Morgunblaðið - 06.01.1984, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið.
Veðurofsinn
Hvar sem me'Tm koma í ver-
öldinni er veðurfarið með-
al helstu umræðuefna, enda
ekki að ástæðulausu því að það
setur manninum hvað mestar
skorður, hann hefur ekki enn
náð því á sitt vald. Þurrkar og
flóð, hitabylgjur og fimbulvet-
ur, allt eru þetta tíð fréttaefni í
fjölmiðlum og síðasta sólar-
hring hefur veðurofsinn sett
allt úr skorðum hér á landi.
Þeir sem á þéttbýlustu svæðum
íslands búa hafa ekki farið
varhluta af óvenjulega erfiðri
veðráttu í heilt ár ef undan eru
skildir haustmánuðirnir og tíð-
in fram að jólum sem var mild.
Er þakkarvert að ekki urðu
nein alvarleg slys á mönnum í
fyrradag, ýmsir urðu fyrir
eignatjóni vegna snjóflóða og í
gær varð mikið tjón vegna
sjávarflóða. Veðurfræðingar
fluttu viðvaranir í tæka tíð,
björgunarsveitir lögðu sig allar
fram, snjóruðningstæki voru
skjót á vettvang um leið og
veðrinu slotaði og síðast en
ekki síst ber að þakka lögregl-
unni sem átti víða annríkt en
þó helst í höfuðborginni þar
sem veita þurfti hundruðum ef
ekki þúsundum manna aðstoð.
„Annasamasti dagur í starfi
lögreglunnar," sagði í fyrirsögn
helstu fréttar Morgunblaðsins
af óveðrinu.
Vegna þess hve maðurinn er
varnarlaus gagnvart veðrinu er
ekki óalgengt að tekið sé mið af
hindurvitnum þegar spáð er
fram í tímann af þeim sem |
styðjast ekki við fræðilegar |
forsendur og sífellt fullkomn- j
ari tækjakost veðurfræðinga.
Þannig spáði Hartmut Radel,
þýskur stjörnuspekingur, því í I
Morgunblaðinu á gamlársdag,
að gera megi ráð fyrir miklum
flóðbylgjum hér á landi á þessu
ári, sem stafi af veðurhamför-
um, er rót eigi að rekja til þess
að jarðsegulsviðið verður fyrir
truflunum. Illviðratímabil
verði lengri og samfelldari en á
undanförnum árum og eigi
sálrænir sjúkdómar eftir að
aukast í kjölfar þess.
Eins og lesendum er kunnugt
styðjast forystugreinar Morg-
unblaðsins að jafnaði ekki við j
útlistanir stjörnuspekinga, j
þótt þeirra ráð kæmu vafalaust I
oft og tíðum að jafn miklum |
notum og annarra þegar reynt j
er að rýna í atburði líðandi j
stundar. Vonandi er veðurofs- |
inn sem nú er að ganga yfir
ekki upphafið á þeim veðraham
sem þýski stjörnuspekingurinn
spáði með vísan til þeirra
fræða sem hann hefur lagt
stund á. Sjálfur andmælti
hann því máli margra stjörnu-
spekinga, að á árunum 1984 til
1986 gæti orðið „pólvelta", að
gífurlegt aðdráttarafl reiki-
stjarnanna Mars, Júpíters,
Satúrnusar, Úranusar, Nept-
únusar og Plútó, sem nú standa
nokkurn veginn í röð, velti
jörðinni á hliðina.
Allt er þetta með miklum
ólíkindum og fjarlægt þeim
heimslitaspám sem yfir mann-
fólkið hafa gengið af meiri
þunga undanfarið en oft áður,
að það muni sjálft verða sér að
aldurtila með kjarnorku-
sprengjunni. Fjölmennar
hreyfingar vara við þessari ógn
og ríkisstjórnir um heim allan
keppast við að koma í veg fyrir
að þessar spár rætist. En með
henni verðum við að lifa eins
og veðurofsanum sem við ráð-
um ekki við.
í dag er þrettándinn og að
baki hátíð ljóss og friðar, þar
sem kristnir menn minntust
þess enn einu sinni að yfir veg-
ferð þeirra, jörðunni og öllu lífi
vakir góður guð.
Upplausn
í Mið-Austur-
löndum
Svo virðist sem innbyrðis
rígur og óðaverðbólga séu
að setja allt á annan endann í
ísrael. í nágrannalandinu, Líb-
anon, er engin lausn í sjónmáli.
Yasser Arafat, leiðtogi Palest-
ínuaraba, er enn einu sinni orð-
inn landlaus. Friðargæslu-
sveitir vestrænna ríkja um-
hverfis Beirút eiga í vök að
verjast vegna hryðjuverka. ír-
anir og írakar berjast af jafn
mikilli grimmd og áður. Sýr-
lendingar sem staðið hafa næst
Sovétmönnum af þjóðunum
þarna færa sig upp á skaftið á
hernaðarsviðinu en afla sér um
leið vinsælda í Bandaríkjunum
með því að láta bandarískan
herflugmann lausan í fjöl-
miðlaljósi fyrir atbeina Jesse
Jackson, sem keppir eftir að
verða forsetaframbjóðandi og
fella Ronald Reagan. Um svip-
að leyti og Bandaríkjamenn
fagna komu flugmannsins og
Reagan segist tilbúinn til að
ræða við Hafez Assad, Sýr-
landsforseta, gera herþotur
ísraelsmanna árásir á bæki-
stöðvar Sýrlendinga.
Upplausnin á þessu hættu-
lega ófriðarsvæði er nú meiri
en oftast áður og ástæða til að
óttast þróun mála takist ekki
tafarlaust að snúa henni til
betri vegar.
Hurdir flutu á móti okkur, fiskikassar voru eins og hrávið
Mesta flóðatjón frá
upphafi á Akranesi
- segir Daníel Arnason bæjartæknifræðingur
„ELSTU menn hér á Skaga muna ekki annað eins flóð og
þetta og ég tel víst að hér hafi orðið mesta eignatjón, sem
orðið hefur á Akranesi fyrr og síðar,“ sagði Daníel Arnason,
bæjartæknifræðingur á Akranesi, í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkvöldi. Daníel sagði enn ekki að fullu
Ijóst hve mikið tjón varð í foráttubrimi er þar var í fyrrinótt
og í gærmorgun á háflóði. „Ég treysti mér ekki til að slá á
neinar tölur um tjón að svo komnu máli,“ sagði Daníel, „en
þetta skiptir mörgum tugum milljóna króna, hvort sem það nú
fer í 100 milljónir eöa ekki.“
Meðal skemmda sem urðu sagði Daníel að væru þessar:
Hafnargarðurinn skemmdist, en þó ekki verulega og
minna en óttast var í upphafi. Miklar skemmdir urðu á
húsi Haraldar Böðvarssonar og co., þar sem meðal annars
fór af öll einangrun og sjór flæddi inn. í húsi Hafarnarins
urðu einnig talsverðar skemmdir er sjór flæddi inn, en
fiskbirgðir virðast hafa sloppið. Þá flæddi inn í kjallara
íbúðarhúss við Vesturgötu og skemmdist allt meira og
minna sem þar var, en sjórinn bókstaflega brotnaði á
húsgaflinum að sögn Daníels. Nokkrar skemmdir urðu á
trésmíðaverkstæði bæjarins. Verulegar skemmdir urðu á
Fiskverkun Þórðar Óskarssonar og einnig á Bílasprautun-
arverkstæðinu, sem þar er skammt frá. Enn urðu stór-
skemmdjr á húsi Útgerðarfélags Vesturlands. Þá bók-
staflega molnaði niður steinsteypt hús Vélaleigu Birgis
Hannessonar, svo varla er unnt að sjá að þar hafi staðið
hús áður, og einnig urðu þar skemmdir á bifreiðum og
tækjabúnaði. Húsnæði Bílaverkstæðis Guðjóns og Ólafs
skemmdist einnig talsvert og meiri og minni skemmdir
urðu þar á átta bílum. Tiltölulega litlar skemmdir urðu
hjá Pípulagningarþjónustunni, en hins vegar hrundi alveg
múrsteinshús hlaðið, hjá Útgerðarfélagi Birgis. Enn urðu
skemmdir á íbúðarhúsi við Presthúsabraut og margvís-
legar aðrar skemmdir urðu víða í bænum og voru þær ekki
fullkannaðar í gærkvöldi.
Ekki urðu frekari skemmdir á flóðinu í gærkvöldi, en
Daníel sagði menn bíða með nokkrum kvíða eftir morg-
unflóðinu, nú í dag, föstudag.
í lagi meðan ekki
urðu slys á fólki
- sagði Haraldur Sturlaugsson
„MÉR sýnist þetta hafa sloppið
furðanlega vel en þó er ckkert hægt
að fullyrða um það á þessari stundu,
það hefur ekki gefíst tækifæri enn
til að meta skemmdirnar, sem orðið
hafa,“ sagði Haraldur Sturlaugsson,
frarakvæmdastjóri H. Böðvarsson &
Co., í samtali við Mbl. í gær.
„Flóðið og brimið hefur fyrst og
fremst verið hérna niðurfrá og þeir
Töluverðar skemmd-
ir á stöð Olís:
Grafið und-
an olíutanki
„PLANIÐ þar sem við höfum haft
smurolíugeymsluna í áraraðir er
horfíð og það fóru margar smur-
olíutunnur út í sjó,“ sagði Gunnar
Sigurðsson, stöðvarstjóri OLÍS á
Akranesi, í samtali við Mbl. í gær
en talsvert tjón varð í stöð OLIS í
sjóganginum þar.
„Sjóvarnargarðurinn fyrir
framan olíutankana tvo er horf-
inn, og þegar ég fór í morgun að
athuga tankana, virtist ekki
mjög mikill sjógangur. En þegar
ég er að athuga þetta þá kom
alda sem skall
yfir mig og ég
steinlá, og ég
hefði farið út
með henni ef ég
hefði ekki stöðv-
ast á röri, en þá
marðist ég illa,“
sagði Gunnar.
Töluvert gróf
undan öðrum
olíutanknum og var reynt að
fylla undir hann á ný, en einnig
voru soðnar undir tankinn
undirstöður og vírar voru
strengdir í hann til þess að veita
honum stuðning. Um 80.000 lítr-
ar af gasoiíu voru teknir úr
tankinum og fluttir til Borgar-
ness og Reykjavíkur. Ekki gróf
undan hinum olíutankinum, en
hins vegar dældaðist hann af
völdum sjógangsins.
Ekki kvaðst Gunnar geta gert
sér grein fyrir tjóninu, en taldi
þó að það skipti milljónum.
Gunnar
Sigurðsson
gömlu segja, að brimið hafi ekki
verið svona mikið í 20—30 ár. Þó
var veðurhæðin ekkert óskaplega
mikil.
Hjá okkur skemmdist fyrst og
fremst síldarlagerinn, sem stendur
hérna á Breiðinni niður við sjóinn.
Þar hafa verið hækkaðir veggir upp
að þaki og bilið stálklætt. Lengjan á
suðurgaflinum gaf sig og sjór komst
inn um alit húsið. Það er fullt af
síldartunnum en ég held að þetta
hafi sloppið sæmilega, ætli séu
nema eins og hundrað tunnur í
hættu."
Haraldur sagði að þar sem Breið-
in hefði fyllst af sjó hefði flætt inn í
fjöldamörg hús þar. „Einhverjar
veiðarfærageymslur hafa brotnað
og margar aðrar fyllst af sjó. Við
erum með neðstu hjallana þarna og
út úr þeim neðsta rennur enn sjór,
jafnvel þótt nú séu rúmir sex tímar
síðan flóðið fór að sjatna. Það hefur
flætt hér áður en ekki svona ...
Hjallarnir, sem við erum með hér
vestast, hafa líka farið mjög illa, en
það er þó lán í óláni, að það var
Haraldur Sturlaugsson: Brimið ekki
svona mikið í 20—30 ár segja þeir
gömlu ... MorgunblaðiA/Rax.
enginn fiskur á þeim. En allt er
hægt að bæta, svo þetta er ekki til-
finnanlegt þannig. Þetta er í góðu
lagi á meðan ekki urðu slys á
mönnum. Tjónið er erfitt að meta.
Þak og hlið á einu veiðarfærahúsinu
okkar hefur farið illa. Maður veit
ekki hvað hlutirnir kosta, eins og til
dæmis snurvoð, fyrr en þarf að fara
að nota hana og hún er þá ekki til.
Það líður einhver tími áður en öll
kurl koma til grafar í þessu," sagði
Haraldur Sturlaugsson.
Sjór gekk í gegnum frystihús Hafarnarins:
Aðalbrotið var
10-12 metra hátt
Hurðir og gluggar
mölbrotnuðu, einnig
á efri hæð hússins
„VIÐ ÓÐUM sjóinn upp fyrir mið
læri þegar fyrst var komið hingað
inn í morgun. Hurðir flutu á móti
okkur, fískikassar og þungir stál-
kassar voru eins og hráviði um allt.
Sjórinn streymdi í gegnum húsið
og út á planið hinum megin við
húsið. Aðkoman var vægast sagt
hrikaleg."
Svo lýsti Guðmundur Finnboga-
son, framkvæmdastjóri frystihúss
Hafarnarins á Akranesi, ástandinu
í húsinu eftir flóðið í gærmorgun
þegar blm. Morgunblaðsins hitti
hann að máli í myrkvuðu húsinu
síðdegis í gær. „Það gáfu sig engir
veggir hjá okkur,“ sagði Guðmund-
ur, „en þrjár hurðir komu inn með
körmum og öllu saman sjávarmegin
og fjölmargir gluggar brotnuðu í
mask. Húsið hálffylltist allt af sjó
og sjór rann í gegnum það.
Við höldum að vélarnar hafi allar
sloppið en þó er enn ekki vitað um
rafmagnsmótorana með vissu. Það
vitum við ekki fyrr en við fáum
rafmagn frá færanlegri stöð og það
gæti orðið í kvöld eða fyrramálið.
Það er búið að þvo úr rafmagns-
töflunum hér í dag en í þær komst
sjór og þess vegna er allt raf-
magnslaust. Sjór komst inn í annan
frystiklefann, eins og flesta aðra
sali hér, en þar var allur fiskur á
brettum, svo við teljum víst að eng-
ar skemmdir hafi orðið á birgðum."
Guðmundur sagðist aldrei hafa
orðið vitni að öðrum eins flóðum á