Morgunblaðið - 25.03.1984, Page 46

Morgunblaðið - 25.03.1984, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1984 . . . Vinni Liverpool leíkinn í dag og þar með mjólkurbikarinn þriðja árið hefur verið ákveðið að félagið vinni bikarinn til eignar. Liverpool hefur reyndar unnið þessa keppni fjögur síö- astliðin ár — liöiö vann deild- arbikarinn fyrir fjórum árum, og mjólkurbikarinn þrjú síöustu árin eftir aö nafni keppninnar var breytt. . . . . . Ef liöin skilja jöfn á Wembl- ey í dag og annar leikur þarf að fara fram verður hann á miö- vikudaginn á Maine Road, velli Manchester City í Manchest- er... . . Leikmenn Everton fylgdust með leik Coventry og Totten- ham í 1. deildinni í gær á leið sinni við London . . . ,. Joe Fagan og Howard Kendall, framkvæmdastjórar liðanna, verða í dag fyrstu framkvæmdastjórar í sögu keppninnar sem fá verölauna- peninga — gull og silfur. Þeir munu einnig ganga upp hin frægu 39 þrep á Wembley og taka á móti gripunum þar. Framkvæmdastjórar úrslitalið- anna hafa aldrei gert það áöur — utan einu sinni — Bob Paisl- ey tók við mjólkurbikarnum í fyrra, í síöasta sinn er Liverpool lék á Wembley undir hans stjórn . .. . Drottningarmóöirin breska mun afhenda mjólkurbikarinn á Wembley í dag ... . Aðeins er tæpur kílómetri milli Anfield Road og Goddison Park, leikvanga úrslitaliöanna i Liverpool — en á milli þeirra er Stanley Park, lítið útivistar- svæöi. Liöin og stuðningsmenn þeirra þurfa aö feröast rúmar 200 mílur til London vegna leiksins í dag ... . Kevin Sheedy og Ronnie Whelan bjuggu hjá sömu kon- unni, frú Edwards, fyrst eftir aö þeir komu til Liverpool-liðsins. Þeir voru vanir að fara saman í sumarfrí til Mallorca — en í dag veröa þeir andstæðingar á vell- inum. Sheedy fór til Everton eftir 4 ára dvöl hjá Liverpool og aðeins 3 leiki meö aöalliðinu. • * . V w *• , ► “ fV 1 W j ,?» • Leikmenn Liverpool fagna aigri í mjólkurbikarnum i fyrra (t.v.) — endurtaka þeir það í dag, eða tekat leikmönnum að hampa bikarnum? Everton hefur ekki unniö mót síöan 1970 er þeir uröu Englandsmeistarar. Myndin t.h. ar af leikmönnum liðsins þaö ér aö fagna meistaratitlinum. Howard Kendall, núverandi stjóri liösins, er lengst til vinstri á myndinni. Vinnur Liverpool mjólkurbikarinn fjórða árið í röð?: ..Einstakur dagur fyrir fólkið á Merseyside“ ÞAÐ YRDI AÐ BERA í bakkafullan aö ætla sér aö kynna leikmenn Liverpool og Everton fyrir íslenskum knattspyrnuéhugamönnum. Hinir blé- og rauðklæddu leikmenn risanna fré hafnarborginni frægu við Mersey-éna eru vel þekktir hér é landi — enda tíöir gestir é íslenskum heimilum é sjónvarpsskjénum. Ekki er langt síðan íslendingar éttu þess kost aö fylgjast meö deildarleik liöanna í beinni útsendingu fré Goodison Park, en þeim leik lauk með jafntefli. Liðin tvö frá Liverpool hafa aldr- ei áður mæst i úrslitaleik á Wembley-leikvanginum i London þannig aö þetta er stór dagur fyrir aðdáendur þeirra. Varla hefur ver- iö rætt um annað en bikarúrslita- leikinn í borginni undanfariö — og búist er við aö stemmningin á vell- inum í dag veröi engu öðru lík. Ev- erton hefur staöiö í skugganum af Liverpool í mörg ár, en aö undan- förnu hefur hiö fyrrnefnda leikið með afbrigöum vel, og meistararn- ir aftur á móti veriö í öldudal. f vikunni náö Liverpool aö vísu frá- bærum árangri í Evrópukeppninni með því aö sigra Benfica 4:1 á úti- velli þannig að liðið er líklega á uppleið aftur. Ekki er því gott aö spá um úrslit leiksins í dag, ekki frekar en í öörum bikarúrslitaleikj- um. Liverpool hefur unnið fjölda bik- ara á undanförnum árum — en ekki undir stjórn Joe Fagan, sem tók viö framkvæmdastjórastöö- unni i sumar af Bob Paisley. Fagan hefur veriö tíöur gestur á Wembley meö Liverpool sem einn af aöstoö- armönnum Paisley — en sumir spekingar hafa viljaö halda því fram aö þaö setti pressu á leik- THE PFA JzK n u • Kenny Dalglish, knattspyrnumaöur érsins í fyrra og lan Rush, bosti ungi leikmaöurinn, sjást hér eftir aö hafa tekið við verðlaunum í hófi félags atvinnuknattspyrnumanna é Englandi síöasliðiö vor, ésamt fyrrum framkvæmdastjóra Liverpool, Bob Paisley, sem var sérstaklega heiöraóur. Rush er nú talinn líklegastur til að hljóta titilinn „Knattspyrnumaöur érsins“ í ér. menn Liverpool aö sigra i fyrsta „alvöruleiknum“ á Wembley undir stjórn Fagan Howard Kendall, framkvæmda- stjóri Everton, telur þó aö Liv- erpool-liöið sé sigurstranglegra. „Við mætum þeim á þeirra heima- velli,“ sagöi hann í gríni á dögunum — og átti þá viö aö Wembley væri nánast annar heimavöllur Liver- pool, svo oft heföi liðiö leikiö þar á undanförnum árum. „Þaö hefði veriö sanngjarnt aö láta úrslitaleik- inn fara fram á hlutlausum velli!“ sagöi Kendall. Fyrir sex mánuöum munaöi minnstu aö Kendall yrði rekinn frá Everton vegna lélegs gengi liösins. i dag er Kendall hetja Everton- áhangenda — hann hefur stýrt lið- inu til Wembley, og svo gæti fariö aö liöiö léki þar einnig til úrslita í FA-bikarnum í maí, en liöiö er komiö í undanúrslit í þeirri keppni. „Allir fylgjandi Everton hafa beðiö lengi eftir þessu augnabliki. Viö förum ekki á Wembley í skemmti- ferö — viö förum til aö sigra,“ sagöi Kendall. Mjólkurbikarkeppn- in er ekki talin eins merkileg og FA-bikarkeppnin — en í ár er þessu ööru vísi fariö aö mati Kend- all. „Þessi leikur brýtur blað í sög- unni. Þúsundir manna munu flykkj- ast frá Liverpool til London — og ég er viss um aö stemmningin á Wembley veröur meiri og betri en nokkru sinni fyrr.“ Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liverpool, sagöi: „Þaö veröur sér- stakt bæöi fyrir mig og Howard aö ganga út á völlinn fyrir leikinn. Þetta veröur einstakur og frábær dagur fyrir allt fólk á Merseyside." Ekki er vitaö hvernig liðin verða skipuö í dag. Liverpool keypti í vik- unni skoska landsliösmanninn John Wark frá Ipswich, en hann má ekki leika í dag, þar sem hann haföi leikið meö Ipswich í mjólk- urbikarnum fyrr í vetur. Allt bendir til þess aö Liverpool-liöiö veröi óbreytt frá Evrópuleiknum í Portú- gal á miövikudaginn: Bruce Grobbelar veröur í markinu, bak- veröir Phil Neal (no 2) og Alan Kennedy (no 3), miöveröir Mark Lawrenson (no 4) og Alan Hansen (no 6), miðvallarleikmenn Graeme IAN Rush, markakóngurinn mikli hjá Liverpool, hefur skor- aö 35 mörk fyrir liö sitt í vetur. Hann veröur einn þeirra leik- manna sem veröa meö í úrslita- leiknum á Wembley i dag, sem veröa eftir i London eftir leik- inn. Árlegt hóf félags enskra at- vinnuknattspyrnumanna veröur á Ritz-hótelinu í London í kvöld, en lan Rush er talinn langlíkleg- astur til aö veröa kjörinn knattspyrnumaður ársins af leikmönnum ensku liöanna . . . „Fílamaðurinn snýr aftur" „Fílamaóurinn snýr aftur“ sagói eitt ensku blaöanna í vik- unni í umfjöllum sinni um leikinn í dag. „Fílamaöurinn“ í þessu tilviki er skoski landsliösmaöurinn Kenny Dalglish, en hann meiddist sem kunnugt er mjög illa í leik gegn Manchester United skömmu eftir áramót. Hann er nýlega farinn aö leika aftur eftir meiöslin. Dalglish kinnbeinsbrotnaöi f leiknum — bóignaöi strax mikið í andliti og varö nær óþekkjanlegur. Eitt ensku blaöanna sagöi frá því í vikunni aö samherji Dalglish hjá Liverool — ekki var tekiö fram hvaöa leikmaöur þaö var — heföi fariö á sjúkrahús aö heimsækja Kenny, en honum heföi oröiö mikið um er hann sá framan í félaga sinn í rúminu. Leiöa þurfti gestinn fram og inn í annað herbergi — þar var honum gefinn tebolli til hressingar og síöan var hann lagður á eitt sjúkrarúmanna meöan hann var aö jafna sig! Souness (no 11), Sammy Lee (no 8), Craig Johnston (no 10) og Ronnie Whelan (no 5) og í fremstu víglínu leikur Kenny Dalglish (no 7) og lan Rush (no 9). Steve Nichol veröur aö öllum likindum vara- maöur. Neville Southall veröur í mark- inu hjá Everton, bakveröir Gary Stevens (no 2) og John Bailey (no 3), miðverðir Derek Mountfield (no 5) og Kevin Ratcliffe (no 4), miö- vallarleikmenn Peter Reid (no 6), Kevin Sheedy (no 11), Adrian Heath (no 8) og Kevin Richardson (no 7) og í framlínunni Andy Gray (no 10) og Graeme Sharp (no 9). • Howard Kendall í leik með Everton é érum éóur. . . . FA-bikarkeppnin hefur ætíö veriö talin sú vinsælasta á Englandi en nú sækir Mjólkur- bikarinn á hvaö vinsældir snertir. Aögangseyrir á alla leiki FA-bikarkeppninnar á síðasta keppnistímabili var 5.300.000 pund en 4.700.000 á Mjólkur- bikarkeppnina. Áhugi liöa á keppninni jókst einnig til muna fyrir fáeinum árum er sigur í henni fór aö tryggja liöum sæti í Evrópukeppninni — UEFA- keppninni. Áöur var ekki litiö á deildarbikarkeppnina (eins og hún hét þá) sem „alvöru- keppni“... . . . lan Rush markaskorari hjá Liverpool var Everton-áhang- andi er hann var yngri... ... Howard Kendall, fram- kvæmdastjóri Everton, varö yngsti leikmaöur til aö spila í úrslitaleik FA-bikarsins á Wembley áriö 1963 er hann lék meö Preston gegn West Ham. Hann var þá 17 ára og 345 daga gamall. Paul Allen hjá West Ham sló metiö svo áriö 1980 er liö hans vann Arsenal 1—0. Allen var þá 17 ára og 245 daga gamall...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.