fisk- stofnum, sem geta gefið af sér 1,3 milljónir tonna árlega. Afl- inn er hins vegar ekki nema 350.000 tonn á ári og því auðskil- Landflótta sendiboði Kínastjórnar ('hicago, 29. nóvember. AP. SENDIBOÐI Kínastjórnar, sem var á leið til sendinefndar Kína hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, leitaði á sunnudag til yflrvalda í Chicago, og baðst hælis í Bandaríkj- unum sem pólitískur flóttamaður. Sendiboðinn, Gogiang Yang, var á leið með bandarískri farþega- þotu frá San Francisco til New York, þegar hann fór fram á að millilent yrði í Chicago. Eftir Iendingu á O’Hare-flugvelli hófust háværar deilur milli Yangs og landa hans um borð í þotunni um það hvor þeirra héldi póstpokum, sem þeir höfðu meðferðis. Eftir alllangt þóf fór Yang frá borði án pokanna, og skömmu síðar hélt þotan ferðinni áfram til New York. Mál Yangs er nú í athugun hjá innflytjendayfirvöldum í Chicago, og getur úrskurður dregist á lang- inn. Að sögn yfirvalda bíða nú alls 323 kínverskir borgarar eftir úr- skurði um hvort þeir fái að setjast að í Bandaríkjunum. Venjulega tekur það yfirvöld allt frá tveimur mánuðum upp í hálft annað ár að ákvarða í málum sem þessu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.