Morgunblaðið - 06.01.1984, Síða 15
I
i
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
15
l . . .
Birgir Jónsson við vegginn, sem gaf sig: Allt tryggt en spurningin er hvað
verður bætt? MorgvnbU«iA/RM.
„Það var allt
tryggt - en hvað
verður bætt?"
segir Birgir Jónsson, sem varð
fyrir gríðarlegu tjóni í flóðinu
BIRGIR Jónsson rekur (eða rak) fisk-
verkun í tveimur húsum við Ægisgötu á
Akranesi. Skreiðarskemma gjörónýtt-
ist, eins og kemur fram í spjalli við syni
hans hér á opnunni, en saltfiskverkun-
arhús og frystigeymslur sluppu betur.
Þó brotnaði vesturveggur í kæli-
geymslunni, svo sjór komst um allt
húsið.
Ekki var þó að sjá á Birgi að hann
léti hugfallast þótt hann hafi mátt
vaða sjóinn í klof þegar hann kom að
húsinu í gærmorgun. „Ég er mest að
hugsa um að láta þennan brotna
vegg eiga sig í kvöld, ef hann hefði
ekki gefið sig í látunum, þá held ég
að húsið hefði hreinlega hrunið,"
sagði hann þegar blm. Morgunblaðs-
ins gekk með honum innan um brak
og saltfisk. „Gallinn er sá, að lyftar-
inn gaf sig við það að lenda í sjó og
því höfum við eiginlega verið handa-
lausir hérna í dag. Um þitt húsið
þarf ekki að tala, það er algjört
„knock-out“ þeim megin. Það er bara
að hreinsa burtu draslið."
Birgir sagðist ætla að reyna að
hreinsa til í saltfiskverkunarhúsinu
og byrja aftur þar eins fljótt og auðið
yrði. „Það hefur verið nóg að gera
hér í dag, það er varla að maður viti
hvað maður heiti! Hvað verður hin-
um megin veit ég ekki. Kannski væri
best að byggja, en hver hefur efni á
að byggja í dag?“
— Var allt tryggt hjá þér?
„Já, auðvitað var allt tryggt.
Spurningin er hvað verður bætt,“
sagði Birgir Jónsson.
Guðmundur Finnbogason, framkvæmdastjóri Hafarnarins: Hurðirnar komu inn
með körmum og öllu saman. MorgunbiabiA/Ru.
Akranesi. „Sjórinn gekk yfir húsið
líka og það sagði okkur maður, sem
sá aðalbrotið ríða yfir húsið, að það
hefði verið jafnt ísvélaturninum á
húsinu eða 10—12 metra hátt.
Gluggar á efri hæðinni, þar sem er
umbúðalager, eru mölbrotnir og
eitthvað af umbúðum hefur
skemmst.
Við erum búnir að byrgja alla
glugga og dyraop; raunar búnir að
gera allt, sem hægt er að gera í
augnablikinu. Nú vonum við bara að
það dugi þar til þessum hamförum
linnir," sagði Guðmundur Finn-
bogason.
Útgerðarfélag Vesturlands:
Tjónið nemur milljónum kr.
aðeins spurning hve mörgum
- segir Finnur Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri
„ÞETTA er um 300 fermetra
hús og hér er verkstæði fyrir
togarann Óskar Magnússon.
Þegar við komum í morgun
var sjórinn um allt og hnédjúp-
ur inni í húsinu,“ sagði Finnur
Sigurgeirsson, framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Vestur-
lands á Akranesi, í samtali við
blm. Mbl. í gær, en miklar
skemmdir urðu þar í briminu í
gærmorgun.
„Sjórinn braut gafl hússins fyrst
og þakið féll og sjórinn flæddi um
allt. Skrifstofan fór á flot og pappír-
Finnur Sigurgeirsson
ar og allskyns hlutir voru um allt. í
húsinu voru vélar og tæki, auk
skrifstofunnar og það má segja að
megnið sé talið ónýtt, til dæmis eru
rafmagnstækin meira og minna
ónýt,“ sagði Finnur.
Finnur kvaðst telja að tjónið
næmi milljónum króna, aðeins væri
spurning um það hve margar þær
væru. Ekki kvaðst hann vita um
tryggingar, en sagði að allt væri
tryggt sem hægt væri að tryggja.
Sagði hann að matsmenn frá trygg-
ingarfélögunum kæmu í dag, föstu-
dag, og myndu þeir reyna að meta
tjónið. Sagðist Finnur telja að um
óhemju mikið tjón væri að ræða hjá
þeim fyrirtækjum í nágrenni við
hann, sem lent hefðu í sjóganginum.
Skemmdir kannaðar í veiðarfærageymslu og verkstæði.
Bifreiðaverkstæði Guðjóns og Qlafs:
„LÖGREGLAN hringdi í mig
um klukkan sjö í morgun og
var þá allt full af sjó og
drullu,“ sagði Guðjón Péturs-
son, annar eigenda Bifreiða-
verkstæðis Guðjóns og Ólafs á
Akranesi, í samtali við blm.
Mbl. í gær.
í húsakynnum verkstæðis-
ins voru níu bflar þegar brimið
skall á húsinu og skemmdust
þeir allir. Ekki var talið að sex
þeirra væru mjög mikið
skemmdir, en þrír voru mikið
skemmdir eða ónýtir.
„Við komumst ekki niður að
húsinu, það var ólgandi sjór upp
að götunni þegar klukkan var orð-
in um níu. Annar helmingur húss-
ins er ónýtur, en óvíst með hinn
helminginn, en megnið af tækjum
og verkfærum er ónýtt,“ sagði
Guðjón.
„Við erum ekki komnir til botns
í tryggingarmálunum, við erum
ekki með sérstaka sjótryggingu,
en það á eftir að koma í ljós
hvernig fer,“ sagði Guðjón.
Aðspurður um hugsanlegt tjón
á verkstæðinu í hamförunum,
sagði Guðjón ekki hægt að áætla
það að svo komnu máli, en þó
sagði hann ljóst að tjónið skipti
milljónum.
Ólafur óskarsson, hinn eigandi
verkstæðisins, sagði að þetta væri
hroðalegt áfall og menn hefðu
aldrei getað ímyndað sér að svona
nokkuð gæti gerst.
Ólafur Óskarsson (t.v.) og Guðjón Pétursson við ónýta bflalyftu verkstæðis þeirra.
A milli þeirra er sonur Ólafs.
„Hroðalegt áfall“