Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF — UMSJÓN SIGHVATUR BLÖNDAHL — Sífellt minnkandi verðbólga í OECD-ríkjunum Hækkunin í nóvember var aðeins 0,3% aö meöaltali FRAMFÆRSLUKOSTNAÐUR jókst um 0,3% í ríkjum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, OECD, í nóvembermánuði sl., en til sam- anburðar jókst framfærslukostnaður í löndunum 24 um 0,6% í októ- hermánuði. Ríki OECD samanstanda af 23 iðnríkjum Vesturlanda og Japan. I skýrslu OECD um málið segir, að sú þróun til minnkandi verðbólgu í ríkjum stofnunar- innar, sem hófst árið 1980 hafi greinilega ekki tekið enda. Enn eigi verðbólga í löndum OECD eftir að minnka. Ef litið er á helztu ríki OECD kemur í ljós, að framfærslu- kostnaður jókst í Bandaríkjun- um í nóvembermánuði um 0,2%. Hann jókst um 0,3% i október, um 0,5% í september og 0,3% í ágúst. Tólf mánaða hækkun til nóvemberloka var um 3,2% í Bandaríkjunum, en sex mánaða hækkun var hins vegar um 2,0%. í Japan minnkaði fram- færslukostnaður um 0,6% í nóvembermánuði sl., en hann jókst í október um 0,9%, dróst saman um 1,3% í september og dróst saman um 0,3% í ágúst. Tólf mánaða hækkun til nóvem- berloka var um 1,8%, en sex mánaða hækkunin var um 0,1%. í Vestur-Þýzkalandi var aukning framfærslukostnaðar um 0,2% í nóvembermánuði sl., en framfærslukostnaður stóð í stað í október. Um 0,2% aukn- ing varð í september og um 0,3% aukning í ágúst. Tólf mán- aða hækkun til nóvemberloka er um 2,6% og sex mánaða hækk- unin er 1,5%. í Frakklandi er aukning á framfærslukostnaði um 0,4% í nóvember sl., en aukningin í október og september var um 0,8% og um 0,6% í ágúst. Tólf mánaða hækkun til nóvember- loka var um 9,8%, en sex mán- aða hækkunin er 4,1 %. í Bretlandi var hækkunin um 0,4% í nóvember og hefur verið sú sama allar götur síðan í ág- úst sl. Tólf mánaða hækkunin í Bretlandi til nóvemberloka var um 4,8%, en sex mánaða hækk- unin var um 2,4%. Á Ítalíu var aukningin á framfærslukostnaði í nóvember sl. um 1,0%, en hafði verið um 1,5% í október, 1,3% í septem- ber og um 0,5% í ágúst. Tólf mánaða hækkun til nóvember- loka var um 12,7%, en sex mán- aða hækkunin var hins vegar um 5,9%. Aukningin á framfærslu- kostnaði í Kanada í nóvember sl. var engin, en hafði verið um 0,6% í október. Framfærslu- kostnaður stóð í stað í septem- ber og jókst um 0,5% í ágúst. Tólf mánaða hækkun til nóvem- berloka var um 4,2%, en sex mánaða hækkunin var um 2,7%. Af framansögðu er ljóst, að verðbólga er á hröðu undan- haldi í ríkjum Efnahags- og framfararstofnunar Evrópu. Nýir menn taka við rekstri Marmorex sf. NÝLEGA tóku þeir Atli Haf- steinsson og Baldur Guðgeirsson við rekstri fyrirtækisins Marmorex sf., Helluhrauni 14, Hafnarfirði. Fyrirtækið sérhæfir sig í fram- leiðslu á gluggakistum, stigaþrep- um, borðplötum til hvers kyns nota, legsteinum og fleiri hlutum sem mikið mæðir á. Hráefnið, marmarasandur, er síðan unnið sérstaklega í Marm- orex, eftir erlendu einkaleyfi. Vörur úr þessu efni upplitast ekki, veðrast né springa, svo viðhald er ekkert, að sögn þeirra Atla og Baldurs. Eingöngu er unnið eftir sérpöntunum og eng- ir tveir hlutir eru eins. Frá Corda-námskeiði KLM á dögunum. Fremst á myndinni eru íslendingarnir, Auður Björnsdóttir frá Samvinnu- ferðum-Landsýn t.v., Gyða Sveinsdóttir frá Útsýn og Órvar Sigurðsson frá Arnarflugi. Sækja tölvunámskeið hjá KLM- flugfélaginu í Hollandi STARFSFÓLK Arnarflugs og ís- lenzkra ferðaskrifstofa hefur á und- anfornum mánuðum farið í sérstaka þjálfun hjá hollenzka flugfélaginu KLM til að kynnast notkun og möguleikum Corda-tölvukerfis KLM, sem Arnarflug tengist, að sögn Magnúsar Oddssonar, sölu- og markaðsstjóra Arnarflugs. Magnús Oddsson sagði að stærstu ferðaskrifstofurnar hér á landi tengdust nú kerfinu, en á dögunum hefðu tveir starfsmenn Samvinnuferða-Landsýnar og Út- sýnar farið í vikunámskeið í höf- uðstöðvar KLM í Amsterdam. „Við eigum síðan pantað pláss á námskeiðum í febrúar fyrir far- skrárfólk.” „Tenging okkar við Corda- tölvukerfið hefur reynst mjög happadrjúg. Með því komumst við inn í eitt fullkomnasta bókunar- kerfi veraldar, sem hefur að geyma upplýsingar um hina ólík- legustu hluti," sagði Magnús Oddsson, sölu- og markaðsstjóri Arnarflugs að endingu. Janúar-september 1983: Raforkunotkun jókst um 3,7% Heildarraforkunotkun fyrstu níu mánuði ársins 1983 var 2.729 giga- wattstundir, borið saman við 2.632 gigawattstundir á sama tíma árið 1982. Aukningin milli ára er um 3,69%. Forgangsorka er langstærsti hluti raforkunotkunarinnar, en samtals voru notaðar um 2.557 gigawattstundir, borið saman við 2.465 gigawattstundir á sama tíma árið 1982. Aukningin milli ára er um 3,73%. Almenn notkun var upp á 1.166 gigawattstundir fyrstu níu mán- uði síðasta árs, en var til saman- burðar um 1.096 gigawattstundir á sama tíma árið 1982. Aukningin milli ára er 6,39%. Svokölluð stórnotkun í for- gangsorku var um 1.391 giga- wattstund, en var til samanburðar um 1.369 gigawattstundir á sama tíma árið 1982. Aukningin miili ára er um 1,61%. Ef litið er á stórnotkunina kem- ur í ljós að stærstur hlutinn fer til fslenzka álfélagsins, eða um 1.000 gigawattstundir fyrstu níu mán- uði síðasta árs, borið saman við 1.020 gigawattstundir á sama tíma árið 1982. Samdrátturinnn milli ára er um 2,0%. íslenzka járn- blendifélagið fékk um 201 giga- wattstund, en til samanburðar um 198 gigawattstundir á sama tíma arið 1982. Aukningin milli ára er um 1,5%. Áburðarverksmiðjan fékk um 124 gigawattstundir fyrstu níu mánuði síðasta árs, en til samanburðar um 88 giga- wattstundir á sama tíma árið 1982. Aukningin milli ára er um 40,9%. Til Sementsverksmiðjunn- ar fóru um 12 gigawattstundir f fyrra og það sama árið 1982. Til Keflavíkurflugvallar fóru um 54 gigawattstundir í fyrra, en 51 gigawattstund á sama tíma árið 1982. Aukningin milli ára er tæp- lega 6%. Janúar-nóvember 1983: GJALDEYRISKAUP bankanna nettó voru jákvæð um 44 milljónir króna fyrstu ellefu mánuði síðasta ár, þegar keyptur gjaldeyrir var að verðmæti um 24.547 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir hins vegar að upphæð um 24.503 milljónir króna. Til samanburðar má geta þess, að gjaldeyriskaup bankanna nettó voru neikvæð um 2.451 milljón króna á sama tíma á árinu 1982, en þá var keyptur gjaldeyrir að verðmæti um 23.524 milljónir króná, en seldur gjaldeyrir hins vegar að upphæð um 25.975 millj- ónir króna. Gjaldeyriskaup bankanna nettó í nóvembermánuði voru jákvæð um 402 milljónir króna, þegar Ef litið er á afgangsorkuna kemur í ljós, að fslenzka álfélagið fékk 11 gigawattstundir fyrstu níu mánuðina í fyrra, en 12 giga- wattstundir á sama tíma árið 1982. Samdrátturinn er tæplega 8%. Þá fékk íslenzka járnblend- ifélagið um 161 gigawattstund, en til samanburðar um 155 gigawatt- stundir á sama tima árið 1982. Aukningin milli ára er því tæp- lega 4%. keyptur gjaldeyrir var samtals að verðmæti um 3.238 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir hins vegar að verðmæti um 3.836 millj- ónir króna. Til samanburðar má geta þess, að gjaldeyriskaup bankanna nettó í nóvember á árinu 1982 voru jákv- æð um 140 milljónir króna, þegar keyptur gjaldeyrir var samtals að verðmæti 2.924 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir hins vegar að verðmæti um 2.784 milljónir króna. Gjaldeyriskaup bankanna vorn verulega neikvæð á árinu 1982, eða upp á liðlega 1.172 milljónir króna. Hins vegar voru þau já- kvæð árin þar á undan. Gjaldeyriskaup bankanna jákvæð um 44 milljónir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.