Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
19
Hitamál í Sviss:
Sósíaldemókratar
íhuga að slíta
stjórnarsamstarfi
Danuta og sonur í Osló
Egil Aarvik, formaður Nóbelsnefndar norska Stórþingsins, óskar hér þeim mæðginunum, Bogdan og
Danutu, til hamingju með friðarverðlaunin, sem þau veittu viðtöku fyrir fjölskylduföðurinn, Lech
Walesa, en hann þorði ekki að fara að heiman af ótta við að fá ekki að snúa heim aftur.
Bresk tollyfírvöld leggja
hald á þróaðan tölvubúnað
London, 12. desember. AP.
TOLLGÆSLAN í Bretlandi hefur
lagt hald á háþróaðan bandarískan
tölvubúnað, sem talið er að hafi átt
að smygla til Sovétríkjanna. Þessar
aðgeröir bresku tollgæslunnar koma
í beinu framhaldi af aðgerðum toll-
gæsluyfirvalda í V-Þýskaiandi og
síöar Svíþjóð.
Að sögn tollgæslunnar bresku
fannst búnaður þessi í vörubifreið,
sem var um það bil að aka um
borð í ferju á leið frá Poole við
suðurströndina til Frakklands.
Talið er að búnaðurinn sé rúmlega
20 milljóna ísl. króna virði.
í tollskjölum, sem fylgdu köss-
Sprengjan í Lundúnum:
Skoskir þjóðfrelsis-
menn báru ábyrgðina
Lundúnum, 12. desember. AP.
HINN LEYNILEGI skoski þjóðfreis-
isher, sem berst fyrir aðskilnaði Skot-
lands frá Bretlandi, hefur lýst á hend-
ur sér ábyrgð á sprengingunni f búð-
um breska hersins í Woolich á dög-
unum, þar sem þrír hermenn og ein
kona slösuðust. Hreyfing þessi hefur
áður sent bréfasprengjur til ýmisra
stjórnmálamanna, en vitanlega ekki
staðið fyrir meiriháttar framkvæmd-
Veður
víða um heim
Akureyri •sá skýjað
Amsterdam 6 skýjað
Aþena 14 heiðskírt
Bangkok vantar
Barcetona 9 léttskýjað
Berlín 44 heiðskirt
Briissel vantar
Buenos Aires 27 rigning
Chicago 4 skýjað
Dublin 5 heiðskirt
Feneyjar 5 léttskýjað
Frankfurt 3 snjór
Genf 3 skýjað
Havana 31 heiðskírt
Helsinki +11 heiðskírt
Helsingfors vantar
Hong Kong 19 skýjað
Jerúsalem 13 skýjað
Jóhannesarborg 27 heiðskírt
Kaupmannahöfn +2 heiðskírt
Kairó 20 skýjað
Las Palmas 21 skýjað
Lissabon 14 skýjað
London 5 skýjað
Los Angeles 17 heiðskirt
Madrid vantar
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Mexíkóborg 23 heiðskírt
Miami 26 skýjað
Montreal +7 skýjað
Reykjavik +2 skýjað
Rio de Janeiro 29 skýjað
ura á borð við Woolich-sprengjuna
áður.
Maður með mikinn skoskan
hreim símaði til AP-fréttastofunn-
ar um helgina og flutti tíðindin.
Gat hann þess jafnframt að óvinir
Skotlands mættu vara sig á næst-
unni því þjóðfrelsisherinn hefði í
hyggju að láta vita af tilvist sinni
með þeim hætti sem um er rætt.
Sagði hann að sprengjur yrðu
sprengdar í Lundúnum og öðrum
stærri borgum Englands.
William Hucklesby, yfirmaður
hryðjuverkadeildar Scotland Yard,
sagði að um 9 kílógrömm af
sprengiefni hafi verið í Woolich-
sprengjunni og búast mætti við því
að umræddur þjóðfrelsisher léti
verða af hótunum sínum. Sagðist
Hucklesby óttast mest að þjóð-
frelsisherinn myndi láta til skarar
skríða um jólaleytið.
unum sagði að ákvörðunarstaður
væri Frakkland, en að sögn bresku
fréttastofunnar Press Associated,
er talið fullvíst að búnaðurinn
hafi átt að fara til Tékkóslóvakíu.
Þrír Bretar hafa verið hand-
teknir vegna þessa máls, en voru
ekki nafngreindir. Breska blaðið
Daily Mail segir hins vegar, að
einn þeirra sé Bryan Williamson,
yfirmaður fyrirtækis í bænum
Wimbourne, skammt frá Poole.
Fyrirtæki hans hefur verið bann-
að að selja bandarískan tæknibún-
að vegna gruns um viðskiptatengsl
hans við austur-evrópskar þjóðir.
Að sögn sérstaks fulltrúa
Bandaríkjastjórnar, sem hefur yf-
irumsjón með samræmingu her-
afla NATO, hafa Sovétmenn á
undanförnum árum í síauknum
mæli komist yfir háþróaðan
tæknibúnað frá Vesturlöndum.
„Finna má vestrænan tæknibúnað
í meira en 150 tegundum sovéskra
vopna," sagði hann í viðtali við
BBC fyrir skemmstu.
Bern, 12. desember. AP.
FÉLAGAR í svissneska sósíal-
demókrataflokknum munu koma
saman til sérstaks fundar í mars á
næsta ári og gera út um hvort
(lokkurinn hafi áhuga á því aö
halda áfram þátttöku í samsteypu-
stjórn landsins. Framkvæmda-
nefnd flokksins greiddi um þetta
atkvæði um helgina og var ákvörð-
unin samþykkt með 74 atkvæðum
gegn engu.
Mál þetta er til komið af því
að íhaldsflokkurinn neitaði að
skipa Lilian Uchtenhagen í eitt
af sjö ráðherraembættum. Frú
Uchtenhagen hefði þar með orð-
ið fyrsti kvenráðherra í Sviss í
háa herrans tíð. Ráðherrasætið
var laust vegna þess að Willy
Ritchard fjármálaráðherra lést í
október, en í stað frú Uchten-
hagen var Otto Stich skipaður í
embættið. Hann er flokksbróðir
frú Uchtenhagen, en talinn
standa nær stefnumálum íhalds-
flokksins en Uchtenhagen.
Sósíaldemókratar er ævareiðir
vegna þessa máls og í tilkynn-
ingu sem lesin var upp eftir fund
framkvæmdaráðsins var sagt
m.a. að íhaldsflokkurinn hefði
ekki sýnt lágmarkskurteisi og
sósíaldemókratar hefðu lengi
mátt þola ótrúlega smán frá
svokölluðum stjórnarbræðrum
sínum.
Otto Stich sagði að hann væri
sammála því að staða sósíal-
demókrataflokksins í stjórnar-
samstarfinu væri rædd með
hliðsjón af þessu máli. Hann
sagðist hafa tekið við lausa
ráðherraembættinu einungis til
þess að flokkurinn missti ekki
annað af tveimur ráðherrasæt-
um sínum.
Dýrar?
Ódýrar?
Honiara, Salomonseyjum,
9. desember. AP.
YFIRVÖLD Á Salomonseyjum
hafa kveðið upp úrskurð sem all-
ir eyjaskeggjar verða að hlýta
hvort sem þeim lýkar betur eða
verr. Það heyrir undir þann sið
þeirra, að festa kaup á eiginkon-
um. Nú er búið að frysta verðið
og það skiptir ekki máli hversu
falleg eða gáfuð ungfrúin er, hún
má alls ekki fara yfir 600 doll-
ara. Þeir sem uppvísir verða að
því að bjóða betur, eiga þriggja
mánaða fangelsi yfir höfði sér.
Reglur þessar eru til að
koma í veg fyrir „verðbólgu" í
eiginkonuinnkaupum og
byggja eyjaskeggjar á slæmri
reynslu nágranna sinna á
Papua með frjálst verðlag. Þar
kostar frúin allt að 18.000 doll-
urum og þykir mörgum nóg
um. En þó verðþakið á Salo-
monseyjum sé nú 600 dollarar,
segja kunnugir, að enn megi fá
prýðilegt kvonfang á litla 300
dollara, sérstaklega ef seilst er
til afskekktari hluta eyjanna.
Aðdáendur
handteknir
Moskvu, 12. desember. AP.
RÚMUR tugur sovéskra náms-
manna, sem segjast vera einlægir
aðdáendur tónlistar John Lenn-
ons, efndi í gær til þögullar minn-
ingarathafnar um hann í hæðun-
Lennons
í Moskvu
Neitar
reykinga-
mönnum
Lundúnum, 9. desember. AP.
KUNNUR hjarta- og æðaskurðlækn-
ir í Lundúnum, Roger Greenhalgh,
hefur lýst því yfir að hann muni
neita að skera upp kransæðasjúkl-
inga í framtíöinni, nema að því til-
skyldu að þeir samþykki að hætta
reykingum að aðgerðinni lokinni.
Greenhalgh segir: „97 prósent
sjúklinga minna er fólk sem reykt
hefur í allt að 20 ár eða oftast enn
meira. Það þýðir ekkert að bjarga
fólki sem vill ekki bjarga sér sjálft
og fólk sem enn vill reykja eftir að
hafa lent í svona aðgerð, er fólk
sem ekki vill hjálpa sér sjálft. Og
þá vil ég ekki eyða tíma mínum í
það.“ Greenhalgh sker árlega
hundruð manna upp vegna krans-
æðasjúkdóma og skyldra kvilla.
Símamynd AP.
Lifði slysið af
Þcssi litla stúlka liföi af flugslysið mikla í Madrid á dögunum og vissulega er
myndin hryggileg. En þrátt fyrir hörmungar þær sem fólkið gekk í gegn um,
var ekki allt svo slæmt að ekkert gott fyrirfyndist. Hún lifði slysið af þessi
hnáta, einnig foreldrar hennar og bróðir.
um skammt frá Moskvu. Þrátt
fyrir að athöfnin væri haldin utan
borgarinnar slapp hópurinn ekki
við áreitni lögreglumanna, sem
handtóku þrjá og gerðu upptækt
veggspjald, þar sem á voru rituð
slagorð gegn kjarnorkuvopnum.
Að sögn eins úr hópnum tók
námsmennina að drífa að
snemma um morguninn og létu
þeir lítið á sér bera. Þarna um
slóðir er eitt vinsælasta útivist-
arsvæði Moskvubúa. Það var
hins vegar ekki fyrr en um miðj-
an dag að námsmennirnir hóp-
uðu sig saman framan við grind-
verk og einn þeirra dró úr pússi
sínu umrætt veggspjald.
Námsmennirnir höfðu ekki
staðið óáreittir nema í nokkrar
mínútur er lögreglumenn, jafnt
einkennisklædda sem óeinkenn-
isklædda, bar að. Voru skilríki
námsmannanna könnuð í skynd-
ingu í viðurvist vestrænna
fréttamanna. Engin tilraun var
gerð til að meina þeim að ræða
við fréttamennina.
Þrátt fyrir beiðni lögreglu-
mannanna um að minningar-
athöfnin yrði haldin annars
staðar fór hópurinn hvergi og
námsmennirnir, sem sumir
hverjir voru síðhærðir mjög á
sovéska vísu, ræddu kappsfullir
við fréttamennina. Sögðu m.a.
að sovésku lögreglunni stæði
stuggur af öllum síðhærðum
þegnum. Upplýstu jafnframt, að
þeir hefðu efnt til svipaðrar at-
hafnar undanfarin tvö ár á þeim
sunnudegi er væri næstur dán-
ardægri Lennons. Bítillinn var
skotinn til bana 8. desember
1980.