Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 35 inn að minnka á nýjan leik, og verður i lok tímabilsins sá sami og í upphafi. Hrygningarstofninn lagast svolítið um tíma, en minnk- ar síðan aftur. Athugið að meðal- nýliðun þessi 6 ár er nálægt því að vera söm og meðalnýliðun áranna 1955—1963 þegar stóri heildar- stofninn minnkaði verulega, úr 2600 þúsund tonnum í 1500 þúsund tonn. Þetta dæmi sýnir að það er af- skaplega erfitt að byggja þorsk- stofninn upp, og þótt við næðum honum upp í „kjörhæð" er næstum óframkvæmanlegt að ná úr honum hámarksafrakstri (450 þ. tonn ár- lega) og halda hrygningarstofnin- um (og heildarstofninum) uppi um leið, en þetta er einmitt langtíma- markmið Hafrannsóknastofnun- ar. Þær aðferðir sem nú er beitt byggjast á „heppni". Spádómar sem byggja á meðaltölum eru mjög varhugaverðir. Önnur markmið Það sem hér hefur verið sagt sýnir að óhjákvæmilegt er að gera ráð fyrir sveigjanlegri sóknar- stefnu í framtíðinni, ekki síst eftir að búið er að byggja þorskstofninn upp; hvenær sem það nú verður. Slík sveigjanleg stjórn er óframkvæmanleg nema menn búi yfir haldgóðri vitneskju um þá nýliðun sem í vændum er hverju sinni. Reyndar hafa menn þegar gert sér nokkra grein fyrir því hvað slík vitneskja gæfi í auknum arði af þorskveiðum, samanber grein dr. Þorkels Helgasonar í Ægi 1979. Islendingar, og þar með taldir fiskifræðingar, tala gjarnan um góðan árgang sem „happ“, sam- anber dr. Jakob Jakobsson um sumargotssíld í Ægi 1979. Vissu- lega er það heppilegt fyrir þjóðar- hag þegar náttúran gerir vel við okkur. í fyrirlestri okkar í Nor- ræna húsinu 13da janúar veltum við því fyrir okkur hvort ekki mætti með grundvallarrannsókn- um á afkomu þorskseiða og ung- viðis gera sér grein fyrir þeim þáttum sem ráða nýliðunarferl- inu. Við settum reyndar fram hug- mynd sem ekki er hægt að rekja hér. Okkur er það vel ljóst að hér er um viðamiklar haffræðilegar og vistfræðilegar rannsóknir að ræða, og að óvíst er um skjótan árangur. Þrátt fyrir það teljum við að ekki verði hjá því komist að ráðast í þetta verkefni af fullum krafti. Nú væntum við þess að fá skammir fyrir greinina, i ljósi þess sem á undan er gengið. Vafa- lítið verður okkur núið um nasir að allt tal um vistfræðirannsóknir sé „gamlar lummur" sem fiski- fræðingar hafi þekkt árum saman, og því óþarfi að tíunda hér. Því er til að svara, að við lestur á ástandsskýrslum og ýmsum öðr- um plöggum Hafrannsóknastofn- unar, og greinum eftir fiskifræð- inga, hefur okkur ávallt fundist að það vantaði vistfræðilegan bak- hjarl í umræðuna. Grunntónninn í skrifum fiskifræðinganna er á þá lund að í sjónum ríki einhverskon- ar stöðugt meðaltalsástand, þann- ig að með jafnri sókn í fiskistofn megi fá úr honum jafnan og góðan afla um aldur og ævi. Rannsókna- áherslur sýna þetta sama. Fyrr á árum var því einlægt haldið fram að flókin vistkerfi væru í eðli sínu stöðug, og þessi skoðun á sér málssvara enn þá. Á seinni hluta sjöunda áratugarins fóru vistfræðingar sem fylgdust með stofnsveiflum dýra að efast um þessar hugmyndir, og á þeim áttunda hafa fjölmargar greinar verið birtar, og reyndar heilar bækur, þar sem þessar jafnvægis- hugmyndir eru hraktar. Rann- sóknir á þorski verða að taka mið af þessu og beinast í ríkari mæli að sveiflum í fjölda einstaklinga og lífþyngd — og að leita að ástæðum fyrir þessum sveiflum. Meðaltalsdæmin og jafnvægishug- myndir ganga seint upp. I)r. Jón Ounnar Ottósson og dr. Sigurður Snorrason eru lífíræð- ingar að mennt. Helga Jónsdóttir Akureyri 75 ára Helga í Bjarkastíg 7 fæddist á Akureyri 28. janúar 1909 og á sama afmælisdag og móðir mín. Stundum finnst mér að ég eigi tvær mömmur. Foreldrar Heigu voru Þórunn Friðjónsdóttir frá Sandi í Aðaldal og Jón Júlíus Jónatansson, járnsmiður, fæddur að Hösk- uldsstöðum í Reykjadal. Hann hafði smiðju í Glerárgötu 3 og þar málaði Freymóður „hann pabba" standandi við aflinn. Eftir nám í Barnaskóla íslands, sem Matthías á Sigurhæðum nefndi svo, stundaði Helga nám í Héraðsskólanum að Laugum. Síð- an lá leiðin í Húsmæðraskólann Ósk á ísafirði, þar sem þau fræði var að finna, sem framtíðarstarfið reyndist byggjast á, numin undir handleiðslu „fröken Gyðu“. Haustið 1936 giftist hún Braga Sigurjónssyni, skáldi og fv. ráð- herra, Friðjónssonar skáldbónda á Litlu-Laugum. Fyrsta hjúskapar- árið bjuggu þau að Laugum í Reykjadal en fluttust síðan til Ak- ureyrar og byggðu árið 1944 fram- tíðarbú í Bjarkastíg 7, sem er orð- ið hugtak, a.m.k. hjá okkur vensla- fólkinu. Þau eignuðust sex börn: Sigur- jón, skáld, sem krabbamein felldi fyrir aldur fram, Hrafn, borgar- dómara, Þórunni, stjórnarráðs- fuiltrúa, Gunnhildi, sjúkraliða, Ragnhildi, bankafulltrúa, og Úlf- ar, mag.art., sem nú er í doktors- námi við Berkeley-háskóla í Kalif- orníu. Konan, sem þessar staðreyndir eiga við, er tengdamóðir mín. Nú ætla ég í fyrsta sinn að fara á bak við hana og birta að nokkru hug minn til hennar og fá svo skellinn að lesnum þessum línum. Svo bar við á 17. júní árið 1959 að veðurguðirnir á Ákureyri, sem að sjálfsögðu eru ekki þeir sömu og „fyrir sunnan", kusu að sæma 66 stúdenta nafnbótinni með norð- lenskri stórhríð. Handhafi húf- unnar sá fyrir sér hvernig brotin úr sérsmíðaða smókingnum frá J.M.J. hyrfu út í veður og vind og hugsaði til Þórunnar í þunnri dragt og hælaháum skóm í snjón- um. Auðvitað áttum við að verja síðustu sumaraurum í skíðagalla. En þá kom tengdamóðir mín til skjalanna og lýsti því yfir í eitt skipti fyrir öll að á 17. júní á Ak- ureyri væri vor hvernig svo sem annars viðraði. Það gerðist með eftirfarandi hætti: Uppburðarlaus sveinstauli sunnan af Skaga fór í opinbera heimsókn í Bjarkastíg 7. Hann settist á eldhúskollinn á skörinni — og sagði ekki orð. Þarna var þá Helga að hita kaffi og baka brauð, leggja á borð og laga til, elda mat og skúra og lét þess getið rétt si- svona að frá Menntaskólanum á Akureyri brautskráðist enginn nema að hafa blóm. Svo gekk hún út í garð þar sem hún geymdi rós í runna og gaf mér ásamt blóminu á bænum, blómarósina sem fylgir mér enn — og það var vor. Bóndinn í Bjarkastíg rekur veð- urathugunarstöð fyrir sjálfan sig. Á slaginu klukkan sjö að morgn- um bankar hann í barómetið, gengur að austurglugganum og gáir að Vaðlaheiðinni. Skyggnist svo í suður að Súlum og bókar veðrið þann daginn. Þetta finnst tengdamóður minni óþarfa pjatt. Á Akureyri er einfaldlega alltaf gott veður, í mesta lagi mismun- andi gott, og þarf engar skýrslu- gerðir til að sýna fram á það. Detti einhverjum í hug að malda í móinn er honum vinsamlega vísað á að í Bjarkastíg 7 sé veðrið alténd svona. Það skyldi þó ekki vera þess vegna að hún hefur ekki fyrir því að spyrja um færðina þegar ég hef undanfarin ár komið akandi að sunnan í skíðaferðir um páska. Að vísu vorum við þrjá daga á leiðinni í fyrra, en það var ekki hennar sök. Hún hafði ekki gefið út neina veðurspá fyrir Holta- vörðuheiði eða öxnadal — á Akur- eyri var allt í sóma. Móðurmóðir mín átti heima á Stöðvarfirði. Síðan lá fyrir henni að setjast að „fyrir sunnan" og fara aðeins austur í heimsóknir. Þótt hún væri komin undir nírætt þurfti hún ekki að flýta sér og brúkaði því ekki flugvélar — hafði ekki vanist því í sveitinni. Nú brá svo við eitt vorið að henni var val- ið far með flugi. Af eðlislægri kurteisi, sem aðrir virðast ekki kunna en þeir sem litu ljósið kringum aldamót, þótti ömmu minni ekki taka því að afpanta farið og gekk um borð. Þegar fokk- erinn flaug yfir jökla mun hún hafa litið upp frá prjónunum og spurt sessunautinn af æðruleysi íslenskra kvenna: Ætli þeir fari nú ekki að halda af stað? Ég veit ekki hvort konur eru öðru vísi en aðrir menn en ein- hvern veginn finnst mér að mömmur og ömmur séu það. Þeg- ar tuttugu manns eru væntanlegir í Bjarkastíg 7, nýfarnir eða ein- faldlega á staðnum, svo sem geng- ið hefur til á þeim bæ, er það eins og við manninn mælt að tengda- móðir mín tekur nál og enda, sest í ruggustólinn í vesturstofunni og byrjar að sauma út. Sjónvarpið er ekki hennar mál. Þeir sem hafa lesið lífsbókina þannig að það heyri til mannlegu samfélagi að gera sér rellu út af hlutunum ættu að heimsækja Helgu. Hún viðurkennir ekki volæðistal og viðmælandinn stendur sig að því að skammast sín skellihlæjandi. Ef kvenframboðsmenn skyldu einhvern tíma velkjast í vafa um baráttuefnin ættu þeir einnig að banka upp á í Bjarkastíg. Hjá Helgu lá málstaðurinn fyrir kvitt- ur og klár löngu fyrr en drauma- dísirnar fæddust: Maðurinn kona er fyrst og fremst móðir. Endist mér aldur óttast ég að tölvubörnin biðji mig að fletta upp á orðinu móðir í bók ef hún þá verður til. Þá ætla ég að ganga í stofukrók og kalla fram orðið Helga. Guðirnir gefi tengdamóður minni gott veður alla ævitíð. B.Þ.G. Bubbi meðal vísnavina á Hótel Borg FYRSTA vísnakvöld Vísnavina í ár verdur á Hótel Borg mánudags- kvöldið 30. janúar, og hefst kl. 20:30. Á þeim stað og tíma verða vísna- kvöldin framvegis, að því er segir í tilkynningu frá Vísnavinum. Á fyrsta kvöldinu koma m.a. fram Bubbi Morthens, hópur af Symre-námskeiðinu og spánskur gítarleikari. Aðalfundur Vísnavina verður haldinn að Fríkirkjuvegi 11 fimmtudaginn 9. febrúar kl. 20:30. Árshátíð félagsins verður kvöldið eftir, föstudaginn 10. febrúar kl. 20 í félagsheimili Rafveitunnar við Elliðaár. Miðar fást hjá Aðal- steini Ásb. Sigurðssyni í síma 28892. Sambandsfrystihúsin: 11% aukn- ing í fryst- ingu frá 1982 Á ÁRINU 1983 framleiddu Sam- bandsfrystihúsin 39.900 lestir af frystum sjávarafurðum á móti 35.920 lestum árið 1982. Er þetta mesta framleiðsla á einu ári til þessa. Aukningin frá fyrra ári nemur 3.980 lestum, eða 11 af hundraði. Á 7 ára tímabilinu frá 1977 til 1983 hefur framleiðslan tvöfaldast. Á árinu 1983 jókst frysting þorskafurða um 14%, frysting grálúðu um 19% og fryst- ing karfaafurða um 6%. Fjögur framleiðsluhæstu frystihúsin voru Fiskverkunarstöð Kaupfélags Austur-Skaftfellinga, Hornafirði, með 3.400 lestir, Meitillinn í Þor- lákshöfn með 3.070 lestir, Kirkju- sandur í Reykjavík með 2.950 lest- ir og Fiskiðjusamlag Húsavikur með 2.820 lestir. Mest aukning í frystingu varð hjá Meitlinum í Þorlákshöfn, 760 lestir, Búlands- tindi, Djúpavogi, 560 lestir, og Hraðfrystihúsi Breiðdælinga, Breiðdalsvík, 550 lestir. Á árinu 1983 flutti Sjávarafurðadeild út 39.600 lestir af frystum sjávar- afurðum á móti 34.400 lestum árið áður. Aukning í útflutningi nam því 5.200 lestum, eða 15 af hundr- aði. (FrétUtilkynning.) IZ GULLNI HANINN BISTRO A BESTA STAÐ í BÆNUM Gullni haninn býður gestum sínum mat og persónulega þjónustu, eins og best gerist á góðu Bistro, - heimilislegum veitingastað. Það sem Gullni haninn hefur framyfir góð veitingahús er stœrðin. Veitingasalurinn er ekki stór í sniðum, hann er mátulega stór til að skapa rétta stemmningu, góð persónuleg tengsl á milli gesta og þeirra sem þjóna þeim til borðs. Svo eru fáir, sem slá Gullna hananum við í matargerð. Mjög fáir. LAUGAVEGI 178, SlMI 34780

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.