Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
flfofgmiÞlltfetfr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö.
Ekki aðeins
hækkanir
Lækkunin á bensín- og
olíuverði stangast á við
allt það sem heyrst hefur af
þróun verðlagsmála undan-
farin ár. Nú fyrst er að koma
fram sú verðlækkun á þess-
um mikilvægu neysluvörum
sem byrjaði á heimsmarkaði
á árinu 1982 og varð mest
snemma árs 1983. Ástæðan
fyrir því Kve langan tíma það
tekur fyrir bensín- og olíu-
verð að lækka hér á landi er
verðmyndunarkerfið sem hér
ríkir. Innkaupasjóður á olíu-
vörum hafði safnað miklum
skuldum en nú hefur á þeim
fáu mánuðum síðan ríkis-
stjórnin greip til efnahags-
ráðstafana sinna og festi
gengið í maí síðastliðnum
tekist að snúa stöðu þessa
sjóðs við og þess vegna lækk-
ar verðið.
í fréttatíma hljóðvarpsins
á sunnudagskvöld voru lesnar
talnaraðir um hækkanir á
ýmsum neysluvörum síðan í
nóvember 1982. Var þar
glögglega lýst þeirri þróun
sem allir hafa fundið fyrir að
útgjöld heimilanna hafa vax-
ið meira en tekjurnar. Ætti
það ekki að koma neinum á
óvart enda fólst það í efna-
hagsráðstöfununum um mán-
aðamótin maí og júní að
hætta að hækka launin á
grundvelli verðhækkana. En
það segir hins vegar ekki alla
söguna að lesa upp úr Hagtíð-
indum og bera saman verð í
nóvember 1982 og verðlag í
nóvember 1983. Með því er
gefið til kynna að ekkert lát
hafi orðið á þessum hækkun-
um. Sú er hins vegar raunin
eins og sést ef nánar er rýnt í
Hagtíðindin og ekki látið
staðar numið við að bera
saman fremstu og öftustu
töluna í hverjum dálki.
Stökkið í hækkunum er
mest á milli nóvember 1982
og febrúar 1983 og febrúar og
maí 1983, síðan hægir á og
milli ágúst og nóvember 1983
er verðlag tiltölulega stöðugt
og lækkar meira að segja á
sumum vörum. Hækkanir
sýnast raunar mestar á þeim
varningi þar sem hið opin-
bera hefur mest afskipti af
verðmynduninni eins og sést
best á verði landbúnaðar-
afurða. Þær þeirra sem lúta
opinberri verðforsjá hækka
mikið en kjúklingar, þar sem
samkeppni ræður verði, hafa
lækkað jafnt og þétt í verði
síðan í maí 1983, þá kostaði
kílóið af kjúklingi 144,89 kr.
en kostaði í nóyember 136,34
kr. í maí 1983 kostaði kíló af
lambalæri eða lambahrygg
104,15 kr. en 145,50 kr. í nóv-
ember.
Það er úrslitaatriði að
verðhækkanaskriðan stöðvist
svo að unnt sé að takast á við
þau gífurlegu vandræði önn-
ur sem alls staðar eru. En
þróun verðlagsins undan-
farna mánuði sýnir að ekki er
lengur aðeins unnt að tala um
hækkanir. Þó eru ekki allar
hækkanir vegna verðbólgu-
veislunnar enn komnar fram.
Af því sem eftir er munar
mest um skattbyrðina á
næsta ári. Svo kann að fara,
verði ekki gerðar ráðstafanir
til að létta hana eins og frek-
ast er kostur, að þrek laun-
þega bresti vegna skattanna,
kröfur um hækkun launa
magnist vegna þeirra og þar
með hverfi ávinningurinn
vegna þrautseigjunnar til
þessa eins og dögg fyrir sólu.
Þetta verða þingmenn að
hafa í huga við afgreiðslu
fjárlaga og sveitarstjórnar-
menn við gerð fjárhagsáætl-
ana.
Eva Peron
Sjónvarpsmyndin um Evu
Peron var athyglisverð
um margt. Hér á þessum stað
verður þó aðeins staldrað við
lýðskrumið. Atriðið þegar
Eva Peron sat í fjölmiðlaljós-
inu og deildi peningunum út
til fátæklinganna og bauð
mönnum 60% kauphækkun
þegar þeir báðu um 50% er
með mögnuðustu ádeilu á þá
landsstjórnarmenn sem þykj-
ast geta gert allt fyrir alla á
kostnað annarra. „Komið á
mánudaginn," sagði Eva þeg-
ar peningarnir voru búnir.
„Þú þarft ekki að sýnast við
mig. Þú ert ekki á svölum for-
setahallarinnar," varð sú
kona sem reynst hafði Evu
best þegar neyð hennar var
mest að segja við forseta-
frúna eftir að hafa leitað
ásjár hjá henni fyrir nágr-
anna sinn. Fyrir þessa
hreinskilni var konan hand-
tekin. „Vald spillir. Gjörræð-
isvald gjörspillir," sagði Act-
on lávarður. En svo er það ein
af þverstæðum sögunnar og
stjórnmálanna að Evíta skuli
hafa náð slíkum vinsældum
meðal almúgans í Argentínu
sem enst hafa langt út yfir
gröf og dauða þrátt fyrir
spillinguna, óhæfuverkin og
lýðskrumið.
Ljósin tendruð á
MIKILL mannfjöldi safnaðist sam-
an á Austurvelli á sunnudaginn
þegar Ijósin á gjafatré Óslóarborg-
ar til Reykvíkinga voru tendruð.
Það var ung stúlka úr Hafnarfirði
af norsk-íslenskum ættum, Carolin
Guðbjartsdóttir, sem kveikti jóla-
Ijósin. Það var mikil stemmning við
athöfnina, enda veður gott og ým-
isleg skemmtiatriði á dagskrá. Jóla-
sveinar heilsuðu upp á börnin,
dómkórinn söng undir stjórn Mart-
eins H. Friðrikssonar og Lúðrasveit
Reykjavíkur lék. Norski sendiherr-
ann, Anne-Marie Lorentzen, og
Markús Örn Antonsson, forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur, fluttu
ræður.
íÆ
HFV jJé • PBH
Það var glatt á hjalla á Austurvelli á sunnudaginn þegar kveikt var á norska jólatrénu, gjöf Óslóarborgar til Reykvikinga.
Kasparov er orð-
inn óstöðvandi
Skák
Margeir Pétursson
FÁTT virðist nú geta komið í veg fyrir
það að hinn tvítugi Sovétmaður frá
Bakú við Kaspíahaf sigri Viktor
Korchnoi, fyrrum áskoranda, í einvígi
þeirra í London. Að loknum níu skák-
um er staðan þannig að Kasparov hef-
ur hlotið fimm og hálfan vinning en
Korchnoi þrjá og hálfan. Kasparov
skortir nú aðeins einn vinning til að
tryggja sér sigur og er því í sömu
stöðu og Vassily Smyslov í einvígi
hans við llngverjann Zoltan Ribli. Má
því segja, að allar líkur séu á að í
úrslitaeinvígi áskorendakeppninnar
mætist æskan og ellin, hinn tvítugi
Kasparov og 62ja ára gamli Smyslov.
Út úr síðustu fjórum skákum ein-
vígisins hefur Kasparov fengið þrjá
og hálfan vinning og eftir því að
dæma eru líkur á því að einvíginu
ljúki strax á morgun, en þá verður
tíunda skákin tefld. Kasparov hefur
hagnýtt sér slaka taflmennsku
Korchnois upp á síðkastið til hins
ýtrasta. Þegar hann hefur náð
frumkvæðinu, hefur hann teflt af
mikilli nákvæmni og ekki gefið
Korchnoi minnsta færi á að rétta úr
kútnum.
Áttunda skákin sem tefld var á
laugardaginn var fremur sviplaus.
Kasparov, sem hafði svart, jafnaði
taflið fremur auðveldlega og eftir
mikil uppskipti var síðan samið
jafntefli. f níundu skákinni fékk
Kasparov hins vegar betri stöðu
strax eftir byrjunina og í stað þess
að reyna að endurskipuleggja vörn-
ina urðu fálmkenndar mótspilstil-
raunir Korchnois til að flýta fyrir
ósigri hans. Eftir aðeins 20 leiki var
staða svarts, Korchnois, orðin von-
laus og tíu leikjum síðar gafst hann
upp.
Korchnoi hefur verið algjörlega
óþekkjanlegur í síðustu skákum eft-
ir góðan sigur í fyrstu skák einvígis-
ins og trausta taflmennsku í fram-
haldi af því. í sjöttu skákinni var
hins vegar eins og flóðgátt opnaðist
og síðan hefur hann teflt byrjanirn-
ar óvandvirknislega og mistekist að
ráða við frumkvæði andstæðingsins
í miðtafli.
Áttunda skákin:
Hvítt: Viktor Korchnoi
Svart: Gary Kasparov
Katalónsk byrjun
1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — Rf6,
4. g3
Þessi byrjun nýtur mikillar hylli
beggja keppenda og kemur það á
óvart, því hún hefur síðustu árin
verið talin leiða til einfaldra og lítt
spennandi staða.
4. — dxc4, 5. Bg2 — c5, 6. I)a4+ —
Bd7, 7. Dxc4 — Bc6, 8. dxc5
Með 8. 0-0 - Rbd7, hefði
Korchnoi getað fengið upp sömu
stöðu og Kasparov í sjöundu skák-
inni.
8. — Rbd7, 9. Be3 — Bd5, 10. Da4 —
Bc6, 11. Dc4 — Bd5, 12. Db4
Töpin tvö í sjöttu og sjöundu
skákunum hafa veikt sáíræna að-
stöðu Korchnois. Ef hann hefði enn
haft forskot, hefði hann vafalaust
ekki hikað við að þráleika.
12. — Dc8, 13. Rc3 — Bxc5, 14. Bxc5
— Dxc5, 15. Rxd5 — Rxd5, 16. Dd2
Það er greinilegt að svartur hefur
náð að jafna taflið. 16. Dxb7 — Hb8
hefði jafnvel fært honum frum-
kvæðið.
16. — Hc8, 17. 0-0 — 0-0, 18. Hacl —
Db6, 19. Dd4 - Hfd8, 20. Hfdl -
Dxd4, 21. Rxd4 — R7b6, 22. Rb3 —
Hxcl, 23. Hxcl — Hc8, 24. Hxc8 —
Rxc8, 25. Bxd5 — exd5.
í þessari stöðu stendur hvítur ör-
lítið betur vegna þess að svarta peð-
ið á d5 er stakt. En svo lítið lið er
eftir að Kasparov heldur jafnteflinu
erfiðleikalaust.
26. Rc5 — Rd6, 27. Kg2 — Kf8, 28.
Kf3 — Ke7, 29. Kf4 — f6, 30. h4 —
g6, 31. g4 — b6, 32. Ra6 — Re4, 33. f3
— Rc5, 34. Rc7 — d4, 35. Rd5 — Ke6,
36. Rb4 — a5, 37. Rd3 — Kd5, 38. g5
— f5, 39. Kg3 — Rxd3 og samið jafn-
tefli, því peðsendataflið er geril-
sneytt öllum lífsneista.
Níunda skákin:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Viktor Korchnoi
Katalónsk byrjun
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. g3 — d5, 4.
Bg2