Morgunblaðið - 13.12.1983, Qupperneq 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
Minning:
Magnús Guðmunds
son bifreiðastjóri
Fæddur 13. ágúst 1905
Dáinn 2. desembcr 1983
Hafknörrinn glæsti og fjörunnar flak
fljóta bæði. Trú þú og vak.
Marmarans höll er moldarhrúga.
Musteri guðs eru hjörtun, sem trúa,
þó hafi þau ei yfir höfði þak.
Þetta lokaerindi úr Hnattasundi
Einars Benediktssonar — svana-
söngur skáldsins í síðustu Ijóða-
bók þess Hvömmum — var ekki
aðeins táknrænt fyrir lífshlaup
Magnúsar Guðmundssonar, sem í
dag er kvaddur hinstu kveðju,
heldur opinská lífsskoðun hans.
Hann var einlægur og næmur
unnandi allrar fegurðar, hvort
heldur var í ytri náttúru eða innri
fágun, var söngvinn og tónelskur
og lagði alúð við góðar bókmenntir
og þá einkum Ijóð. Þessu fylgdi
viðkvæm lund og hneigð til lífs-
nautnar, svo að stundum skorti
nokkuð á þá hörku, er þarf til
lífsbaráttunnar. Magnús var með
hærri mönnum að vallarsýn, og
samsvaraði sér vel, þótt grannur
væri, og raunar alla tíð með vöxt
ungs manns, svo að næstum jaðr-
aði við alvöruleysi. Aldrei var
heldur djúpt á kímninni. Hann
kom sér að jafnaði vel og var flest-
um mönnum hugþekkur, sem hann
starfaði með eða var öðrum sam-
vistum við. Ekki átti hann síður
hylli kvenna, þótt hann bæri ekki
gæfu til stöðugleika í þeim efnum.
Ætíð var siðfágun og snyrti-
mennsku hærri en hina veikari
lyndisþætti. Því vil ég telja Magn-
ús gæfumann, yfir lífsbrautina í
heild að líta, enda þótt ekki safn-
aðist honum veraldarauður utan
vænn og vel mannaður hópur af-
komenda. Trúmaður var hann
einlægur, og þó meira á dýptina en
að hann flíkaði þvi.
Magnús hlaut gott veganesti úr
foreldrahúsum, sonur sæmdar-
hjónanna Guðmundar Matthíass-
onar, verkstjóra, og Pálínu Magn-
úsdóttur, er byggðu og bjuggu að
Lindargötu 23. Við manndóm og
atorku húsbóndans fléttaðist
menning og fágun húsfreyjunnar,
en hún var kvennaskólagengin,
sem fól að tiltölu meira í sér þá en
nú. Komu þau upp góðum bóka-
kosti og löðuðu að heimilisvini,
sem fengur var að eiga kynni við.
Með nafni sínu mun Magnús hafa
tekið margt frá móðurfólkinu.
Móður sína missti Magnús á ungl-
ingsaldri, og mun missir hennar
hafa fengið mjög á hann, enda
þótt brátt bættist honum ágæt
fóstra þann stutta tíma, sem eftir
lifði í föðurgarði. Þeir Aðalsteinn,
eldri bróðir hans, höfðu verið tveir
barna á því heimili, en systkini
þeirra höfðu fallið í bernsku fyrir
þeim skæðu barnasjúkdómunr er
þá herjuðu. Með síðari konu föður
þeirra, Sigurrós Þorsteinsdóttur,
bættust þeim sex hálfsystkini.
Varð því brátt fjölskrúðugt og
fjörmikið fjölskyldulíf á Lindar-
götunni, ekki sízt þá er þeir bræð-
ur fóru að búa þar á loftinu og
eignast börn, sum eldri en yngstu
systkini þeirra. Hefur sá hópur
haldið vel saman, og er Magnús
fyrstur þeirra systkina að falla í
valinn.
Ævi manns, sem lifað hefur
nærri áttræðu, spannar mikil
tímamót í þjóðarsögunni. Ungur
reyndi hann sig við sjómennsku og
var fyrst á kútter Seagull, en síð-
an árum saman á togaranum
Arinbirni hersi. En þá var bílaöld
að hefjast í landi hér og hneigðist
hann í þá átt. Þess má geta í því
sambandi, að Guðmundur faðir
hans ferðaðist sem starfsmaður og
ferðafélagi Ditlevs Thomsens
talsvert með fyrsta bílnum hér,
þótt ekki æki hann honum. Magn-
ús ók fyrst leigubíl um nokkurt
skeið, en réðst síðan til Strætis-
vagna Reykjavíkur og ók þar um
áratuga skeið, einnig á stríðsárun-
um, þegar borgin og umferðin var
að taka hvað mestum stakkaskipt-
um, götur voru meira og minna
upprifnar vegna framkvæmda og
hernámsástand ríkti. Var á þeim
tíma gjarnan stælt um, hvorir
fyrr slitu sér upp til agna, bílstjór-
ar á strætisvögnum eða langleið-
um. Einkum minnist fólks hans
fyrir akstur á Sólvallaleið og
Lækjarbotnaleið. Vagnarnir voru
þá stíft notaðir og til ýmissa
hluta, sem einkabílar og sendibíl-
ar eru nú til hafðir, einkum á út-
leiðunum. Með þeim flutti fólk
matföng sín, útsæði, trjáplöntur
og jafnvel byggingarefni. Öllu
þessu tók Magnús með stakri lip-
urð og þolinmæði og skellti ekki
hurðum, meðan hann sá tekið tek-
ið fótanna.
Atvik frá þessu tímaskeiði varð
Magnúsi minnisstætt, þar sem það
telst til andlegrar reynslu og
handleiðslu. Dag nokkurn í akstri
um öngstræti Vesturbæjar fékk
hann hugboð, líkt og hvíslað væri
að honum að fara einstaklega
varlega. Varð það til þess, að hann
rétt mjakaðist fyrir næsta blind-
horn. Kom þá lítil stúlka eins og
kólfi væri skotið í veg fyrir vagn-
inn. Með venjulegu aksturslagi
hefði ekki reynst auðið að stöðva í
tæka tíð og varla þurft um að
binda. Taldi Magnús það mikla
gæfu að vera forðað frá slysi
þarna, enda mun hann engu hafa
valdið um dagana.
Það mun hafa verið árið 1947, að
Magnús fluttist til Olíuverzlunar
Islands og ók þar olíubíl um átta
ára skeið. Var hann þar á sama
vinnustað og Aðalsteinn bróðir
hans, og faðir þeirra, meðan lifði.
Þaðan fór hann til þungaflutn-
ingafyrirtækis Gunnars bróður
síns. Síðast á starfsævinni hentaði
honum léttari vinna, og vann hann
þá um alllangt skeið við útkeyrslu
og fleira hjá Húsgagnahöllinni.
Ekki mun ofmælt, að á öllum þess-
um stöðum einkenndi hann sér-
stök lipurð og prúðmennska við
viðskiptavinina, ásamt trú-
mennsku og vönduðu atferlL Þar
með er því ekki neitað, að hann
átti með köflum örðugt um fulla
reglusemi, og varla hafa einhæf
störf á sama stað til lengdar átt
við fjöllyndi hans.
Hið sama mun hafa valdið
miklu um, hve margt dreif á daga
hans í hjúskaparmálum. Hann
kvæntist árið 1928 Jónínu Jóns-
dóttur og eignuðust þau eina dótt-
ur, Pálínu, er féll fá eiginmanni og
börnum, að mestu uppkomnum,
fyrir um tveim árum, öllum harm-
dauði. I sambýli við Dóru Hall-
dórsdóttur átti hann brjú börn,
Svanhildi, Hilmar og Olöfu. Árið
1941 gekk hann að eiga Lovísu
Hannesdóttur, mæta konu úr Ölf-
usinu, en henni kynntist ég, þegar
mig bar að garði þessarar fjöl-
skyldu. Þau hjónin áttu dæturnar
Valgerði og Emmu. Einnig þau
slitu samvistir. Hafa þessi börn öll
komist vel til manns og áttu góðu
gengi að fagna.
Enn var ekki allur móður af
Magnúsi runninn. Minnist ég
glöggt hins sólbjarta sumardags
1%5, er hann stóð á sextugu og
gekk til fagurrar brúðkaups-
athafnar í Árbæjarkirkju með
Elísabet Vilhjálmsson, þýzkri
konu en löngu íslenzkaðri, vel
menntri og listfengri. Átti hann
sitt heimili hjá henni, þar til fyrir
skömmu, að hann þurfti meiri um-
önnunar við en þar var unnt að
veita og endaði daga sína á elli-
heimilinu Grund. Um margt áttu
þau hjón sameiginleg áhugamál
og ferðuðust allmikið saman, með-
an kraftar leyfðu, en einnig and-
stæðurnar, ólíkir eiginleikar og
geta, veita færi áð bæta hvort
annað upp.
Á tímum meiri tækifæra og
hvatningar hefði Magnúsi getað
orðið meira úr gáfum sínum og
listfengi. Hneigð hans til tónlistar
fékk nokkra útrás þegar hann
söng í Samkór Reykjavíkur um
nokkurra ára skeið. Nýttist það
honum æ síðan, þá er stilla þurfti
raddir saman í söng.
Ekki verður svo við skilizt
málstað Magnúsar, að ég láti hjá
líða að þakka fyrir hans hönd öll-
um, sem verið hafa honum sam-
vistum og gert vel til hans. Verður
þar að geta sérstaklega bróður
hans Aðalsteins og hans ágætu
konu Vilborgar, en hjá þeim var
ætíð athvarfs og liðsinnis að leita,
þegar á móti blés. Einnig er skylt
að þakka af alúð þá góðu aðhlynn-
ingu, sem hann naut á elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund og
hann mat að verðleikum.
Þótt Magnús hafi verið ökumað-
ur góður, er nú þar komið vegferð
hans, að mannlegur máttur fær
ekki haldið um stýrið. Nú kallar
hann „ferju á hnatta hyl“, eins og
skáldið segir í upphafi kvæðisins,
sem vitnað er til hér að framan.
Við viljum mega treysta því, að
við því auðmjúka kalli hans sé
orðið. Blessuð sé minning hans.
Bjarni Bragi Jónsson
t
Eiginmaöur minn,
HALLDÓR ÞORSTEINSSON,
Stórageröi 34,
lést í Landspítalanum 11. desember.
Rut Guómundsdóttir.
t
Eiginmaöur minn.
SKAPTI DAVÍÐSSON,
trésmíAameistari,
síAar bóndi, Útay Laugardal,
andaöist 11. desember í Borgarspitalanum.
Marie Davíösson.
t
Eiginmaöur minn,
HANNES ARNÓRSSON,
fyrrum símstöAvarstjóri í SandgerAi,
andaöist í Sjukrahúsi Keflavíkur þann 11. desember.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna,
Anna Sveinbjörnsdóttir.
Bróöir okkar. t
SKÚLI ÞÓRDARSON,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 14. desem- ber kl. 15.00.
Ólafur ÞórAarson, Hjörtur ÞórAarson, Ingibjörg ÞórAardóttir, ÞórAur Sigfús ÞórAarson.
Móöir okkar og tengdamóöir.
t
GUDRÚN ÞORBJÖRNSDÓTTIR,
Ásvallagötu 51,
andaöist 11. desember í Borgarspítalanum.
Stefanía Runólfsdóttir,
Þóra og Karl Maack.
t
Astkær dóttir mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ERLA LÁRUSDÓTTIR,
Ferjubakka 4, Reykjavík,
lést af slysförum laugardaginn 10. desember.
SigríAur Jónsdóttir,
Lárus Sigurður Aöalsteinsson,
Anna B. Aöalsteinsdóttir, Helgi S. Ingibergsson,
Jóhanna M. AAalsteinsdóttir, Björn Júlíusson
og barnabörn.
t
Hjartanlega þökkum viö öllum sem auösýndu okkur samúö og
vináttu viö andlát og útför mannsins míns, fööur okkar, tengdaföö-
ur og afa,
TÓMASAR GUÐMUNDSSONAR,
skálds.
Sérstakar þakkir flytjum viö borgarstjórn Reykjavíkur og Almenna
bókafélaginu fyrir aö annast útförina og heiöra minningu hans.
Ennfremur þökkum viö blóm og samúöarkveöjur.
Bertha J. Guömundsson,
GuAmundur Tómasson,
Tómas Tómasson, Helga Jónsdóttir,
Jón Bertel Tómasson.
Lokaö
í dag frá kl. 14.30—16.30 vegna jarðarfarar
GÍSLA GESTSSONAR, bifreiöarstjóra.
Nýja sendibílastööin.
Lokað
í dag, 13. desember, frá kl. 13.00—16.00 vegna
útfarar ÁRNA JÓNSSONAR, kaupmanns.
Radiostofa Vilbergs og Þorsteins,
Laugavegi 80.
Lokað
í dag klukkan 13.30—15.30 vegna jaröarfarar
ÁRNA JÓNSSONAR, kaupmanns.
Elfur, Laugavegi 38.
Lokað
Vegna jarðarfarar GÍSLA GESTSSONAR veröur fyrir-
tækiö lokaö eftir hádegi í dag.
Sápugeröin Frigg.