Morgunblaðið - 30.11.1983, Síða 36

Morgunblaðið - 30.11.1983, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1983 t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, ODDNÝ EINARSDÓTTIR, veröur jarösungin fimmtudaginn 1. desember kl. 13.30 frá Há- teigskirkju. Blóm vinsamlega afbeðin en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á aö láta Hjartavernd njóta þess. Zóphóníaa Snorrason, Sigþrúóur Zóphóniasdóttir, Björn Björnsson, Snorri Zóphóníasson og barnabörn. t Jaröarför móöur okkar og tengdamóöur, ÞURÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Kalastöðum, fer fram frá Fossvogsklrkju, miðvikudaginn 30. nóvember kl. 13.30. Þorsteinn Oddsson, Sigurbjörg Einarsdóttir, Gísli Oddsson, Sigurbjörg Steindórsdóttir. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, FRANZ ÁGÚST ARASON, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 1. desember kl. 15.00. Jarösett veröur í Gufuneskirkjugaröi. Sveinbjörg Guðmundsdóttir, Guðbjartur Bergmann Franzson, Ari Bergþór Franzson, Ragnar Franzson, Magnea Bergmann Franzdóttir, Þórunn Franz. t Útför eiginmanns mins og fööur okkar, GUNNARS GUNNARSSONAR, Skipasundi 11, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. desember kl. 15.00. Svava Björnsdóttir, Sigríöur Birna Gunnarsdóttir, Gunnlaug Gunnarsdóttir, Þóra Gunnarsdóttír, Gunnar Logi Gunnarsson. t Útför fööur okkar, tengdafööur og afa, KRISTINS HELGASONAR, Halakoti, Flóa, fer frarn frá Selfosskirkju, laugardaginn 3. desember kl. 13.30. Jarðsett veröur aö Laugardælum. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Útför fööur míns, tengdaföður og afa, SIGFÚSAR GUNNLAUGSSONAR, Austurbrún 6, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. desember kl. 13.30. Guöbjörg Bryndís Sigfúsd., Oddgeir S. Júlíusson, María Sif Kristjánsdóttir. t Innilegt þakklæti fyrir auösýnda hluttekningu viö fráfall og útför JÓNÍNU S. FILIPPUSDÓTTUR, Grettisgötu 52. Vandamenn. Minning: Sólveig Árna- dóttir Petersen Fsedd 11. mars 1892 Dáin 22. nóvember 1983 Mig langar til að minnast elsku- legrar ömmusystur minnar, Sól- veigar Petersen, sem lést á Hrafn- istu í Reykjavík 22. nóvember sl. 91 árs að aldri. Hún fæddist á ísafirði 11. mars 1892, næstelst fimm barna Árna Gíslasonar, yfirfiskmatsmanns og konu hans Kristínar Sigurðardótt- ur. Veiga frænka, eins og við köll- uðum hana alltaf heima, óist upp á fsafirði, en fór til Danmerkur sem ung stúlka og dvaldi þar um tíma, en starfaði síðan við versl- unarstörf í Reykjavík þangað til hún giftist árið 1923 þýskum manni, Karli Petersen, kaup- manni, en hann fórst með breska skipinu Arandorra Starr 2. júlí 1940. Þau eignuðust 2 börn, Önnu Lísu, sem lést aðeins nokkurra mánaða gömul og Martein, sem kvæntur er Kristínu Sigurðardótt- ur og eiga þau 3 börn, Ragnar, Karl og Kristínu. Ég á mjög ljúfar minningar um Veigu frænku. Hún reyndist okkur systkinunum sem besta amma, enda var mjög gott samband milli móður minnar og hennar. Hún kom oft í heimsókn hér áður fyrr meðan heilsan var góð og ekki var sú stórhátíð að Veiga væri ekki með. Sérstaklega eru okkur systk- inunum minnisstæðir páskarnir með henni, en hún kom alltaf til okkar á annan dag páska og hafði þá meðferðis ýmislegt góðgæti, sem hún faldi víðs vegar um íbúð- ina og áttum við síðan að leita að því. Mikill var spenningurinn og ánægjan, þegar við fundum kúl- urnar, karamellurnar, eða hvað það nú var á hinum ólíklegustu felustöðum. Það var alltaf glatt á hjalla, þegar hún kom í heimsókn og þær venjur, sem sköpuðust með henni, hafa haldist á heimilum okkar systkinanna. Eftir að ég giftist kom hún stundum í heimsókn til okkar hjónanna, en aldrei brást, að við færum heim til móður minnar, þegar við vissum, að hún var þar í heimsókn. Hún kom síðast í heim- sókn til mín fyrir 6—7 árum og var þá hin hressasta þrátt fyrir, að líkaminn væri farinn að gefa sig og bera þyrfti hana upp á 3ju hæð þar sem ég bjó. Síðustu árin hafa verið henni, og þeim sem þótti vænt um hana, erfið. Ellin hefur verið óvægin, en áður en fór að halla undan fæti, fannst mér hún ailtaf eins og ung stúlka, létt á fæti, oft í ferðalögum og alltaf vel klædd og vel til höfð. Ég mun ávallt minnast frænku minnar með virðingu og hlýju. Erna Jóhannsdóttir Sólveig lést á Hrafnistu 22. þ.m. Löngum lífsferli er lokið. Állir fara sömu leið. Enginn veit hvar hann er í röðinni, en þetta „skref" fær enginn umflúið. Sólveig fæddist þann 11. mars 1892 á ísafirði, dóttir sæmdar- hjónanna Kristinar Sigurðardótt- ur og Árna Gislasonar, yfirfisk- matsmanns. Hún átti góða æsku í foreldrahúsum. Eftir stutta dvöl í Danmörku, kom hún heim og þann 10. mars 1923 giftist hún Karli Petersen, þýskum manni, er þá ver verzlunarstjóri hjá Braunsverzlun hér á landi. Karl var vinsæll mað- ur og vel látinn. Þau eignuðust tvö börn, dóttur, sem lést nokkurra mánaða gömul og son, Martin, sem búsettur er hér í Reykjavík. Þegar ég hóf nám í Verzlun- arskóla íslands árið 1936, leigði ég hjá þeim í nokkur ár og stóð heim- ili þeirra hjóna mér ætíð opið. Var mér tekið sem einum úr fjölskyld- unni. Þessu vinarbragði gleymi ég aldrei, því vinátta þeirra og hlýtt viðmót var mér ómetanlegur styrkur við námiö og gott vega- nesti út í lífið. Sólveig var kona góðra mann- kosta. Hin sanna vinátta og tryggð, sem hún miðlaði öðrum, er mér efst í huga á þessari stundu. Ég minnist með ánægju sameigin- legra gleðistunda með fjölskyldum okkar í gegnum árin bæði hér og á ísafirði. Þegar litið er yfir farinn veg, er það traustið, ástúðin og vináttan sem hæst ber. Slík minn- ing er ómetanleg. Sólveig varð fyrir þeirri miklu sorg á stríðsárunum, að missa mann sinn fyrir aldur fram. Þá syrti í álinn hjá henni og ungum syni hennar. Það varð hlutskipti hennar að sjá þeim farborða. Það tókst henni með miklum ágætum. Sonur hennar, Martin, reyndist móður sinni framúrskarandi vel. Hann var henni stoð og stytta alla tíð og síðar meir lagði tengdadótt- irin, Kristín Sigurðardóttir, ríkan hlut að máli. Dauði Sólveigar kom sem líkn við þraut. Nú er hún komin heim og heldur jól með horfnum ástvin- um. Við hjónin sendum Martin, fjöl- skyldu hans og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. „Ó faðir, gjör mig sigursálm eitt signað trúarlag, sem afli blæs í brotinn hálm og breytir nótt í dag.“ (M. Joch.) Blessuð sé minning Sólveigar. Sveinn Elíasson „Löng þá sjúkdómsleiðin verður, lífið hvergi vægir þér, þrautir magnast, þrjóta kraftar, þungt og sárt hvert sporið er, honum treystu, hjálpin kemur, hann af raunum sigur ber. Drottinn elskar, — Drottinn vakir, daga og nætur yfir þér.“ (S.Kr.P.) í dag miðvikudaginn 30. nóv- ember kl. 10.30 f.h., fer fram frá Fossvogskirkju útför föðursystur minnar, Sólveigar Árnadóttur Petersen. Sólveig hafði verið vistmaður á Hrafnistu DAS síðan 15. júlí 1977, en þar andaðist hún að morgni 22. þ.m. á 92. aldursári. — Á Hrafn- istu naut hún umhyggju elskulegs hjúkrunarfólks og lækna, sem gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að létta henni byrði hárrar elli, er kraftar þrutu og þungt og sárt hvert sporið varð en „verði, Drottinn, vilji þinn, vér oss fyrir honum hneigjum, hvort vér lifum eða deyjum, veri hann oss velkom- inn“. Sólveig fæddist á ísafirði 11. marz 1892 og voru foreldrar henn- ar hjónin Kristín Sigurðardóttir, Hafliðasonar sjálfseignarbónda i Hörgshlíð við Mjóafjörð og konu hans, Guðríðar Vigfúsdóttur, en systkini Guðríðar voru m.a. dokt- or Guðbrandur Vigfússon há- skólakennari í Oxford og Sigurður gullsmiður og fornminjafræðing- ur, og Árni Gíslason, riddari af f.o., formaður og útvegsmaður og um langt skeið yfirfiskimatsmað- ur á ísafirði, Jónssonar, dugnaðar formanns og útvegsmanns frá Ög- urnesi við Djúp. Börn Kristínar og Árna, auk Sólveigar, eru Þorsteinn (lést 1970), Bergþóra (lést 4. maí sl.), Ingólfur og Steinunn, er dó á fyrsta ári. Sólveig ólst upp í litla húsinu við Mjógötu við fjörðinn fríða, sem fjöllin há verja og prýða, við yndislegan Isafjörð. Þar lauk hún barna- og framhaldsskólanámi, umvafin elsku góðra foreldra í systkina- og vinahópi. í brjóstum flestra býr ávallt þrá til þess að skoða sig um í hinum stóra heimi og rættist sú ósk Sól- veigar líklega á árinu 1915, er hún og frænka hennar, Jóna Guð- mundsdóttir, er síðar varð yfir- hjúkrunarkona á Kópavogsspít- ala, fengu tækifæri til þess að sigla til Danmerkur til að mann- ast og menntast og kynnast siðum Minning: Þuríöur Jómdóttir frá Kalastöðum Fædd 7. nóvember 1889 Dáin 22. nóvember 1983 í dag fer fram útför Þuríðar Jónsdóttur frá Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju í Reykja- vík. Þuríður var dóttir hjónanna Jóns Þorsteinssonar frá Kambs- hóli í Saurbæjarsókn og Sesselju Jónsdóttur frá Ferstiklu á Hval- fjarðarströnd. Jón og Sesselja hófu búskap sinn á Kalastöðum og varð það þeirra æviheimili. Kala- staðir voru í þjóðbraut og var þar mjög gestkvæmt á stundum. Kala- staðir voru menningarheimili og var bókleg mennt þar í hávegum höfð. Mikill harðindakafli gekk yf- ir þetta land síðari hluta nítjándu aldar og í kjölfar þeirra harðinda fæðist Þuríður inn í þennan heim. í þessu andrúmslofti vex Þuríður úr grasi, á heimili þar sem menn- ingarlífið er þungamiðjan, en ytri kjörin eru kröpp. Þuríður var eitt ellefu barna þeirra Kalastaða- hjóna. Þrjú dóu í bernsku. Er Þuríður var ung stúlka flutt- ist hún til Reykjavíkur og var þar í vist, eins og þá var alsiða. Þuríð- ur réðst til hjónanna Eggerts Briem og Katrínar Thorsteinsson í Viðey. Tók hún miklu ástfóstri við þessi sæmdarhjón og var ætíð mikill innileiki og kærleiki á milli hennar og fjölskyldu Viðeyjar- hjóna. Þau vináttubönd slitnuðu aldrei og fram á hinstu kveðju- stund þessa lífs naut hún yls kær- leika þessarar fjölsyldu. Á Viðeyj- arárum sínum kynntist Þuríður eiginmanni sínum, Oddi Ólafssyni, fæddum á Leirá í Leirársveit. Þau gengu í hjónaband 14. maí 1919. Börn þeirra hjóna urðu fimm. Katrín, giftist Davíð Þorsteins- syni, þau eru bæði látin; Þor- steinn, kvæntur Sigurbjörgu Ein- arsdóttur; Gísli, kvæntur Sigur- björgu Steindórsdóttur; Halldór, kvæntist Fanneyju Magnúsdóttur, hann er látinn; Alfreð ólafur, kvæntist Rakel Magnúsdóttur og er hann látinn. Kreppuár voru á íslandi flest sambúðarár þeirra Þuríðar og Odds og festu þau hvergi varan- legar rætur með heimili sitt. Hjúskap sinn hófu þau á Hamra- endum í Stafholtstungum. Þau höfðu viðkomu í Innri-Njarðvík og í Hafnarfirði. Síðustu ár samvista sinna bjuggu þau á Kjalarnesi, en þau slitu samvistir. Alla tíð síðan átti Þuríður heimili í Reykjavík. Þuríður ól upp dótturdóttur sína, Guðrúnu Agústsdóttur, og bar kærleika til hennar sem eigin dóttur. Þuríður var vinnusöm með af- brigðum og féll aldrei verk úr hendi. Hún var mikil hannyrða- kona og var athafnasöm á því sviði. Þuríður átti stóran vinahóp, enda var hún trygglynd, fjölfróð og ræðin. Þegar ég lít til baka yfir þau kynni sem ég hafði af ömmu minni, stendur mér skýrt fyrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.