Morgunblaðið - 06.01.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
„Réðst ekki við neitt“
segir 1. stýrimaður á Sjávarborg GK-60
„Skipið slitnaði frá og það var ekki
nema einn vír sem hélt að framan þeg-
ar við komum að henni. Síðan slitnaði
hann líka og þrátt fyrir að við va*rum
með akkeri úti réðum ekki við neitt og
skipið rak upp í garðinn," sagði Sig-
urður Hólm, 1. stýrimaður á Sjávar-
borg GK 60, sem er 450 lesta skip,
þegar blm. Morgunblaðsins spjallaði
við hann um borð í Sjávarborginni í
gærmorgun, þar sem hún lá utan í
grjótgarðinum í Grindavíkurhöfn.
„Það voru menn um borð í nótt en
þeir réðu ekki við neitt og því fór
sem fór. Hinir tveir bátarnir, Reyn-
ir og Víðir, lágu næstir okkur og
sennilega er það svo að þegar þeir
slitna upp, slitnum við um leið upp
að aftan og taugin sem er að framan
heldur honum ekki ein sér. Það hef-
ur sennilega verið milli kl. 6 og 6.30
sem hann siitnar upp fyrst og svona
klukkutíma síðar er hann alveg far-
inn. Það má segja að hann hafi rekið
beint upp, en hann stoppaði þó að-
eins vegna akkerisins.
Við vitum ekki enn um skemmdir,
en mér finnst mjög ólíklegt að hann
sé nokkuð skemmdur. Hann liggur
hér fyrst og fremst í sandi og drullu,
en þó er ekkert hægt að segja með
neinni vissu að svo komnu máli. Við
ætlum að reyna að ná honum á flot
á flóðinu í kvöld, með því að setja
línu í land, dobla hana og draga
hann út á spilinu. Við reyndum
þetta í morgun, en við höfðum svo
lítinn tíma að það tókst ekki, það
var svo mikið fallið út,“ sagði Sig-
urður ennfremur.
Jón Sigvaldason, skipstjóri á Reyni
frá Sandgerði.
honum einnig að bryggju. Um
hálf tíu leytið voru báðir bát-
arnir tryggilega bundnir hér við
bryggjuna að nýju. Það lögðu
margir hönd á plóginn til að-
stoðar bæði björgunarsveitar-
'menn og aðrir og þá ekki síst
starfsmenn Miðness hf.,“ sagði
Jón.
„Botninn er örugglega
skemmdur stjórnborðsmegin,
báturinn lá það mikið utan í
grjótinu, en stýrið og skrúfan
virðast hafa sloppið alveg,“
sagði Jón, er hann var spurður
um skemmdir, en Reynir er
trébátur. „En það er erfitt að
fullyrða nokkuð svona að ókönn-
uðu máli. Skemmdirnar verða
ekki kannaðar til fulls öðru vísi
en með því að taka bátinn upp í
slipp".
Jón sagði að þeir væru á tog-
veiðum árið um kring. Þeir
hefðu legið inni frá því 17. des-
ember og hefðu verið að dytta að
ýmsu, en stefnt að því að fara út
aftur uin 10. janúar. Hann bjóst
við að þessi uppákoma seinkaði
því að báturinn kæmist á veiðar
um mánuð, en það færi eftir þvi
hve skemmdirnar reyndust
miklar.
„Ég hef aldrei lent í því verra
hvað þetta snertir. Flóðhæð var
mjög mikil, en síðan ' varnar-
garðurinn kom eru menn ró-
legri. Áður en hann kom, voru
menn um borð í bátunum, þó
það spáði ekki nema stormi. Það
er alveg einstakt að hafa tekist
að bjarga bátunum, mér leist
ekkert á blikuna þegar við vor-
um komnir þarna þrír upp í
grjótið," sagði Jón Sigvaldason
að lokum.
3
Grjótið barst langt upp á land. Morpinbi»*ið/ f’ríðþjófur
Hús umflotin vatni en lftið eignatjón í Höfnum:
Eldglæringar stóðu
út úr húsakjöllurum
ÞAÐ VAR unnið við frágang og lag-
færingar í Höfnum eftir óveðrið,
þegar Morgunblaðsmenn voru þar
á ferðinni í gær, skömmu eftir há-
degi. Víða mátti sjá ummerki óveð-
ursins, en að svo miklu leyti sem
skemmdir höfðu verið kannaðar,
voru þær óverulegar miðað við
þann skaða sem varð vegna óveð-
ursins á Akranesi og í Sandgerði.
Tvö hús voru umflotin vatni og sjór
hafði komist í kjallara þeirra, en
íbúar þeirra beggja voru ekki
hcima, svo skemmdir höfðu ekki
verið kannaðar.
„Þetta er aðallega sandur og
drulla sem hefur borist inn í hús-
ið, eignatjónið er hverfandi,"
sagði Ólafur Eggertsson, hjá
Fiskverkun Eggerts Ólafssonar,
en sjórinn braut þar dyr svo
sandur og grjót barst óhindrað
inn í husið. Nokkrir pakkar af
saltfiski blotnuðu af sjógangi og
varð að taka fiskinn upp og
þurka hann að nýju. 10 tonna
trilla sem var þar skammt frá
barst undan veðrinu um það bil
20 metra og lá þversum á vegin-
um er Morgunblaðsmenn bar að
og til marks um sjóganginn barst
trog fullt með netasteinum tugi
metra. Alls staðar mátti sjá um-
merki óveðursins, grjót úr fjör-
unni var tugi metra inní landi.
Sjórinn gekk yfir spennistöðina í
þorpina og var unnið við að verja
hana í gær, því spáð var versn-
andi veðri á ný.
„Ég vaknaði klukkan sex og þá
var húsið umflotið. Ég þorði ekki
annað en að taka með mér
nokkra hluti og við færðum,
okkur upp í annað hús sem
stendur ofar,“ sagði Reitar
Óskarsson, sem býr í einu af
neðstu húsunum. „Sjórinn gekk
hér yfir allt og braut á húsunum
sem neðst standa og voru auð og
ekki um annað að ræða. Ég var
síðan hérna niður frá og fylgdist
með þróuninni. Það er enginn
kjallari á húsinu mínu, en eins og
sjá má hefur aðeins tekið undan
sökklinum," sagði hann ennfrem-
ur.
„Þetta hefur byrjað um hálf
sex og þegar sjórinn féll að hús-
unum, sem eru umflotin, stóðu
eldglæringar út úr kjöllurunum,
þegar rafmagninu sló út, en sem
betur fer kviknaði ekki í,“ sagði
Indriði Adolfsson, sem býr i einu
af nærliggjandi húsum.
Upp meö góðo ,
- |«öur meö vöiwmJA.
Opiðsemhérsegir. .. 9.19 Æ
Mánudaga t\l fimmtudaga ■ • • k • g 21 ._
föstudaga .......k\. 9-16 a«|KUG4RE>UR
Él laugardaga .. markaður við sund