Morgunblaðið - 06.01.1984, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
Fjölskylda f hrakningum í Norðurárdal:
„Frúin í Hamborg“
kom í góðar þarfír
Borgarnesi 5. janúar.
„I>etta fór allt vel og gleymist því sjálfsagt fljótt,“ sagði Jónas
Snæbjörnsson umdæmisverkfræðingur Vegagerðarinnar á Sauð-
arkróki, í samtali við blm. Morgunblaðsins í gærkvöldi, en hann
var þá staddur í Sveinatungu efst í Norðurárdal ásamt eiginkonu
sinni og fjórum ungum börnum þeirra, auk eins barns í viðbót
sem með þeim var. Þangað var þeim bjargað um klukkan sjö í
gærkvöldi á snjósleða úr bíl þeirra sem sat fastur á þjóðveginum
skammt frá bænum. í honum höfðu þau setið föst frá því fyrir
hádegi.
Jónas lýsti ferðalaginu þannig:
„Við komum úr Reykjavík í morg-
un og vorum á leið til Sauðár-
króks. Lögðum við af stað frá
Borgarnesi klukkan hálf tólf eftir
að hafa komið við hjá Vegagerð-
inni þar. Vegagerðarmenn höfðu
þá ekki fengið fréttir um að
Holtavörðuheiði væri ófær. Síðan
þegar að við komum hérna upp
fyrir Sveinatungu var veðrið orðið
bandvitlaust og vegurinn kolófær.
Snerum við þá til baka, ég gekk á
undan og konan keyrði á eftir.
Komumst við þannig stuttan spöl
til baka eða þangað til að ég sá
ekki veginn lengur og ekkert frá
mér, þannig að ekkert var að gera
annað en að setjast þar að. Þetta
var um hádegisbilið og sátum við
síðan í bílnum til klukkan sjö um
kvöldið er komið var á snjósleða
frá Króki og okkur ekið heim að
Sveinatungu.
Ég þorði ekki annað en að drepa
á bílnum fljótlega eftir að við
stoppuðum vegna hræðslu við kol-
tvísýringseitrun þar sem púst-
rörið fylltist strax af snjó, en þeg-
ar sljákkaði í veðrinu kom ég bíln-
um ekki í gang aftur. Okkur leið
ekkert illa, við vorum þarna sjö í
bílnum og sátum sem þéttast til
að halda á okkur hita. Það var
leiðinlegra þegar slökknaði á
vasaljósi sem við notuðum til að
lýsa okkur en við gerðum allt sem
MR byrjar aft-
ur á mánudag
Starfsemi Menntaskólans í
Reykjavík átti að hefjast að nýju í
dag að loknu jólaleyfi nemenda.
Vegna samgönguerfiðleika og veð-
urútlits var ákveðið í gær að
fresta skólahaldi til mánudags.
við gátum til að hafa ofan af fyrir
börnunum, fórum í leiki eins og
Frúin í Hamborg og hvað þetta
heitir nú allt saman. En mikið
vorum við kát að komast hingað í
Sveinatungu, hér erum við í besta
yfirlæti," sagði Jónas Snæbjörns-
son.
Ólöf Geirsdóttir, húsfreyja í
Sveinatungu, sagði þegar við töl-
uðum við hana í gærkvöldi, að von
væri á tíu manns í viðbót sem
vegagerðarmenn væru að bjarga
úr bílum á heiðinni, þannig að
þröngt yrði setinn bekkurinn í
Sveinatungu þá nóttina. Sagðist
hún lítið hafa annað en gólfið og
teppi til að bjóða fólkinu en allt
myndi þetta bjargast einhvern
veginn. Ólöf er ekki óvön gesta-
gangi sem þessum, til dæmis sagði
hún að 5. janúar í fyrra hefðu 17
manns, sem vegargerðarmenn
björguðu úr bílunum á heiðinni,
gist hjá henni og undanfarnar
tvær nætur hefðu fimm manns
verið veðurteppt hjá þeim.
HBj.
Hálfur floti Strætisvagna Reykjavíkur tepptist f öngþveitinu á miövikudag, yfir
20 vagnar. Þeir sem lengst máttu biða eftir að komast leiðar sinnar biðu í
vagni á Höfðabakka í yfir sjö tíma í fyrradag. Meðfylgjandi mynd var tekin á
Lækjartorgi í fyrrakvöld er nokkrir greiðviknir gerðu sitt til að leið 6 kæmist
leiðar sinnar.
MorgunblaðiA/ KÖE
Suðurland og Reykjanes:
Rafmagnsstaurar víða brotnir,
einn brunninn og vírar slitnir
„VKDRIÐ hefur óneitanlega haft áhrif
á rafmagnskerfið, en viögeröarmenn
hafa verið við störf þar sem hægt hef-
ur verið að koma því við og get ég ekki
annað sagt en að þeir hafi staðið sig
með sóma, enda hörkuduglegir
menn,“ sagði Guðjón Guðmundsson,
rckstarstjóri hjá Rafmagnsveitum
ríkisins, þegar hann var í gær inntur
eftir ástandi rafmagnskerfisins eftir
óveðrið í fyrradag.
„Nú um hádegið átti eftir að gera
við raflínu í Flóanum, en þar voru
nokkrir rafmagnsstaurar brotnir og
vírar slitnir," sagði Guðjón. „Búið
var að gera við samskonar skemmd-
ir í Ölfusinu, þar sem talsvert var
un brotna staura. Viðgerðarmenn
unnu þar í alla nótt, en í snemma í
morgun var veðurofsinn orðinn slík-
ur að þeir voru sendir heim, en hófu
aftur störf klukkan tíu í morgun og
luku viðgerðinni. Síðan fréttist það
seinna í dag að eitthvað hefði farið
úrskeiðis í Ölfusinu aftur og er nú
Ástand að færast í viðunandi horf, segir Guðjón
Guðmundsson hjá Rafmagnsveitum ríkisins
verið að gera við það.
Truflanir urðu á rafmagnslínunni
frá Búrfelli til Hvolsvallar, sem
reyndar olli því að rafmagnslaust
var á Byggðalinunni þar í tvo tíma í
gær. Eins voru truflanir á línunni
frá Hvolsvelli til Landeyja, að Vest-
mannaeyjastrengnum sem bilaði á
sjöunda tímanum í gær. Fóru við-
gerðarmenn á staðinn og kom í ljós
að kviknað hafði í einum staur, en
línan komst í lag aftur um tíuleytið.
Einnig voru rafmagnstruflanir und-
ir Eyjafjöllum. Þá hefur raflínan til
Þingvalla frá Ljósafossi verið biluð í
þrjá sólarhringa og ekki verið unnt
að hefja þar viðgerð vegna veðurs og
ófærðar. í Borgarfirðinum urðu
einnig nokkrar skemmdir sem nú
hafa verið lagfærðar til bráða-
birgða.
A Reykjanesinu komst straumur
aftur á meginlínurnar eftir að raf-
magnslaust hafði verið þar í um
6—8 tíma í gær og rafmagn komst
skömmu síðar á í Vogum og Höfn-
um. Eins var rafmagnslaust á lín-
unni frá aðveitustöðinni í Njarðvík-
um, sem meðal annars veitir raf-
magn á Keflavíkurflugvöll, en það
orsakaði ekki rafmagnsleysi þar því
að á Keflavíkurflugvelli er öflug
vararafstöð sem sett var í gang.
Ástæðan fyrir því að svo lengi var
rafmagnslaust á Reykjanesinu er sú
að viðgerðarmenn gátu með engu
móti athafnað sig þar vegna veður-
ofsans og skyggni var slíkt að menn
sáu vart handa sinna skil.
Ástandið er nú smám saman að
færast í viðunandi horf og svo fram-
arlega sem veður er þannig að við-
gerðarmenn geta athafnað sig ætti
viðgerðum að ljúka fljótlega," sagði
Guðjón Guðmundsson að lokum.
Grindavík:
Tveir bílar útaf veginum
„VEÐRINU hér er nú að slota,“
sagði Guðfinnur Bergsson, varðstjóri
lögreglunnar í Grindavfk og frétta-
ritari Mbl., er haft var samband við
hann síödegis á miðvikudag.
„Sem betur fer hefur ekki verið
mikið um óhöpp, en þó fóru tveir
vöruflutningabílar út af veginum.
Veðrið hefur verið mjög slæmt í
dag, mikil hálka en færðin sæmi-
leg. Reykjanesbrautin er ófær og
allmargir bílar eru fastir þar“.
Fólk hlusti á aðvar-
anir og fari eftir þeim
Kappklæddur og snjóklepraður situr bílstjórinn undir stýri á einkabifreiðinni á
leið heim. Margir máttu bíða tímunum saman í bifreiðum sínum meðan
starfsmenn sveitarfélaga notuðu stórvirk tæki til að opna helztu umferðaræðar.
Morgunblaðið/' Friðþjófur
„Snjóruðningstæki hafa verið í
gangi frá því að syrta tók um hádegi
á miðvikudag, en fram eftir degi
gekk illa að ryðja, bæði vegna
skyggnis og ekki síst vegna þess að
fjölmargir fólksbílar sátu fastir á víð
og dreif um götur borgarinnar. Svo
virðist sem fólk láti sér ekki segjast
og leggji af stað akandi í óveðri og
ófærð þrátt fyrir ítrekuð tilmæli um
að vera sem minnst utan dyra og alls
ekki á illa búnum fólksbílum," sagði
Ingi Ú. Magnússon, gatnamálastjóri,
þegar blaðamaður ræddi við hann í
gær.
„Það var ekki fyrr en um sex-
leytið að snjóhreinsunin var komin
á skrið. Þá opnuðust stóru sam-
gönguæðarnar, Miklabraut,
Kringlumýrarbraut, Elliðavogur-
inn, Stekkjarbakki, Breiðholts-
braut og Höfðabakkinn, þannig að
strætisvagnar komust af stað.
Vagnarnir komust þó lítið áfram
því að ekki var fyrr búið að ryðja
þrönga akfæra braut á göturnar,
Ingi U. Magnússon
gatnamálastjóri um
erfiðleika í
snjómokstri
á óveðursdaginn
en fólksbílar voru komnir í veginn
og festust margir þeirra. Sýnir það
að enn þarf að brýna fyrir fólki að
hlusta á aðvaranir og fara eftir
þeim. Flýtir við svo slæmar að-
stæður eins og þarna sköpuðust
borgar sig hreinlega ekki og getur
orsakað öllu meiri töf en ella.
Um kvöldið voru 20 tæki í
snjómokstri, en helmingi þeirra
var þá lagt og óþreyttir menn sett-
ir á 10 tæki sem unnu til klukkan
fjögur um nóttina. Þá var bætt við
10 tækjum og á sjöunda tímanum
bættust enn 10 tæki við, þannig að
í dag eru 30 tæki í snjóhreinsun á
götum borgarinnar. Nú er vérið að
opna síðustu leiðina sem er efsti
hluti Breiðholtsins, Suðurfellið og
Seljahverfið, en þar hefur snjó-
hreinsun gengið hvað verst. Þegar
aðalgöturnar hafa verið ruddar
verður byrjað að nota tækin í íbúð-
argötur.
Jú, þetta eru mikla aðgerðir,"
sagði Ingi, „um 80 manns hafa
unnið við hreinsunina og auk eigin
tækjakosts höfum við fengið lánuð
tæki og leigð frá ýmsum aðilum.
Kostnaðurinn við sólarhringsað-
gerðir eins og þessar er um 500
þúsund krónur og þar sem fjár-
veitingin er 20 milljónir má sjá að
það þarf ekki marga svona sól-
arhringa til að saxa verulega á
hana. En þetta er nú allt að kom-
ast í lag og svo framarlega sem
sæmilegt veður helst ætti snjó-
hreinsun að verða lokið í kvöld,“
sagði Ingi Ú. Magnússon, gatnam-
álastjóri, að lokum.