Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 Sir Eric Gairy, fyrrum forsætisráðherra á Grenada, sem var steypt af stóli fyrir fjórum árum, sneri heim úr útlegðinni fyrir nokkrum dögum. Var honum vel fagnað af stuðningsmönnum sínum og er jafnvel talið, að hann hyggist bjóða fram í kosningunum, sem brátt verða haldnar á eynni. Ekki eru allir jafn hrifnir af heimkomu Gairys því að hann þótti bæði einráður og undarlegur á síðustu stjórnarárum sínum. Hann hafði t.d. miklar áhyggjur af fljúgandi diskum og skoraði einu sinni á Sameinuðu þjóðirnar að láta það mál til sín taka. friðmælast Egypta og ísraelsmenn Tel Atít, 27. janúar. AP. DAGBLAÐ STJÓRNARANDSTÖÐUNNAR í fsrael, Davar, greindi frá því í gsr, að það hefði góðar heimildir fyrir því að samskipti ísrael og Sovétríkjanna á diplómatískum vettvangi færu batnandi og farið gæti svo að í byrjun næsta árs myndi verða tekið upp stjórnmálasamhand ríkjanna á nýjan leik. Dagblaðið vitnaði í samtöl við viðræður við ísraelska diplómata ónafngreinda sovéska diplómata í sem litlar fregnir hafi farið af. Þá Washington, sem segjast hafa átt segir blaðið, að ísraelski sendiherr- Fárviðri í Kaliforníu — Bretlandseyjum 22 Buhari, leiðtogi her- stjórnarinnar í Nígeríu: Skikkan komið á efnahagsmál l^igos, Nígeríu, 27. janúar. AP. MÖHAMMED Buhari, leiðtogi her- stjórnarinnar í Nígeríu, fylgdi fram- kvæmdastjóra SÞ, Javier Perez de ('uellar, úr hlaði í dag og kvaddi hann með þeim orðum, að nýja stjórnin ætlaði sér ekki að selja útlendingum í hendur efnahagslífið í landinu. Hann sagði ennfremur, að stjórnin væri staðráðin í að koma skikkan á efnahagsmálin með skynsamlegri fjárfestingu og að erlendum fyrirtækjum væri guð- velkomið að festa fé í landinu. Þess yrði þó gætt, að ítök þeirra yrðu ekki of mikil. Skuldir Nígeríumanna erlendis nema 40 milljörðum dollara. Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur veitt þeim vilyrði fyrir tveggja milljarða dollara láni, en Buhari hefur farið fram á betri kjör. Stjórnin heldur áfram að hreinsa til í ríkiskerfinu. hláka á Loh Angelcs, London 27. jan. AP. MIKIL veðurhæð var í dag í Kaliforníu og vindhraðinn náði þar krafti felli- byls. Þrír létu lífið og 12 íbúðarhús brunnu er rafmagnsstaurar brotn- uðu í rokinu og féllu á þau með neist- aflugi. Einn sem lést, var í bifreið sem fauk fyrir björg, annar varð undir tré sem rifnaði upp og sá þriðji lést af völdum rafstraums. Mikil úrkoma hefur fylgt veður- hæðinni og víða hefur neyðarástand ríkt þar sem rigningin hefur bæst í uppbólgnaðar krapafullar árnar. Hundruð manna hafa orðið að flýja heimili sín. Hláka er einnig á Bretlandseyjum þar sem gífurlega mikið snjóaði á dögunum. Víða hafa verið sam- göngutruflanir af völdum blotans og ann í Washington, Meir Rosenne, hafi alloft að undanförnu átt leyni- fundi með Anatoly Dobrynin, sendi- herra Sovétrikjanna. ísraelsk yfir- völd og sovésk hafa ekki tjáð sig um frétt Davar. Sovétríkin slitu stjórnmálasam- vegir farið í kaf í leysingarvatni. Manntjón þó ekkert. í Teighnmouth í suðvesturhluta Bretlandseyja skall á ofsarok með miklu hagléli. Stóð óveðrið aðeins yf- ir í nokkrar sekúndur. Haglkúlurnar voru á stærð við golfkúlur. Þök rifn- uðu af fjölda húsa, tré rifnuðu upp með rótum og rafmagns- og ljósa- staurar brotnuðu. bandi við ísrael i stríðinu 1%7. Sov- étríkin viðurkenna þó Ísraelsríki og skipst hefur verið á ópólitískum sendinefndum. Stjórnmálasamband hefur hins vegar farið fram um hol- lenska sendiráðið í Moskvu og finnska sendiráðið í Tel Aviv. Abba Eban, fyrrum utanríkisráðherra ísraels, svo og ýmsir háttsettir ísraelskir embættismenn hafa látið frá sér fara, að þeir telji Sovétmenn mjög áhugasama um endurnýjað stjórnmálasamband. Butros Ghali, utanríkisráðherra Egyptalands, sagði í gær, að sam- búð Egyptalands og Sovétríkjanna hefði batnað svo að undanförnu, að ekkert skorti nú nema egypskan sendiherra í Moskvu og sovéskan sendiherra í Kairo. „Þegar aðstæð- ur leyfa verður úr því bætt,“ sagði Ghali i samtali við dagblað í Saudi Arabíu. Sambúð Egyptalands og Sovétríkjanna hefur verið stirð síð- an árið 1972, er þáverandi forseti Egyptalands, Anwar Sadat, sagði 17.000 sovéskum ráðgjöfum að snauta til síns heima. Kiessling-málið dregur dilk á eftir sér: Talið að Wörner sitji í völtum ráðherrastóli Bonn, 27. janúar. AP. SVO GÆTl farið, að Manfred Wörner, varnarmálaráðherra Vestur-l>ýska- lands neyðist til að segja af sér embætti í kjölfarið á brottrekstri Gunther Kiessling, næst æðsta hershöfðingja yfir herjum NATO. Þeir Wörner og Helmut Kohl, kanslari Vestur-I*ýskalands, munu eiga fund að beiðni hins fyrrnefnda fljótlega eftir helgina og er talið að Kohl muni þá ákveða hvort Wörner verði látinn segja af sér eða ekki. Embættismenn sem ekki vilja láta nafna getið, segja Wörner nú vera á völtum stóli vegna hins mikla fjaðrafoks sem brottvikning Kiesslings hefur valdið. Wörner rak Kiessling um áramótin með þeim orðum að hershöfðinginn væri öryggi Vestur-Þýskalands hættulegur. Þau ummæli voru byggð á skýrslu sem vestur-þýska leyniþjónustan lét Wörner í té. Þar var Kiessling sakaður um að vera tíður gestur á næturklúbbum kynvillinga í Köln. Umræddir embættismenn segja að Helmut Kohl sé mjög reiður út í Wörner og sé ástæðan sú að hann hafi farið klaufalega með málið og samsteypustjórnin væri fyrir vikið bæði að athlægi gerð svo og gagn- rýnd harðlega. Kohl hefur verið á ferðalagi í Mið-Austurlöndum að undanförnu og með honum er helsti talsmaður stjórnarinnar, Peter Bönish. Bönish sendi frá sér fréttatilkynningu um málið í gær og sagði þar að það væri alrangt að Kohl væri að undirbúa brottrekst- ur Wörners og allar vangaveltur um „reiði Kohls" væru úr lausu lofti gripnar. Hins vegar myndu Kohl og Wörner ræða um málið eftir helgina, því Wörner er mikið í mun að Kohl heyri um hvað málið snýst frá sínum sjónarhóli. Manfred Wörner, varnarmálaráðherra, á tali við Behrendt, yfirmann vestur-þýsku leyniþjónustunnar. Stuttfréttir ... Bannad að hýða konur iHlamabad, Pakistan, 27. janúar. AP. IIERSTJÓRNIN í Pakistan setti í dag lög, sem leggur blátt bann við því að konur séu hýddar og skiptir einu hvert brotið er eða á hvaða aldri konan er. Fyrir hálfum öðrum mán- uði var kona hýdd í fangelsi í Peshawar fyrir hórdóm og brugðust þá kvenfélög um allt landið ókvæða við og efndu víða til mótmæla. Konurnar kröfðust þess, að Zia U1 Haq, forseti, bannaði þennan sið og varð hann óðara við því. Samkvæmt nýju lögunum má ekki held- ur hýða karlmenn eldri en 45 ára og yngri en 18. „Enga Kúbani hér“ Seattle, Bandaríkjunum. 27. janúar. AP. Kráareigandi í Seattle, sem var búinn að fá nóg af slags- málum og uppivöðslusemi kúbanskra flóttamanna, setti upp skiiti utandyra þar sem á stóð „Engir Kúbanir hér“. í dag tók hann það niður og setti upp annað þar sem sagði: „Við viljum ekki vandræða- menn“. Eftir að kráareigandinn, Ray S. Armistead, setti upp fyrra skiltið linnti ekki mótmælum Kúbumanna og samtaka þeirra og alls kyns mannréttindanefndir hót- uðu honum lögsókn og öðr- um afarkostum. Ray hafði því skiltaskipti til að eiga það ekki á hættu að missa vínveitingaleyfið. Arm- istead segir, að eftir að Kúb- anirnir fóru að venja komu sínar á krána hafi heldur betur skipt um til hins verra. Slagsmál, hnífabar- dagar, eiturlyfjasala og sjálfum hefði honum marg- sinnis verið hótað dauða. Banvænn bögglapóstur WaycroHs, Georgfu, 27. janúar. AP. ÞAÐ tók kviðdóminn ekki nema klukkustund að kveða upp sektardóm yfír mannin- um, að hann hefði gerst sekur um að senda ciginmanni fyrr- um konu sinnar baneitraðan skröltorm. llm orminn hafði hann búið mjög fallega í pakka með slaufu. Til að skröltormurinn kæmi ekki upp um sig í höndum póstmanna fjar- lægði sendandinn, James T. Carter, aftasta hlutann af halanum en það er með hon- um, sem ormurinn lætur í sér heyra. Viðtakandinn, Joey V. Tanner, opnaði pakkann með mestu varúð og kom strax auga á snák- inn. Hann kastaði þá frá sér pakkanum og tókst svo að vinna á" orminum með heykvísl. Carter á yfir höfði sér 20 ára fangelsisdóm og 10.000 dollara sekt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.