Morgunblaðið - 06.01.1984, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
13
_ _________________________________________________—-------------------
Jaruzelski og
Glemp ræddust við
á lokuðum fundi
Úr dönsku kosningabaráttunni
Kosningabaráttan í Danmörku er nú að ná hámarki fyrir þingkosningar þær, sem fram eiga að fara þar
í landi á þriðjudag. Mynd þessi er af Erhard Jakobsen, leiðtoga miðdemókrata á kosningafundi. í
skoðanakönnun blaðsins Jyllandsposten, sem skýrt var frá nú i vikunni, var því spáð, að flokkur
Jakobsens myndi tapa miklu fylgi.
Varsjá, 5. janúar. AP.
FRÁ ÞVÍ var greint í Varsjá í gær, að Wojciech Jaruzelski,
yfirmaður pólsku herstjórnarinnar, hefði hitt Jozef Glemp
erkibiskup að máli á lokuðum fundi. Er þetta í fyrsta skiptið
sem þeir ræðast við síðan að Jóhannes Páll páfi II heimsótti
landið í júní síðastliðnum.
Hin opinbera fréttastofa,
PAP, greindi einungis frá því að
fundurinn hefði farið fram og
staðið yfir í um klukkustund.
Annað kom ekki fram. Búist var
þó við því að Glemp myndi
greina nánar frá viðræðunum í
dag, föstudag.
Háttsettir kirkjunnar menn í
Póllandi, sem ekki vildu láta
nafns getið, sögðust þó telja að
umræðuefnið hefði verið tví-
Tillögur Kissinger-nefndarinnar:
Einn milljarður dollara í
aðstoð við Mið-Ameríku
þætt. Glemp hefði viljað ræða
mögulega frelsun háttsettra
Samstöðumanna, hverra rétt-
arhöld standa yfir, með tilliti til
sjóðs þess sem kirkjan ræður nú
yfir til handa sjálfseignarbænd-
um í landinu og er byggður á
verðlaunafé því sem Lech Wal-
esa fékk er hann var útnefndur
til friðarverðlauna Nóbels.
Auk þess telja umræddir
kirkjumenn að Glemp hafi not-
að tækifærið og mótmælt of-
sóknum þeim er fáeinir prestar
hafa sætt að undanförnu, svo
sem Jerzy Popieluszko, sem
sagður er hafa misnotað trú-
frelsið í landinu í þágu Vestur-
landa. Fundur þeirra Glemp og
Jaruzelski kom nokkuð á óvart
að sögn fréttaskýrenda, þar sem
stjórnvöld í Póllandi hafa aukið
þrýsting á kirkjuna til þess að
kveða niður áhrifin sem heim-
sókn páfa hafði síðastliðið
sumar.
W ashington, 5. janúar. AP.
Kissinger-nefndin svo-
nefnda, sem fjallar um mál-
efni Mið-Ameríku, er talin
munu mæla með því, að
Banda ríkin verji einum
milljarði dollara í efnahags-
og hernaðaraöstoð á næstu
árum í því skyni að leysa þró-
unar- og öryggisvandamál
ríkjanna á þessu svæði. Var
Moskvu 5. jan. AP.
Úrslitaeinvígi árskorendakeppn-
innar í heimsmeistaramótinu í skák
hefst að öllum líkindum 10. mars
nk. í Vilnius, höfuðborg Litháens, að
því er sovéska dagblaðið Izvestia
greindi frá í dag.
þetta haft eftir bandarískum
embættismönnum í Wash-
ington í dag. Er gert ráð fyrir,
að skýrsla nefndarinnar
verði lögö fyrir Reagan for-
seta í næstu viku.
Nefnd þessi hefur dregið
heiti sitt af Henry Kissinger,
fyrrum utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem er for-
maður nefndarinnar. Ekki er
Keppiendur eru Garry Kasparov
og Vasily Smislov. Kasparov, sem
er tvítugur, sigraði Korchnoi, og
Smislov, sem er 62 ára, sigraði
Ungverjann Zoltan Ribli í undan-
keppni í Lundúnum í síðasta mán-
uði.
gert ráð fyrir, að nefndin leggi
til miklar breytingar á núver-
andi stefnu Bandaríkjastjórn-
ar gagnvart löndum Mið-
Ameríku. Fulltrúar beggja
bandarísku flokkanna eiga
sæti í nefndinni, sem fengið
hafði fyrirmæli um að hafa
tillögur sínar tilbúnar eigi síð-
ar en 10. janúar nk.
Nefndin er sögð mæla með
því, að meginhluta fjárins
verði varið til efnahagsað-
stoðar, sem er í samræmi við
núverandi stefnu Bandaríkja-
stjórnar. Tólf manns eiga sæti
í nefndinni, sem stofnuð var
síðastliðið sumar í þeim til-
gangi að koma fram með til-
lögur, sem jafnt hægri menn
sem frjálslyndir í Banda-
ríkjunum gætu vel við unað og
myndu því njóta víðtæks
stuðnings hjá almenningi og á
Bandaríkjaþingi.
í því skyni að afla upplýs-
Henry Kissinger
inga til grundvallar skýrslu
sinni fóru nefndarmenn í tvær
ferðir til Mið-Ameriku. Jafn-
framt fengu þeir á sinn fund
tugi sérfróðra manna, þeirra á
meðal alla núlifandi menn,
sem áður hafa gegnt embætti
forseta eða utanríkisráðherra
í Bandaríkjunum.
Óeirdir á Jamaica:
4 létu
lífíð
Kingston, Jamaica 5. jan. AP.
LÍKIREGLA og vopnaðir hermenn
voru á verði í vesturhluta Kingston í
dag eftir að þar hafði komið til al-
varlegra átaka milli andstæðra
stjórnmálahópa. Fjórir létu lífið í
átökunum og 160 manns voru hand-
teknir.
Edward Seaga, forsætisráð-
herra Jamaica, hefur fordæmt
morð á lögregluforingja og
ófrískri vinkonu hans í gær, en
þau voru vegin í borgarhluta þar
sem kom til blóðugra átaka í kosn-
ingabaráttunni fyrir fjórum ár-
um. Kallaði ráðherrann morðið
„viðurstyggð" og „hugleysi".
Einvígi Kasparovs og
Smislovs hefst 10. mars
t.d. plaköt frá kr. 10.
Innrammaðar myndir frá kr. 59.
Rýmum til fyrir nýjum vörum
MYNDIN
Dalshrauni 13, Hafnarfiröi. Sími 54171.