Morgunblaðið - 06.01.1984, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
11
Er hægt aS sigrast á leghálskrabhameini? AlþjóSa heil-
brigSismálastofnunin vill aS Islendingar sýni öSrum
þjóSum aS hægt sé aS koma í veg fyrir dauSsföll af völd-
um þessa sjúkdóms. Efri línan á þessari mynd táknar
hreytingar á nýgengi Ifjölda nýrra tilfella) af legháls-
krabbameini, miSaS viS 100.000. NeSri línan sýnir dán-
artíSnina úr þessum sjúkdómi, en ef vel tekst til verSur
hún komin niSur undir núllpunktinn fyrir næstu alda-
mót. Flest dauSsföll urSu áriS 1969 119) en fæst 1977 og
1982 (I á ári). Konur sem hafa ekki mætt í leghálsskoSun
eru í tífalt meiri hættu á aS deyja úr leghálskrabbameini
heldur en þær konur sem hafa einhvern tímann veriS
skoSaSar. ÞaS er því full ástæSa til aS hvetja íslenskar
konur á aldrinum 25—69 ára til aS fara í leghálsskoSun
annaS eSa þriSja hvert ár.
1951 1966 1976 1996
-55 -70 -80 -2000
um hættur af reykingum, dró úr
reykingum meðal unglinga um 40%
á árunum 1974—’82. Ef haldið
verður áfram á þessari braut má
reikna með því að mun færri verði
hjarta- og lungnasjúkdómum að
bráð í framtíðinni.
4. Leghálskrabbamein
Ekki þarf að fara mörgum
orðum um vel heppnaðar
heilsuverndaraðgerðir á þessu
sviði. Nú er stefnt að því að út-
rýma dauðsföllum vegna þessa
sjúkdóms fyrir næstu áramót.
5. Háþrýstingur/heilablæðing
A árunum 1966—1980 lækk-
aði dánartíðni vegna þessara
sjúkdóma um allt að helming.
Enginn efnast nú um að
orsökin sé stórbætt sjúkdóma-
leit og meðferð.
6. Smitsjúkdómar
í tveimur rauðhundafaröldr-
um, þ.e. 1964 og 1972—’73 fædd-
ust alls 45 verulega sködduð
börn vegna veirusýkingar. Árið
1979 gekk mikill faraldur yfir
landið en einungis 2 sködduð
börn fæddust eftir þann farald-
ur. Að svo tókst til má þakka
víðtækri heilsuvernd (ónæmis-
aðgerðum). Kostnaður við þess-
ar aðgerðir nam sem svaraði
beinum útgjöldum ríkis vegna
framfærslu eins heyrnarskadd-
aðs barns.
Allt bendir til þess að árið
1980 hafi tekist að koma í veg
fyrir mislingafaraldur hér á
landi. Af fyrri faröldrum má
áætla að komið hafi verið í veg
fyrir að 10.000—12.000 börn og
unglingar hafi veikst af misl-
ingum.
Aldursstööluð dánartíðni. miðað við 100 000
-70 -75 -80
7. Kynsjúkdómar
Á árunum 1979—’82 fækkaði
Iekandatilfellum meðal 15—19
ára unglinga um 45%. Þetta
skeði í kjölfar öflugrar fræðslu-
herferðar í skólum. Þetta eru
mjög alvarlegar sýkingar því að
talsverður hluti kvenna fær
eggjaleiðarabólgu. Talið er að
orsök ófrjósemi sé fyrri eggja-
leiðarabólga í allt að Vs tilfella.
8. Tannsjúkdómar
Eitt glæsilegasta dæmið um
sparnað er hlotist hefur af öfl-
ugri heilsuvernd og heilbrigðis-
fræðslu eru aðgerðir nágranna-
þjóða í tannverndarmálum.
Bein afleiðing þessara aðgerða í
Noregi er að kostnaður sveitarfé-
laga vegna tannviðgerða hefur
lækkað um 40—50%. Hér á landi
er varið auknu fjármagni til
tannviðgerða.
9. Ávanabindandi lyf
Með markvissum aðgerðum
hefur tekist að minnka sölu
sterkra ávanabindandi lyfja um
60—70% og róandi lyfja um 40%
á síðastliðnum sex árum. Heim-
sóknum vegna eitrana á slysa-
deild Borgarspítalans fækkaði
um helming á sama tíma.
10. Fíkniefni
Án efa er unnt að draga úr
notkun fíkniefna með mark-
vissri fræðslu og eftirliti. Því
miður skortir upplýsingar um
dreifingu þessara efna, sem
m.a. hefur valdið því að furðu-
fregnir eru fluttar um út-
breiðslu þeirra. T.d. er því hald-
ið fram að allt að fjögurra
tonna af kannabís sé neytt ár-
lega hér á landi. Vitað er að
venjulegur dagskammtur er um
eitt gramm. Fjögurra tonna
ársneysla svarar til þess að á
milli 30—40 þúsund manns, það
er allir í árgöngum 16—25 ára
neyti þessara efna reglulega
tvisvar í viku. Söluverð þessa
magns er 1,5—1,6 milljarðar á
ári. Á sama tíma er selt áfengi
fvrir tæpan milljarð árlega hjá
ÁTVR!! Furðufregnir sem þess-
ar draga sennilega ekki úr sókn
unglinga í fíkniefni „vegna þess
að allir nota þau“.
Um heilbrigdisfræðslu
Heilbrigðisfræðslu sem fellur
undir almenna menntun þarf að
efla til muna. Sérstaklega fyrir
börn og unglinga. Ég tel að skólinn
þurfi að sinna þessum málum mun
meira en gert er nú. Á skólaárum
mótast neysluvenjur fólks varðandi
t.d. tóbak og áfengi.
Staðreynd er að fæstir stórreyk-
ingamenn hætta reykingum, þess
venga er helst til ráða að hafa
áhrif á ungt fólk. Næst foreldrum
er skólinn í bestri aðstöðu til þess
að hafa áhrif á lífsvenjur unglinga
á mótunartímanum. Um fíkniefni
gildir hið sama.
Til þess að draga úr helstu sjúk-
dómum er okkur hrjá, þ.e. hjarta/-
æðasjúkdómar, krabbamein og slys
— þarf að feista þess m.a. að fræða
unglinga mun betur en gert er.
Mikil þörf er á virkari og meiri
fræðslu um slysavarnir í skólum,
því að skólabörnum og unglingum er
margfalt hættara við áverka og/eða
dauða en öðrum aldurshópum. Sam-
kvæmt lögum ber skólum skylda
til þess að kenna börnum sund —
eins og nú er komið ber skólum
ekki síður skylda til að kenna
börnum og unglingum að bjarga
sér í umferðinni. Nauðsynlegt er
að taka upp ökukennslu í síðasta
bekk grunnskóla og framhalds-
skólum.
Nokkrum árum eftir að stúlkur
ljúka námi í grunnskóla hefur
helmingur þeirra alið bðrn og
stofnað heimili. Vinnustaður
þeirra er m.a. eldhús. í eldhúsum,
sem eru hættulegir vinnustaðir,
eru fleiri tugir hættulegra efna og
margar slysagildrur. Með hliðsjón
af þeim fjölda ungbarna sem
heimsækir slysadeildir á ári
hverju eftir að hafa gleypt einhver
efni eða slasast á bitjárni væri
ekki úr vegi að verja t.d. nokkrum
efnafræðitímum og öðrum kennslu-
stundum til þess að kenna þessum
stúlkum um hættur heimilisins.
Annaðhvort verður að fá skóla-
hjúkrunarfræðinga eða lækna til
þess að taka virkari þátt í fræðsl-
unni eða gera kennurum kleift að
menntast í heilbrigðisfræðum.
Jamm og já
og seisei yes
Hljóm-
plotur
Siguröur Sverrisson
Yes
90125
Atco/Steinar
Það er orðið æði langt síðan
Yes lét síðast heyra frá sér á
breiðskífu. Reyndar átti enginn
von á að heyra nokkuð frekar frá
þeim köppum eftir að flokkurinn
liðaðist sundur fyrir fáum árum,
en eins og James Bond segir:
„Segðu aldrei aldrei."
Yes er nú mætt til leiks að
nýju og heyrist mér hljómsveitin
hafa haft gott af hvíldinni. Tón-
listin var orðin nokkuð útþynnt
undir það síðasta á fyrra ævi-
skeiðinu eftir að Yes hafði skap-
að sér nafn sem eitthvert fram-
sæknasta rokkbandið á árunum
um og eftir 1970.
Eðlilega fylltust menn efa-
semdum er fréttist af þessari
nýju plötu Yes, því dæmin hafa
sannað áður, að uppátæki af
þessu tagi geta reynst illilega
misheppnuð. Efasemdir í garð
Yes á þessari plötu reyndust al-
gerlega óþarfar. Þá, sem ekki
hafa heyrt 90125, get ég upplýst
um að Yes kemst frá þessu nýj-
asta verkefni sínu með miklum
sóma.
í hinni nýju útgáfu Yes sakna
ég Steve Howe, sem enn er að
paufast með Asíu við þverrandi
orðstir. Þeir Jon Ánderson,
söngur, Chris Squire, bassi, Tony
Kaye, hljómborð, Álan White,
trommur, og Trevor Rabin, gít-
ar, halda manni hins vegar vel
við efnið. Rabin er svo að segja
sá eini þeirra fimm, sem eitt-
hvað fær að spreyta sig í stutt-
um sólóum og gerir það snotur-
lega.
Þótt tónlist Yes sé á þessari
plötu að mörgu leyti lik því sem
gerðist á gullskeiði hennar eru
útsetningar breyttar, áherslur
aðrar og yfirbragðið allt fágaðra
og þá um leið meira „commer-
cial“. Söngur Andersons er sam-
ur við sig og fjölröddun er mikið
beitt á 90125. Menn mega hins
vegar ekki halda að öll platan sé
í anda lagsins vinsæla (og reynd-
ar þrusugóða) Owner Of A Lone-
ly Heart. Það er nokkuð sér á
báti.
Undirrituðum finnst öll fyrri
hlið plötunnar vera sérstaklega
heilsteypt og sannfærandi. Þar
rekur hvert hörkugóða lagið
annað. Önnur hliðin er ekki eins
sterk, en lögin Our Song og City
Of Love mjög góð. 90125 er fylli-
lega þess virði að menn gefi
henni gaum, og fjárfesti hafi
þeir aura.
[WO
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
City of Hartlepool 26.jan.
Bakkafoss 3. febr.
City of Hartlepool 15. febr.
Bakkafoss 24. febr.
NEW YORK
City of Hartlepool 25. jan.
Bakkafoss 2. febr.
City of Hartlepool 14. febr.
Bakkafoss 23. febr.
HALIFAX
City of Hartlepooi 28. jan.
City of Hartlepool 17. febr.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 15. jan.
Álafoss 22.jan.
Eyrarfoss 29. jan.
FELIXSTOWE
Álafoss 9. jan.
Eyrafoss 16. jan.
Álafoss 23. jan.
Eyrarfoss 30. jan.
ANTVERPEN
Álafoss 10.jan.
Eyrarfoss 17. jan.
Álafoss 24. jan.
Eyrarfoss 31. jan.
ROTTERDAM
Alafoss 11. jan
Eyrarfoss 18. jan.
Álafoss 25. jan.
Eyrarfoss 1. febr.
HAMBORG
Álafoss 12. jan.
Eyrarfoss 19. jan.
Álafoss 26.jan.
Eyrarfoss 2. febr.
WESTON POINT
Helgey 16. febr.
LISSABON
Skeiösfoss 10.jan.
LEIXOES
Skeiösfoss 11. jan.
BILBAO
Skeiösfoss 13.jan.
NORÐURLÖND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 6. jan.
Mánafoss 13. jan.
Dettifoss 20. jan.
Mánafoss 27. jan.
KRISTIANSAND
Dettifoss 9. jan.
Mánafoss 16. jan.
Dettifoss 23. jan.
Mánafoss 30. jan.
MOSS
Dettifoss 6. jan.
Mánafoss 17. jan.
Dettifoss 20.jan.
Mánafoss 31. jan.
HORSENS
Dettifoss 11. jan.
Dettifoss 25. jan.
GAUTABORG
Dettifoss 11. jan.
Mánafoss 18 jan.
Dettifoss 25. jan.
Mánafoss 1. febr.
KAUPMANNAHÖFN
Dettifoss 12.jan.
Mánafoss 19.jan.
Dettifoss 26. jan.
Mánafoss 2. feb.
HELSINGJABORG
Dettifoss 13.jan.
Mánafoss 20. jan.
Dettifoss 27. jan.
Mánafoss 3. febr.
HELSINKI
Irafoss 5. jan.
írafoss 30. jan.
GDYNIA
Irafoss 7. jan.
irafoss 1. febr.
ÞÓRSHÖFN
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram og til baka
frá REYKJAVÍK
alla manudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
o alla fimmtudaga
EIMSKIP
*