Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984
Miðstjóm ASÍ:
Nefnd sett á laggirnar
er undirbúi framhaldið
Mirtsljórn ASf og fulltrúar lands-
sambandanna og þeirra félaga sem
eiga beina aðild að Alþýðusamband-
inu komu saman öðru sinni í gær og
ræddu stöðuna í kjaramálum og horf-
ur. Akveðið var að landssamböndin
og fleiri aðilar tilnefndu fulltrúa í
nefnd sem fjalli um sameiginlega
kröfugerð og þær sameiginlegu að-
gerðir sem hugsanlega eru framund-
an. Mun þessi nefnd að líkindum
koma saman til fyrsta fundar um
mánaðamótin.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ríkti mikil óánægja á fund-
inum með stöðuna í kjaramálum, en
engar ákvarðanir voru þó teknar
um uppsagnir samninganna, þótt
óánægjutónninn bendi til þess að
flestir muni feta í fótspor verka-
lýðsfélagsins Þórs á Selfossi, sem
•eitt félaga hefur sagt upp kjara-
samningunum frá 1. september nk.,
en þau mál munu skýrast nánar á
næstu vikum.
135—140 tonn
af grálúðu
Sijjlufjörður 21. maí.
STALVÍK kom inn í dag og landaði
135—40 tonnum af grálúðu eftir 7
daga veiðiferð.
Þá hefur frést að hafist hafi verið
handa um að opna Lágheiðina en
ekki veit ég hvenær þvi verki verður
lokið.
Fréttaritari.
Flutningarnir að
mestu með útlendum
skipum og áhöfnum
ÆTTU islen.sk stjómvöld að gera það að skilyrði, að íslensk skip með íslenskri
áhöfn annist áætlunarsiglingar milli islands og annarra landa, ekki síst vöru-
flutningum fyrir Varnarliðið, sem bandarískt skipafélag virðist nú vera að
yfirtaka? Farmanna- og fiskimannasamband íslands segist í bréfi til forsætis-
ráðherra ekki telja slíkt skilyrði óeðlilegt fyrst íslensku skipafélögin hafa
„leitað ásjár íslenskra stjórnvalda til að freista þess að ná þcssum siglingum
aftur“, eins og það er orðað í bréfinu. Telur sambandið að það gæti orðið
Íiröskuldur í viðræðum þeim, scm fyrirhugaðar eru milli utanríkisráðherra
slands og Bandaríkjanna, að útlend skip og áhafnir hafi sinnt þessu verki á
undanförnum árum.
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
FFSÍ, segist í bréfinu vilja láta í
Ijós áhyggjur sambands síns „yfir
þeirri óheillaþróun, sem átt hefur
sér stað í siglingum til og frá ís-
landi á síðastliðnum árum. Nú er
málum svo komið, að stór hluti
þeirra skipa, sem annast áætlun-
arsiglingar til landsins og frá, er
erlend leiguskip mönnuð erlendum
áhöfnum. Virðist sem hinum er-
lendu leiguskipum fari fjölgandi
fremur en hið gagnstæða."
Hann bendir á, að aðildarfélög
FFSf hafi á undanförnum árum
reynt að koma til móts við óskir
útgerðanna um fækkun í áhöfn
skipa í þeirri von að það gæti stuðl-
að að því að gera íslendinga sam-
keppnishæfa í alþjóðasiglingum „og
í þeirri von, að þannig yrði snúist
gegn ásókn skipafélaganna í hin
erlendu leiguskip..."
„Að gefnu því tilefni, að fyrirhug-
aðar eru viðræður íslenskra og
bandarískra stjórnvalda vegna sigl-
inga bandarísks skipafélags til Is-
lands," segir forseti FFSI í bréfi
sínu til forsætisráðherra, „þá telur
FFSÍ rétt að vekja athygli á þvi, að
hin síðustu ár hafa flutningar þeir,
sem hin bandaríska útgerð hyggst
taka yfir, að stærstum hluta farið
fram með erlendum leiguskipum
mönnuðum útlendri áhöfn. Gæti
þetta hugsanlega orðið þröskuldur í
viðræðum íslenskra stjórnvalda við
hin bandarísku."
Rauðir hundar í Reykjavík:
Slasaóur maóur fluttur í sjúkrabíl eftir umferóarslys á Laugavegi í gær. Maóurinn skarst illa. Hann var ekki
með öryggisbelti, sem áreiðanlega hefói foröað honum frá meiðslum. Morvunhlaðið/Júlíus.
Margir harðir árekstrar
á höfuðborgarsvæðinu
Vöruflutningarnir fyrir varnarliðið:
„Pyntingar er hægt að stöðva“
Nokkur mannfjöldi á útifundi
Amnesty International
NOKKUR mannfjöldi var á útifundi
Amnesty International á Lækjar-
torgi síóastlióinn föstudag. Fundur-
inn var lióur í herferö gegn pynting-
um, sem Amnesty stendur fyrir und-
ir einkunnarorðunum „Pyntingar er
hægt aó stöðva“.
Ræðumenn á fundinum voru
Hjördís Hákonardóttir, borgar-
dómari og formaður íslandsdeild-
ar Amnesty, Högni óskarsson,
læknir og Heimir Pálsson,
menntáskólakennari. Sveinn Ein-
arsson, leikritahöfundur, flutti
frumsamið ljóð og Kristín ólaís-
dóttir og Þorvaldur Örn Árnason
fluttu tónlist milli atriða. Kynnir
á fundinum var Ævar Kjartans-
son.
Mikill viðbúnaður varö vegna áreksturs á Miklubraut á sunnudag. Tækjabíll slökkviliósins kom á vettvang
óttast var aö kona í Allegro-bifreið, sem valt, hefði hlotið slæm meiðsl í baki. MorRunblaðið/Júlíus.
því
r
i
NÚ FKR í hönd sá tími þegar um-
ferðarslys eru alvarlegust á ís-
landi. Með auknum hraða öku-
tækja verða árekstrar harðari og
slys á fólki alvarleg og reynsla lið-
inna ára kennir okkur aö banaslys
í umferðinni eru flest í júní. Um
helgina og í gær urðu nokkur ai-
varleg umferðarslys.
Harður árekstur varð laust
eftir klukkan þrjú í gær á
Laugavegi. Ökumaður fólksbif-
reiðar hugðist aka inn á Lauga-
veg til vesturs frá benzínstöð
Shell. Ökumaður á leið austur
Laugaveg hugðist hleypa honum
inn á Laugaveginn, en í sama
mund kom önnur bifreið aðvíf-
andi á austurleið á vinstri akrein
og skullu bifreiðirnar saman af
miklu afli. Farþegi í bifreiðinni
á leið austur kastaðist í fram-
rúðu bifreiðarinnar. Hann
skarst illa í andliti og kvartaði
undan eymslum í hálsi og baki.
Hann var fluttur í slysadeild.
Báðar bifreiðirnar eru mikið
skemmdar.
Á sunnudag varð harður
árekstur á Miklubraut, til móts
Konum ráðlagt að láta
mæla mótefni í blóði
Morgunblaðið/Arinbjörn.
Á Bæjarbraut í Garðabæ varð harður árekstur á laugardag.
við Eskihlíð. 75 ára gamall mað-
ur ók Austin Allegro-bifreið
sinni vestur Miklubraut. Hann
missti stjórn á bifreiðinni, þann-
ig að hún fór yfir umferðareyj-
una og valt á akreininni til aust-
urs og lenti á Citroén-bifreið.
Með manninum í bifreiðinni var
kona hans. Öttazt var að hún
hefði hlotið meiðsli í baki og var
ákveðið að bíða hinnar nýju
tækjabifreiðar slökkviliðsins.
Greiðlega gekk að ná konunni og
var hún flutt í slysadeild.
Þá varð harður árekstur á
Bæjarbraut í Garðabæ um
klukkan 15.30 á laugardag. Þar
skullu harkalega saman japönsk
fólksbifreið og bandarísk. Þá má
nefna að stúlka var flutt í slysa-
deild eftir að bifhjól, sem hún
var á, og fólksbifreið skullu sam-
an í Safamýri. Meiðsli hennar
reyndust ekki alvarleg.
borist hingað frá Þýzkalandi. Á
undanförnum árum hafa mótefni
gegn rauðum hundum verið mæld
í blóði um það bil 80% kvenna og
stúlkna á aldrinum 12 til 40 ára.
Allflestum konum, sem ekki hafa
mótefni, hefur verið boðin bólu-
setning, en sumar hafa ekki þegið
hana. Fóstri, sem verður fyrir
smiti vegna rauðra hunda á fyrstu
þremur mánuðum meðgöngu, er
veruleg hætta búin. öllum ófrísk-
um konum, sem eru á fyrstu þrem-
ur mánuðum meðgöngu og ekki
hafa verið mældar með tilliti til
mótefna gegn veikinni, er eindreg-
ið ráðlagt að hafa samband við
næstu heilsugæzlustöð, heimilis-
lækni eða Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur og gangast undir
mótefnamælingu.
Ef þessi faraldur nær að breið-
ast út gæti hann orðið í landinu í 1
til 1 '/2 ár.“
Tekið skal fram að bóluefni
gegn rauðum hundum er lifandi og
þess vegna hættulegt ófrískum
konum. Mbl. biðst veðvirðingar á
þessum mistökum.
f FRÉTT Mbl. á sunnudag er greint
frá aðgerðum heilbrigðisyfirvalda
vegna þess, að vart hefur orðið við
rauða hunda í Reykjavík. í fréttinni
er ófrískum konum bent á aö fá
sprautur gegn veikinni. Hér er um
misskilning að ræða og því er frétta-
tilkynning landlæknis birt í heild.
„Nú hafa rauðir hundar stungið
sér niður á einu barnaheimili í
Reykjavík. Trúlega hefur veikin