Morgunblaðið - 13.12.1983, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
11
FASTEIGNASALAN
SKÓLAVÖROUSTlQ 14 Í. h*ð
Síöumúli
Atvinnuhúsnæði - Síðumúli -
Atvinnuhúsnæði
Götuhæð ca. 200 fm með miklu
útstillingargluggum. Skemmti-
legt og gott pláss sem hentar
flestum greinum atvinnurekst-
ur. Verð ca. 3,2 milljónir.
Auöbrekka
Atvinnuhúsnæði - Auðbrekka
— Atvinnuhúsnæði
1. haeö jarðhæð ca. 300 fm
glæsilegt húsnæöi. Tilvalið fyrir
verslunar-, iðnaðar- eöa skrif-
stofuhúsnæði. Verö ca. 4,5
millj.
Vantar — Skipti
Vandað stórt og skemmti-
legt einbýlishús. Verðhug-
mynd 7—8 millj. Skipti
koma til greina á mjög
skemmtilegu húsi í Garöa-
bæ með arinn, sána og hita-
potti.
Leifsgata
Sala — Skipti
Parhús, kjallari, hæö og ris
(3x70 fm). Á 1. hæð eru 3 stofur
og eldhús. 2. hæð: 3 svefnherb.
og bað. I kjallara: þvottahús,
sána, salerni, geymsla og 2
svefnherb. Óska eftir einbýlis-
húsi, raðhúsi eða sérhæð. Einn-
ig kæmi bein sala til greina.
Kópavogsbraut
5 herb. íbúö i tvíbýli (1. hæö).
Bílskúrsréttur fyrir tvöfaldan
bílskúr. Húsið er forskalaö
timburhús sem búið er að
klæöa meö járni frá Garöastál.
Verð ca. 1,6—1,7 millj.
Vantar
Höfum fjársterka kaupendur
aö sérhæðum. Ýmsir skipta-
möguleikar koma til greina
á bæði dýrari og ódýrari
•ignum.
Spóahólar
Glæsilegt fullbúiö 3ja herb.
ibúö með sérsmíðuöum innrétt-
ingum. Ljós teppi, góðir skápar
í herbergjum og holi. Verð
1.450—1.500 þús.
Skólavörðustígur —
Skipti — Sala
Skemmtileg 3ja herb. íbúö ca.
85 fm ofarlega viö Skólavörö-
ustíg. Æskileg skipti á eldra
húsnæöi sem mætti þarfnast
lagfæringar. Vmislegt annað
kæmi til greina. Verö ca. 1.450
þús.
Vantar
Eldra húsnæöi miðsvæðis i
bænum. Má þarfnast lag-
færingar.
Nesvegur
3ja herb. ca. 77 fm íbúð á 2.
hæö. Laus í byrjun janúar. Verð
ca. 1,2 millj.
Mávahlíö
2ja herb. ca. 70 fm mikið
stands. íbúö á jaröhæð. Æskil-
eg skipti á 4ra herb. íbúö helst
með bílskúr miösvæöis. Verö
ca. 1,2 millj.
Álftamýri — Skipti
Skemmtileg 54 fm 2ja herb.
íbúö á 4. hæö. Skipti á 3ja—4ra
herb. íbúö miösvæðis. Verð
1.150 þús.
Vantar
Vegna mikillar sölu undan-
farið vantar okkur 2ja, 3ja,
4ra og 5 herb. ibúöir á öllu
höfuðborgarsvæöinu.
Skoðum og verðmetum
samdægurs.
Sími 27080
15118
Helgi R. Magnússon lögfr.
^m—mmmmammmJ
81066
Leitib ekki langt yfir skammt
31066
Leitid ekki langt yfir skammt
BOÐAGRANDI - 3JA HERB.
85 fm glæsileg ibúð á 3. hæð í nýrri btokk. Suöursvalir. Góðar
innréttingar. Ákv. sala. Útb. 1250 þús.
HúsafeÍ! Húsafell
FASTEIGNASALA Langholtsvegi 115
( Bæ/arleióahusinu ) sirru 8 10 66
Aóalsteinn Pétursson
Bergur Guönason hdl
FASTEIGNASALA Langholtsvegi 115
( Bæ/arleióahustnu ) simi■■ 8 1066
Aóalsteinn Pétursson
Bergur Gu&nason hd>
i ttovgtsnttbifrife
*' Metsöluhlad á hverjum degi!
FJARMÁLARÁÐGJÖF
■W'.-'r'rp
v NY ÞJONUSTA..,
í REKSTRI FJÁRFESTINGARFÉLAGS ÍSLANDS
HF.
Gunnar Helgi Hálfdánarson, cand. oceon, MBA
Framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélags (slands hf.
Agætu viðskiptavinir,
Fjárfestingarfélag íslands var stofnað árið 1971 með heimild
í lögum frá Alþingi nr. 46, 1970.
Að stofnun þess stóðu margir öflugir aðilar á öllum sviðum
atvinnulífsins s.s. fjárfestingalánasjóðir, lífeyrissjóðir, bankar
og stórfyrirtæki.
Markmið félagsins er að beita sér fyrir nýjungum í atvinnu-
lífinu og stuðla að betri nýtingu fjármuna og fjármagns og þar
með heilbrigðara fjármálalífi landsmanna. I því skyni hefur
það m.a. staðið að rekstri leigukaupastarfsemi, verðbréfa-
markaðar Fjárfestingarfélagsins, Frjálsa lifeyrissjóðsins og
Fasteignamarkaðar Fjárfestingarfélagsins hf.
Síðastnefnda þættinum í starfsemi félagsins, var ætlað að
kynna sveigjanlega greiðsluskilmála á fasteignamarkaðin-
um, þannig að kaupendur og seljendur með frábrugðnar óskir
um greiðsluskilmála gætu átt viðskipti saman.
Frá stofnun hefur Fasteignamarkaður Fjárfestingarfélagsins
náð umtalsverðum árangri á þessu sviði með hjálp vaxandi
verðbréfaviðskipta hér á landi. Þörfin fyrir sveigjarilega
skilmála hefur komið skýrt fram á undanförnum árum, ef
dæma má af móttökum þeim, sem þessi nýjung fékk.
Á starfsævi Fasteignamarkaðar Fjárfestingarfélagsins hf.,
hafa mörg hundruðir eigna verið seldar, þar af um 2/3 á
kjörum, sem ekki höfðu þekkst áður eða u.þ.b.:
50% af kaupverði útborguð
50% af eftirstöðvum kaupverðs lánuð á
verðtryggðum kjörum til 10-20 ára
á 3% vöxtum.
Ljóst er, að með þessum leiðum var leystur vandi margra,
sem ekki höfðu áður getað átt viðskipti saman samkvæmt
þeim ósveigjanlegu og stífu kjörum, sem of algeng hafa verið
í fasteignaviðskiptum á undanförnum árum.
Til marks um þann árangur, sem náðst hefur, hafa nú fleiri
fetað i fótspor félagsins í þessum efnum. Jafnframt hyggjast
nú 2 af sölumönnum Fasteignamarkaðar Fjárfestingarfélags-
ins hf., gerast atvinnurekendur og setja upp sína eigin
fasteignasölu. Að mati okkar hjá Fjárfestingarfélagi Islands er
þessi þróun ánægjuleg og er þessum aðilum óskað góðs
gengis í framtíðinni.
Með hliðsjón að markmiðum Fjárfestingarfélags íslands hf.
og hinum öru breytingum í atvinnulífinu, er mikilvægt fyrir
félagið að vera sveigjanlegt í fjárfestingum sínum og
starfsemi. Nú, þegar félagið telur, að ísinn sé brotinn í
þessum efnum, hefur það því ákveðið að hætta rekstri
fasteignasölu og einbeita kröftum sínum að frekari nýjungum
í atvinnumálum og fjármálalífinu.
I samræmi við þennan ásetning hefur stjórn Fjárfestingar-
félags Islands hf., ákveðið að dótturfélag þess, Fasteigna-
markaður Fjárfestingarfélagsins hf., sameinist móðurfélaginu
og mun sjálfstæðri tilvist dótturfélagsins þar með Ijúka. Var
því beinni miðlun við kaup og sölu fasteigna hætt frá og með
föstudeginum 9. desember 1983.
Þess í stað mun Fjárfestingarfélag Islands bjóða óháða og
hlutlausa fjármálaráðgjöf á breiðu sviði, sem styðjast mun við
sérþekkingu félagsins á fjármálasviðinu. Munu traust og
fagleg vinnubrögð vera kappkostuð.
Fjármálaráðgjöf þessari er ætlað að fara inná fjölmörg svið
einka- og fyrirtækjafjármála í framtíðinni. Markmiðið með
henni er að efla upplýsingar á markaðinum og stuðla þannig
að rökréttri markaðsverðmyndun fjármuna og fjármagns hér
á landi.
I upphafi mun fjármálaráðgjöf Fjárfestingarfélagsins fara af
stað með fasteignaráðgjöf þann 19. desember n.k. Þar munu
fyrirtæki, fasteignasalar og einstaklingar geta notið góðs af
sérþekkingu félagsins á fjármálasviðinu. Mun fasteignaráð-
gjöfin einkum felast í eftirfarandi:
1. Aðstoð við að meta áhrif greiðsluskilmála á raunvirði það
sem um er að ræða við kaup og sölu fasteigna. I þessu felst
m.a. aðstoð við tilboðsmat og tilboðsgerð.
2. Mat á hagkvæmni fasteignakaupa samanborið við leigu
eða fjárfestingu í öðrum fjármunum.
3. Útleigu og viðhald á tölvutækum hugbúnaði sem auð-
veldað getur fasteignasölum að bjóða uppá sveigjanlega
greiðsluskilmála á sama hátt og félagið hefur gert á
undanförnum árum. Er markmiðið hér að aðstoða markaðinn
við að taka upp heppilegar markaðsvenjur og veita honum
faglegan stuðning og ráðgjöf í þeim efnum.
Pétur Þ. Sigurðsson hdl. og hagfræðingar félagsins munu
annast fasteignaráðgjöfina.
Um leið og félagið vill bjóða einstaklingum og fyrirtækjum
þjónustu þess, vill það þakka viðskiptavinum Fasteignamark-
aðar Fjárfestingarfélagsins viðskiptin á liðnum árum og
benda þeim á, að móðurfélagið yfirtekur allar skuldbindingar
hans og mun því ábyrgjast og uppfylla þær allar. Er þeim
viðskiptavinum sem eiga ólokið málum, því bent á að snúa
sér til aðalskrifstofu félagsins, sem aðsetur mun hafa að
Skólavörðustíg 11, Reykjavík, sími 28466. Fjármálaráðgjöf
Fjárfestingarfélagsins verður veitt á sama stað.
FJÁRFESTl NGARFELáG
tSLANDS HF