Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 Gífurleg stemmning var á kapprsðufundi milli formanna Sjálfstæðisflokk.sins og Al- þýðubandalagsins, Þorsteins Pálssonar og Svavars Gestssonar, í Hafnarfjarðarbíói. Tóku áheyrendur, sem troðfylltu húsið, vel undir með ræðumönnum og mátti ekki á milli sjá hvor hafði betur. Hallast undirritaður að því að úrslitin í einvíginu hafi verið jafntefli. Það kom í hlut Þorsteins Pálssonar að hefja kappræðuna. Hann sagði að við þær efnahagslegu aðstæður sem þjóðin byggi núna, væri meiri ástæða til þess en áður að vega og meta árangur af aðgerðum sem gripið hefði verið til, og horfa í réttu ljósi á þau vandamál sem óleyst væru og ekki hefði enn tekist að ráða við. Þorsteinn sagði að hægt væri að hafa mðrg orð um þær aðstæður, sem við blöstu er núverandi ríkisstjórn tók við á sl. vori, en einfaldast væri að vitna til Svavars Gests- sonar sjálfs, sem í fyrravor sagði neyðarað- stæður á íslandi, eftir að hann hefði sjálfur setið í ríkisstjórn í fimm ár. Þessi einfalda framsetning lýsti vand- anum betur en nokkuð annað, sagði Þor- steinn. Síðan hefði náðst samkomulag um mjög viðamiklar aðgerðir í efnahagsmálum er komið hefðu inn á flest svið efnahags- og fjármála. Frá kappræðufundinum í Hafnarfjarðarbíói. Eins og sjá má er bekkurinn þétt setinn og staðið er í öllum göngum. Mbl. KÖE. magnsöfl fengju ekki einokunaraðstöðu á útvarpsmarkaðnum neins og Morgunblaðið og fleiri íhaldsblöð" hefðu á dagblaðamark- aðnum. Auk þessa voru Þorsteinn og Svavar spurðir um njósnahneykslið í Noregi, hvern- ig þeir teldu best staðið að stjórnun fisk- veiða, um orsakir atvinnuleysis, um jafn- rétti kynjanna í launamálum og um fram- kvæmdasjóð fatlaðra. í lok fyrirspurnatíma héldu þeir hvor um sig stutta ræðu áður en kom að lokaorðum. Við það tækifæri sagði Þorsteinn að Svav- ar Gestsson alþingismaður hefði haft uppi stór orð vegna ummæla iðnaðarráðherra vegna kjaradeilunnar í álverinu. Sagðist Þorsteinn ekki ætla að vitna í ummæli Svav- ars Gestssonar alþingismanns, heldur ann- ars manns, Svavars Gestssonar félagsmála- ráðherra. Árið 1980 hefðu kjaradeilur staðið yfir. Þær hefðu staðið í nokkurn tíma, en ekki verið alvarlegri en svo að ekkert verka- lýðsfélag hefði boðað vinnustöðvun. Þá var viðtal við Svavar í útvarpinu og um horfurn- Gíftirleg stemmning á kappræðu- ftindi Þorsteins og Svavars Árangur af þessum aðgerðum sagði Þor- steinn vera þann að komið hefði verið í veg fyrir þá alvarlegu neyð, sem Svavar Gests- son benti á, almennt og víðtækt atvinnu- leysi. Nýju blóði hefði verið hleypt inn í framleiðslustarfsemi og gróandi væri í ið- naði. Verðbólgan, sem komin var á suður- amerískt stig, hefði verið lækkuð um meira en hundrað prósentustig. Vextir hefðu farið hraðlækkandi, og í fyrsta skipti í sögunni hefði vísitala matvörukostnaðar lækkað án þess að til aukinna niðurgreiðslna hafi kom- ið. Kvað Þorsteinn þetta undraverðan árang- ur og sagði að landsmenn allir hlytu að fagna þessum mikla árangri og vera reiðu- búnir til þess að taka áfram þátt í því að tryggja varanlegt jafnvægi í efnahagslífinu og skapa möguleika til bættra lífskjara. Sagði Þorsteinn ekki hafa vantað hrakspárnar þegar lagt var af stað. Svavar hefði lýst því með mörgum orðum að að- gerðirnar myndu hafa kreppu í för með sér og svo mikla minnkun eftirspurnar að hrun yrði í innlendri iðnaðarframleiðslu, inn- lendri þjónustu og verslun. Af þessu mundi skapast fjöldaatvinnuleysi í iðnaði, verslun og þjónustu. Þetta hefði verið megin uppi- staðan í málflutningi Svavars þar til fyrir mánuði eða svo. Núna kæmi hann hins veg- ar fram og segði svo blómlega tíma í atvinnulífinu, iðnaðinum, versluninni og þjónustunni, að virkilega væri tilefni til þess að hækka kaupgjald vegna hins mikla ágóða í þessum atvinnugreinum. Þorsteinn sagði þjóðina standa frammi fyrir miklum vanda í sjávarútvegi og tíma- bundnu atvinnuleysi, vegna þess að afli hef- ur minnkað. Á þessu ári mættum við veiða helmingi minna af þorski en 1982, eða jafn mikið og bátaflotinn einn kom með að landi á þeim velmektarárum, sem Svavar sat í ráðherrastóli. Ríkisstjórnin hefði kappkost- að að bregðast við þessum vanda og unnið að undirbúningi aðgerða í atvinnumálum. Alið á upplausn „En hver hefur hlutur Alþýðubandalags- ins verið,“ spurði Þorsteinn, „í þeirri miklu baráttu sem við höfum gengið í gegnum á undanförnum mánuðum. Málflutningur þeirra hefur einkennst af svartsýni, niður- rifsstarfsemi og nöldri. Markmið þeirra er að skapa upplausn. AUur málflutningur 1 þeirra byggist á því að velta sér upp úr þeim j þrengingum, sem við erum að ganga í gegn- um, eins og þeir séu að segja þjóðinni að hún eigi ekkert að leggja á sig til þess að vinna sig út úr þeirri neyð sem hér ríkti í vor og Svavar Gestsson lýsti best allra manna fyrir kjósendum. Því fer fjarri að við höfum kom- ist fyrir allan vandann, en Alþýðubandalag- ið sér það eina markmið í þessari stöðu að ala á upplausn," sagði Þorsteinn Pálsson í upphafsræðu sinni. Svavar hóf sitt mál með því að segja að Þorsteini hefði verið tíðrætt um viðskilnað Ragnars Arnalds í fjármálaráðuneytinu vegna þess að í Hafnarfirði vildi hann vekja athygli á því hvernig Matthías Á. Mathiesen hefði stjórnað ríkisfjármálunum á sínum tíma og skilið við ríkissjóð verr en nokkur annar fjármálaráðherra í sögunni, því þessa dagana sæktist hann eftir ráðherrastóli Matthíasar. Sagði Svavar að ríkisstjórnin hefði ætlað sér að afnema verðbólguna með því að láta láglaunamanninn í landinu borga hana niður. Sjálfvirknin í efnahagslífinu væri þó enn í fullum gangi hjá öllum öðrum en launamönnunum sjálfum, sem bannað væri að selja vinnu sína hærra verði. Svavar sagði atvinnuöryggi hafa verið efst á óskalista ríkisstjórnarinnar, en eftir sjö mánaða setu hennar væru atvinnuleys- ingjar fleiri en nokkru sinni síðan á land- flóttaárum viðreisnarstjórnarinnar, sem hann kallaði svo. Ein ástæðan væri sam- dráttarniðurskurðarsvartsýniskreppustefna ríkisstjórnarinnar, sem byggði starf sitt á því að fjármagnið væri upphaf og endir alls. Uppsagnarbréfin, sem birtust þúsundum einstaklingum þessa daga, væru órækasti votturinn um árangur af stefnu stjórnarinn- ar. Þegar hér var komið sögu fengu Þorsteinn og Svavar hvor um sig fimm mínútur áður en fyrirspurnatími hófst. Færðist Þorsteinn nú allur í aukana og hóf hann mál sitt með því að segja, að sjáandi sæi Svavar ekki og heyrandi heyrði hann ekki. „Verðbólgan hefur ekki lækkað á íslandi hjá Svavari Gestssyni. Hjá öllum öðrum hefur hún lækkað. Það er einn maður sem ekki sér það og ekki veit af því, og það er Svavar Gests- son. Hann dró hér upp mynd af þeim áhyggj- um sem við öll höfum vegna þess að afli hefur farið minnkandi og dregið úr atvinnu við sjávarsíðuna." Engar úrlausnir Svavars „En heyrði einhver hann nefna eina til- lögu til úrlausnar. Bauð hann þjóðinni upp á eitthvað til að leiða okkur út úr ógöngunum? Nei. Hann talaði um hækkanir hjá opinber- um fyrirtækjum. En hver var árangur af starfi Alþýðubandalagsráðherra I ríkis- stjórn? Það tók 6,1 viku að vinna fyrir raf- hitunarkostnaði meðalíbúðar þegar þeir settust í stólana 1978, en þegar Hjörleifur Guttormsson yfirgaf ráðuneyti sitt, tók það rúmar 18 vikur, eða þrisvar sinnum lengri tíma. Það er umhyggjan fyrir launafólkinu í landinu. Svavar talaði um að nú ætti að hækka matvæli. En hann veit það ekki og heyrir það ekki og sér það ekki að í fyrsta skipti í 15 ár lækkaði vísitala matvörukostnaðar. Samt er hér haldin stórkostleg ræða um feykilegar hækkanir á matvælum," sagði Þorsteinn Pálsson. Nú var að nýju komið að Svavari Gests- syni og gerði hann svokallaðan sjúklinga- skatt að umtalsefni og sagði að nú væri ekki lengur spurt að því þegar menn væru lagðir inn á sjúkrahús hvað að þeim væri og hvern- ig ætti að líkna þeim og lækna, heldur hvort þeir ættu pening. Þá var komið að fyrirspurnum þar sem m.a. var spurt um álit Þorsteins og Svavars á yfirlýsingu iðnaðarráðherra um hugsan- lega lögbindingu til að koma í veg fyrir verkföll starfsmanna í álverinu. Þorsteinn kvað deiluna í álverinu alvarlegt mál. Hópur launþega, sem samkvæmt skýrslum væri í hópi hærra launaðra launþega, hefur gengið fram fyrir skjöldu þó að launþegasamtökin almennt tali um að við þessar aðstæður eigi fyrst og fremst að rétta hag þeirra sem lægstar tekjur hafa. Deilan gengi þvert gegn því almenna viðhorfi sem ríkti innan laun- þegahreyfingarinnar og á vettvangi stjórn- málanna. Kvaðst hann vonast til að deilan leystist án þess að grípa þurfi til einhverra aðgerða. „En það hefur oft komið til þess að sett hafa verið lög þegar í óefni hefur verið kom- ið. Þetta hafa engir stjórnmálamenn útilok- að, og ég held að Sverrir Hermannsson hafi ekki sagt annað en algengt er. Ég minnist þess að Svavar Gestsson stóð að setningu laga í sjómannadeilu og ákvað að gerðar- dómur skildi skera úr þeirri deilu," sagði Þorsteinn. Svavar sagði Sverri hafa sagt hluti sem út af fyrir sig væri algengt að segja, en það væri nýstárlegt við yfirlýsingu hans að hún væri gefin áður en fullreynt væri hvort sam- komuiag gæti náðst. í henni fælist hótun til allra íslenskra launamanna um að þeir héldu sig á mottunni. Saman í stjórn? Þá var spurt hvort Svavar væri tilbúinn til að setjast I ríkisstjórn undir forsæti Þorsteins. „Ef Þorsteinn féllist á þær meginkröfur sem Alþýðubandalagið gerir, þá hefði ég ekkert á móti því að hann fengi að vera fundarstjóri. Ég bendi á það að ég hef áður haft flokksmenn úr Sjálfstæðis- flokknum í fundarstjórasæti. Það gafst ákaflega vel með Gunnar Thoroddsen, eins og kunnugt er,“ sagði Svavar. Var Þorsteinn þá spurður hvort hann væri reiðubúinn að taka sæti í stjórn undir forsæti Svavars. „Ég vil fyrst vekja athygli á þeim ósmekklegu ummælum sem Svavar Gestsson viðhafði hér um fyrrverandi for- sætisráðherra. Ég hygg að það sé fátítt að ráðherra hafi lýst forsætisráðherra sínum sem fundarstjóra I ríkisstjórn án þess að hann hefði þar annað hlutverk. Það hygg ég að sé einsdæmi í íslenskri stjórnmálasögu. En ég geri ekki ráð fyrir því eins og mál standa í dag að það geti skapast sá málefna- legi grundvöllur milli Sjálfstæðisflokksins og Álþýðubandalagsins, sem leiddi til stjórnarsamvinnu þeirra. Það ábyrgðarleysi og úrræðaleysi, sem einkennir málflutning Alþýðubandalagsins í dag, bendir ekki til þess að það sé sá stjórnmálaflokkur, sem treystir sér til að takast á við vandamál þjóðfélagsins af ábyrgð og festu," sagði Þorsteinn. Svavar fékk orðið að nýju og sagði túlkun Þorsteins á orðum sínum um fundarstjóra- hlutverk forsætisráðherra útúrsnúning. Þá voru frummælendur spurðir um við- horf sín til frjáls útvarps. Kvaðst Þorsteinn telja eðlilegt að leyfa frelsi í útvarpsrekstri og að engar hömlur ætti að leggja á fjöl- miðlun af þessu tagi, fremur en á útgáfu blaða og bóka. Svavar kvaðst þeirrar skoðunar að hugs- anlega mætti slaka eitthvað á einkaréttar- ákvæðum rfkisútvarpsins, en takmarka yrði þá breytingu mjög og tryggja að sterk fjár- ar í samningamálunum. Sagði hann þá að þær aðstæður gætu komið upp að óhjá- kvæmilegt yrði að höggva á deiluna með lagasetningu. „Það var ekki einu sinni farið að boða verkföll þegar félagsmálaráðherr- ann Svavar Gestsson var farinn að hóta með lagasetningu. Síðan kemur alþingismaður- inn Svavar Gestsson og hneykslast þessi lif- andi býsn. Hvernig á fólkið í landinu að treysta mönnum, sem flytja þannig mál sitt.“ Sjúklingaskattur Svavars Þorsteinn vék síðan að tali Svavars um sjúklingaskatt og sagði þetta ekki í fyrsta sinn sem uppi væru hugmyndir um gjald af þessu tagi. „Reyndar er það í lögum á ís- landi að sjúklingar á ákveðnu sviði skuli greiða fyrir að liggja á sjúkrahúsi. Hver skyldi hafa markað þá stefnu? Hver skyldi vera maðurinn sem það gerði? Hver skyldi hafa sett lög árið 1982 á ári aldraðra? Það var Svavar Gestsson. Hvað skyldi hafa verið efni þeirra laga? Það var það nýmæli að aldraðir sem lægju á sjúkradeildum skyldu greiða kostnaðinn við að liggja þar. Það var ekki verið að leggja til að þeir sem voru á fullum launum, heildsalarnir og hálauna- mennirnir, borguðu fyrir það að leggjast inn á sjúkrahús. Stefnumörkun Svavars Gests- sonar í íslenskri félagsmálasögu var sú að aldraða fólkið, sem leggðist inn á sjúkra- deildir, skyldi fyrst allra íslendinga greiða gjöld fyrir að liggja á sjúkrahúsi, og það meðan því entist líf til. Og svo kemur hann fullur hneykslunar á því að verið skuli að athuga að þeir sem eru á fullum launum greiði gjald fyrir takmarkaða vistun," sagði Þorsteinn. Krcditkortin „En það er ekki bara að Svavar Gestsson hafi áhyggjur af því að heildsalar eigi að borga þegar þeir leggjast inn á sjúkrahús, eins og gamla fólkið sem hann skikkaði til þess. Hann hefur gert ýmislegt annað í þágu þeirra. Núna er það orðið algengt að alþýða manna nýtur hagræðis af því að hafa kred- itkort. Hver skyldi hafa innleitt kreditkort á íslandi? Það var viðskiptaráðherra sem heitir Svavar Gestsson. En hverjir máttu nota kreditkort með hans leyfi? Það voru einvörðungu heildsalar og iðnrekendur á ferðalögum erlendis. Þegar hinn almenni launamaður kom og bankaði upp á hjá Svav- ari og bað um að fá kreditkort eins og heild- salarnir og iðnrekendurnir, þá sagði valds- maðurinn í viðskiptaráðuneytinu nei; þau væru bara fyrir heildsalana." Lokaræða Svavars var daufari en hinar fyrri, enda hafði Þorsteinn sorfið hart að honum er á leið. Má segja að Svavar hafi haft undirtökin í fyrstu lotu, en Þorsteinn upp frá því. Sagði Svavar möguleika til að rétta þjóðfélagið við, með því að fslenskir launamenn sameinuðust um að hrinda af sér oki þeirrar stjórnarstefnu, sem fylgt hefði verið á undanförnum mánuðum. Mismælti hann sig reyndar og sagði fyrst undanförn- um árum, en leiðrétti sig er fundarmenn hlógu tvívegis við mismæli hans. — ágás.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.