Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS IWt/MUWUM- Rúna Bjarnadóttir er höfundurinn 1 XXII. Irr. II Rfyljarlk. - Fckrtar ÍMI. IVAlIn mín. _» v-—j— -------------- . ______ Guðrún B/arnadi/llir. N|Mn mln' NAI.inmtn! A, hv..Þ4 « o, fi.: pl„, i? A v * mitt, ,kk. i ,w 4 hlll. 7fl ' í ’ 'í r N ert .11 .1 teii. m i npor-i, pr.MI.neii, mjúk o, hil, é.p.km, ■Hr-abezl-a oél. J ““ b''"r ■Xilio mto.*tmi“Slpl,»,riÍI!Irt",0 í'kUnnl *mlkv«!0i '<Ur (,. M. *'■ •»»ul. I.ríi k.coið o, for .0 r.„|. £.1 1 G“«ron Bj.rn.aódlr .0 n.lni, pÉ 9 “ "• ............. r.l kl.Jr4 ' " 5“*, :* k°"“* riokkurl l.É, eer e, kcnonrl . f™* ““*•••» H". I.. Ve.nrln. .91.-1 ■“"r h,i” ,*°* ^'“•irr.ddiro.r'líeflr^fðn'iífi^ður Je/u E. Sirluon Úr barnablaðinu Æskunni, sem Gestur Gamalíelsson sendi Velvakanda. Hér sést einnig texti fyrri vísunnar. Enn hafa nokkrir aðilar haft samband við þáttinn vegna vís- unnar „Nálin mín“, sem spurt var um föstudaginn 20. janúar. Tvær konur sem ekki vildu láta nafns síns getið sögðu okkur að vísuna væri að finna í ritsafni Jóns Trausta og þar væri tekið fram að hún hefði birst í barnablaðinu Æskunni árið 1912. Þó voru þeir fleiri sem höfðu séð vísuna í Æskunni þar sem nótur að laginu fylgdu með, auk eftirfarandi athugasemdar: „Fyrir nokkrum árum kom út í Æskunni smákvæði eftir G.M. sem heitir „Nálin mín“. Lítil telpa á Þingeyri, Guðrún Bjarnadóttir að nafni, þá 9 ára gömul, lærði kvæðið og fór að raula það án þess að kunna við það nokkurt lag; en við það að vera löngum að raula kvæðið myndaðist þetta lag. Veturinn 1914—15 var ég kennari á Þing- eyri og telpan þá í skólanum hjá mér. Þá heyrði ég lagið hjá henni og skrifaði það upp eins og hún söng það. Undirraddirn- ar hefir söngfróður maður í Reykjavík sett við lagið. Jens E. Níelsson.“ Þorbjörg Samsonardóttir hringdi og sagði okkur að hinn raunverulegi höfundur textans væri Rúna Bjarnadóttir (gæti þess vegna verið systir Guðrún- ar sem getið er um í athuga- semdinni hér að ofan). Þor- björn sagði að Rúna hefði búið á Betaníu á Þingeyri, hún hafi látist ung að árum, annaðhvort úr berklum ellegar spænsku veikinni. Hún fræddi okkur ennfremur á því, að þetta væru tvær fer- skeytlur en ekki ein vísa eins og fyrst var haldið. Gestur Gamalíelsson í Hafn- arfirði sendi okkur ljósrit af margumræddri blaðsíðu í Æsk- unni, þar sem nóturnar fylgja. Hann benti einnig réttilega á að orðið en ætti ekki heima í fyrstu hendingu, því það væri rimgalli. Þessir hringdu . . . Nestor hafi samband Kristján Sæmundsson hjá Orkustofnun hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Maður sem nefnir sig Nestor skrifaði um heitt vatn í Örfirisey. Við höfum lengi vitað af þessu og Árni Óla skrifaði meðal annars um þetta á sínum tíma, en við höldum að nú sé búið að byggja yfir þetta allt saman. Ef það er raunverulega heitt vatn þarna og maðurinn þekkir til viljum við endilega ná sambandi við hann og biðjum hann að hafa samband við okkur hjá Orku- stofnun. Þakkir fyrir „Tökum lagidu Öldruð kona í Mosfellssveit hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Loksins, loksins kom í sjónvarpinu skemmtiþáttur sem mjög gaman var að sjá og heyra. Það var þátturinn „Tökum lagið“ sem sýndur var sunnudagskvöld- ið 22. janúar. Allur þátturinn og það sem í honum kom fram var mj ög gott, en þó var Jón Stef- ánsson dýrlegastur af því öllu. Þökk sé honum. Sjónvarpið er oft svo hund- leiðinlegt, sérstaklega um helg- ar. Eilífar hryllingsmyndir eru sýndar og tónlistarþættir unga fólksins eru einnig oft hrollvekj- andi, fólkið er eins og fugla- hræður til fara og ólætin eru eins og í villtum dýrum. Efni það, sem aldrað fólk langar mest til að hlusta á, er oft svo seint á vökunni að ekki er hægt að vaka eftir því, dæmi um þetta eru Kvöldgestir Jónasar Jónassonar í útvarpinu. En þökk fyrir allt sem er gott og fróðlegt og það sem gæti skapað fagurt mannlíf, en gleymið ekki gamla fólkinu, sem þið eruð þó alltaf að gera eitt- hvað fyrir. Týnd slá Guðríður Hannibalsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eg varð fyrir því óláni að fá ekki yfirhöfnina mína á Hótel Sögu, er ég fór þangað 10. desember síðastliðinn. Þetta er slá sem er ofin úr ull og líklegt er að einhver hafi fengið hana í misgripum fyrir aðra, sem er nú í óskilum á Hótel Sögu. Sú sem er í óskilum er beinhvít á litinn og síð, en mín var millisíð. Mig langar að biðja þann sem hefur fengið mína slá að skila henni í afgreiðsluna á Hótel Sögu og fá sína slá sem er þar. Dagatal fylgiblaöanna ALLTAP Á ÞRIÐJUDÖGUM IÞROTTA ALLTAFA FIMMTUDÖGUM Alltaf á fóstudögum ALLTAF A LAUGARDÖGUM LESB0K ALLTAF A SUNNUDÖGUM OG EFNISMEIRA BLAÐ! Fimm sirrnum í viku fylgir auka fróóleikur og skemmtun Mogganum þínum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.