Morgunblaðið - 13.12.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 13.12.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983 31 Valgarður Stefánsson: Stutt athugasemd Ég rak upp stór augu þegar ég var að fletta Morgunblaðinu þann 8. desember, því þar rakst ég á greinarkorn, sem ég sendi blaðinu í miðjum októbermánuði. Ég var auðvitað fyrir löngu hættur að hugsa um þessi skrif mín, taldi bara að þeim hefði verið þegjandi stungið undir stól, og sem norð- lenskur myndlistamaður tók ég því með jafnaðargeði, enda höfum við norðanmenn lengi mátt bíða þar til dyrum hafi verið lokið upp fyrir okkur. Líkast til hafa lesend- ur þessarar greinar einnig verið Þrír seldu afla erlendis ÞRJÚ íslenzk fiskiskip seldu afla sinn erlendis í gær, mánudag. Fengu þau þokkalegt verð fyrir afla sinn, sem var meöal annars karfi, koli, ufsi og þorskur. Ólafur Bekkur ÓF seldi 97,5 lestir í Grimsby. Heildarverð var 3.078.900 krónur, meðalverð 31,58. Aflinn var að mestu koli, þorskur og ýsa. Vigri RE seldi 214,1 lest í Bremerhaven, mestmegnis karfa. Heildarverð var 5.166.500 krónur, meðalverð 24,14. Þá seldi Arney KE 51,4 lestir, mest ufsa í Cuxhav- en. Heildarverð 726.800 krónur, meðalverð 14,13. dálítið undrandi og ekki að furða, því greinin var svar til Braga Ásg- eirssonar vegna Akureyrarpistils, sem hann skrifaði fyrir nær tveimur mánuðum. í athugasemd ritstj. sem fylgdi birtingu greinar minnar, stendur m.a. „að blaðið standi ávallt opið forystumönnum menningarmála í hinum fagra höfuðstað Norðurlands". Mikið finnst mér nú hurðin á Morgun- blaðinu vera þung og lengi að opnast, þegar birting greinar dregst svo lengi, sem var þó skrif- uð í flýti og póstlögð strax tveimur dögum eftir að pistill Braga birt- ist. Og nú er þetta gamla blað fyrir löngu horfið úr blaðakörfum. Því er birting greinar minnar þann 8. des. bara eins og skot upp í loftið og Bragi fyrir löngu kom- inn í skjól. Ég vil þó þakka fyrir þá hvatn- ingu, sem ritstj. Mbl. sendir norð- ur, og þær óskir, að hlutur Akur- eyrar verði stærri í Morgunblað- inu en verið hefur. Virðingarfyllst, Valgarður Stefánsson. Aths. ritstj.: I rúmleysi í vetrarönnum þurfa margar greinar að bíða birtingar hér í blaðinu. En betra er seint en aldrei! Þá eiga greinar sendar Morgunblaðinu helzt að þola nokkurra vikna bið, þótt ekki séu þær allar klassískar! Frá fundinum. Elín Pálmadóttir flytur ræðu. Morgunbladið/KEE. Morgunblaðió/ÓLK.M. Syngja fyrir aldraða og sjúka Söngsveitin Fílharmónía heimsækir nú fyrir jól aldraða og sjúka á sjúkrahúsum og stofnunum. Síðast- liðinn laugardag var söngsveitin í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg og voru þá þessar myndir teknar er sveitin söng fyrir vistfólkið. Mannréttindafund- ur á Lækjartorgi Breytingatillögur fjárveitinganefndar við fjárlagafrumvarpið: ÍSLANDSDEILD Amnesty Inter- national minntist mannréttinda- dagsins sl. laugardag með útifundi á Lækjartorgi. Bernharður Guðmundsson fréttafulltrúi og Elín Pálma- dóttir blaðamaður fluttu stutt ávörp og Jóhann Hlíðar Harð- arson, nemandi í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti, afhenti Matthíasi Á. Mathiesen, við- skiptaráðherra, undirskriftir hátt á áttunda þúsund íslend- inga undir kröfu um að allir samviskufangar verði látnir lausir. Þá var söngur og hljóð- færasláttur. Amnesty-kertið var tendrað á Lækjartorgi. Hækkun nemur 166 milljónum kr. Breytingartillögur frá fjárveitinga- nefnd við frumvarp til fjárlaga voru lagðar fram á Alþingi í gær og sam- kvæmt tillögunum hækkar heildar- tala fjárlagafrumvarpsins um 166 milljónir króna, en það er innan við 1% hækkun. Eru í frumvarpinu ýms- ir nýir liðir og má þar sem dæmi nefna liðinn „íslenska hljómsveit- in“, en til hans er varið 400 þúsund- um króna. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Lárusi Jónssyni, formanni fjárveitinganefndar, er hér mest um breytingar vegna nýrra upplýsinga að ræða og til þess ætlaðar að unnt verði að gera raunhæfar greiðsluáætlanir og að rekstrarliðir verði raunhæfir. Þá er og um að ræða ýmsa liði sem skildir höfðu verið eftir þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram. Af nýjum liðum í breytingartil- lögunum má nefna að við embætti forseta íslands leggst nýr liður, sem ekki hefur verið sérstakur lið- ur áður, en það er liðurinn „Opin- berar heimsóknir", en til hans fara kr. 900.000. Þá má nefna lið- inn „Norðurlandaráð", en í hann fara 1,5 milljónir kr. í liðinn „Þingmannafundir Fríverslunar- bandalagsins" fer 1 milljón kr. Þá er einni milljón veitt til hagræð- ingar í Námsgagnastofnun og er sá liður nýr, til Textilfélagsins er veitt 50 þúsundum króna á nýjum lið. Loks má nefna eftirfarandi nýja liði: Þátttaka í framkvæmdastjórn UNESCO, 200.000 kr., menning- arsamskipti við Færeyinga, 200.000 kr., alþjóðaár æskunnar, 100.000 kr., Ólympíunefnd fatl- aðra, 600.000 kr., Manitoba-há- skóli Kanada kr. 38.000, flugbjörg- unarsveitir kr. 450.000, fræðslu- efni um öryggismál sjómanna kr. 350.000 og sjálfvirkt tilkynninga- kerfi fyrir fiskiskip kr. 500.000. Sfldveiðum lýkur 15. desember 56.000 lestir komnar á land UM 56.000 lestir síldar eru nú komnar á land á vertíðinni, sem lýk- ur þann 15. þessa mánaðar. Nú stunda aðeins 10 skip veiðarnar, 3 á nót og 7 á reknetum og eiga þau flest mjög lítið eftir af aflamarki sínu. Alls eru nú komnar um 38.000 lestir í hringnót, 17.000 í reknet og 1.000 í lagnet. Af þeim skipum, sem leyfi fengu til veiðanna, hafa 7 ekki nýtt leyfi til hringnótar- veiða og 15 skip hafa ekki nýtt leyfi sín til veiða í reknet. Halldór Laxness beðinn afsökunar f fréttatilkynningu Morgun- blaðsins 11. desember, þar sem greint er frá útkomu bókarinnar Heyrt og séð eftir undirritaðan, varð prentvilla sem hafði enda- skipti á efni máls. Stafkrókur, eitt eignarfallsess féll niður. Kafli sem heitir Draslið Halldórs Laxness varð í kaflaupptalningu að „Drasl- ið Halldór Laxness". Þetta hefst uppúr því að stytta mál sitt með því að hafna per- Skjaldbreiður eftir Kjarval á nýju korti ÚT ER komið kort með mynd af málverki eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval í útgáfu Litbrár. Mál- verkið heitir Skjaldbreiður og er málað á árunum 1957 til 1962. Eig- andi þess eru Kjarvalsstaðir í Reykjavík. sónufornöfnum. Ég margkrossaði mig þegar ég rak augun í þessi ósköp. Menn hafa hringt í mig og spurt myrkum rómi um samheng- ið. það er á þessa leið, bls. 113, Heyrt og séð: „Halldór Laxness féll ungur fyrir tveim þungmeltum stórkenn- ingum, kaþólisma og kommún- isma, sporðrenndi þeim í heilu lagi eins og þær komu af skepnunni, lét sig hafa það — og þarf há- karlsmaga til að meltingin lánist. Hún lánaðist ekki. Oftrúin, ofátið, hefndi sín líka. Skáldið hefur verið að skyrpa beinaruðningnum fram á þennan dag. Því sem hann kné- kraup forðum í Landakoti og í Rússíá heimfærir hann í dag und- ir eitt orð: drasl." Síðan er vikið að persónutöfrum Halldórs í viðkynningu, en það er utan viðfangs leiðréttingarinnar. Kaflaheitið er rétt skrifað í bók- inni. En Halldór er hér með beð- inn afsökunar. Jóhannes Helgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.