Morgunblaðið - 13.12.1983, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 13.12.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983 5 Hjálparstofnun kirkjunnan Landssöfnun stendur yfir Til að takmarkið náist þarf hver íslending- ur að leggja 20 krónur til söfnunarinnar Ljósm. Mbl. RAX. Guðmundur Einarsson og Gunnlaugur Stefánsson hjá Iljálparstofnun kirkjunnar. Gunnlaugur heldur á fisktöflu eins og þeim sem greint er frá í fréttinni. Slík tafla vegur aðeins 30 grömm, en inniheldur eggjahvítu- efni, sem fullnægir þörf manns í 24 klukkustundir. FISKTÖFLUR, úr malaðri skreið, eru nú framleiddar á vegum Hjálp- arstofnunar kirkjunnar. Hver tafla, sem vegur um 30 grömm, kostar í framleiðslu tvær krónur og fullnægir ein tafla af þessari gerð eggjahvítuþörf manns í einn sólarhring. Þetta var meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi, sem Hjálparstofnunin efndi til í síð- ustu viku. Þar kom einnig fram að fjársöfnun stendur nú yfir og hafa bæklingar frá Hjálpar- stofnuninni verið sendir til allra heimila á landinu. Með þeim fylgja söfnunarbaukur og gíró- seðill. 20 krónur á mann „Við stefnum að því að safna fjármagni til að geta sent eina milljón matarskammta til þurrkasvæðanna í Afríku. Til að Íað takmark náist, þyrfti hver slendingur að leggja 20 krónur til söfnunarinnar," sagði Gunn- laugur Stefánsson, fræðslu- fulltrúi Hjálparstofnunar kirkj- unnar. Gunnlaugur sagði einnig að hreint neysluvatn væri óþekkt á stórum svæðum í Afríku. „Ein borhola getur séð 1000 til 2000 manns fyrir hreinu vatni og upp- rætt landlæga sjúkdóma og kostnaður við uppsetningu einn- ar borholu með dælubúnaöi er um 100.000 krónur." Gunnlaugur sagði að fisktöfl- urnar væru hagkvæmar í flutn- ingi og auðveldar í dreifingu á hjálparsvæðunum, til dæmis á þurrkasvæðunum í Eþiópíu. Hann sagði einnig að þær væru ekki bragðvondar, „þær eru svip- aðar og harðfiskur á bragðið". Hlupu um og léku sér eftir viku Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnun- arinnar, sagði frá því á fundi með blaðamönnum, að fyrir nokkru hefðu skammtar af fisk- töflunum verið sendir til Eþiópíu. „Þar voru börn, sem lágu á sjúkrahúsi, mjög þjáð af eggjahvítuskorti og gátu sig tæpast hreyft. Þeim var gefinn dagskammtur af áðurnefndum töflum og eftir eina viku voru þessi sömu börn farin að hlaupa um og leika sér.“ Guðmundur sagði að síðastlið- ið haust hefðu verið send 40 tonn af þurrkuðum saltfiski til Ghana og hefði Hjálparstofnuninni ver- ið tjáð að hann hefði komið að miklu gagni. „Nýlega fengum við skeyti, þar sem við vorum beðnir um að sendá nokkur hundruð tonn til viðbótar, því ástandið þar væri mjög slæmt vegna þurrka." Fastur þáttur í jólaundirbúningnum Guðmundur gat þess, að það sem af væri árinu hefðu afurðir að heildarverðmæti 30 milljónir króna verið sendar frá Hjálpar- stofnuninni til nauðstaddra í þróunarríkjunum og hefði það verið í samstarfi við íslenska matvælaframleiðendur og ríkis- valdið. Hann sagði ennfremur að um 700 manns væru fastir styrktarmeðlimir og legðu að mörkum framlög til hjálpar- starfsins ársfjórðungslega. „Og sóknarprestar leggja eitt pró- sent af launum sínum til hjálp- arstarfsins. Þátttaka landsmanna í lands- söfnun Hjálparstofnunarinnar er orðinn fastur þáttur í jóla- undirbúningnum. Neyðarköll um hjálp hafa sjaldan fyrr verið jafn mörg og alvarleg, en við treystum því að fólk taki söfnun- arbaukum og gíróseðlum okkar vinsamlega og taki þátt í söfnun- inni með því að koma baukunum til skila dagana fyrir jól.“ Því fjármagni sem safnast í baukinn má koma til skila með gíróseðlum í bönkum, sparisjóð- um eða póstafgreiðslu, án til- kostnaðar. Ennfremur taka sóknarprestar, skrifstofa Hjálp- arstofnunarinnar og Kirkjuhús- ið að Klapparstíg 27 í Reykjavík, við söfnunarbaukum og fjár- framlögum. Hernámsljóð - ný Ijóðabók eftir Gylfa Gröndal Morgunblaðinu hefur borist ný Ijóðabók eftir Gylfa Gröndal, Hernámsljóð. Þetta er fjórða Ijóða- bók skáldsins, en hann er einnig kunnur fyrir samtalsbækur sínar við merka íslendinga. Fyrri ljóðabækur Gylfa eru Náttfiðrildi 1975, Draumljóð um vetur 1978 og Döggslóð 1979. Það Gylfi Gröndal er Setberg sem gefur út þessa nýju ljóðabók skáldsins. Af Hernámsljóðum, sem er 61 blaðsíða að stærð, auk efnisyfir- lits, eru prentuð 150 tölusett ein- tök, sem höfundur hefur áritað. Bókin er prentuð í Prentbergi hf., en kápumynd er eftir Magn- ús Tómasson. JNÚMER _m EITT ¥9 HJÁ auto motor AÐ GEFNU TILEFNI VILJUM VIÐ BENDA BILAKAUPENDUM Á AÐ LESA ÞESSAR NIÐURSTÖÐUfí í BÍLAPRÓFUN HJÁ HINUM GAGNRÝNU ÞJÓÐVERJUM. AUÐVITAÐ ER UNO FREMSTUR í samanburöi á sex smábilum hjá hinu virta þýska bilablaði AUTO MOTOR UND SPORT var FIAT UNO i fyrsta sæti. Meðaleinkunn bil- anna úr þeim 25 atriðum sem prófuð voru varð þessi: FIA T UNO 8.62 VW POLO 8.50 PEUGOT 205 8.02 OPEL CORSA 7.72 FORD FIESTA 7.18 NISSAN MICRA 6.64 UMSÖGN UM EFSTA OG NEÐSTA BÍLINN - þetta eru dómar hinna gagnrýnu þjóðverja. FIA T UNO: ,,Sterkustu hliöar UNO eru hið pláss- mikla farþega- og farangursrými og frábærir aksturseiginleikar. Auk þess getur maður verið mjög ánægður með þægindi bilsins og vélargæði." NISSAN MICRA: „Eiginleikar MICRA valda vonbrigðum. Þó þetta sé glænýr bill eru það einungis eyðslan, verðið og auka- búnaðurinn sem maður getur fellt sig við." FIAT ER ENDURSÖLUBÍLL NÚMER EITT EGILL VILHJÁLMSSON HF. UNOsparakstur;meðaltal3.9lítrarsá besti3.7 Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202 Ford Fiesta 1.1 L 359 Pnnkte Ein kraftvoller Motor, Temperament und gute Verartoeitong - das sirni die wesentlichen Vorzúge des Fiesta. dem man ansonsten deutlich anmerkt. daR er in die Jahre gekommcn ist. Peugeot 205 GR 401 Punkte Im Komfort schlagt der Franzosc dic Konkurrenten. auch seine viertiirige Ka- rosserie bietet hand- feste Voraöge. Mit den Fahrleistungen ist es jedoch nicht weit her. Nissan Micra GL 332 Punkte Dic Kigenschaftcn dcs Micra sind cnttöuschend. Obgleich er cin hrandnen es Auto ist. kann er nur ir Verbrauch, Preis und Ausstattung gefallen. Opel Corsa 1.2 S 386 Punkte Gute Fahrleistungen und Motoreigen- schaften zcichncn den Corsa aus. Ka- rosseric und Fahr- werk können höhe- ren Anspritchen nicht genngen. VW Polo C 425 Punkte Die magere Serienausstattung nnd der relativ bohe Verbranch haben den Polo wertvolle Punkte gekostet. Er ist gut verarbeitet, tcmperamcntvoll und agil. Fiat Cno 55 Super 431 Punkte Das gúnstigc Raumangcbot und ausgezeichnete Fahreigenschaften sind herausragcnde Pluspunkte des llno. Mit dem Komfort und seinen Motorqnalitaten kann man ebenfalls sehr zufrieden sein,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.