Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 29 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar GIMLI 59841307-1 atk. Krossinn Samkoma i kvöld, kl. 20.30, aö Álfhólsvegi 32, Kópavogi. Allir velkomnir. Somhjólp Opiö hús í Þribúðum félags- miöstoö Samhjálpar, Hverfis- gölu 42, í dag kl. 14.00—17.00. Littu inn. Þiggöu veitingar og ræddu um daginn og veginn. Þú ert hjartanlega velkomin. Samhjólp. Elím, Grettisgötu 62, Reykjavík Á morgun, sunnudag, veröur sunnudagaskóii kl. 11.00 og al- menn samkoma kl. 17.00. Verlö velkomin. Heimatrúboðiö Hverfisgötu 90 Almenn samkoma á morgun sunnudag kl. 20.30. Allir velkomnir. UTIVISTARFERÐIR Skíðaganga sunnudag- inn 29. jan. kl. 13. Leiti — Eldborgir — Jósepsdal- ur: Hentugt skíöasvæöi, einnig fyrir byrjendur. Mætiö i fyrstu skíöagöngu ársins. Verö 200 kr. fritt f. börn. Brottför frá bensín- sölu BSÍ. Símsvari: 14606. Sjá- umst. Útivist Tilkynning frá Skíöafélagi Reykjavíkur Toyota-skiöagöngumótiö sem frestaö var sl. sunnudag veröur haldiö sunnudaginn 29. janúar nk. á Kjarvalstúni. Mótiö hefst kl. 14.00 e.h. Gengiö veröur 5 km fyrir konur og 10 km fyrlr karla. Upplýslngar í síma 12371. Stjórn Skíöafélags Reykjavíkur. Fíladelfía Suöurnesjum Sunnudagaskólar Fíladelfíu: Njarövíkurskóli kl. 11.00, Grindavíkurskóli kl. 14.00. Kristján Reykdal. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferöir sunnudag- inn 29. janúar: 1. Kl. 13. Skíöagönguferö á Mosfellsheiöi. Fararstjóri: Hjálmar Guömundsson. 2. Kl. 13. Kjalarnesfjörur: Farar- stjóri: Siguröur Kristinsson. Verö kr. 200. Brottför frá Umferöarmiöstöö- inni, austanmegin Farmiöar viö bil. Frilt fyrir börn í fylgd fullorö- inna. Komiö hlýlega klædd og í þægilegum skóm. Feröafélag Isiands. Innritun hafin i fjögur námskeiö sem hefjast í næstu viku. 1. Mánudagur, bútasaumur (alm.) 2. Þriöjudagur, bútasaumur, framh. (vélsaumatækni). 3. Miðvikudagur, búlasaumur, teppanámskeiö. 4. Fimmtudagur. hnýtingar. virkaQ K!.ipparstiq ?5 — 27 sirrtt 24 747 VEROBREFAMARKAOUR HUSI VERSLUNARINNAR SIMI 687770 Simatimar kl. 10—12 og 3—5. KAUP 0G SALA VEOSKULOABRÉfA Arinhleösla Sími 84736. Snjómokstur Uppl. í simum 73716 — 14113. raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Félög sjálfstæðismanna í Breiðholti Trúnaöarmannafundur Viö minnum á boöaöan fund meö trúnaöarmönnum Sjálfstæöis- flokksins í Breiöholli: Þorsteini Pélssyni, formanni Sjálf- stæöisflokksins, og Friórik Sophussyni, varaformanni Sjálf- stæöisflokksins, þriójudaginn 31. janúar, kl. 20.30, i Geröubergi. Mætiö stundvislega. Stjórnirnar. FYRIR FRAMTÍÐINA Austurland Sjálfstæöisflokkurinn efnir fil almenns stjórnmálafundar i Valaskjálf á Egilsstööum. sunnudaginn 29. janúar, kl. 15.30. Ræöumenn veröa Þorstelnn Pálsson, formaöur Sjálfslæöisflokksins, Friörik Sophusson, varaformaöur SjálfstaBöisflokksins og Katrín Fjeldsted, læknir. Almennar umræöur. Allir velkomnir Sjálfstæöisflokkurinn. Launþegafélag Sjálfstæöisfólks Suðurnesjum heldur almennan fund, i samkomuhúsinu Garöi, sunnudaginn 29. janúar, kl. 14.00. Dagskré: Kvótamél og fram- tíóarhorfur f atjórn fiakveiöa meö tilliti til veióikvóta. Framaögumenn: Þorateinn Gíelason, fiskimálastjóri og Guöjón Kriatjéns- aon, formaöur Far- manna- og fiski- mannasambandsins. Allir velkomnir. Stjórnin. Minning: Svovar Jón Antorn- son sjómaður Fæddur 12. janúar 1913 Dáinn 22. desember 1983 Hinn 29. desember var gerð út- för Svavars Jóns Antonssonar frá Ólafsfjarðarkirkju að viðstöddu fjölmenni. Hann varð bráðkvadd- ur 22. desember á heimili sínu Strandgötu 8, Ólafsfirði. Mér er ljúft að minnast í nokkrum orðum fósturföður mannsins míns. Svav- ar fæddist 12. janúar 1913 og var alinn upp á Ólafsfirði. Foreldrar hans voru Elín Guðrún Gunn- laugsdóttir, f. 19.04. 1882, d. 21.08. 1959, ættuð úr Fljótum og Árni Anton Baldvinsson, f. 10.05. 1878, d. 04.11. 1930, ættaður úr Flóka- dal, Fljótum. Þau eignuðust sex börn, Svanlaugu, Guðfinnu, Fjólu Báru og Stefán, sem létust á unga aldri og Jonu Guðrúnu, sem er búsett á Ólafsfirði. Þegar Svavar var sautján ára lést faðir hans og tók hann þá að sér forsjá heimilis- ins. Elín móðir Svavars ól upp dótturson sinn Anton og var Svav- ar honum ávallt sem faðir. Svavar kvæntist 4. nóvember 1938 Guð- nýju Ingimarsdóttur, en hún var alin upp af hjónunum Guðfinnu Steinsdóttur og Ásgrími Þor- grímssyni á Karlsstöðum, Ólafs- firði. Elín og Anton bjuggu síðan á heimili þeirra, hann þar til hann kvæntist og hún til dauðadags. Síðustu sjö árin var Elín rúmföst og naut góðrar hjúkrunar og um- önnunar tengdadóttur sinnar og sonar. Hjónaband þeirra Svavars og Guðnýjar var einkar farsælt og urðu utanaðkomandi oft vitni að kærleika þeirra og umhyggju er þau báru hvort fyrir öðru sem og sínum nánustu og vinafólki. Auð- vitað var líf þeirra enginn dans á rósum frekar en hjá fólki almennt. Kjörin voru kröpp fyrstu árin. Veikindi sóttu þau heim, en þau styrktu aðeins samheldni þeirra. Þau eignuðust fjögur böm og fóst- urbörnin urðu þrjú. Elstur barna þeirra er Bergvin, verkstjóri á Ak- ureyri, f. 1937. Hann kvæntist Björku Björgvinsdóttur og eiga þau þrjár dætur, þau slitu sam- vistum. Gunnar Ellert, skipstjóri í Keflavík, f. 1938, kvæntur Stellu Guðmundsdóttur, þau eiga þrjú börn. Guðfinna Ásdís, saumakona, f. 1940, gift Gunnari Gunnarssyni, vélgæslumanni, Ólafsfirði, þau eiga fimm börn og Garðar, verk- stjóri í Reykjavík, f. 1943, kvæntur Sigurlínu Ingadóttur, þau eiga tvær dætur. Fósturbörn þeirra eru Anton Sigurðsson, skólastjóri í Reykjavík, f. 1932, kvæntur önnu Þóru Ólafsdóttur, þau eiga tvær dætur. Margrét Anna, systurdótt- ur Guðnýjar, f. 1949, gift Skúla Friðfinnssyni, sjómanni á Ólafs- firði, þau eiga sex börn og Svavar Jón, dóttursonur þeirra, f. 1958, ókvæntur. Hann er nú einn eftir heima hjá ömmu sinni. Svavar var meðalmaður á hæð, dökkhærður, hárið farið að þynn- ast seinni árin. Skarpleitur og andlitsfríður. Hann hafði glaðlegt yfirbragð, var oft glettinn í til- svörum og brá fyrir sig glensi þeg- ar tilefni gafst. Söngelskur var hann og á yngri árum var hann í karlakór staðarins. Hann hafði yndi af því að taka í spil og spilaði bridge þegar færi gafst sér til ómældrar ánægju. Svavar var góður heim að sækja og sat gest- risnin alltaf í fyrirrúmi hjá hon- um og konu hans. Hann var snaggaralegur í hreyfingum og fljótur að verki, vildi láta hlutina ganga hratt og vel fyrir sig og hef- ur sá eiginleiki gengið í arf til barna hans, sem öll eru dugnaðar- fólk. Hann fór snemma að stunda sjóinn. Níu ára gamall fékk hann að róa upp á hlut á árabát með gömlum og reyndum sjómanni úr þorpinu. Þar með hófst ævistarf hans, sem var alla tíð sjómennska og störf tengd sjónum. Fyrri hluta hjúskaparára sinna sótti hann vetrarvertíðir sunnanlands, en bá var enga vinnu að hafa á þeim tíma heima fyrir. Seinni árin stundaði hann sjóinn á trillu sinni og þá oftast einn. Hann hlífði sér ekki þó að hann ætti við erfið bak- veikindi að stríða um árabil. Síð- ustu þrjú árin tók hann upp á því að fara í langar gönguferðir um bæinn eða út í Múlann sér til heilsubótar. Hef ég ekki séð hann hressari eða við betri heilsu í langan tíma en þegar við hjónin kvöddum hann sl. haust að lokinni sumardvöl á Ólafsfirði. Ég kýs að minnast Svavars, þegar hann kom siglandi á trillunni sinni drekk- hlaðinni inn spegilsléttan Ólafs- fjörð og geislar kvöldsólarinnar glömpuðu á sjónum og lýstu upp tinda fjallanna, sem mynda stór- brotinn og fagran ramma um Ólafsfjörð. Guðný mín, ég sendi þér og börnum þínum einlægar samúð- arkveðjur og bið Guð að gcfa þér styrk og blessa þér ókomin ár og minningu um góðan mann. Anna l>óra Ólafsdóttir Birting afmælis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.