Morgunblaðið - 06.01.1984, Blaðsíða 28
Með aukinni heilsu-
vernd má spara
ómælda fjármuni
Sjá bls. 10.
ttrgtmfrlnfeifr UL
TIL DAGLEGRA NOTA
FOSTUDAGUR 6. JANUAR 1984
VERÐ I LAUSASÖLU 20 KR.
Datt í hug að reyna að opna
bílrúðuna og troða mér út
Rætt við Svavar Ingibergsson sem
fór í höfnina í Sandgerði í bfl sínum
Svavar Ingibergsson á sjúkrahús-
inu í Keflavfk um miðjan dag í
gær, þá orðinn sæmilega hress.
„I*að eru augnablik sem skipta
sköpum, allt gerðist þetta á ör-
skotsstund. Maður hefur engan tíma
til að hugsa, ekki einu sinni til þess
að verða hræddur. Ef brotið hefði
riðið yfir mínútu síðar hefði ég slopp-
ið,“ sagði Svavar Ingibergsson, en
hann bjargaðist naumlega er brot
þeytti honum og vörubfl hans í hofn-
ina í Sandgerði, þegar hann reyndi
að bjarga trillum, sem slitnað höfðu
upp og rekið að uppfyllingu í Sand-
gerðishöfn. Blm. Morgunblaðsins
ræddi við hann á sjúkrahúsinu í
Keflavík upp úr hádeginu í gær, og
var hann þá mikið farinn að hressast.
Fer frásögn hans af atburðinum hér
á eftir.
„Ég kom niður eftir upp úr sex.
Þrír litlir bátar, þar á meðal minn,
höfðu slitnað frá og þeir ólmuðust
þarna við klettana. Ég átti þann
sem innstur lá. Ég vissi ekki hvað
gera skyldi, en ég var á störum
vörubíl og datt í hug að reyna að
draga þá frá grjótinu með honum.
Við settum tó á milli og þetta gekk
vel enda billinn stór og öflugur.
Þegar ég er að beygja fyrir hornið
og komast út á hafnargarðin kem-
ur fylla, sem við sjómenn köllum
svo, þessi feiknalegi sjór yfir hafn-
argarðinn, óbrotinn. Það skipti
engum togum að brotið þreif bílinn
á loft og hann bókstaflega flaug í
sjóinn og sökk með það sama. Eg
sat þarna og gat ekki hreyft hurð-
ina því þrýstingurinn var svo mik-
ill. Til að byrja með hafði ég loft,
en bíllinn fylltist smám saman af
vatni. Mér datt þá í hug að opna
rúðuna og reyna að troða mér ut.
Það tókst og ég komst út. Þegar
mér skaut úr kafi náði ég að synda
að uppfyllingunni og koma hend-
inni upp á brúnina, en var orðinn
svo slappur, að ég hafði ekki kraft
til að vega mig upp á land. f þann
mund komu þarna tveir ágætir
menn, sem gátu hjálpað mér upp.
Það var erfitt að komast upp úr
bílnum og ég var svo þrekaður að
ég gat ekki gengið, þeir urðu að
draga mig strákarnir. Þeir fóru
með mig upp, í vigtarskúrinn og
þar lá ég stynjandi þangað til
sjúkrabíllinn kom og flutti mig
hingað," sagði Svavar.
„Einn hafnarvörðurinn sagði að
hann hefði aldrei áður séð slíkan
brotsjó ríða þarna yfir. Ef þetta
hefði gerst mínútu fyrr þá hefði
brotið komið fyrir aftan bílinn og
ég sloppið. Veðrið var óskaplegt.
Þetta er með verri veðrum sem ég
hef upplifað. Það komu oft vond
veður hér áður fyrr, útsynningur,
og þeir muna það kannski sem
eldri eru. Ég er smeykur um að
báturinn minn sé mikið skemmd-
ur, og svo er það náttúrlega bíllinn.
Ég hef gert þarna út í tíu ár og
alltaf sloppið vel. Það er styst að
sækja þaðan og höfnin er ágæt
nema á stórstraumsflóði í hafátt-
um,“ sagði Svavar að lokum.
12 bátar upp í fjöru f Sandgerði
MorpiiiblaAið/FriAþjórur.
Tólf bátar slitnuðu upp í Sandgerðishöfn í gærmorgun og rak upp í grjót- I skipinu, svo drepa varð á aðalvélum. Varð því að hætta þessum tilraunum,
garð í höfninni. Mörgum þeirra tókst að bjarga fljótlega en Sjávarborg en það átti að reyna að nýju á morgunflóðinu að ná skipinu á flot.
GK-60 4—500 lesta nótaskipi, sem er stærst þessara báta, var reynt að ná á Sjá nánari fréttir og viðtöl á bls. 2 og 3 og viðtal við ökumann
flot á flóðinu í gærkveldi. Er það var reynt kom í Ijós að leki var kominn að | vörubifreiðarinnar hér á síðunni.
Tekjutap um 1,5 milljarðar
við þriðjungs aflasamdrátt
Búist við að aflamark verði valid, en
ekki sóknarmark, vid kvótaskiptingu
STARFSHÓPURINN, sem nú fjall
ar um vanda sjávarútvegsins og
stjórnun veiða, ræðir nú eingöngu
um tvær leiðir hvað varðar veiðarn-
ar. Aflamark og sóknarmark. Enn
hefur engin ákvörðun verið tekin
um hvor leiðin verður ofan á, en
heimildarmenn Mbl. telja þó, að
aflamarkið verði fyrir valinu. Búizt
er við, að ákvörðun þar að lútandi
liggi fyrir í upphafi næstu viku.
Aflamarkið takmarkar afla-
magn hvers skips, eins og áður er
fram komið, og verður að öllum
líkindum miðað við þriðjungs
samdrátt af meðaltali afla síð-
ustu þriggja ára, a.m.k. hvað
varðar þorskinn. Sóknarmark
takmarkar hins vegar heildarúti-
vistartíma hvers skips á árinu og
verður þá miðað við meðaltals-
útivist síðustu þriggja ára. Sem
dæmi um þessar leiðir má taka,
ef miðað er við þriðjungs sam-
drátt, að meðaltalsafli skips síð-
ustu þrjú ár hafi verið 4.500 lest-
ir, fær það tvo þriðju þess, eða
3.000 lestir, sé miðað við afla-
markið, en ha-fi meðalútivist
sama skips síðustu þrjú árin ver-
ið 300 dagar við veiðar, fær það
nú 200 daga.
Enn er rekstrarstaða útgerðar-
innar ekki ljós, en unnið er að því
að reikna hana út þessa dagana,
miðað við það heildaraflamark,
sem nú hefur verið ákveðið. Sam-
kvæmt því mun rekstrartap út-
gerðarinnar nú hlaupa á tugum
prósenta og þriðjungs samdrátt-
ur í afla gæti þýtt tekjutap fyrir
útgerðarmenn og sjómenn að
upphæð um 1,5 milljarðar króna.
Álviðræður hafnar:
Rætt um
verðtrygg-
ingu nýs
orkuverðs
Sarakeppnisaðstaða nýs eða stækk-
aðs álvers á íslandi miðað við Evrópu
og Ameríku, orkuverð og sérstaklega
verðtrygging nýs orkuverðs voru sam-
kvæmt heimildum Mbl. umræðuefni á
samningafundi fulltrúa Alusuisse og
íslenzkra stjórnvalda í gær. Fundur-
inn hófst kl. 15 í gær og verður honum
framhaldið í dag.
Á dagskrá fundarins í dag eru
framhald viðræðna um áðurgreind
atriði, auk þess verða skattamálin
til umræðu. Að sögn iðnaðarráð-
herra er vart að vænta niðurstöðu á
þessum fundi, enda framhaldsfund-
ir fyrirhugaðir á árinu. Hann
kvaðst reikna með að fundinum lyki
í kvöld, föstudagskvöld, eða á morg-
un.
Skaplegu
veðri
spáð í dag
VEÐRIÐ í dag verður ekkert á við
það sem var í fyrradag að sögn
veðurfræðinga. Lægðin sem er á
leiðinni er ekki eins djúp. Þó er
allur varinn góður því ef snjó tek-
ur að skafa verða götur fljótar að
teppast.
Fyrrihluta dags er spáð suð-
lægri átt á Reykjavíkursvæðinu,
snjókomu eða slyddu. Síðari
hluta dags verður norðlæg átt
og éljagangur. Gert er ráð fyrir
að vindstyrkur verði á milli 5 og
7 vindstig og hitastig nálægt
frostmarki. Lægð var í gær-
kvöldi við Suður-Grænland og
hreyfðist allhratt í austurátt.
Verður hún vestan við land milli
klukkan 9 og 12 í dag og færist
síðan austur yfir landið. Gott
veður verður því fram eftir degi
á Austurlandi en fer að versna
síðdegis. Éljagangur verður á
Norðurlandi.
Fræðsluyfirvöld hafa beint
þeim tilmælum til foreldra
skólabarna að fylgjast með til-
kynningum í útvarpi um hvort
kennsla verði felld niður í dag.