Morgunblaðið - 25.03.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1984
Embætti ríkisbókara og
ríkislögmanns auglýst
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur ný
lega auglýst lausar til umsóknar
tv*r veigamiklar stöður innan fjár-
málaráðuneytisins, stöðu ríkisbók-
ara og ríkislögmanns. Umsóknar-
frestur er til 25. apríl nk.
Grétar Áss Sigurðsson hefur
gegnt stöðu ríkisbókara um all-
langt skeið en hefur sagt starfi
sínu lausu. Embætti ríkislög-
manns er nýtt, en sambærileg
embætti ríkislögmanna eru til í
flestum nálægum löndum, svo sem
Noregi og Svíþjóð.
Stöðumælar nú
tæmdir daglega
NÚ HEFUR verið gripið til þess ráðs,
að óeinkennisklæddir lögreglumenn
vakta stöðumæla í Reykjavík til þess
að koma í veg fyrir skemmdarverk á
mælunum. Auk þessa eru mælarnir
tæmdir daglega á kvöldin. Jafnframt
hafa verið pantaðir sterkari lásar og
hlífar á mælana til þess að erfiðara sé
að ná peningum úr þeim og er verið að
setja þannan búnað á stöðumæla þessa
dagana. Til þessara ráða hefur verið
gripið til þess að freista þess að koma í
veg fyrir skemmdarverk á stöðumæl-
um í borginni.
Undanfarna mánuði hafa verið
unnin mikil skemmdarverk á stöðu-
mælum. Lögreglu og eftirlits-
mönnum mælanna hefur tekist að
standa allmarga unglinga að verki
og hefur komið á daginn að ungl-
ingar hafa notað peningana, sem
þeir hafa stolið úr mælunum, til þess
að fjármagna leiki í fjölmörgum
leiktækjasölum borgarinnar. Laus-
lega er áætlað að tjón, sem unnið
hefur verið á stöðumælum á undan-
förnum mánuðum, nemi um 5 millj-
ónum króna og er þá rekstrartap
vegna skemmdra mæla ekki meðtal-
ið.
n
Frá útskipun loðnumjölsins í Keflavík.
Morgunbladid/E.G.
Loönuútskipun í Keflavfk
Vogum, 23. mars.
ÚTSKIPUN rúmlega 800 tonna af
loðnuafurðum hefur staðið yfir
undanfarna daga í japanska flutn-
ingaskipið Matsushina Maru í
Keflavíkurhöfn. Gert var ráð fyrir
að útskipun lyki á fnstudagskvöld.
Mest var flutt út af loðnu-
hrognum, eða 550 tonn, síðan um
250 tonn af frystri loðnu. Auk
þess fóru í skipið um 20 tonn af
karfa. Þær afurðir sem skipað
var út í Keflavík komu frá fyrir-
tækjum á Suðurnesjum og höf-
uðborgarsvæðinu.
E.G.
Strætisvagnar Reykjavíkur:
Annar liðvagn til reynslu
10% aukning mjólkur í janúar og febrúar:
Stefnir í 11 millj. lítra
umframframleiðslu
MJÓLKURFRAMLEIÐSLAN á landinu öllu í janúar og fehrúar var 10%
meiri en fyrstu tvo mánuði síðasta árs, en tæpum 4% meiri í september til
febrúar en var sömu mánuði í fyrra.
STRÆTISVAGNAR Reykjavíkur fá nú
um helgina liðvagn af Volvo-gerð til
reynslu en þeir hafa verið með slíkan
vagn af gerðinni Mercedez Bens til
reynslu síðastliðna tvo mánuði og fer
nú að líða að því að honum verði skil-
að.
„Við fáum Volvo-vagninn lánaðan
hjá Velti hf. í tvær vikur en hann er
nokkuð frábrugðinn Bens-bílnum,“
sagði Sveinn Björnsson, forstjóri
Strætisvagna Reykjavíkur í samtali
við Mbl. fyrir helgi. „Á þessum vögn-
um báðum eru þrír öxlar. Bensinn er
með drifið á öftustu hásingunni en
Volvoinn er með drifið á miðhásing-
unni og afturhjólin á honum beygja
með framhjólunum. Bensinn er
rúmlega 17 metra langur og tekur
124 farþega. Volvoinn er 18 metrar á
lengd og tekur 117 farþega. En til
viðmiðunnar er venjulegur vagn um
12 metrar á lengd og tekur 90 far-
þega.
Við höfum prófað Bensinn á ýms-
um leiðum og í alla vega færð og
hefur hann reynst með ágætum. Það
hefur komið í ljós, eins og við bjugg-
umst við, að hann hentar best á
löngum, beinum leiðum þar sem
flytja þarf marga farþega því á
tæknilega erfiðari leiðum er hann
seinni í förum. Ástæðan fyrir þess-
um tilraunum hjá okkur er fyrst og
fremst sú, að taka á upp nýtt leiða-
kerfi á næstunni. Dæmið hefur ekki
verið gert upp ennþá. Fjárhagsleg
hagkvæmni ræður úrslitum og því
mikilvægt að athuga hvaða mögu-
leika þessir vagnar gefa.“
Að sögn Gunnars Guðbjartsson-
ar, framkvæmdastjóra Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins, mun
mjólkurframleiðslan fara í 111
SÍÐASTA sex mánaða tímabil hefur
slátrun svína og nautgripa aukist um
30%, en sala svína- og nautakjöts
ekki aukist að sama skapi. Sala
nautakjöts hefur reyndar minnkað,
en sala svínakjöts aukist lítillega á
þessu sex mánaða tímabili.
milljónir lítra á árinu, ef aukning-
in verður jafn mikil út árið og hún
var í janúar og febrúar, en neysla
landsmanna á mjólk og mjólkur-
Birgðir nautakjöts voru þann 1.
þessa mánaðar 788 tonn, en voru
340 tonn á sama tíma í fyrra.
Samsvara þessar birgðir nærri
hálfs árs neyslu á nautakjöti sam-
kvæmt söluskýrslum. Birgðir
svínakjöts voru 162 tonn á sama
vörum er aðeins um 100 milljónir.
Sagði Gunnar, að þessi aukning
væri óheillaþróun, því umfram-
magnið þyrfti að flytja út í formi
osta sem afar lágt verð fengist
fyrir, það lágt, að það dygði aðeins
fyrir kostnaði og fengju bændur
ekkert af útflutningsverðinu.
tíma en voru 78 tonn þann 1. sept-
ember. Sala svinakjöts jókst um
13,6% á tímabilinu miðað við
sömu mánuði í fyrra, en slátrun
var það miklu meiri að birgða-
söfnun varð. Ekki er vitað hvort
salan hefur aukist mikið í mars,
en eins og kunnugt er varð mikil
verðlækkun á svínakjöti þann 1.
mars.
Kristján Ragnarsson:
„Ráðuneytið
hefur Jónas
í gæzlu“
„RÁÐUNEYTIÐ hefur Jónas
Bjarnason í gæzlu núna og þeirri
gæzlu treysti ég. Því hef ég ekki
frekari áhyggjur af honum,“
sagði Kristján Kagnarsson, er
athugasemd Jónasar Bjarnason-
ar var borin undir hann.
„Allir hagsmunaaðilar, út-
gerðarmenn, sjómenn og fisk-
verkendur, munu fylgjast grannt
með gerðum Jónasar á næstunni
og gæta þess, að við það verði
staðið, sem ákveðið var í upphafi
núverandi verðtímabils. Hins
vegar er unnið að þvi af sjávar-
útvegsráðuneytinu í samráði við
Verðlagsráð sjávarútvegsins, að
framkvæmt verði tilraunamat
það, sem stefnt var að,“ sagði
Kristján Ragnarsson.
Vel heppnað mót
í Neskaupstað
«MBa« vsm
nrfj
Benóný Benediktsson hefur tapað öllum slnum skákum, en hefur engu að
síður sett skemmtilegan svip á mótið með frumlegri taflmennsku — ef til
VÍll of frumlegri á köflum. Morgunblaóið/ Karl Hjelm.
Skák
Margeir Pétursson
ÞAÐ HEFUR verið hart barist hér
á alþjóðlega skákmótinu í Nes-
kaupstað sem hófst á mánudaginn
var. Fram að þessu hefur íslend-
ingunum vegnað mjög vel. Þeir
Helgi, Margeir, Jóhann og Guð-
mundur eru enn allir taplausir.
Benóný hefur sýnt góða takta þrátt
fyrir töpin þrjú og hefur að venju
skemmt áhorfendum með óvenju-
legri taflmennsku sinni en sumir
leikir hans hafa þó verið fram úr
hófi frumlegir.
Hér fer á eftir skák frá mót-
inu, skák Margeirs Péturssonar
og McCambridge, Bandaríkj-
unum.
1. umferð:
Hvítt: Margeir Pétursson
SvaTt: McCambridge (Banda-
ríkjunum)
Katalónsk byrjun
1. d4 — Rffi, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
d5, 4. g3 - Be7, 5. Bg2 — (M), 6.
(V0 — dxc4, 7. I)c2 — Rc6?!
Upphafið á erfiðleikum svarts.
Þarna á riddarinn lítið erindi
enda er 7. — a6 mun algengari
leikur í stöðunni.
8. Dxc4 — Dd5, 9. Dxd5 — exd5,
10. Rc3 — Bf5, 11. Bf4 — Hac8,
12. Hfdl — Ra5
Þessi riddari á eftir að lenda í
miklum erfiðleikum þarna út á
kantinum, en hvítur hótaði 13.
Re5 óþyrmilega. 12. — Rd8 var
slæmur vegna 13. Rb5! — c6, 14.
Bd6!
13. Re5 - c6, 14. Hacl — Hfd8,
15. Ka4 - Re4, 16. f3 — Rd6, 17.
g4! — Bg6, 18. b3 — He8, 19. Bd2
— Bd8, 20. e3 — f6, 21. Rxg6 —
hxg6, 22. Kf2 — f5?
Með þessu nær svartur engu
mótspili en veikir e5-reitinn.
23. h3 - Kf7, 24. Rc5 — Bf6, 25.
Rd3 — Kf6
Þannig hagnýtir hvítur sér
slæma staðsetningu svörtu ridd-
aranna. Svartur tapar nú biskup
og riddara fyrir hrók og peð. Ur-
vinnslan er síðan fremur einföld
fyrir hvítan.
26. — Bxc5, 27. dxc5 — Rdc4, 28.
Bc3+ - KI7, 29. bxc4 — Rxc4, 30.
Bd4 — b6, 31. Bfl — Hb8, 32. Be2
- Hb7, 33. f4 — Hbe7, 34. Hcl!
Ef nú 34. - Rxe3? þá 35. Re5+
og vinnur skiptamun til viðbót-
ar.
34. — Hh8, 35. Kg3 — b5, 36.
Re5+ — Rxe7, 37. Bxe5 — a5, 38.
Bd3 - Ke6, 39. h4 - Hf7, 40. h5
— gxh5, 41. Bxf5+ og svartur
gafst upp.
Mikil birgðasöfiiun á
nauta- og svínakjöti