Morgunblaðið - 25.03.1984, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 25. MARZ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Peninga vantar til útflutningsbóta:
Útflutningur dilka-
kjöts verður skorinn
niður um 800 tonn
ÍITLIT ER FYRIR aö á yfirstandandi verölajjsári veröi ekki hægt að flytja út
allt það kindakjöt sem þó eru markaðir fyrir vegna þess aö útfiutningsbætur
duga ekki fyrir nema hluta þess kjöts sem þörf er á að flytja út á árinu. I*ó að
ríkissjóður greiði allar þær útflutningsbætur sem bændur telja sig eiga rétt á
samkvæmt Framleiðsluráðslögunum auk eftirstöðva frá fyrra ári, alls rúmar 500
milljónir króna, þarf að skera útflutning dilkakjötsins niður um 800 tonn frá því
sem æskilegt er talið, en þess ber að geta í þessu sambandi að á fjárlögum
ársins eru aðeins 280 milljónir ætlaðar til útflutningsbóta þannig að útflutning-
inn gæti þurft að skera enn meira niður.
Þetta kom fram á síðasta fundi
Framleiðsluráðs landbúnaðarins og
sagði Gunnar Guðbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðsins, í
samtali við blm. að samþykkt hefði
verið að óska eftir því við ríkis-
stjórnina að fá fullar útflutnings-
bætur greiddar á verðlagsárinu sem
miðast við 1. sept. Ríkisstjórnin
hefði fjallað um þetta mál en
ákvörðun hefði ekki verið tekin.
Sagði Gunnar að mjög erfitt væri að
fara að skera útflutninginn meira
niður og velta kindakjötsbirgðunum
þannig á undan sér, en ekki væri
annað að gera ef útflutningsbætur
fengjust ekki því ekki væri fært,
miðað við núverandi aðstæður, fyrir
bændur að taka verðskerðinguna á
sig. Sagði hann að verðskerðing, sem
bændur þyrftu að taka á sig ef flutt
yrðu út 800 tonn umfram útflutn-
ingsbótarétt, yrði svo dæmi væri
tekið um 100 milljónir.
(Jtflutningsþörf verðlagsársins,
Reykjavík:
21 tekinn grun-
adur um ölv-
un viö akstur
LÖGREGLAN í Reykjavík tók 21
ökumann í fyrrinótt grunaðan um
ölvun vió akstur. Er þetta mun
meira en venja er til, og þó mun
lögreglan ekki hafa haft neinn
sérstakan viðbúnað til að athuga
ástand ökumanna. Erilsamt var
hjá lögreglunni, en þó munu engin
slys hafa orðið vegna ölvunarakst-
urs.
þ.e. fram að næstu sláturtíð, miðað
við að þá verði eðlilegar birgðir,
1000—1100 tonn, er áætluð 4350 tonn
af dilkjakjöti og 400 tonn af ærkjöti.
begar er búið að flytja út allt ær-
kjötið og búið að samþykkja útflutn-
ing um 3000 tonna af dilkakjöti. Það
verð sem fengist hefur fyrir kjötið
hefur að sögn Gunnars verið á bilinu
30—45% af óniðurgreiddu heildsölu-
verði. Aðspurður um útflutnings-
leyfi til Selness hf. sem gert hefur
samning við bandarískan aðila um
stórsölu á dilkakjöti sagði Gunnar
að fyrirtækið hefði sótt um útflutn-
ingsleyfi en erindið hefði ekki verið
afgreitt þar sem mikil óvissa væri
með útflutningsbæturnar. Ekki væri
útlit fyrir því að úr þessari sölu gæti
orðið miðað við núverandi aðstæður.
Sagöi Gunnar að það verð sem Sel-
nes skilaði fyrir kjötið væri innan
við 30% af óniðurgreiddu heildsölu-
verði og væri það með því lægsta
sem fengist hefði.
Á sama Framleiðsluráðsfundi var
að sögn Gunnars einnig rætt mikið
um hugsanlegar skerðingar á niður-
greiðslum. Sagði Gunnar að sam-
þykkt hefði verið að mótmæla harð-
lega niðurskurði niðurgreiðslna við
núverandi aðstæður þar sem skerð-
ing þeirra myndi enn auka á þann
vanda sem við er að etja við sölu
dilkakjöts.
Tvö hús flutt af
Laugaveginum
Fyrirhugað er að flytja tvö hús við Laugaveg og staðsetja þau syðst á
Framnesveginum. Þetta eru húsin nr. 61 og 63 við Laugaveginn.
Fyrra húsið og það minna átti að flytja klukkan fimm í nótt, en ekki
var endanlega ákveðið hvenær hitt húsið yrði flutt. Ljósmyndari
Morgunblaðsins, Kristján Örn Einarsson, tók þessa mynd af húsinu
sem flytja átti í nótt.
Hvolsvöllur:
Sovézka sendiráðið með verð-
launagetraun í grunnskólanum
í SÍÐUSTU viku gekkst sovézka
sendiráðið á íslandi og MÍR fyrir
kynningu á Sovétríkjunum í Gagn-
fræðaskólanum á Hvolsvelli og í
framhaldi þess, getraun um Sovét-
rfkin með ferðaverðlaun þangað i
vinning. Sovézk-íslenzka vinafélag-
ið mun kosta ferðina. Skóla-
stjórinn leitaði álits fræðslustjóra
Suðurlands á því hvort rétt væri að
hann tæki þessu boði Sovétmanna
og taldi fræðslustjórinn það ekki í
verkahring sínum að skera úr um
það, en taldi þó ekkert því til fyrir-
stöðu að boðinu yrði tekið. Ragn-
híldur Helgadóttir, menntamálaráð-
herra, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að þetta væru sér nýjar
fréttir, en hún myndi kannað málið
nánar.
Guðjón Árnason, skólastjóri,
Verðlaunin ferð fyrir 1 til 2
til Sovétríkjanna
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að rétt væri að umrædd kynning
hefði farið fram í skólanum í síð-
ustu viku. Kynningin væri í fram-
haldi sýningar Sovétmanna í
Héraðsbókasafninu, sem væri í
tengslum við skólann. f gegn um
það hefði verið boðið upp á get-
raun um Sovétríkin í skólanum,
sem væri ósköp einföld að hans
mati. f framhaldi þess yrðu svo
veitt verðlaun, átta daga ferð
fyrir einn eða tvo til Sovétrrkj-
anna auk fylgdarmanns. Alls
hefðu vegna þessa komið 7 menn
austur. bæði frá sendiráðinu,
MlR og tveir listamenn sovézkir.
Hann teldi að þarna hefði ekki
verið um pólitískan áróður að
ræða, en hefði til öryggis leitað
álits fræðslustjórans, sem hefði
ekkert talið því til fyrirstöðu að
þiggja þetta boð.
Jón R. Hjálmarsson, fræðslu-
stjóri Suðurlands, sagði í samtali
við Mbl. að hann hefði ekkert með
það að gera, að skera úr um hvort
boðum sem þessu skyldi tekið eða
ekki. Þetta væri framtak sem
ekki félli undir embætti hans.
Skólastjórinn hefði leitað álits
síns og hefði hann sagt honum að
gera það, sem honum sýndist.
Þetta félli ekki undir skólastarf-
ið. Sér þætti ólíklegt að þarna
hefði verið um pólitískan áróður
að ræða. Eftir upplýsingum
skólastjórans hefði þarna aðeins
verið um almennar upplýsingar
að ræða og getraun í tengslum við
landafræðikennsluna. Hann hefði
ennfremur sagt skólastjóranum,
að kæmi sambærilegt boð frá
öðru landi, gilti auðvitað það
sama um það.
Menntamálaráðherra, Ragn-
hildur Helgadóttir, sagði í sam-
tali við Mbl. að þetta væru nýjar
fréttir fyrir sig og á þessu stigi
gæti hún því ekki tjáð sig um
málið. Hún myndi hins vegar láta
kanna það nánar.
*
Ungar mæður sóla sig og börn sín í góða veðrinu í gær.
Morgunblaöiö/ KÖE.
Vogar:
Kettir ónáða fólk
Vogum, 23. mar«.
AÐ UNDANFÖRNU hefur þess
orðið vart í óvenju mörgum tilfell-
ura að kettir hafi valdið fólki ónæði
í Vogum. Jafnvel hefur svo langt
gengið að kettir hafa truflað
svefnfrið fólks og valdið verulegu
ónæði við matborð.
Það virðist mikið um að kettir
séu á ferðinni heimilislausir, eða
séu a.m.k. mikið að heiman. Oft
eru á ferðinni hópar, sem safnast
saman þar sem einhvers matar er
von og valda ýmsu ónæði. Um
nætur er svo mikið kattamjálm
að mörgum verður erfitt með
svefn. Ef gluggar eru opnir eiga
kettirnir það til að stökkva inn og
éta mat ef einhver er á borðum,
meira að segja kom nýlega köttur
inn um glugga á kjallaraíbúð. í
eldhúsinu sat húsbóndinn að há-
degisverði, sem var fiskur. Gerði
kötturinn sig heimakominn og át
af bestu lyst af diski húsbóndans.
Þá hefur Mbl. borist fréttir af
því að fimm kettir gangi lausir í
Hvassahrauni, en þar er enginn
sem hefur fasta búsetu. Hafast
kettirnir þar að matarlitlir og er
margra km vegalengd í manna-
bústaði. f Hvassahrauni er ein-
hver búseta að sumri í sumarhús-
um sem þar eru.
Ástandið óeðlilegt
„Það er m.a. í okkar verkahring
að sjá um að kisum fjölgi
ekki. Þeim getur fjölgað mjög ört
sé ekkert að gert og safnast sam-
an í leit að æti,“ sagði Jóhann
Sveinsson, heilbrigðisfulltrúi
Suðurnesja, í samtali við Morg-
unblaðið.
„Okkar fyrstu viðbrögð eru að
leita uppi eigendur og benda þeim
á að það sé óeðlilegt ástand, þeg-
ar á heimili eru margir kettir.
Okkur hefur t.d. verið bent á um
tuttugu ketti frá sama heimili,
sem er ekki eðlilegt. Síðan höfum
við ýmsar aðferðir við að ná til
dýranna í samvinnu við fólk, en
það er ekki hægt öðruvísi," sagði
Jóhann.
Aðspurður sagði Jóhann
Sveinsson ástandið ekki verra í
einu byggðarlagi en öðru, heldur
gæti vandinn oft færst til milli
ára, þar sem kannski meiri
áhersla hefði verið í einu byggð-
arlagi sem þá bitnaði á öðru.
E.G.