Morgunblaðið - 06.01.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
5
Skarð brotið í Eiðið í Vestmannaeyjum:
Tugmilljóna verðmæti í hættu
„ÞAÐ ER ljóst að hér eru verð-
mæti upp á milljónatugi króna í
hættu og það verður örugglega
miklum vanda bundið að fylla upp
í Eiðið vegna þess hve hér er mik-
ill skortur á heppilegu grjóti í
fyllinguna,“ sagði Ólafur Elísson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, í
samtali við blaöamann Morgun-
blaðsins í gær. — En í fyrrinótt
braut mjög á Eiðinu í óveðrinu og
tók úr tugþúsundir tonna af fyll-
ingu, þannig að Skipalyftusvæðið
er nú mjög illa varið og þar eru
mikil verðmæti í hættu, meðal
annars í fjórum bátum, sem þar
standa nú uppi.
Ólafur Elísson, bæjarstjóri,
Á annað hundrað
manns voru veður-
tepptir í Hrútafirði
Borgarnesi 5. janúar.
Á annað hundrað manns bíða nú í Hrútafirði eftir aö komast
suður yfir Holtavörðuheiði, sumir eru búnir að bíða þar síðan á
mánudag. í fárviðrinu í gær, miövikudag, festust um 40 bílar, sem í
voru um 100 manns, á heiðinni, en seint í gærkvöldi tókst að koma
flestum bílunum og öllu fólkinu
unnu vegagerðarmenn að því að
frá í gær, til byggða en hætta
versnandi veðurs þegar á daginn
„Þetta var svakaleg lífs-
reynsla sem ég vildi ekki upplifa
aftur," sagði Kristín Kristjáns-
dóttir í samtali við Morgunblað-
ið þar sem hún var stödd í Stað-
arskála í dag, en hún var í einum
af þeim bílum sem snúið var við
á heiðinni í gær. Sagðist hún
hafa verið á leið frá Sauðárkróki
heim til sín í Hafnarfjörð en
verið veðurteppt í Staðarskála
frá því á mánudag. „Við vorum í
fimm bíla samfloti og komumst
að mæðiveiki-girðingunni uppi á
heiðinni þegar okkur var snúið
við,“ sagði Kristín. „í allt voru
þarna um 40 bílar og flestir full-
ir af fólki þannig að þetta hefur
ekki verið undir 100 manns sem
þarna voru. Mannskaðaveður
var um miðjan daginn svo ekki
var með nokkru móti fært á milli
bíla. Við sáum til dæmis ekki til
bíls í eina tvo klukkutíma sem þó
var lagt fast að stuðaranum á
okkar bíl. Þetta var kalsöm bið
hjá sumum því nokkrir bílanna
drápu á sér og var fólkið í þeim
orðið ansi illa blautt og kalt.
Varð að skilja átta bíla eftir á
til byggða í Hrútafirði. I morgun
koma átta bílum, sem ganga varð
varð við að opna heiðina vegna
leiö.
heiðinni. Annars reyndi fólkið
að hafa ofan af fyrir sér eftir því
sem hægt var, í okkar bíl lásum
við og spiluðum og sumir fengu
sér blund." Kristín sagðist ætla
að bíða í Staðarskála þar til
veðrinu slotaði.
í Staðarskála voru í gær
40—50 manns og sagði Kristín
að öllum þar liði vel. Áuk fólks-
ins í Staðarskála beið fólk í
Reykjaskóla og á ýmsum bæjum
í Hrútafirði. Áætlunarbifreið
Norðurleiðar frá Akureyri bíður
á Blönduósi. Bragi Jóhannsson,
verkstjóri hjá Vegagerðinni í
Borgarnesi, sagði að ekki hefði
reynst fært að moka Holta-
vörðuheiðina í dag vegna veðurs
eins og þó hefði verið áformað,
en á morgun, föstudag, væri
snjómokstursdagur og yrði heið-
in þá opnuð ef nokkur möguleiki
væri. Sagði hann að talsverður
snjór væri við og á heiðinni og
væri hann orðinn harður og erf-
iður viðfangs vegna veðrahams-
ins.
HBj.
Ekkert innan-
landsflug í gær
ALLT innanlandsflug féll niður í
gær og voru flugbrautir lokaðar
vegna hálku og hliðarvinds.
Að sögn Ingibjargar Guð-
mundsdóttur, flugafgreiðslu-
manns hjá Arnarflugi, voru áætl-
aðar ferðir til ellefu staða úti á
landi og sagði hún að biðlisti væri
í flestar ferðirnar. Ein ferð var
áætluð á vegum Arnarflugs til
Blönduóss klukkan 17 í gærdag, en
ekki reyndist unnt að fljúga þá
vegna hliðarvinds.
„Það eru þrettán hundruð
manns, sem eru á biðlista í innan-
landsflug á vegum Flugleiða,"
sagði Kristinn Stefánsson, af-
greiðslustjóri hjá innanlandsflugi
félagsins. Kristinn sagði að átján
ferðir hefðu verið áætlaðar í gær
og flestir væru bókaðir í ferðir til
Reykjavíkur. Ennfremur var áætl-
að að fljúga til Akureyrar, Horna-
fjarðar, Egilsstaða og Húsavíkur.
sagði að í fyrravetur hefðu orð-
ið skemmdir á Eiðinu, en þær
hefðu verið mun minni en nú og
gert var við þær í sumar. Eiðið
svonefnda aðgreinir Friðar-
höfnina frá úthafinu og liggur
milli Klifsins og Heimakletts.
Þar fyrir innan er uppfyllt
svæði, sem nú er athafnasvæði
Skipalyftunnar hf. Hrauni úr
Vestmannaeyjagosinu var ekið í
uppfyllinguna og í Eiðið, en nú
er sú uppfylling í hættu. „Við
erum mjög uggandi um hvernig
fer í nótt og næstu daga,“ sagði
bæjarstjóri, „og erum illa búnir
undir nýtt óveður. Hvað gert
verður mun svo væntanlega
skýrast næstu daga, en ég
endurtek að skortur á grjóti í
garðinn gerir það erfitt að fylla
í skarðið. En hvað sem gert
verður er ljóst að þær fram-
kvæmdir munu kosta milljónir
króna.
Morgunblaðift/Friftþjófur.
Öngþveiti skapaðist þegar sjór flæddi yfir Ánanaust í gærmorgun. Lögreglan
dró 10 bfla, sem ekið hafði verið út í vatnselginn, en þar sem dýpst var hafði
myndast um 70 sentimetra djúpur sjór.
Mikið grjót barst á land í ágangi sjávar. Svo virðist sem ökumenn hafi
ekki áttað sig á aðstæðum og ekið út í og síðan fest er drapst á vélum
bifreiða þeirra.
Þannig var umhorfs í Ánanaustum um kl. 7.15 í gærmorgun.
NÝJUNG Á ÍSLANDI
KENNSLA í LÍKAMSRÆKT Á NÁMSKEIÐI
Dugguvogi 7. Sími 35000.
lv\öasX'
de,-tO^Í
Námskeiö fyrir konur -Ke”ns'a
I j ijkamsrækt með tækjum i 2 sölum, tækja-
Isal og upphitunarsal. Kennsla og raðgiof i
o.H. Megináheraa ttrgO a bnost,
llendar og mitti.
11 piðbeinendur: Ómar Sigurðsson og
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir. Kennt ^öur a
mánudögum, miðvikudogum og fostudog
OpM ídíwtil kl. 21
C
TJ A /1 jr ATT1> Skeifunni 15
H21Un.HU r Reykjavík