Morgunblaðið - 06.01.1984, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984 25
• Gunnar Gíslason er fjölhæfur íþróttamaöur og hefur leikiö landsleiki bæði í handknattleik og knattspyrnu. Á myndinní til vinstri skorar hann
í landsleik gegn Rússum en til hœgri sést hann í leik meé KA í knattspyrnu. Hann mun leika með KR í handboltanum í vetur og einnig í
knattspyrnunni næsta sumar.
Gunnar leikur með
KR næsta
í knattspyrnu og verður einnig með
félaginu í handboltanum það sem eftir er vetrar
GUNNAR Gíslason mun leika með KR í 1. deildar knattspyrnunni
næsta sumar. Gengið var frá félagaskiptum hans í fyrrakvöld, að því er
Gunnar Guömundsson, formaöur knattspyrnudeildar félagsins sagöi í
samtali viö Morgunblaöiö í gær.
Robsoní
vörninni?
- hjá United á morgun
Fré Bob Hennesay, fréttamanni
Morgunblaösins í Englandi.
BRYAN Robson mun aö öllum lík-
indum leika sem miövöröur gegn
Bournemouth á morgun í 3. um-
ferö bikarkeppninnar þar sem
báöir miöverðir Manchester Uni-
ted eru meiddir. Gordon Mc-
Queen, sem meiddist gegn Liver-
pool, veröur frá í þrjár vikur og
Kevín Moran, sem meiddist á
höföi í þeim leik, veröur ekki meö
þar sem hann getur ekki skallað
knöttinn. Hann ætti þó aö veröa
kominn á fulla ferö innan
skamms.
„Ég er alveg reiðubúinn aö leika
sem miövöröur,“ sagöi Robson í
gær. „Ég lék nokkrum sinnum í
þesssari stööu þegar ég var hjá
West Bromwich Albion og líkaöi
þaö ágætlega."
Rix í hópnum
Graham Rix, sem hefur ekki get-
aö leikiö meö Arsenal í átta vikur
vegna meiösla, er í hópnum sem
fer til Middlesbrough í dag en liöin
mætast á morgun í bikarnum. Þó
eru ekki taldar miklar líkur á því aö
hann geti leikiö meö. „Ég vil ekki
leika nema ég sé alveg oröinn góö-
ur,“ sagöi Rix í gær. Hann lék í
vikunni meö varaliöinu og stóö sig
vel — sagöist þá ekki hafa fundiö
fyrir meiðslunum sem hafa hrjáö
hann. Brian Talbot er einnig í Ars-
enal-hópnum sem fer til Middles-
brough — en hann hefur ekki veriö
í liöinu alllengi.
Tveir leikir
í kvöld
EINN leikur fer fram f 1. deild
karla { handknattleik I kvöld.
Stjarnan leikur gegn KR i íþrótta-
húsinu Digranesi i Kópavogi kl.
20.00. Þá leika UMFA og Selfoss
að Varmá í 3. deildinni
Gunnar, sem leikið hefur hand-
knattleik meö KR undanfarna vet-
ur mun einnig leikiö meö félaginu á
þeim vettvangi í vetur. Hann kom
til landsins í vikunni og hefur æft
meö liðinu. Fyrsti leikur hans aö
nýju meö KR-ingum veröur aö öll-
um likindum í kvöld gegn Stjörn-
unni í Digranesi i Kópavogi.
Ekki er aö efa aö Gunnar mun
styrkja KR-liöiö mikið og liöinu
veitir svo sannarlega ekki af styrk
fyrir Evrópuleikina sem eru á
næstunni. Liöiö á góöa möguleika
á aö komast í undanúrslit í Evr-
ópukeppninni — til þess þarf þaö
aö slá út ísraelska liöiö Maccaby
Zion og veröur aö telja möguleik-
ana á því mikla.
Gunnar mun vafalaust einnig
styrkja KR-liöiö í knattspyrnu en
liöið tekur sem kunnugt er þátt í
Evrópukeppni á næsta keppnis-
tímabili. Gunnar lék meö vestur-
þýska liöinu Oznabruck ( haust, en
hætti aö leika meö liöinu fyrir jólin
eins og Morgunblaöiö greindi frá.
Hann haföi hug á að vera áfram í
Þýskalandi og leit á aöstæöur hjá
áhugamannaliöi sem Fritz Kizzing
þjálfar, en mun ekki hafa litist
nægilega vel á sig þar. Tók hann
því þá ákvöröun aö koma heim.
Gunnar skipti fyrst yfir í KA á
Akureyri, en með því félagi hefur
hann leikiö i knattspyrnunni
hingaö til, en skipti síðan yfir í KR í
fyrradag eins og áöur sagöi. —SH.
Archibald veikur
- leikur ekki með gegn Fulham á morgun
og þarf að líkindum ao taka sér frí um tíma
Frá Bob Honneuy, (réttamanni
Morgunbladsina i Englandi.
STEVE Archibald leikur ekki meö
Tottenham gegn Fulham á morg-
un í bikarnum, í leiknum sem
sýndur veröur beint hér á landi,
og hann mun að öllum líkindum
veröa aö taka sér frí frá knatt-
spyrnu í einhvern tíma, þar sem
komiö hefur í Ijós aö hann er meö
nýrnasjúkdóm.
Læknar hafa reyndar ekki enn
komist aö því hvaö nákvæmlega er
aö Steve, en hann er nú í rannsókn
hjá færasta nýrnasérfræöingi
Bretlands.
„Steve lék báöa leiki okkar um
áramótin og hann missti mikið
blóö eftir þá báöa. Hann hefur ver-
iö mjög lasburða undanfariö og
viröist alltaf vera þreyttur," sagöi
Keith Burkinshaw, framkvæmda-
stjóri Tottenham, í gær. „Archibald
er mikilvægur fyrir okkur og viö
megum illa viö því aö missa hann.
En heilsa hans er þaö skiptir
mestu máli og því mun hann ekki
leika fyrr en hann veröur góöur af
þessum sjúkdómi."
Nokkrar vikur eru síðan Archi-
bald varö fyrst var viö sjúkdóminn
hann pissaöi þá blóöi eftir einn
leikinn, en sagöi engum frá því.
Þaö var um svipaö leyti aö honum
lenti saman viö Burkinshaw: Steve
baö um aö sér yröi skipt út af í
einum leiknum, en Keith sakaöi
hann um aö taka ekki nóg á. Því
vildi Archibald ekki segja stjóran-
um frá þessu.
Sex leikmenn eru nú á sjúkra-
listanum hjá Tottenham og hefur
Burkinshaw fengiö Garth Crooks
aftur frá Manchester United þar
sem hann hefur veriö í láni aö und-
anförnu. Hann veröur reiöubúinn
aö leika gegn Fulham á morgun ef
meö þarf og einnig Mike Hazard,
sem litiö hefur leikiö meö aöalliö-
inu í vetur. Hann lék með varaliö-
inu í vikunni og stóö sig mjög vel.
Alan Brasil lék einnig meö varaliö-
inu í sama leik og skoraöi þrjú
mörk. Hann mun þó ekki leika á
morgun.
Þaö veröur örugglega hart bar-
ist á Craven Cottage, leikvelli Ful-
ham, á morgun eins og alltaf þegar
tvö Lundúnaliö mætast. Ensku
blööin hafa gert leikinn aö einvígi
milli Malcolm McDonalds, fram-
kvæmdastjóra Fulham, og Keith
Burkinshaw, kollega hans hjá
Spurs. Skýringin er sú aö þegar
McDonald lék meö Newcastle á
sínum tíma var Burkinshaw einn af
þjálfurum félagsins.
LIVERPOOL og Newcastle mæt-
ast í kvöld í bikarkeppninni á
Anfíeld og verður leiknum sjón-
varpað beint um England. 12.000
miöar eru enn óseldir á Anfield
þannig aö ekki verður uppselt á
leikinn.
„Viö bjuggumst ekki viö fullu
húsi þar eö leiknum veröur sjón-
varpaö, þannig aö viö erum alls
ekki óánægöir. Ef viö fáum 33.000
manns á völlinn veröum viö tiltölu-
• Kevin Keegan í leik með Liv-
erpool fyrir nokkrum árum. f
kvöld mætir hann sínu gamla fé-
lagi á Anfield Road þar sem hann
var dýrkaður hér áöur fyrr.
lega ánægöir,“ sagöi Peter Rob-
inson, ritari Liverpool i gær.
Þess má geta aö Kenny Dalglish
er enn á sjúkrahúsi eftir aögeröina
sem hann fór í. Hann meiddist í
leiknum gegn Man. Utd. á mánu-
daginn eins og fram hefur komiö.
Michael Robinson kemur í liöiö í
staö Dalglish í kvöld. Leikur
frammi meö lan Rush. Robinson
var tekinn fram yfir Ronnie Whelan
og David Hodgson.
• Steve Archibald sést hér í leik gegn Notts County fyrr í vetur. Hann
verður nú aö öllum líkindum aö taka sér hvíld frá knattspyrnunni
einhvern tíma.
Ekki uppselt
- á leik Liverpool og New-
castle á Anfield í kvöld
Fré Bob Hennesiy, fréttamanni Morgunbladsins í Englandi.