Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
ísvog hf. Reykjavík:
Samið um sölu á 5
milljónum rækjudósa
til Bandaríkjanna
KYRIRTÆKIÐ ísvog í Reykjavík
hefur nú náð samningum um sölu
á 5 milljónum dósa af niðursoó-
inni rækju til Bandaríkjanna.
Nemur söluverð rækjunnar um
170 milljónum króna að sögn
framkvæmdastjóra ísvogar, Guð-
laugs Hermannssonar.
Guðlaugur sagði ennfremur,
að magn þetta væri til afhend-
ingar á næsta ári. Samningur-
inn væri til þriggja ára, 5 millj-
ónir dósa árlega og yrði hann
endurskoðaður í lok hvers árs.
Verð til kaupenda í Bandaríkj-
unum er 1,16 dollarar á dósina,
eða rúmar 33 krónur íslenzkar.
Það gerði því um 336 krónur
fyrir kílóið, sem væri talsvert
meira en fyrir frysta rækju.
Tekizt hefðu samningar við
Háskóli íslands:
Plasma —
Efnafræði
— Almennur fyrirlestur
PRÓFESSOR Lorne M. Chanin
frá Minnesota-háskóla mun
halda almennan fyrirlestur um
plasma-efnafræði þriðjudaginn
13. desember kl. 17:00 í húsi
Verkfræðideildar stofu 158.
Lorne M. Chanin hefur verið
gistiprófessor í verkfræði- og
raunvísindadeild háskólans á
þessu misseri. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku.
Arason & Co. í Sandgerði um að
sjóða niður rækju upp í þessa
samninga og væri í athugun að
ná slíku samstarfi við fleiri að-
ila. Hér væri um að ræða svo-
kallaða innanfjarðarækju og
Eldeyjarrækju, sem væri frem-
ur smá og næmi niðursuðan um
10 lestum á viku árið um kring.
Aðventukvöld í
Húsavíkurkirkju
Húsavík, 12. desember.
AÐVENTUNNAR var minnst
með hclgistund í Húsavíkurkirkju
í gær. Avarp flutti séra Björn H.
Jónsson og Védís Bjarnadóttir las
jólasögu. Samkór, um 60 manns,
söng jólalög undir stjórn Úlriks
Ólasonar kirkjuorganista og með
undirleik Lynne Werner. Hólm-
fríður Benediktsdóttir söng ein-
söng.
Kirkjunni hefur borist gjöf,
ljósakross, frá Hrefnu Bjarna-
dóttur, börnum hennar og
tengdabörnum, til minningar
um mann hennar, Þórhall
Karlsson skipstjóra.
— Fréttaritari.
INNLEN-T
Laufabrauðsdagar í Breiðholti
Laufabrauðsdagar voru í Breiðholtsskóla sl. sunnudag. Þar mættu nemendur, kennarar og foreldrar, skáru út
laufabrauð, steiktu það og sungu af hjartans list. Fjölmenni var og góð stemmning. Eins og sjá má á
meðfylgjandi myndum þótti vissara að hafa slökkviliðsmann á vakt þegar laufabrauðið var steikt.
Kveikt á jólatrénu frá Hamborg
LJÓS voru tendruð á Hamborg-
arjólatrénu, sem stendur við
Hafnarbúðir síðastliöinn laug-
ardag, en þetta er 18. tréð, sem
félagsskapur í llamborg, Viking-
errunde, gefur Keykjavíkurhöfn.
Félagsskapur þessi er samtök
sjómanna og blaðamanna í
Hamborg.
Að þessu sinni tendraði
þýzki þlaðamaðurinn Hagen
Deecke og kona hans Katerine
ljósin á trénu, en Gunnar Guð-
mundsson hafnarstjóri veitti
því viðtöku. Viðstaddir athöfn-
ina voru hafnarstjórn, þýzki
sendiherrann, forseti borgar-
stjórnar o.fl. Myndin er tekin
við athöfnina.
Blönduós afþakk-
adi fjárveitingar
FJÁRVEITINGANEFNI) Alþingis,
sem undanfarna mánuði hefur setið
á linnulausum fundum við að út-
hluta framkvæmdafé og fleiru til
hinna ýmsu byggða landsins, fékk
all sérstakt skeyti í síðustu viku,
samkvæmt upplýsingum sem Mbl.
hefur aflað sér.
í skeytinu kemur fram að
hreppsnefnd Blönduóshrepps af-
þakki allar fjárveitingar til
Blönduóss á árinu 1984. Ástæða
þessa mun vera sú að hrepps-
nefndin vildi fá að hefja byggingu
stórs íþróttahúss, en ákveðið hef-
ur verið að slá öllum slíkum nýj-
Listmunauppboð
Klausturhóla:
Kistillinn
sleginn á 50
þúsund krónur
ÚTSKORINN kistill frá árinu 1720
var seldur á 50 þúsund krónur á
listmunauppboði Klausturhóla á
sunnudaginn. — Kistillinn, mikið út-
skorinn og með áletrunum með
höfðaletri, var, eins og sagt var frá í
blaðinu á laugardaginn, nýlega
keyptur í Kaupnannahöfn og fluttur
hingað til lands, en er íslenskur að
uppruna.
Rúmfjalir frá árunum 1649 og
1749 voru slegnar á 20 þúsund og
26 þúsund krónur, og tveir íslensk-
ir fálkar voru slegnir hæstbjóð-
endum á 7.500 krónur og 15.500
krónur. — Framangreindar upp-
hæðir frá uppboðinu á sunnudag-
inn eru án 23,5% söluskatts.
um framkvæmdum á frest á land-
inu á meðan svo árar sem nú er.
Sýslunefndin brást ókvæða við
þessu og sendi umrætt skeyti, en
áætlað hafði verið að um 8 millj-
ónir króna færu til ýmissa fram-
kvæmda á Blönduósi á næsta ári
og mest í heilsugæslustöðina.
Ekki mun ljóst ennþá hver við-
brögð fjárveitinganefndar verði.
Síðbúin
leiðrétting
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Gísla Jónssyni,
menntaskólakennara á Akureyri:
„Inn í formála minn að ljóða-
úrvali Heiðreks Guðmundssonar,
MANNHEIMA, hafa laumast
tvær vondar villur. Mig langar til
þess að biðja Morgunblaðið að
leiðrétta þær báðar, enda fylgdu
þær með í þeim hluta formálans
sem blaðið var svo góðfúst að
birta.
Fyrri villa. Prentast hefur: En þá
voru mikil tískufyrirbrigði í ís-
lenskri ljóðagerð (bls. 10). Þetta á
að vera tískubrigði, ekki tískufyr-
irbrigði.
Sídari villa. Prentast hefur: I
fjórðu ljóðabókinni, MANN-
HEIMUM (1966), er heimsádeilan
skrifuð frá mannlífskönnuninni
með kaflaskiptum (bls. 11). Þetta
á að vera skilin frá, ekki skrifuð
frá.
Ég bið lesendur bókarinnar og
blaðsins, einkum fjölmarga að-
dáendur skáldsins, afsökunar á
þessum vondu villum sem að sjálf-
sögðu eru á mína ábyrgð."
— Gísli Jónsson