Morgunblaðið - 06.01.1984, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANtJAR 1984
YFIRBURÐALIÐIÐ í 1. deild karla
í handknattlelk í dag, FH, lagði af
stað snemma í morgun áleiöis í
fyrri leik sinn gegn Tatabanja í
Ungverjalandi. Lið FH flýgur til
Amsterdam síöan til Frankfurt og
loks til Budapest. Þaöan fer liðiö
með langferðabíl til kolaborgar-
innar Tatabanja og leikur þar
snemma á sunnudagsmorgni eða
kl. 8 aö ísl. tíma, kl. 10 að ung-
verskum tíma. Þrátt fyrir ítrekaö-
ar tilraunir hefur FH-ingum ekki
tekist að fá leiktímanum breytt.
Tatabanja er eitt sterkasta lið
Ungverjalands og í liðinu eru
margir landsliðsmenn. f síðustu
umferð í Evrópukeppninni sló
það sænska líöíö Ystad út úr
keppninni. Sigraði það sænska
liöiö meö 13 mörkum og sýnir
þaö vel hversu sterkt liöiö er á
heimavelli.
Góður undirbúningur:
„Við þurfum ekki að vera
hræddir viö þetta lið, viö höfum
hagaö undirbúningi okkar eins vel
og nokkur kostur er og æft þannig
aö viö eigum aö vera í toppæfingu
þegar viö mætum þessu sterka
liöi,“ sagöi Geir Hallsteinsson,
þjálfari FH.
„Þaö sem skiptir mestu máli
fyrir okkur er sálræna hliöin. Þaö
er aö strákarnir hafi fulla trú á því
aö þeir geti staöiö í þessum körl-
um og berjist allan leikinn eins og
Ijón. Þá þurfum viö ekkert aö
óttast. Leiki þeír hinsvegar ekki
af mikilli skynsemi og verði bar-
áttukrafturinn ekki í lagi þá getur
fariö Hla. En ég hef mikla trú á
þeim og nú fá þeir gott tækifæri til
þess aö sýna hvaö í þeim býr. Þaö
hefur veriö talaö um þaö aö viö
séum yfirburöaliö á islandi í dag og
þaö má til sanns vegar færa, þar
sem viö höfum enn ekki tapaö leik
á keppnistímabilinu. En nú reynir
á. Erum viö svona góöir af því að
hin liöin eru svona slök, eöa erum
viö meö virkilega sterkt liö? Þaö á
eftir aö koma í Ijós.
Viö höfum horft mikið á mynd-
bönd af ungverska liöinu í leik,
bæöi gegn Ystad og eins leikinn
gegn Víking um áriö. Ystad sigraöi
Tatabanja á heimavelli sínum meö
28 mörkum gegn 21, en þaö dugöi
ekki vegna þess aö sigur Ungverj-
anna var svo stór á heimavelli, 13
mörk.
• Ungverska atvinnumannaliöiö Tatabanja sem mætir FH í átta liöa úrslitum í Evrópukeppni í handknattleik. Tveir leikmenn
liðsins hafa leikiö yfir 170 landsleiki fyrir Ungverjaland. Þaö eru því engir nýgræðingar í íþróttinni á ferðinni.
FH til Ungverjalands í dag:
„Þurfum ekki að vera
hræddir við þessa karla“
— segir Geir Hallsteinsson þjálfarí FH
En þegar maöur fer aö skoöa
leik Víkinga gegn Ungverjunum á
heimavelli þeirra, þá sér maöur
glöggt hversu vel þeir hafa leikiö.
Forsala í dag
• Síöari leikur FH og ungverska liösins Tatabanja veröur háður í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar. Forsalá aö leiknum
hefst í dag kl. 15.00 í íþróttahúsinu og veróur síöan fram haldiö á
morgun, laugardag, kl. 15.00. Rétt er aö benda fólki á aó tryggja sór
miða tímanlega á leikinn þar sem búast mó vió mikilli aösókn.
• Einn af leikreyndari mönnum FH-liösins, Guömundur Magnússon, í
baráttu vió þá Konráö Jónsson og Pál Björgvinsson, Þrótti. Þaö var
Páll Björgvinsson sem stýröi liöi Víkings gegn Tatabanja í Evrópu-
keppninni þegar Víkingur sló þá út. Þess munu Ungverjarnir án efa
vera mínnugir. Nú er spurningin hvernig Guömundi og félögum hans
tekst upp.
Fær Péle
nýtt boð?
EINS OG skýrt var frá á dögunum
fékk knattspyrnusnillingurinn
Péle tilboö uppá 5 milljónir doll-
ara ef hann vildi leika fyrir Cosm-
os í eitt keppnistímabil. Péle
sagði nei takk. En nú hefur
Warner-fyrirtækiö, sem á Cosm-
os, í hyggju aö bjóöa enn betur
og hefur talan 7 milljónir dollara
veriö nefnd. Nægir þaö til aö fá
Péle aftur í leikinn? Hann er nú 43
ára gamall.
Handknattlelkur
. .. ...... ...
Varnarleikur þeirra var meö ólík-
indum góöur svo og markvarslan.
Mér segist svo hugur aö hann
veröi þungur á metunum, þegar
við leikum þar ytra. Vörn og
markvarsla má ekki bregðast.
Þá stjórnaöi Páll Björgvinsson
leik Víkingsliösins eins og herfor-
ingi og lék mjög vel. j leikjum á
útivelli gegn liöinu frá austur Evr-
ópu verður nefnilega aö beita mik-
illi skynsemi,” sagöi Geir.
„Ég hef ákveðiö aö láta FH-liöiö
leika 5—1 vörn. Þorgils Óttar leik-
ur fyrir framan og á hann aö trufla
leik Ungverjanna. Svo veröum viö
aö hafa geysilega góöar gætur á
hraðaupphlaupum þeirra.
Síðari leikurinn
í Hafnarfirði
Sú ákvöröun okkar aö leika síö-
ari leikinn í Hafnarfiröi byggist ein-
göngu upp á því aö viö ætlum
okkur aö ná langt i þessari keppni.
Viö erum sterkari á heimavelli. Við
æfum í íþróttahúsinu í Hafnarfiröi
og gjörþekkjum þar allar aöstæö-
ur. Leikum mun betur þar en i
Laugardalshöllinni. Og ef viö náum
góöum leik úti, þá ætlum viö okkur
ekkert annaö en sigur hér heima.
Ég vil samt engu spá um úrslit
hvorki i útileik eöa heimaleik. Þaö
eina sem ég vil segja í lokin er þaö
aö viö munum gera okkar þesta og
ég vona aö lukkan veröi meö
okkur,“ sagöi þjálfari FH, Geir
Hallsteinsson.
ÞR.