Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 48
Tölvupappír IIII FORMPRENT Hverfisgotu 78. Simar 25960 25566 EUROCARD V -----J S1AÐFEST lANSIRAIIST LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. 3000 manns án atvinnu: 1,3 milljónir greiddar í bæt- ur daglega „ÞAÐ LIGGJA. enn ekki fyrir ná- kvaemar tölur um fjölda atvinnu- lausra, en ég hef á tilfinningunni aö fjöldi þeirra sé hinn sami og fyrir viku, eda um eöa yfir 3000 manns,“ sagði Eyjólfur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Atvinnuleysis- tryggingasjóös, í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins í gær. Svo sem fram kom í frétt Morg- unblaðsins á laugardaginn var, töldu þeir Eyjólfur og óskar Hall- grímsson, deildarstjóri í félags- málaráðuneytinu, þá, að tala at- vinnulausra væri um þrjú þúsund eða rösklega það. Kvað Eyjólfur þann fjölda atvinnulausra manna jafngilda því, að greiddar væru 1,3 milljónir króna í atvinnuleysis- bætur daglega að jafnaði, fimm daga vikunnar. Eyjólfur Jónsson sagði í gær, að í næstu viku myndi það væntan- lega skýrast, hver yrði framvind- an í atvinnumálunum. Þá yrðu æ fleiri fyrirtæki i sjávarútvegi komin í gang á ný, og eins lægju þá fyrir nákvæmar tölur um at- vinnuleysi í janúar. Samninganefndir starfsmanna og framkvæmdastjórnar ÍSALs á fundi í húsnæöi ríkissáttasemjara um miðjan dag í gær. MorgunblaJið/ Kristján Einarsson. Pia Cramling og Jón L. Árnason þungt hugSÍ. Morgunblaðið/KÖE ÍSAL hefur ekki ennþá. sótt um fulla aðild að FÍI Pia vann Jón L. SÆNSKA skákkonan Pia Cramling sigraði Jón L. Árnason í æsispenn- andi skák í alþjóðlegu skákmóti Búnaðarbanka fslands sem hófst á Hótel Hofi í gær. Tveimur öðrum skákum lauk einnig í gærkvöldi. Shamkovich frá Bandaríkjunum og Margeir Pétursson og DeFirmian og Helgi Ólafsson sömdu jafntefli. Skákir Sævars Bjarnasonar og Alburts, Guðmundar Sigurjónssonar og Jóhanns Hjartarsonar og Knez- evic og Jóns Kristinssonar fóru í bið. ÍSLENSKA álfélagið sótti ekki um fulla aðild að Félagi ís- lenskra iðnrekenda í gær, eins og jafnvel hafði verið búist við, en það hefði þýtt að Vinnuveit- endasamband íslands hefði farið með samningsmál við starfsmenn ÍSAL fyrir þeirra hönd. Eins og sagt var frá í Morgunblaðinu í gær sam- þykkti ríkisstjórnin á fundi sín- um á fimmtudag að fella úr gildi skilyrði þess efnis að ISAL standi utan samtaka atvinnurekenda á íslandi. Sam- kvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun ÍSAL ekki ætla að sækja um aðild aö Félagi íslenskra iðnrekenda meðan einhver hreyfing er á samning- um þeirra við starfsmenn fyrir- tækisins. Samningafundi deiluaðila í fyrrinótt lauk um fjögurleytið og var boðað til nýs fundar klukkan 16 í gær. Að sögn Arn- ar Friðrikssonar, aðaltrúnað- armanns starfsmanna álvers- ins, komu fréttirnar um sam- þykkt ríkisstjórnarinnar báðum samninganefndunum jafnmikið á óvart. Samningaviðræður gengu stirðlega fyrir vikið í gær, en þegar fundir hættu um kvöldmatarleytið, var boðað að nýju til fundar hjá ríkissátta- semjara á morgun, sunnudag, klukkan 16. í dag munu samn- inganefndirnar funda í Straumsvík um ýmis sérmál. Niðurstaða sjóprófa í Kampen-málinu í Hamborg: Kampen ekki sjóhæft við brottför frá Amsterdam Lestarlúgur voru lekar og skipið um of hlaðið MEGINNIÐURSTAÐA sjóprófa vegna skipsskaðans þegar vestur- þýzka flutningaskipið Kampen fórst við Suðurströnd íslands 1. nóvem- ber sl., var sú að skipið hafi ekki verið sjóhæft, þcgar það sigldi frá Amsterdam í Hollandi, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Sjó- prófin fóru fram í Hamborg 23.—24. janúar sl. Þrjú atriði voru sérstaklega til- tekin í sjóprófunum. Loftskeyta- maður skipsins var ekki með í ferðinni. Þá kom fram, að útgerð- armenn skipsins hefðu vitað við brottför skipsins frá Amsterdam í Hollandi, að lúgulokur skipsins voru lekar. Við könnun í Amster- dam kom fram, að nokkur leki var á lest númer 1, og enn meiri leki með lúgum á lest númer 2. Þriðja atriðið var síðan, að skipið var um of hlaðið. Lúgur skipsins höfðu verið skoðaðar fyrir brottför með hlið- sjón af því, að sambærilegur leki hafði komið fram á systurskipum Kampen, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Þá kom fram við sjóprófin, að kolaryk mun sennilega hafa valdið því að vélar Kampen stöðvuðust, þegar skipið var á siglingu við suðurströnd íslands. Af áhöfn skipsins var aöeins 1. stýrimaður kallaður fyrir til að gefa upplýs- ingar. Á sínum tíma kom fram, að 15—20 gráðu halli var á skipinu nær alla leið frá Færeyjum til Is- lands. Ekki kom nein skýring fram á því við sjóprófin 1 Ham- borg. Kampen var á leið frá Amster- dam í Hollandi með 5.300 tonn af kolum fyrir Sementsverksmiðju ríkisins, en til stóð að landa farm- inum í höfninni á Grundartanga. Skipið var í förum á vegum Eim- skipafélags Islands og hafði verið í leigusiglingum hjá Eimskip frá miðjum septembermánuði. Miðstjórn Alþýðusambands íslands samþykkti harðorð mót- mæli við samþykkt ríkistjórn- arinnar. Segir þar meðal annars að með þessu hafi ríkisstjórnin haslað sér völl atvinnurekenda- megin í samskiptum við aðila vinnumarkaðarins, og um sé að ræða beina íhlutun í löglega vinnudeilu. Ekki tókst að ná í fulltrúa samninganefndar ÍSAL í gærkveldi. Sjá ályktun Alþyðusam- bandsins, viðtal við Orn Frið- riksson, aðaltrúnaðarmann, og Ragnar Halldórsson, for- stjóra ISAL, á bls. 2. Austanátt og rigning Spáð var austan og suð- austan hvassviðri í gær- kveldi og snjókomu, en 950 millibara lægð var þá suð- vestan við Grænland og skil á undan henni að nálgast landið og gert ráð fyrir að þau færu yfir landið í nótt. Jafnframt átti að hitna í veðri og í dag er spáð austan hvassviðri, slyddu og síðan rigningu ojg 4—5 stiga hita á landinu. A morgun, sunnu- dag, kólnar aftur í veðri og lægir og áttin verður norð- lægari. Strokufangi gómaður FANGI sem hefur verið í gæzluvarðhaldi í hegningar- húsinu á Skólavörðustíg vegna innbrotsins í Hallgrímskirkju, strauk á fimmtudagskvöldið en var gómaður um miðjan dag í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.