Morgunblaðið - 13.12.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983 .
47
Grænmetisverslun landbúnaðarins:
Útboð lækkaði flutn-
ingskostnað um tvo þriðju
ÚTBOÐ Grænmetisverslunar land-
búnaðarins á flutningi 1.200 tonna
af kartöflum frá Hollandi lækkaði
fraktkostnað um nær %, eða úr 120
dollurum á tonnið í liðlega 44 doll-
ara. Þessi lækkaði flutningskostnað-
ur kemur þó neytendum ekki til
góða í lækkuðu kartöfluverði nema
á óbeinan hátt: niðurgreiðslur úr rík-
issjóði lækka stórlega og verða inn-
an við eina krónu á tonnið, að því er
Gunnlaugur Björnsson, forstjóri
Grænmetisverslunar landbúnaðar-
ins, sagði í samtali við blm. Morgun-
blaðsins.
Léleg kartöfluuppskera innan-
lands hefur haft það í för með sér,
að óvenju mikið hefur verið flutt
inn af kartöflum í ár og „það hefur
raunar ekkert lát orðið á kartöflu-
innflutningi síðan í júlí," sagði
Gunnlaugur. Eimskipafélag Is-
lands hefur flutt kartöflur fyrir
Grænmetið fram að þessu fyrir
180 dollara brúttóverð á tonnið.
Af því hefur verið gefinn 30% af-
sláttur, svo nettóverð pr. tonn hef-
ur verið 120 dollarar. Gunnlaugur
sagði að til þessa hafi verið erfitt
að bjóða þessa flutninga út, þar
sem ekki hafi alltaf verið vitað
með nægum fyrirvara um hve
mikið magn yrði að ræða eða
hvenær það yrði fáanlegt. „En nú
keyptum við 1200 tonn af hol-
lenskum Binté-kartöflum á einu
bretti og ákváðum að flytja þær
heim í þremur skömmtum, í des-
ember, janúar og febrúar. Þá var
augljóslega hægt að bjóða þetta út
og það gerðum við. Við fengum
fjögur tilboð, frá Eimskipafélagi
fslands, Hafskip, Skipadeild SIS
og Þorvaldi Jónssyni. Tilboðið frá
Hafskip var lægst og því var tek-
ið.“
Gunnlaugur staðfesti að Eim-
skip hefði boðið 50 dollara á tónn-
ið en Hafskip 44,25 dollara. Við
það bættist smávægilegur kostn-
aður, því að í tilboði Hafskips var
ekki reiknað með uppskipun og í
tilboði Eimskips var ekki reiknað
með útskipun, sem er almennt
nokkuð dýrari. Hin tilboðin tvö
voru talsvert hærri en í þeim var
reiknað með öllum kostnaði, sagði
hann.
Jasstónleikar í Norræna húsinu
Jass verður leikinn á sjöttu og síðustu Háskólatónleikum þessa misseris,
sem haldnir verða í Norræna húsinu miðvikudaginn 14. desember. Þar koma
Guðmundur Ingólfsson og Reynir Sigurðsson fram og leika „Norræn þjóðlög
með jass-ívafi“. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og standa í u.þ.b. hálftíma.
Fjárfestingarfélagið
hættir fasteignasölu
Tekur upp almenna fjármálaráðgjöf
STJÓRN Fjárfestingarfélags ís-
lands hefur ákveðið, að dótturfyrir-
tæki félagsins, Fjárfestingarmarkað-
ur Fjárfestingarfélagsins, muni sam-
einast því og beinni miðlun við kaup
og sölu fasteigna verði hætt.
Þess í stað mun Fjárfestingar-
félag fslands bjóða óháða og hlut-
lausa fjármálaráðgjöf á breiðu
sviði, sem styðjast mun við sér-
þekkingu félagsins á fjármála-
sviðinu, eins og segir í auglýsingu
Fjárfestingarfélagsins í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag.
í upphafi mun verða farið af
stað með fasteignaráðgjöf 19.
desember nk. Þar munu fyrirtæki,
fasteignasalar og einstaklingar
geta fengið ráðgjöf á fjármála-
sviðinu. í auglýsingu félagsins
segir, að aðstoðin muni einkum
felast í aðstoð við að meta áhrif
greiðsluskilmála á raunviði það
sem um er að ræða við kaup og
sölu fasteigna. í því felst m.a. að-
stoð við tilboðsmat og tilboðsgerð.
Dræm
loðnuveiði
LOÐNUVEIÐIN undanfarna daga
hefur verió rajög dræm og eru skipin
nú sum hver að tygja sig til heim-
ferðar og í jólafrí að sögn Andrésar
Finnbogasonar hjá Loðnunefnd. Alls
eru nú komnar um 113.000 lestir af
loðnu á land.
Á laugardag tilkynntu 7 skip
Loðnunefnd um afla, samtals
2.570 lestir. Það voru Víkingur
AK, 800, Hilmir II SU, 400, Erling
KE, 260, Hilmir SU, 500, Eldborg
HF, 60, Pétur Jónasson RE, 180 og
Gísli Árni RE, 370 lestir. Á sunnu-
dag tilkynnti aðeins eitt skip,
Dagfari ÞH, um afla, samtals 130
lestir. Síðdegis í gær höfðu fjögur
skip tilkynnt Loðnunefnd um afla,
samtals 980 lestir. Það voru Al-
bert GK, 300, Huginn VE, 300,
Kap II VE, 230 og Höfrungur AK
með 150 lestir.
Þá leggur félagið mat á hag-
kvæmni fasteignakaupa borið
saman við leigu eða fjárfestingu í
öðrum fjármunum. Félagið mun
standa fyrir útleigu og viðhaldi á
tölvutækum hugbúnaði sem auð-
veldað getur fasteignasölum að
bjóða upp á sveigjanlega greiðslu-
skilmála á sama hátt og félagið
hefur gert á undanförnum árum.
Námskeið í kvöld
í meðferö og matreiðslu í
örbylgjuofnum
verður í kvöld frá kl. 20—22 í versluninni.
Stjórnandi námskeiösins
hússtjórnarkennari.
er Ólöf Guönadóttir
Þátttaka tilkynnist í síma 17244.
HLJOMBÆR
HLJÐM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI
"■ ™ nfifiwi ■ ít ■ ■
IHIHMÞ-' ---
HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999 17244
,__, UMBORNIN
PAÐ GERIR (£LKO) OG FRAMLEIÐIR TENGLA
MEÐ „BARNAVERND“
Reynslan hefur sýnt aðþörf er á að fyrirbyggja slys á heimilum
— Maður veit aldrei á hverju bömin taka uppá.
FAGMENN ættu að hugleiða öryggið sem Elko veitir
börnum.
JTRÖNNING Sund?b?ra
simi 84000
OP® TIL SJÖ í KVDLD
Vöruniarkailurinn hf.
EIÐISTORG111
manudaga — þriðjudaga — miövikudaga