Morgunblaðið - 06.01.1984, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
•*#«» Ætmæ&r
• Valbjörn Þorláksson (t.v.), Hreinn Halldórsson og Geir Hall-
steinsson hafa allir verið kjörnir íþróttamenn ársins. Valbjöm
hlaut nafnbótina tvívegis: áriö 1959 og 1965. Hreinn var þríveg-
is kjörinn, áriö 1976,1977 og 1979 og Geir var kjörinn árið 1968.
Vaibjörn, sem var lengi meðal fremstu frjálsíþróttakappa hér-
lendis, starfar nú sem þjálfari hjá KR. Geir fæst einnig við
þjálfun sem kunnugt er, þjálfar handboltalið FH, en Hreinn er
ekki í íþróttum lengur, hann varö aö hætta íþróttaiðkun vegna
meiðsla.
Leikir falla
niður
- vegna ferðar
unglinga-
landsliðsins
ÞAR SEM unglíngalandsliöið í
körfuknattleik er á keppnisferöa-
lagi um Bandaríkin falla niður
nokkrir leikir um helgina og aörir
hafa veriö ákveönir á í staðinn.
Ef viö byrjum á Úrvalsdeildinni:
Leikur Njarövíkinga og Keflvíkinga
sem vera átti í kvöld í Njarðvík fell-
ur niöur. Einnig þeir tveir leikir sem
á dagskrá voru á sunnudaginn:
Haukar—Valur og KR—ÍR.
Þór, Akureyri, átti aö koma suð-'
ur og leika tvo leiki í 1. deildinni;
viö UMFL á morgun og ÍS á sunnu-
daginn. Báöir þessir leikir falla
niður þar sem einn Þórsari er í
Bandríkjunum meö unglinga-
landsliöinu. Því má skjóta hér inn í
að laugardaginn 14. janúar fær
Þór ÍBK í heimsókn í bikarkeppn-
inni.
Tveir leikir hafa veriö settir á
• Óskar Jakobsson sést hér hampa styttunni glæsilegu í
janúar í fyrra, en þá var hann kjörinn íþróttamaður ársíns 1982.
Loksins snjóaði
Snjór fór loksins að falla í Sara-
jevo í Júgóslavíu í gær, en þar
verða Ólympíuleikarnir haldnir í
febrúar. Övenju hlýtt hefur veriö
á þessum slóöum aö undanförnu
og þeir svartsýnustu voru farnir
aö spá því að halda þyrfti Ólymp-
íuleikana annars staðar.
„Við höfum haft af þessu
áhyggjur, ekki er hægt aö neita því
— en leikarnir verða ekki færöir til.
Engin hætta er á því,“ sagði nefnd-
armaöur í skipulagsnefnd leik-
anna, sem ekki vildi láta nafns síns
getiö í samtali viö fréttamann AP.
Hitinn um áramótin fór stundum
yfir 12 gráður á Celcius í Sarajevo
og nágrenni og aðeins efstu fjalla-
toppar voru hvítir. Bjartsýni manna
á svæöinu jókst svo aftur þegar fór
aö snjóa. „Já, hér hefur snjóaö
heilmikið. Nú getur fólk fariö aö
koma á skíöi," sagöi afgreiöslu-
maöur á skíöahóteli í Kranjska
Gora í samtali viö fréttamann AP í
gær.
SAMTOK íþróttafréttamanna munu í dag tilkynna úrslit i hinu arlega
kjöri íþróttamanns ársins, og veröur þetta í 27. skipti sem kjör þetta
fer fram.
Vilhjálmur Einarsson var fyrstur
til að hljóta þennan titil, áriö 1956,
er kjörið var í fyrsta skipti. Það ár
náði hann þeim frábæra árangri aö
hafna í öðru sæti i þristökki á
Ólympíuleikunum í Melbourne í
Ástralíu.
Vilhjálmur hefur einnig veriö
kjörinn oftast íþróttamaöur ársins,
fimm sinnum: árin 1956, 1957,
1958, 1960 og 1961. Sem sagt
fimm sinnum fyrstu sex árin. Þrír
aörir kappar hafa hlotið þennan
titil oftar en einu sinni; Valbjörn
Þorláksson, frjálsíþróttamaöur,
sem kjörinn var árin 1959 og 1965,
Guðmundur Gíslason, sundmaöur,
sem var kjörinn 1962, og Hreinn
Halldórsson, frjálsíþróttamaður,
1976, 1977 og 1979.
Frjálsíþróttafólk hefur veriö sig-
ursælt í kjöri íþróttamanns ársins
til þessa, af þeim 26 skiptum sem
kjörið hefur veriö hafa frjáls-
íþróttamenn 14 sinnum hampaö
bikarnum giæsilega sem nafnbót-
inni fylgir. Þaö er athyglisvert að
aöeins einu sinni hefur bikarinn
hafnað hjá kvenmanni, þaö var ár-
iö 1964 er Sigríöur Siguröardóttir
handknattleiksmaóur úr Val hlaut
þessa nafnbót. Það ár varö
kvennalandsliöið Noröurlanda-
meistari.
Fyrirkomulag kosningarinnar er
þannig aö aö hver fjölmiöill hefur
yfir aö ráöa einum atkvæðaseðli
aö ráöa og gefur tíu mönnum at-
kvæöi. Efsti maður á listanum hlýt-
ur 10 stig, næsti 9 stig og þannig
koll af kolli.
Klukkan þrjú í dag fæst úr þvi'
skoriö hver kjörinn hefur veriö
íþróttamaöur ársins fyrir áriö
Idagskrá um helgina. A morgun
leika Snæfell og Fram í Borgarnesi
kl. 14 og á sunnudaginn mætast
KRb og UMFS í Hagaskóla. Sá
leikur hefst einnig kl. 14. Báðir
þessir leikir eru í bikarkeppni KKÍ.
• Phil Mahre, sem hér sést ésamt eiginkonu sinni og barni, er illa viö
aö keppa í gervisnjó. Hann þarf vonandi ekki að kvíða snjóleysi í
Sarajevo é Ólympíuleikunum.
1983. Eins og oft áður var frjáls-
íþróttafólk mikiö í sviösljósinu á
árinu og er þá fyrstan aö nefna
Einar Vilhjálmsson. Hann náöi
frábærum árangri í spjótkasti náði
níunda besta árangri í heiminum
og sigraöi meö glæsibrag í keppni
Noröurlandanna og Bandaríkjanna
i Stokkhólmi. Hann hlýtur því aö
koma sterklega til greina í kjörinu.
Bryndís Hólm, Kristján Hreinsson
og Þórdís Gísladóttir stóöu sig
einnig vel.
Atli Eövaldsson varö annar
markahæsti leikmaöur vestur-
þýsku Bundesligunnar í knatt-
spyrnu, Bjarni Friöriksson, júdó-
maður, náöi mjög góöum árangri á
árinu og þannig mætti halda
áfram. Þaó eru því margir kallaöir
en aöeins einn útvalinn eins og svo
oft áöur og menn veröa aö bíöa
úrslita i kjörinu þar til seinni part-
inn í dag. — SH.
í|)róttamenn árs-
ins frá upphafi
1956 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir
1957 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir
1958 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir
1959 Valbjörn Þorláksson ÍR frjálsar íþróttir
1960 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir
1961 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir
1962 Guömundur Gíslason ÍR sund
1963 Jón Þ. Ólafsson ÍR frjálsar íþróttir
1964 Sigríöur Siguröardóttir Val handknattleikur
1965 Valbjörn Þorláksson ÍR frjálsar íþróttir
1966 Kolbeinn Pálsson KR körfuknattleikur
1967 Guðmundur Hermannsson KR frjálsar íþróttir
1968 Geir Hallsteinsson FH handknattleikur
1969 Guömundur Gíslason ÍR sund
1970 Erlendur Valdimarsson ÍR frjálsar íþróttir
1971 Hjalti Einarsson FH handknattleikur
1972 Guöjón Guömundsson ÍA sund
1973 Guöni Kjartansson ÍBK knattspyrna
1974 Ásgeir Sigurvinsson St. Liege knattspyrna
1975 Jóhannes Eðvaldsson Celtic knattspyrna
1976 Hreinn Halldórsson KR frjálsar fþróttir
1977 Hreinn Halldórsson KR frjálsar íþróttir
1978 Skúli Óskarsson UÍA lyftingar
1979 Hreinn Halldórsson KR frjálsar íþróttir
1980 Skúli Óskarsson UÍA lyftingar
1981 Jón Páll Sigmarsson KR kraftlyftingar
1982 1983 ÓskarJakobsson ??? ÍR frjálsar fþróttir
Jalnréttismót
í badminton
í TBR-húsinu
SVONEFNT jafnréttismót
TBR verður haldið í húsi
TBR, Gnoðarvogi 1, dag-
ana 14.—15. jan. nk. Hefst
mótið kl. 15.00 á laugar-
dag, en kl. 14.00 á sunnu-
dag.
Keppt verður í einliða- og
tvíl./tvenndarleik í eftirtöld-
um flokkum, ef næg þátt-
taka fæst: B-flokki, A-flokki
og meistaraflokki.
Mótsgjald er kr. 250 pr.
mann í einliðaleik og kr. 200
í tvíl./tvenndarleik.
Konur keppa í sömu
flokkum og karlar, en vegna
þess að þær eru „jafnari"
en þeir, hafa konurnar rétt
til að keppa einum flokki
neðar en þær eru vanar.
Þátttökutilkynningar
skulu berast til TBR í síð-
asta lagi miðvikudaginn 11.
jan. nk.
Hver hampar
bikarnum í dag?
- íþróttamaóur ársins kjörinn í 27. skipti