Morgunblaðið - 30.11.1983, Side 48
Bítlaæðiðy^y
HOLUWOOD
Opiö
öll kvöld
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1983
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Slippstöðin á Akureyri:
60 af 270 starfe-
mönnum sagt upp
SLIPPSTÓÐIN hf. á Akureyri hefur
sagt upp um 60 af 270 starfsmönnum
fyrirtækisins vegna fyrirsjáanlcgs
verkefnaskorts, að því er Gunnar
Kagnars forstjóri Slippstöóvarinnar
staðfesti í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkvöldi. Sumir
starfsmannanna voru að sögn Gunn-
ars með mánaðar uppsagnarfrest, en
aðrir með tveggja mánaða, en ákveð-
ið hefur verið að láta jafnt yfir alla
ganga og er þeim sagt upp með
þriggja mánaða fyrirvara. Starfs-
mennirnir hafa því vinnu út febrú-
armánuð, og Gunnar Kagnars sagði
að fólkinu hefði verið tilkynnt, að
allt yrði gert til að afla Slippstöðinni
verkefna, svo ekki þurfi að koma til
uppsagnanna.
Gunnar Ragnars sagði, að
smám saman hefði verið að síga á
ógæfuhliðina, og því færi fjarri að
uppsagnirnar þyrftu að koma á
óvart. Starfsmenn Slippstöðvar-
innar hefðu verið um 300 talsins,
en hefði að undanförnu fækkað
smám saman í 270, og fækkaði nú
í 210 ef uppsagnirnar kæmu til
framkvæmda. — í upphafi bæj-
arráðsfundar á Akureyri í gær
komu fulltrúar starfsmanna í
Slippstöðinni með undirskriftir
209 starfsmanna, þar sem skorað
Islenskt
ilmvatn
á markað
ÍSLKNSKT ilmvatn, „Vatn hinna bláu
fjalla á lslandi“ eins og franska heitið
útleggst, kemur á markað í næstu
viku.
Stefnt er að útflutningi á því og
hafa aðilar í mörgum löndum sýnt
ilmvatninu nýja áhuga. Framleið-
andi er fyrirtækið Nyco, sem rekið
er af Jóhanni Jakobssyni efnaverk-
fræðingi og sonum hans tveimur.
Sjá bls. 12.
Forsetakjör
á næsta ári?
Margir hafa
leitað eftir
að ég gefi
kost á mér
— segir Albert
Guðmundsson
„l>AÐ er rétt að það hafa þó
nokkuð margir aðilar leitað
eftir því við mig, að ég gefi
kost á mér til forsetakjörs,
en ég hef ekkert íhugað mál-
ið,“ sagði Albert Guðmunds-
son, fjármálaráðherra, að-
spurður um hvort hann hygð-
ist gefa kost á sér til kjörs
forseta íslands á næsta ári.
Kjörtímabil forseta hefst
1. ágúst og endar 31. júlí að
fjórum árum liðnum, sam-
kvæmt 6. gr. stjórnarskrár
íslenska lýðveldisins. Þar
segir og að forsetakjör eigi
að fara fram í júní eða júlí-
mánuði það ár, er kjör-
tímabil endar. Kjörtímabil
Vigdísar Finnbogadóttur,
forseta Islands, rennur út
31. júlí 1984.
var á bæjarstjórn að sjá til þess að
Útgerðarfélag Akureyringa semji
við Slippstöðina um nýsmíði á tog-
ara. Það mál hefur lengi verið í
deiglunni á Akureyri og í gær-
kvöldi sagði Helgi M. Bergs í sam-
tali við Morgunblaðið að málið
væri til umræðu í bæjarstjórn og
á mjög viðkvæmu stigi. Ljóst er að
verði að smíði nýs togara fyrir ÚA
mun verulega horfa til betri vegar
hjá Slippstöðinni að sögn Helga,
sem sagðist annars ekki vilja tjá
sig frekar um málið að svo komnu.
„Þetta er búið að blasa við frá
því í sumar," sagði Gunnar Ragn-
ars, „en við ákváðum að hanga á
þessu eins lengi og hægt var. Fyrir
mánuði síðan var þetta rætt mjög
ítarlega, en þá ákveðið að reyna
meira, og nokkur mál hafa verið í
athugun. Við höfum jafnvel verið
tilbúin til að taka nokkra áhættu
til að halda mætti starfseminni
gangandi. Þetta er vandasamur
rekstur, og við erum með gott og
vel þjálfað starfsfólk, sem við vilj-
um ekki missa. Þetta er annað og
meira en vélar sem settar eru í
gang og slökkt á eftir þörfum. Við
höfum því gert allt til að halda í
þetta fólk, og það er fokið í öll
skjól þegar við tökum svona
ákvörðun og hún er ekki tekin með
glöðu geði,“ sagði Gunnar.
Sjósettir í Póllandi
Vestmannaeyjum.
NÝLEGA VAR sjósett í Póllandi síðara skipið sem Samtog sf. er að láta
smíða þar. Var skipinu gefið nafnið Halkion VE. 105. Fyrra skipið var
sjósett í byrjun óktóber og hlaut nafnið Gideon VE. 104. Hrói hf. í
Olafsvík á einnig samskonar skip í smíöum í Póllandi og verður það
sjósett í byrjun janúar á næsta ári. Skip þessi eru um 200 brúttólestir að
stærð.
Gideon verður afhentur eigendum síðari hluta janúarmánaðar og
Halkion um mánuði síðar. Meðfylgjandi myndir voru teknar af hinum
nýju skipum Samtogs við sjósetningu þeirra. _
Virðisaukaskattsfrum-
varpi var dreift sem
handriti á Alþingi í gær
Án skuldbindinga fyrir stjórnarliöiö, segir fjármálarádherra
ALBEKT Guðmundsson, fjármála-
ráðherra, dreifði til þingmanna á
Alþingi í gær prentuðu handriti að
frumvarpi til laga um virðisauka-
skatt. Vakin er athygli á því í fylgi-
bréfi frá ráðherranum að af hálfu
Launaforsendur fjárlagafrumvarpsins brostnar:
Engar almennar Iauna-
hækkanir á næsta ári
—segir Sverrir Hermannsgon,- iðnaðarráðherra
„LAUNAFORSENDUR fjárlaga
frumvarpsins fyrir árið 1984 eru
brostnar. Við höfðum áður en við
fengum upplýsingar um ástand
þorskstofnsins gert ráð fyrir 6% al-
mennum launahækkunum og sú tala
er í launaforsendum fjárlagafrum-
varpsins. Þessi tala fer nú niður í
núll,“ sagði Sverrir Hermannsson,
iðnaðarráðhcrra, í viðtali við blm.
Mbl. í gær.
Sverrir sagði að þetta væri hin
kalda staðreynd, ekkert væri til
skiptanna og pvi jT?!1 enKar aÞ
mennar launahækkanir á næsia
ári. Hann sagði að aftur á móti
yrði reynt að huga að þeim sem
verst væru settir með skattatil-
færslum eða öðrum leiðum.
ríkisstjórnarinnar hafi ekki verið
tekin afstaða til málsins í heild, né
til einstakra þátta þess. Þessi fram-
lagning virtist koma samráðherrum
fjármálaráðherra, sem Mbl. ræddi
við f gærkvöldi, á óvart, og sagði
einn ráðherra Framsóknarflokksins
m.a. að hann hefði skilið afgreiðslu
mála í ríkisstjórn í gærmorgun á
þann veg, að ætlunin væri að leggja
fram stjórnarfrumvarp um virðis-
aukaskatt á Alþingi á næstu dög-
um.
í fylgibréfi handritsins er m.a.
sagt, að ríkisstjórnin hafi ekki
tekið afstöðu til skattskyidusviðs,
skatthlutfalls, uppgjörsaðferða
og greiðslutímabila. Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra,
sagði í viðtali við Mbl. í gær, að
mál þetta væri það umfangsmik-
ið, að hann hefði tekið þá
ákvörðun að leggja strax fram
þetta hanaiiv ÍÍ1 aö þ'ngmenn og
nefndir gætu hafið Rðniiú’" mals'
ins, en þetta væri lagt fram án
skuldbindinga fyrir stjórnarliðið.
Síðan reikna ég með að leggja
þetta fram mjög fljótlega, og það
getur verið að það verði strax eft-
ir helgi,“ sagði hann.
Málið hefur verið til meðferðar
í þingflokkum stjórnarliða und-
anfarið og samkvæmt heimildum
Mbl. hefur ýmislegt komið fram í
þeirri umfjöllun sem þótt hefur
kalla á nánari athugun. Fjár-
málaráðherra sagði einnig í gær,
að frumvarpsdrögin væru ekki
samþykkt af þingflokkunum.
Tvö
uðu
skip lönd-
í Englandi
TVÖ fiskiskip lönduðu afla sínum í
Englandi í gær. Sigurfari II seldi 107
lestir í Grimsby fyrir 3.357 þúsund
krónur, meðaiverð á kíló 31,37 krón-
■•r. Óskar Halldórsson RE seldi 49
Íestir í Huii .f;rir h247J»™ad kró"-
ur, meðalverð á kiló 2a,-. kronur