Morgunblaðið - 06.01.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
17
Hjálparstarf á óveðursdaginn gekk
vel en illa búnir smábílar töföu fyrir
var samdóma álit björgunarmanna
„ÁSTANDIÐ var einna verst
í Breiðholti og upp í Árbæ,
auk þess sem Miklabrautin
var mjög slæm. Illa búnir bíl-
ar töfðu mikið fyrir, þeir
festu sig víöa í tiltölulega
sæmilegri færð og urðu þess
valdandi að snjóruönings-
tæki borgarinnar komust
ekki að til að ryðja götur,“
sagði Magnús Einarsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn í
Reykjavík, en hann stjórnaöi
hjálparaðgerðum lögreglunn-
ar og björgunarsveita í óveðr-
inu í fyrradag.
„Við byrjuðum strax um tíu-
leytið um morguninn að senda til-
kynningar til fólks í gegnum út-
varpið um að vera ekki á ferli að
nauðsynjalausu, og þá ekki nema
á vel búnum bílum. Einnig hvött-
um við forsvarsmenn fyrirtækja
og stofnana, einkum skóla og
barnaheimila, til að halda fólki
innandyra á meðan veðrið gengi
yfir. Og ég veit mörg dæmi þess
að vel var við þessari beiðni
brugðið, víða var slegið upp
innanhússskemmtunum í fyrir-
tækjum og stofnunum, og menn
drápu tímann með því að grípa í
spil.
Ég held að fólk verði að fara að
átta sig á því að við lifum á ís-
landi og getum átt von á að svona
veður skelli á hvenær sem er yfir
vetrartímann. Og þá verður fólk
að sýna þolinmæði og biðlund,
halda kyrru fyrir inni í húsum
sem mest, því yfirleitt slotar slíku
veðri innan fárra klukkustunda.
Þá verða færri bílar til trafala á
götunum, snjóruðningsmenn
fljótir að ryðja og allt gengur
miklu greiðlegar fyrir sig.
Nú, strax um morguninn bjugg-
um við okkur út á kranabílum,
jeppum og rútubíl með drifi á öll-
um fjórum frá Guðmundi Jóns-
syni, auk fólksflutningabíla lög-
reglunnar, venjulega lögreglubíla
og sjö jeppa með fjórhjóladrifi.
Um hádegisbilið óskuðum við eft-
ir aðstoð björgunarsveita, björg-
unarsveitar Ingólfs hjá Slysa-
varnafélaginu, Hjálparsveitar
skáta og Flugbjörgunarsveitar-
innar. Þessar sveitir eru vel út-
búnar með stóran bílaflota og
höfðu meðal annars stóran trukk
frá Slökkviliðinu og snjóbíia. Auk
þess buðu ýmsir einstaklingar á
góðum bílum fram aðstoð sína og
unnu undir okkar stjórn. Það var
tvöföld vakt hjá okkur á stöðinni,
morgunvakt og dagvakt saman og
dagvakt og kvöldvakt saman, svo
það var nægur mannskapur og
tækjabúnaður til að takast á við
vandann.
Björgunaraðgerðirnar miðuð-
ust fyrst og fremst við það fram-
anaf, að koma nauðstöddu fólki úr
bílum sínum í húsaskjól. Við
fengum inni í flugstöðinni og Bíó-
höllinni, en einnig komu hundruð-
ir manna á lögreglustöðina á
Hverfisgötu og við reyndum að
gefa því kaffi og láta fara vel um
það eftir bestu getu. Þurftu marg-
ir að bíða á þessum stöðum upp í
sex klukkutíma áður en hægt var
að koma þeim heim.
Mér er ekki kunnugt um að fólk
hafi verið beinlínis hætt komið í
veðurofsanum, en margir voru
orðnir mjög kaldir og hraktir eft-
ir að hafa reynt að brjótast í hús
úr bílum. Og margir þurftu að
bíða langtímum saman í bílum
sínum, sem getur verið mjög
varasamt ef fennir að púströrinu.
Við sendum aðvaranir til fólks um
útvarpið að láta bíla sína snúa
þannig að ekki fennti mikið að út-
blástursrörinu.
í heiidina tekið held ég að
hjálparstarfið hafi tekist nokkuð
vel. Þegar líða tók á kvöldið fóru
leiðir að opnast, það var til dæmis
fært í Hafnarfjörð um sexleytið
og um kvöldmat var orðið þokka-
lega fært víðast hvar og flest fólk
komið til síns heima. En snjó-
ruðningstækin héldu áfram til
klukkan tíu um kvöldið; þá var
ekki meira hægt að gera fyrir
föstum bílum, og við fórum af
stað með kranabíla og færðum
bíla af götum yfir á nærstatt bíla-
stæði. Snjóruðningur hófst síðan
aftur klukkan þrjú um nóttina og
í gærmorgun hafði verið rutt víð-
ast hvar.
Lögreglan vill þakka sérstak-
lega fyrir samstarfið við þá
mörgu aðila sem lögðu hönd á
plóginn, hjálparsveitunum,
sjálfboðaliðum utan þeirra, fjöl-
miðlum, og síðast en ekki síst,
starfsmönnum borgarverkfræð-
ings í Reykjavík, sem önnuðust
snjóruðning og stóðu sig mjög vel.
Fólk illa klætt
„Við vorum að frá hádegi og
fram til miðnættis, með þrjá bíla
og mannskap, auk snjósleða og
snjóbíla, sem við höfðum tiltæka,
en þurftum ekki að nota,“ sagði
Ingvar Valdimarsson, formaður
Flugbjörgunarsveitarinnar í sam-
tali við Mbl.
„Það gekk vel hjá okkur að
keyra um borgina, en litlir fólks-
bílar sem sátu fastir úti um allar
trjssur, töfðu mjög fyrir. Margir
hverjir voru fastir í lítilli ófærð
þar sem hægt var að komast um á
keðjum. Það er ótrúlegt hvað fólk
sinnir lítið viðvörunum lögregl-
unnar um að hreyfa ekki illa búna
bíla undir slíkum kringumstæð-
um. Eins virðist fólk klæða sig
illa og var margt blautt og upp-
gefið af þeim sökum fyrst og
fremst.
A móts við sjúkra-
bfl á Sandskeiði
„Við hófum okkar störf í
Breiðholti, þar sem við byrjuðum
að aðstoða börn og sjúklinga,"
sagði Erlingur B. Thoroddsen
stjórnarmaður í björgunarsveit
Ingólfs, en sveitin var með fjóra
bíla í gangi auk tveggja snjóbíla.
„I einu tilfelli hafði hjarta-
sjúklingur þurft að bíða í bíl frá
tíu um morguninn til fjögur um
daginn, þegar við komum til að-
stoðar, en beiðni barst ekki til
okkar fyrr en um tvöleytið. í öðru
tilfelli sendum við bíl upp á
Sandskeiði á móti sjúkrabifreið
sem var að koma með sjúkling frá
Selfossi. Það gekk að óskum, en
tók sinn tíma. Við lögðum af stað
úr Reykjavík klukkan fjögur, en
vorum komnir í bæinn aftur hálf
níu.
Okkur gekk yfirleitt greiðlega
að aka um göturnar, og ég hef það
eftir félögum mínum að það hafi
ekki verið veðrið og snjórinn sem
töfðu fyrir, heldur illa útbúnir
fólksbílar sem mynduðu tappa í
göturnar. t rauninni finnst mér
ekkert óeðlilegt að setja einhvers
konar „útgöngubann" þegar svona
stendur á, hreinlega láta það
varða sektum ef menn eru á ferð-
inni á vanbúnum bílum. Við fáum
sektir fyrir að leggja ólöglega,
sem er að mínu mati miklu minni
sök. Ég held að þetta sé nauðsyn-
legt, því fólk virðist ekki láta sér
segjast. Við munum hvernig þetta
var í fyrra á sama tíma, þrátt
fyrir ófærð dag eftir dag, hélt fólk
áfram að reyna að komast leiðar
sinnar á vanbúnum bílum."
Hálft annað hundrað
skátar tóku þátt
í hjálparstarfinu
Fjöldi bíla frá Hjálparsveit
skáta aðstoðaði á óveðursdaginn,
bæði í Reykjavík og nágrenni og
víðar um landið. Tryggvi Páll
Friðriksson, formaður lands-
sambandsins, taldi að í heildina
hefðu yfir 20 bílar aðstoðað víða
um land, þar af um 10 í Reykjavík
og nágrenni. Auk þess lögðu fjöl-
margir skátar starfinu lið á
einkabílum. Má gera ráð fyrir að
um 150 manns úr Hjálparsveit-
inni hafi tekið þátt í hjálparstarf-
inu.
Er börn msttu í skóla á miðvikudagsmorgun var veður skaplegt og þau því
ekki öll klædd með tilliti til þess veðurs, sem gerði síðar um daginn. Sums
staðar var því brugðið á það ráð að leita hlífðarfatnaðar í körfu með óskila-
munum. Morpinbl»dið/ KAX
Sitt sýnist hverjum um
niðurfellingu kennslu
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur hef-
ur hlotið gagnrýni fvrir það að fella
kennslu í skólum ekki niður á óveð-
ursdaginn, fvrr en klukkan ellefu. Þá
voru mörg þúsund böm þegar komin í
skóla og brutust sum þeirra eins síns
liðs heim á leið þegar veðrið var sem
verst.
Blm. Mbl. hafði samband við Kagn-
ar Georgsson skólafulltrúa í gter
vegna þcssa máls.
„Hér hefur síminn ekki stoppað
og er fólk ýmist að kvarta yfir því
að skólum var ekki aflýst strax á
óveðursdaginn eða að skólum í dag
var aflýst strax áður en ljóst var
með veður. Sitt sýnist því hverjum,"
sagði Ragnar. „ Grunnskólar
Rey kj avíku rborgar eru 14.000
manna starfsstöð og er það alltaf
stór ákvörðun að fella niður starf-
semi þar sem svo margir eiga hiut
að máli. Til að stöðva börnin sem
mæta eiga að morgni þurfum við að
taka ákvörðun klukkan sjö árdegis
og koma tilkynningu í útvarp. Um
það leyti á óveðursdaginn var veðrið
ekki slæmt og áður en það versnaði
um níuleytið var morgunhópurinn
segir Ragnar
Georgsson
skólafulltrúi
yfirleitt kominn inn í skólana og
ekki í neinni hættu staddur. Við til-
kynntum svo klukkan ellefu að
kennsla eftir hádegi félli niður til að
síðdegishópurinn færi ekki af stað
og áminntum meira að segja for-
eldra um að halda börnum sínum
innandyra. Svo aflýstum við skóla í
dag, vegna þess hve færðin í borg-
inni er fádæma erfið.“
En hversvegna er börnum leyft að
fara einum heim úr skólunum? Eru
engar öryggisreglur sem skólayfir-
völd verða að fara eftir þegar svona
stendur á?
„Slíkt er ekki gert, skólarnir
reyna að stjórna af fremsta megni
heimferð barnanna og í mörgun
skólum voru börn í gæslu fram und-
ir kvöld. Öryggisreglur sem
Fræðsturáð Reykjavíkur samþykkti
á síðasta vetri eru vissulega til stað-
ar og hafa að sjálfsögðu verið
kynntar skólastjórum og fer vel á
þvi að cifja þær nú upp, en þær eru
efnislega á þessa leið:
(1) Mikilvægt er að foreldrar og
aðrir forráðamenn barna meti
ávallt aðstæður og sendi þau ekki af
stað í skóla ef tvísýnt þykir um
öryggi þeirra vegna óveðurs eða
ófærðar, jafnvel þó ekki hafi verið
auglýst um stöðvun skólastarfs.
Slíkar fjarvistir eru heimilar og
skulu foreldrar í þessum tilvikum
gera skólum vart símleiðis.
(2) Þegar svo illa viðrar að örugg-
ara þykir að fella niður kennslu að
einhverju eða öllu leyti til þess að
aftra því að börn haldi út í óveðrið,
skal tilkynnt um það i hljóðvarpi frá
fræðsluskrifstofu.
(3) Þegar svo stendur á er að
sjálfsögðu ekki um LOKUN skóla í
bókstaflegri merkingu að ræða og
skal starfslið skólans annast þá
nemendur sem kunna að mæta og
nemendur ekki látnir fara úr skóla-
húsinu nema í fylgd fullorðinna hafi
veðri ekki slotað."