Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 21 Teiknað af hjartans áhuga Myndlist Valtýr Pétursson I anddyri Norræna hússins hanga nú nokkrar teikningar eftir hinn þekkta hljómlistar- mann Árna Elfar. Hann hefur vakið eftirtekt í blöðum og tíma- ritum með teikningum sínum, og því kemur þessi sýning ekkert á óvart. Hann hefur teiknað alla sína tíð og nú fyrst hefur hann safnað saman nokkrum myndum og sett upp sýningu. Árni er einn af þessum merkilegu mönnum, sem allt virðist leika í höndun- um á og sjálfsagt er hann jafn- vígur á flest, ef ekki allt, er hann tekur sér fyrir hendur. Teikn- ingar hans benda sterklega í þá átt og því má bæta við, að teikn- ing er eitt það erfiðasta, sem myndlistarmaður leggur hönd á. Því miður hefur verið heldur lítil rækt lögð við teikningu eingöngu hér á landi, en vonandi stendur það til bóta með vaxandi grafík. Það er langt síðan ég gerði mér ljóst, að teikningar Árna Elfars væru nokkuð sérstæðar og að hann væri einn af fáum hér á landi, sem verulega hefði öðlast tök á þessari erfiðu list- grein. Skopmyndir hans af kunningjum og þekktum persón- um í þjóðfélaginu, sem sýndar voru fyrir skömmu í sjón- varpinu, færðu mér heim þau sannindi, að Árni væri afar næmur einnig fyrir hinu sér- staka og á stundum kátlega í fari samtíðar sinnar. Þessi litla og snotra sýning sannar það og það sem meira er, Árni leikur á als oddi er hann teiknar skemmtilega svipmyndir úr ferðalagi Sin fóníuhljómsveitar íslands til Austurríkis og Þýska- lands fyrir nokkrum árum. Pav- arotti, Victor Borge og Giles eru þarna bráðlifandi og fleiri góðir menn koma þarna við sögu. Húsamyndir og fyrirmyndir frá Færeyjum eru þarna einnig á veggjum, en ekki skal teija upp meira að sinni. Sjón er sögu rík- ari. Þessi sýning lætur ekki mik- ið yfir sér, en hverjum og einum ætti að verða skemmt við að skoða þessar teikningar. Það er nokkuð auðséð á þess- um teikningum Árna, að hann er fljótur að finna og skilja fyrir- myndar sínar. Lína hans er snögg og dansar oft eftir myndfletinum. Árni hefur næma tilfinningu fyrir átökum svarts og hvíts og hann hefur vald yfir því, sem hann vill koma frá sér, á svo eðlilegan hátt að maður freistast til að halda því fram að hann hafi ekkert fyrir hlutun- um. Þeir sem vilja sjá skemmtileg- Ungur maður sem fæst við myndlist heldur sýningu í fyrsta sinn í Ásmundarsal þessa dag- ana. Hann heitir Sævar Daní- elsson, og varla hefði hann getað valið verri tíma til að koma sinni fyrstu einkasýningu á framfæri. Veðráttan hefur ekki verið eins leiðinleg um langan aldur og færðin eftir því. Það dróst því dálítið hjá mér að skoða sýningu Sævars, en loksins tókst að koma því í verk, og myndir hans komu ar teikningar ættu ekki að láta þessa sýningu framhjá sér fara. Þarna er haldið á penna af mik- illi leikni og næmri tilfinningu. Það gladdi sinnið í hreti og ófærð að kynnast við þessar myndir. mér svolítið á óvart. Sævar Daníelsson hefur ekki verið í neinum af þeim mörgu skólum, sem kenna myndlist í þessum bæ, en segist hafa verið í námskeiði við myndlistaskólann. Það er því næst að telja hann sjálfmenntaðan i iistinni, og er margt sem bendir til þess á þess- ari sýningu. En sumt af því, sem gerir myndlist að unaði fyrir fólk, verður ekki lært af öðrum en hins vegar er farið í eigin Sævar Daníelsson barm og þaðan dregið það, sem við yfirleitt köllum tilfinningu fyrir formi og lit. Þetta er aðeins einn liður í því að skapist lista- verk og skal ekki fjölyrt um þessa þætti að sinni. En þessi sýning Sævars er einkennandi fyrir einlægt viðhorf til mynd- sköpunar. Það er sama í hvaða stíl er unnið og hverjar stefnur eru dýrkaðar. Innst inni er það persóna listamannsins, sem ræð- ur úrslitum, og ef vel er með slíkt farið verður árangurinn eftir því. Þau verk, sem Sævar Daní- elsson sýnir að þessu sinni eru öll í líkum dúr, en hafa afar ákveðna litaskiptingu og því bæði lík hvert öðru og ólík. Formið er nokkuð einhæft og er dregið af rörum eða slöngum, en liturinn er samanþjappaður og hefur miklu sterkari rödd, ef svo mætti segja. Fyrirmyndir Sæv- ars eru ekki sérlega aðlaðandi og virðast hafa svolítið súrrealískt ívaf, en liturinn er aftur á móti mjög hnitmiðaður og gegnir sinu hlutverki vei að mínum dómi. Það var fyrst og fremst litameð- ferð Sævars sem kom mér á óvart, og það er ekki oft, sem jafnsamunninn lit getur að líta hjá byrjendum. Sævar er vissu- lega byrjandi, og hann lofar góðu. Þarna er eingöngu mál- verk á striga, og allar eru þessar myndir nafnlausar. Það kom mér einnig á óvart, hve sterkur heildarsvipur er á þessari sýn- ingu Sævars. Þarna eru sem sagt vönduð vinnubrögð, sem útfærð eru á persónulegan hátt án þess að sprikla þurfi út í allar áttir og berja trumbur. Alvarlegur lista- maður, sem er að þreifa sig upp eftir stiganum, oft hef ég endað greinar með að minna á að allt tekur sinn tíma og látum þau orð flakka að lokum. Björgunametið Markús Útgerðarmenn og skipstjórar um land allt sem tekiö hafa björgunarnetið Markús um borð, svo og aðrir sem hafa áhuga á að kaupa netið, hafi samband við mig sem allra fyrst með pantanir. Einnig þeir sem vilja breyta um umbúðir á netinu úr pokum yfir í sérhannaða kúta, sem hafa þá hæfileika umfram pokann að netið er alltaf hreint og þurrt þegar taka þarf netið í notkun. Þar sem skólastjóri Stýrimannaskólans, Friörik Ásmundsson, ásamt björgunarsveitunum í Vest- mannaeyjum, hefur boöiö mér til viku dvalar í Vestmannaeyjum til samráös viö björgunaræf- ingar, þar sem nýjungar í notkun björgunarnets- ins verða sýndar í fyrsta sinn, er nauösynlegt fyrir þá skipstjóra og útgeröarmenn sem vilja fá netin fyrir vertíöina aö hafa samband viö mig sem fyrst því fyrst afgreiði ég pantanir á netinu til skipa, hin málefnin koma á eftir. Útgáfa á myndbandaefni Hjálmar R. Bárðarson, siglingamálastjóri, hefur boðið Markúsi björgunarnetahönnuöi alla sína aö- stoö til vals á myndum og enskum skýringatextum í nefndarkynningarstarfsemi. Magnús Bjarn- freösson, fréttamaður, ásamt Guömundi Hall- varössyni, formanni Sjómannafélags Reykjavíkur og varaforseta Sjómannafélags íslands munu sjá um íslenskan texta og tal. Borgþór Kjærnested, fréttamaöur og útvarpsmaöur, mun sjá um texta á Norðurlandamálum. Jón Sveinsson, forstjóri Stál- víkur, er að útvega mér íslenskan skipaverkfræð- ing búsettan í Þýskalandi og mun hann sjá um þýskan texta. Bjarginga-félagiö í Þórshöfn hefur útvegaö mér þekktasta útgeröarmanninn í Þórs- höfn, sem umboðsmann fyrir Færeyjar, og mun nemandi við HÍ, færeyskrar ættar, sjá um fær- eyska textann. í Svíþjóö mun umboðsmaður veröa Ottó Lövdal, skipstjóri, búsettur í Gauta- borg. Hann mun annast umboössölu á sænskum markaði. I Danmörku hef ég hug á aö hinn þekkti skipstjóri í Hirtshals, bróöir þeirra Eggerts og Þorsteins Gíslasona, taki aö sér sölu í Danmörku. Ég færi fjárveitinganefnd Alþingis sérstakar þakk- ir fyrir veitta styrki undanfarin ár til kynningar á björgunarneti Markúsar víösvegar um land, þá vil ég þakka ráðherranum falleg ummæli til mín í umræöu um gildi björgunarnetsins til björgunar mannslífa úr sjó og ám, vötnum og höfnum lands- ins, en þeir vinna nú heilshugar aö því aö reglu- gerö veröi sett um aö skylt veröi aö hafa net um borö í öllum skipum, smáum og stórum. Þaö eru ráðherrarnir Albert Guömundsson, fjármálaráð- herra, Sverrir Hermannsson, iðnaöarráöherra, og Matthías Bjarnason, samgöngumálaráöherra. Aö lokum færi ég öllum landsmönnum á landi og sjó sérstakar þakkir mér veittar hugsjón minni til handa og nefni ég þar sérstaklega aö gefnu tilefni skipstjórann af Hópsnesinu frá Grindavík, Jens Óskarsson, ásamt skipshöfn hans sem vann afrek í stórsjó og náttmyrkri aö bjarga sex mannslífum af vestur-þýska flutningaskipinu Kampen síðast- liöið haust, er þaö fórst út af Suðurlandi. Þar var sex mannslífum bjargað í björgunarnetið Markús. Þrír menn voru meðvitundarlausir og gátu þar með enga björg sér veitt, en eftir aö búiö var aö bjarga þeim í netiö voru þeir híföir um borö í Hópsnesið. Á sama tíma komu hin lögboðnu björgunartæki, sem til eru um borð í Hópsnesinu og skylt er aö hafa, aö engum notum í þessu tilfelli; aö sögn skipstjórans, Jens Óskarssonar, í símtali nú nýlega og aö hans dómi heföi þessi björgun ekki átt ser staö nema vegna þess aö hann haföi björgunarnetið Markús um borö til- tækt. Virðingarfyllst, Markús Benjamín Þorgeirsson, Hvaleyrarbraut 7, Hafnarfirði, sími: 51465.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.