Morgunblaðið - 25.03.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.03.1984, Blaðsíða 3
Pantanir fyrir sumariö streyma inn, og margir brottfarardagar eru aö seljast upp. Dragiö því ekki aö staöfesta pant- anir. Vegna mikils álags undanfarnar vikur hefur verið mjög erfitt aö né símasambandi viö skiptiborð Ut- sýnar. Viö biðjum viöskiptavini okkar velviröingar á þessu og bendum vinsamlegast á beinar línur: HÓPFERÐADEILD 20100 OG 27209 EINSTAKLINGSDEILD 24106 OG 23510 ALGARVE — Veöurfar apr. mai. jun. júl. ág sept.okt Meðalhiti sjávar á C° 16 17 18 19 20 20 19 Meðalhiti lofts á C° 20 22 25 28 28 26 22 Meðaltal solskins stunda á dag 9 10 12 12 12 10 8 Fyrsta brottför 17. maí Verö frá kr. 20.100 í 3 vikur Vestan til á Pýreneaskaganum, á suðvesturhorni Evrópu, er eitt mesta óskaland feróalangs, sem þráir hvíld og sól í fögru um- hverfi viö hafgolu og mjúka Ijósa strönd. Portúgal vekur vellíöan. Tærar öldur Atlantshafsins leika um þessar sérkennilegu, mynd- rænu strendur, einhverjar þær hreinustu og fegurstu, sem finn- ast í Evrópu. Margir íslendingar, sem kynnast Portúgal, taka ástfóstri viö land- ið. Þaó er eins og þeir finni til skyldleika og samkenndar, sem ekki viröist til staöar meó þeim og öórum rómönskum þjóöum. Líklega er þaö nálægð hafsins, sem tengir þjóðirnar vissum böndum þrátt fyrir fjarlægó og ólíkan uppruna. Þaö er sem gnýr hafsins og aldalangrar baráttu við ægivald sjávarins ómí í sál þessa fólks líkt og íslendingum. Hinir vösku sægarpar, Vasco da Gama, Magellan, Dias o.fl. fundu ný lönd og álfur og geröu Portú- gal aö forysturíki á Vesturlönd- um á 15. og 16. öld. Sjá má marg- ar minjar fornrar fræögar og auðs í Portúgal. Hvert héraö er öóru ólíkt með fjölda ævagam- alla þorpa og bæja, sem búa yfir þokka og sérkennum Suöur- Evrópu, en með sínu eigin yfir- bragöi og heföum. Portúgalar eru elskulegt fólk, yfirlætislaust og gestrisiö. Þeir taka gestum sínum opnum örm- um og hafa margt að bjóöa þeim. Þótt landið sé ekki rismikið á- sýndum, býr þaö yfir fegurö og töfrum, sem eru þess eigin. ALBUFEIRA Á miðri Algarve-ströndinni er heill- andi þyrping drifhvítra húsa, sem horfa til hafs yfir sendna strönd. I flæðarmálinu situr fjöldi fiskibáta innan um ferðamenn af mörgum þjóðum og biða rökkurs, þegar eigendur þeirra róa á miðin á ný. Og þá leita feröamenn á vit nýrra ævintýra í hlýju næturhúminu og gleöjast viö kræsingar og Ijúfar veigar á fjölmörgum veitingastöö- um innan dyra eöa undir tindrandi stjörnuhimn'. Tónlist dunar í diskó- tekum og næturklúbbum, og sól- brúnir kroppar liðast aftur og fram í takt viö nýbylgju tímans, unz líöur aö morgni. Þetta er Albufeira, „gullströnd" Algarve, og vinsælasti sólbaösstaöur og skemmtistaður á suöurströnd Portúgals. Hér er einnig afbragösaöstaöa til íþrótta- iökana, siglinga, köfunar og ein- hverjir beztu tennis- og golfvellir Evrópu á næsta leiti. VILAMOURA Sökum þess hve feröir Útsýnar til Portúgal nutu mikilla vinsælda í fyrra, er nú ákveöiö aö bæta viö öörum frábærum sólbaösstaö í Al- garve. Þaö er Vilamoura, um 6 km } austan viö Albufeira, sem er aö veröa einna best úr garöi gerö af öllum feröamannastöðum í Portú- gal. Ekki veldur því aöeins hiö frábæra loftslag viö ströndina und- ir sumarbláum himni og fagurt samspil landslags og gróöurs, heldur samvinna fjölþjóöa arki- tekta og skipuleggjenda viö aö byggja upp fyrirmyndar feröa- mannastaö, sem sæi fyrir öllum óskum og þörfum gestsins sem aö garöi ber. Náttúrlegt, óspilt um- hverfi meö angandi furutrjám og blómgróöri bjóöa upp á kyrrlátt sumarleyfi, hvíld og slökun. En sport-aðstaðan er frábær á sjó og landi meö tennisvöllum og tveim 18 holu golfvöllum, stórfiskaveiö- um, stór bátahöfn meö glæsilegri verslunarmiöstöö, fjölbreyttir matsölu- og skemmtistaöir, m.a. spilavíti (Casino) og eina lengstu baðströndina í Algarve handa þeim, sem kjósa hreyfingu, líf og fjör. Þetta eru tvímælalaust ein- hver bestu feröakaupin i ár meö splunkunýju, ágætis gistihúsnæði um 2 km frá ströndinni. KYNNISFERÐIR í ALBUFEIRA Fróöleg dagsferö út á suövestur- horn Evrópu, Cabo Sao Vicente, en þar i smábænum Sagres stofn- aöi Hinrik Sæfari heimsins fyrsta sjómannaskóla. Á leiöinni verður komiö viö í nokkrum bæjum meö- fram ströndinni. Tveggja daga ferö til höfuöborgar- innar Lissabon, sem kölluö var „prinsessa alheimsins“, þar sem gamli og nýi tíminn fléttast saman í margbrotinn vef fjölbreytts mannlífs og fagurra bygginga. Sannkallaöur hápunktur hverrar Portúgalsheimsóknar. Skemmtileg dagsferö um sveitir Algarve þar sem viö kynnumst menningu og þjóöháttum íbúanna, landslagi, gróöurfari og bygg- ingarstíl Mára, sem setur sterkan svip á bæi og þorp. í spennandi siglingu meöfram ströndinni verö- ur boöiö til fjöruveizlu meö grilluö- um sardínum, víni og fleira góö- gæti. Gott tækifærl er til sól- og sjóbaöa í þessari dagsferö. Boöiö er upp á kvöldverö og þjóö- dansasýningu í leikandi léttri kvöldferö á gamlan sveitabæ i nágrenninu. Fyrir nátthrafna veröur haldiö á vit glaums og gleöi í einn af glæsilegri næturklúbbum Albufeira. NÆTURLÍFIÐ í Montechoro, Albufeira og Vila- moura eru frábær diskótek, sem eru opin til kl. 04.00 aö morgni. Hin helstu eru: Vilamoura og nágrenni. CASION OF VILAMOURA O VAPOR, viö bátahöfnina ZEBRA SKIPPERS Albufeira og nágrenni: SUMMERTIME, í Vila Magna hótelinu, Montechoro SCORPIUS, í Montechoro MICHAEL’S, næturklúbbur i Montechoro LORD BYRON, í Praia da Oura KISS, í Praia da Oura, rétt við Auramar BARBARELLA, í Albufeira 7Vi, í Albufeira SYLVIA’S, í Albufeirá. ÖX»^a 1 NOKKUR VINSÆLUSTU VEITINGAHÚSIN Albufeira: RUINE, portúgalskur FERNANDO’S, alþjóðlegur O DIAS, portúgalskur O BUZIO, portúgalskur ANTONIO CATUNA, grillstaöur Praia da Oura: CASA DA TORRE, alþjóölegur BORDA D’AGUA, portúgalskur Montechoro: MICHAEL’S, alþjóölegur PIMPAO, portúgalskur, Vila Magna LOS COMPADRES, alþjóölegur Areias S. Joao: ANCORA, alþjóölegur Vilamoura: CEGONHA, alþjóðlegur O TACO, alþjóölegur RODRIGUES, portúgalskur PETlt PORT, alþjóölegur ALDEIA DO MAR, ódýr, einfaldur matur CARTEIA, portúgalskur, á strönd- inni O VAPOR, alþjóölegur, viö smá- bátahöfnina MAYFLOWER, alþjóölegur viö smábátahöfnina. I N N Reykjavík, Austurstræti 17, sími 26611. Akureyri, Hafnarstræti 98, sími 22911.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.