Morgunblaðið - 06.01.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
Miklar skemmdir á
flota Sandgerðinga
TOLF bátar slitnuðu upp í Sandgerdishöfn í gær-
morgunn er mikiö suðvestan og vestan veður gekk
yfir landið samhliða stórstraumsflóði og lágum loft-
þrýstingi. Veöur var alls staðar mjög mikið á Suður-
nesjum. Sjávarborg GK 60, 450 tonna loðnuskip, rak
upp í grjótgarðinn og sat þar föst. Reynt var að ná
henni á flot á flóði í gærkveldi.
Reynir frá Sandgerði, sem er tréskip, og Víðir II
frá Garðinum, sem er stálskip, slitnuðu einnig upp og
rak þau upp í grjótgarðinn, en með því að koma
spilvír á polla á bryggjunni tókst að koma bátunum á
flot og leggja þeim að nýju við bryggjuna. Skemmdir
á Víði eru taldar hverfandi, en Reynir er að líkindum
eitthvað brotinn eftir núninginn við klettana, en
skemmdirnar á honum eru ekki fullkannaðar.
Níu þessara báta voru 10—12 tonna trillur og tókst
að ræsa vélar fjögurra þeirra strax og koma þeim á
flot og festa við bryggju á ný án þess að teljandi
skemmdir hlytust af. Hinar fjórar rak upp í grjótgarð-
inn og strönduðu þar og voru þær hífðar með krönum
á þurrt seinnipartinn í gær, öll nema ein sem ekki
náðist. Miklar skemmdir urðu á þessum trillum sem
eru þó ekki fullkannaöar.
I'á fór vörubíll, ásamt bílstjóranum, einnig í höfn-
ina. Manninum tókst að bjarga og liggur hann við
nokkuð góða líðan á sjúkrahúsinu í Keflavík. Bfllinn
var hífður með krana í land um leið og trillurnar.
Sjávarborg GK-60 í grjótgarðinum í Sandgerðishöfn. Morp>nbi»ðið/Fri«þjéfur.
„Vörubíllinn þeyttist eins og
eldspýtustokkur í sjóinn“
Komum vír í land og
gátum togað okkur
að bryggjunni á ný
— segir Mark Brink
„Ég var kominn niður eftir um sex
leytið í morgun, útgerðarmaðurinn
minn hringdi í mig að koma með sér
því þeir komu vélinni ekki í gang á
bátnum sem ég er vélstjóri á. Við fór-
um á vörubfl niður á bryggju og við
sáum það strax að við myndum ekki
komast á vörubflnum út bryggjuna því
það braut svo mikið yfir hana,“ sagði
Mark, en hann bjargaði Svavari Ingi-
bergssyni á land ásamt Grétari Páls-
syni.
„Þegar við erum þarna niður frá
verðum við vitni að því að þrjár
trillur, sem lágu hver utan á ann-
arri, slitna upp og reka beint upp í
grjótgarðinn. Við förum heim til
eins eigandans, Grétars Pálssonar,
sem á Sæljónið, til að láta hann vita
að bátarnir væru lausir. Hann kem-
ur strax með okkur og biður konuna
sína um að láta Svavar vita, sem
átti Sóleyna en hún var næst
grjótgarðinum.
Þegar við komum aftur niður eft-
ir stóðu bátarnir jafn hátt og plan-
ið, ef ekki hærra og slógust í það.
Svavar og Grétar settu báða bátana
í gang og reyndu að keyra frá grjót-
garðinum, en Svavar gat það ekki
vegna þess að skrúfan á hans bát
var alveg í grjótinu. Þannig að
hann tók það ráð að reyna að koma
taug í vörubílinn. Ég var í bátnum
og kastað til hans tauginni, hann
var í landi á bílnum og Grétar
keyrði með á sínum bát, Sæljóninu.
Það var komin hreyfing á bátana,
þegar brotið kemur og það skipti
engum togum að vörubíllinn þeytist
eins og eldspýtustokkur í sjóinn. Ég
stóð í bátnum og rýndi út á höfnina,
en sem betur fer var ljós á bryggj-
unni, en það hafði alltaf öðru hvoru
verið að fara vegna rafmagns-
truflana. Sem betur fer rak ég aug-
un í höfuðið á Svavari í sjónum. Það
var mikill sjór, en mér tókst að
stökkva í land úr bátnum og gat náð
í handlegginn á honum, en hann
hafði á meðan synt að bryggjunni.
Grétar kom á eftir mér í land og í
sameiningu tokst okkur að draga
hann upp og gátum haldið á honum
Mark Brink
á milli okkar upp í vigtarskúrinn,
og þar var hann þangað til sjúkra-
billinn kom. Það var þungt að draga
hann upp að vigtarskúrnum, hann
er þéttur og það er óhætt að segja
að þetta sé heljarmenni. Það er sér-
stakt að maður á þessum aldri skuli
hafa haft það af að bjarga sér í
þessum hamagangi, enda var ég
forviða þegar ég sá honum skjóta
upp, en allt tók þetta bara nokkur
augnablik," sagði Mark að lokum.
Rætt við Jón Sig-
valdason, skip-
stjóra á Reyni frá
Sandgerði
„ÉG VAR komin hingað niðureftir
klukkan 6.30. Þá var báturinn
komin upp í grjótgarðinn með Víði
II utan á sér, en við lágum utan á
honum og bátana rak samsíða upp
í fjöruna, þar sem Sjávarborgin er
núna," sagði Jón Sigvaldason,
skipstjóri á Reyni GK frá Sand-
gerði, en bát hans, sem er rúmlega
100 tonn, sleit upp og rak upp í
fjöru í suðvestan áhlaupinu sem
gerði í gærmorgun.
„Ég, vélstjóri, stýrimaður og
kokkurinn, komumst um borð.
Það var ekkert hægt að gera hér
í morgun fyrst í stað fyrir veð-
urhæð. Smám saman gátum við
hreyft Reyni með Víði utan á sér
upp í hornið og þegar þangað
var komið komum við togvír í
land sem við settum utan um
polla á bryggjunni þaðan sem
okkur hafði rekið. Þegar lag
kom losnaði báturinn af grjót-
inu og við gátum þannig smá
mjakað okkur frá. Þegar við
vorum komnir á flot, losuðum
við Víði, sem allan tíman var
utan á okkur, vélarvana og
mannlaus, frá að framan og
bökkuðum hingað og gátum lagt
hér að. Við drógum Víði á eftir
okkur með spilinu og komum
Ragnar Þ.
Guðmunds-
son forstjóri
er látinn
Látinn er í Reykjavík Kagnar Þ.
Guönnindsson, forstjóri Ríkisprent-
smiðjunnar Gutenberg, 62 ára aö aldri.
Kagnar var fæddur í Keykjavík 15.
mars árið 1921, sonur hjónanna Ing-
unnar Tómasdóttur og Guðmundar H.
Þorlákssonar skipstjóra.
Ragnar lærði prentiðn í ísafold-
arprentsmiðju og lærði síðar setn-
ingu á sama stað og var við nám og
störf í ísafoldarprentsmiðju á árun-
um 1936 til 1942, en starfaði stðan í
Alþýðuprentsmiðjunni frá 1943 til
1944. Þá fór hann til New York og
var þar við prentnám, kynnti sér
setningarvélar og meðferð þeirra.
Eftir heimkomuna 1945 hóf hann á
ný störf við Alþýðuprentsmiðjuna
sem vélsetjari og var síðan prent-
KR byggir félagsmiðstöð við Frostaskjól:
Borgin greiðir húsaleigu
fyrirfram fyrir 27 ár
smiðjustjóri þar árin 1957 til 1967.
Ragnar var forstjóri Gutenbergs-
prentsmiðjunnar frá 1968. Ragnar
var í prófnefnd í setningu frá árinu
1960.
Eiginkona Ragnars, Katrín I.
Bjarnadóttir, lést árið 1969, en þrjú
uppkomin börn þeirra lifa foreldra
Reykjavíkurborg og Knatt-
spyrnufélag Reykjavíkur, KR, hafa
gert með sér samkomulag, — leigu- og
samstarfssamning, um það að borgin
leigi hluta húsnæðis í væntanlegri fé-
lagsmiðstöð við Frostaskjól sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk
hjá Ómari Einarssyni, framkvæmda-
stjóra /Eskulýðsráðs borgarinnar.
Samkomulagið hefur verið sam-
þykkt með 4 samhljóða atkvæðum í
borgarráði, en fulltrúi Kvennafram-
boðs sat hjá og lét bóka mótmæli sín
við samningnum.
í samningi borgarinnar og KR er
kveðið á um að borgin greiði húsa-
Albert Guömundsson:
Vöruverð ætti að lækka
í samræmi við lækkandi fjármagnskostnað
„ÉG TEL að það sem verði að gerast
núna sé að fyrirtæki og verzlanir
lækki vöruverð miðað við lækkandi til-
kostnað. Fjármagnskostnaðurinn hef-
ur hekkað mikið, en vöruverð lækkar
ekki í sama hlulfalli," sagði Albert
Guðmundsson, fjármálaráðherra, í
viðtali við blm. Mbl. í gær.
Albert sagði ennfremur, að hann
teldi kaupmenn og verzlunarmenn
verða að taka þetta upp af sjálfs-
dáðum. „Ef þeir vilja vinna sem
frjálsir aðilar, og að frjáls álagning
sé viðhöfð, þá mega þeir ekki nota
sér frjálsræðið til að viðhalda háu
vöruverði," sagði ráðherrann.
Albert var spurður hvort stjórn-
völd gætu með einhverju móti stuðl-
að að lækkun vöruverðs. Hann svar-
aði: „Það endar með því að það þarf
að kanna hvernig á því stendur að
lækkandi verðbólga kemur ekki út í
lækkandi vöruverði.' Fjármagns-
kostnaður hefur minnkað verulega
og þar af leiðandi ætti allur til-
kostnaður að minnka."
leigu fyrirfram fyrir 555 fermetra
húsnæði að upphæð 9 milljónir
króna. Er það fyrir leigu í 27 ár, en
greiðslu á að inna af hendi á árun-
um 1984 til 1986, en dragast lengur
ef framkvæmdir við húsnæðið drag-
ast.
Ómar sagði að grunnteikningar af
húsinu lægju fyrir og væri áætlað
að það yrði um 867 fermetrar að
stærð, en hluti borgarinnar verður
555 fermetrar, eins og áður sagði.
Sagði Ómar að í hinni væntanlegu
félagsmiðstöð yrði bæði rekin starf-
semi fyrir börn, unglinga og aldr-
aða, þ.e. tómstundastarf almennt.
Áætlað er að húsið verði tilbúið árið
1986.
ísbjörninn hf.:
Fyrsti togar-
inn til veiða
„ÞAÐ er fyrirhugað að fyrsti togar-
inn okkar, Ásþór, haldi til veiða á
laugardag og hinir tveir með
skömmu millibili á eftir honum.
Vinna gæti þá hafizt í frystihúsinu
um miðjan mánuðinn," sagði Ingv-
ar Hjálmarsson, forstjóri ísbjarn-
arins, í samtali við Morgunblaðið.
Ingvar sagði ennfremur, að
frá því fyrir jól hefði afli verið
tregur og veður slæmt þannig að
ekki hefði þótt borga sig að
senda skipin fyrr á veiðar. Afla-
og gæftaleysi væri of mikið ofan
á erfiða rekstrarafkomu, en á
hinn bóginn væri nauðsynlegt að
fá hráefni til vinnslu í landi til
að halda þessu gangandi.
Um 230 manns var sagt upp
hjá ísbirninum um miðjan des-
ember síðastliðinn og fær það
fólk væntanlega vinnu aftur þeg-
ar hráefni fer að berast að landi.