Morgunblaðið - 13.12.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
15
Opið bréf
til iðnaðarráðherra, Sverris Hermannssonar
- eftir Jónas
Pétursson
Heill og sæll Sverrir!
Nýlega var eftir þér haft í út-
varpi hverju þú svaraðir fyrir-
spurn á Alþingi um Suðurlínu.
Akveðið væri að ljúka henni á
næsta ári og það væri nauðsyn
austfirskra raforkunotenda að
tryggja þeim þannig ca. 14 mega-
vött í varaafli. Ég hrökk ónotalega
við, hafði búist við því af þér að þú
lofaðir möstrunum, sem komin
eru, að standa eitthvað sem verð-
uga minnisvarða um þá ófyrir-
leitnu óstjórn er að baki stendur.
Ég hefi viljað trúa því að upp sé
runnið fyrir þér að með Suðurlínu
á að ná til fulls valdi á öllum
hreyfingum í orkumálum Austur-
lands. Öll sjálfsbjargarviðleitni
skal drepin! Skilyrði rafvirkjana á
heimslóðum hundsuð, sem þó æpa
á íbúana um allar jarðir. Þann
þátt sjálfstæðismála byggðanna,
sem nú er orðinn stærstur! Já,
jafnvel 150 milljónir, sem þó eru
ekki til — skulu í þetta með illu
eða góðu — og tilgangurinn er í
raun að drepa austfirskt frum-
kvæði í orkuöflun.
Kröflulína var einu sinni byggð
til að bjarga orkumálum hér — á
þeim árum er sjónhverfingaleikur
Orkustofnunar var kominn á svið
til að hindra virkjanir á Austur-
landi. Hún er til og getur flutt,
líklega að magni, allt það raf-
magn, sem Austfirðingar nota um
þessar mundir. Við þetta bætist að
Kröflurafmagn hefir verið að
vissu leyti á svörtum lista. Eins og
níðangurinn, sem lengi var uppi
um Kröflu vegna eldsumbrotanna,
skuli sem lengst lifa. Svona
„Ætlar þú aö stuðla að
því aö takist að drekkja
vonum og vilja Austfirð-
inga í Rauðahafi Hjör-
leifs Guttormssonar?“
flumbruháttur í raforkustjórn
ætti ekki að ske í þinni tíð!
Hræðsla við bilun á Kröflulínu
furðuleg nú. Og ósvífnust úr
munni þeirra sem barist hafa
fyrir línum í staö virkjana.
Auðvitað getur Kröflulína bilað.
En hvað þá um Suðurlínu? Nei,
nei, nei, Sverrir! Nú á orkuráð-
herra að tryggja aukið fé í
orkuöflun hjá Kröflu og slá því
þar með föstu að þar sé baktrygg-
ing Austfirðinga — á meðan virkj-
að er á Austurlandi. Þú átt að beita
þér fyrir að Seyðfirðingar, með
aðstoð frá Austfirðingum í heild,
virki Fjarðará. Brjóta þar með af
Austfirðingum bannið við
sjálfsbjörg í raforkuöfiun. Á Suð-
urfjörðum á einnig að virkja.
Fljótsdalsvirkjun er sýnilega ýtt
aftur. Sjónhverfingalist orku-
valdsins og alþingismanna hefur
dugað til að sussa á Austfirðinga.
Rakvatnssamlíking þín um Bessa-
staðaá talin hafa hjálpað þar til,
ekki saklaust að vera neyðarlegur
í orði stundum. Með vitsmunum
og slægð verður mörgu til leiðar
komið, bæði illu og góðu. Ætlar þú
að stuðla að því að takist að
drekkja vonum og vilja Austfirð-
inga í Rauðahafi Hjörleifs Gutt-
ormssonar?
En nú vakna mér ýmsar spurn-
ingar í huga!
1. Hver er orðinn rannsóknar-
Mezzoforte í
Ronnie Scott’s
- eftir Jón Kaldal
Föstudagskvöldið 3. og laugar-
dagskvöldið 4. des. urðum við
nokkrir félagar vitni að tónlist-
arviðburði á heimsmælikvarða.
Við vorum staddir í jassklúbbi
Ronnie Scott í London. Á sviðinu
stóð íslenska hljómsveitin Mezzo-
forte og lék hún af slíkri fimi og
95% af umframfjárþörf, fær hann
1.999 kr. til húsaleigu. Athygiis-
vert er að leiga á einstaklings-
herbergi á Gamla Garði er 2.300
kr. og talin ódýr miðað við hinn
almenna leigumarkað. Það sem er
þó enn athyglisverðara er, að í
þingmannslaunum fyrir þingmenn
utan af landi, er innifalinn leigu-
húsnæðiskostnaður upp á 7.500 kr.
á mánuði, eða 57,7% af fram-
færsluupphæð þeirri sem náms-
maður fær. Það er undarlegt þeg-
ar á það er litið að t.d. Árni býr í
eigin húsnæði í Reykjavík, þótt
hann heiti þingmaður utan af
landi og held ég að hann ætti að
líta sér nær þegar hann er að bera
saman laun og lán eða laun og
laun og væri athyglisvert að sjá
tölurnar sem út kæmu ef hann
færi að bera sín eigin kjör saman
við kjör hinna lægst launuðu, og ef
hann bæri saman sín kjör og kjör
námsmanna. Áreiðanlega fengjum
við raunhæfari mynd af því „hróp-
andi óréttlæti" sem ríkir í þessu
þjóðfélagi en 30% óréttlætið hans
Árna gefur til kynna.
innlifun að enginn viðstaddra varð
ósnortinn, enda létu áheyrendur
hrifningu sína óspart í ljós.
Fyrir þá sem ekki þekkja til þá
er Ronnie Scott’s einn virtasti
jassklúbbur í heiminum. Telja
skærustu stjörnur jassins það
mikinn heiður að fá að leika þar.
Ameríkanar segja um hann:
„Ronnie Scott’s er besti jassklúbb-
ur í heiminum utan Ameríki." Það
að verða þess heiðurs aðnjótandi
að spila á svona stað er hreinlega
staðfesting á því að drengirnir eru
komnir í „meistaraflokk" og opnar
það þeim ýmsar dyr í tónlistar-
heiminum sem ekki standa opnar
hverjum sem er.
Prógrammið sem Mezzoforte
bauð uppá var eigin tónverk
ásamt klassískum jassópusum, og
verður ekki annað sagt en að það
hafi farið vel á með gamla grunn-
inum og nútíðinni. Mín eyru sögðu
mér að bebop-ið sé farið að
þrengja sér af enn meiri krafti inn
í músik Mezzo en það gerði áður.
Jazzleikarar heimsins hafa nú í
ríkum mæli tekið sér fyrir hendur
að endurreisa bebop. Þeir spila
það með ívafi af þvi sem hefur
gerst í jassinum frá bebop-tíma-
bilinu. Verður eflaust athyglisvert
að fylgjast með því hvernig sú
tónlist þróast. Éf ég reynist
sannspár þá mun Mezzoforte vera
með í þessum hópi.
Um félaga hljómsveitarinnar
ætla ég ekki að fjölyrða. Ég vil
aðeins segja að hver og einn þeirra
hefur náð mjög miklum þroska á
sitt hljóðfæri og þeir sameiginlega
sem hljómsveit.
Jónas Pétursson
kostnaður frá byrjun á svæði
Bessastaðaár og Fljótsdals-
virkjunar? Er áætlunarkostn-
aður „blekkingavirkjana" með-
talinn? Verður þessi kostnaður
með framreiknun talinn með
virkjunarkostnaði Fljótsdals-
virkjunar? (Segjum um alda-
mótin.j Er enginn rannsóknar-
kostnaður á þessu sviði sem til-
heyrir og er færður á Orku-
stofnun?
2. Hver er, til samanburðar,
heildarrannsóknarkostnaður
Þjórsárvirkjana frá upphafi?
Er einhver kostnaður þar færð-
ur á Orkustofnun?
3. Hver er vaxtakostnaður og
fjármagnskostnaður svo-
nefndra byggðalína hjá ríkis-
sjóði 1983? Þar af á Vestfjarða-
línu og í öðru lagi Kröflulínu
frá Kröflu til Skriðdals?
4. Hver er vaxtakostnaður og
fjármagns- af Kröfluvirkjun
1983? Hver var orkuframleiðsla
þeirrar virkjunar á 12 mánuð-
um síðustu í kílóvattstundum
og á hvaða verði reiknast hún?
Hér vil ég bæta við:
Fimm ára fjármagnskostnað
Kröfluvirkjunar á að draga frá
Kröfludæminu að minnsta
kosti vegna eldsumbrota!
Hverju nemur það?
Að lokum þetta: Nú átt þú að
láta hendur standa fram úr erm-
um og brjóta niður helsið á fram-
kvæmdavilja og getu, sem nú hvíl-
ir á. Láta snilli Jóns í Árteigi
njóta sín og hans líka, sem munu
koma betur í ljós þegar birtir.
Fjarðará og virkjun á Suðurfjörð-
um, í Vopnafirði og Sandá í Þist-
ilfirði. Kalla bjartsýnina fram í
byggðarlögum, þá lyftast Grettis-
tökin á fullveldisdaginn.
Með kveðju,
Jónns Pélursson er fyrrrerandi al-
þingismaöur — búsettur í Fellabæ
rið Lagartljótsbrú.
/íuKin pjonusta
íaðalbanka
Við önnumst nú alla algengustu gjaldeyrisþjónustu: Kaup og sölu á
ferðamannagjaldeyri, sölu námsmannagjaldeyris, stofnun innlendra
gjaldeyrisreikninga og útgáfu VISA greiðslukorta.
tönaðaitankinn
Reykjavík: Aöalbanki, Lækjargötu 12
Breiðholtsútibú, Drafnarfelli 16-18
Laugarnesútibú, Dalbraut 1
Grensásútibú, Háaleitisbraut 58-60
Réttarholtsútibú, Réttarholtsvegi 3
Garðabær: v/Bæjarbraut
Hafnarfjörður: Strandgötu 1
Selfoss: Austurvegi 38
Akureyri: Geislagötu 14
Súsanna Srararsdóttir er nemi í Aín Kaldal er einn af eigendum
Háskóla íslands. Teiknistofunnar Arko. |