Morgunblaðið - 29.06.1984, Blaðsíða 25
Keflavík:
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1984
25
Mikil aðsókn og góð sala á
málverkasýningu Baðstofunnar
Vo*um, 25. júnf.
UM EITT þú.sund manns sóttu mál-
verkasýningu Baöstofunnar, mynd-
listarklúbbs Suðurnesjamanna, sem
haldin var 16.—24. júní í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja.
24 listamenn sýndu alls 177
verk, en þá eru teikningar hvers
listamanns taldar eitt verk, sem
annars myndi hækka töluna veru-
lega. Þeir listamenn sem tóku þátt
í sýningunni eru: Þórunn Guð-
mundsdóttir, Sigríður Rósin-
kransdóttir, Villi Wilhelmsen,
Skarphéðinn Agnars, Steinar
Geirdal, Suðurdís Pétursdóttir,
Halldóra Ottósdóttir, Óskar
Pálsson, Dóróthea Herdís, Soffía
Þorkelsdóttir, Guðmundur Marí-
asson, Ásta Árnadóttir, Lilja
Björg Jóhannsdóttir, Kolbrún
Vídalín Grétarsdóttir, Anna B.
Þorbergs, Kristjana Þórunn Sig-
urjónsdóttir, Þóra Kjartansdóttir,
Brynja Árnadóttir, Kristín A.
Sæmundsdóttir, Erla Þorsteins-
dóttir, Þórey Ragnarsdóttir,
Helga Sif Jónsdóttir, Ólöf Anna
Nokkrir listamannanna.
Guðjónsdóttir og Elsa Hertervig.
1 Baðstofunni eru um 30 aðilar,
sem koma saman vikulega frá
september til maí. Hefur hópurinn
haldið sýningar með tveggja ára
millibili, en Baðstofan var stofnuð
1980, og hafa sumir verið með frá
stofnun. Kennarar í vetur voru
Eiríkur Smith og Jón Gunnarsson,
báðir úr Hafnarfirði.
Á sýningunni var mikil sala.
E.G.
Ljósmynd Kári
í sólinni á Sauöárkróki
Tveir heiðurskallar á Sauðárkróki rabba saman (Gamalíel Sigurjónsson
og Guðmundur Sigurðursson).
Fjögurra manna bíll - 47 hestöfl - eyðsla 5,8 lítrar, 5 hurðir -
sjálfstæðfjöðrun á hverju hjóli - Tannstangarstýri - Halogen Ijós -
Upphituðafturrúða - Sígarettukveikjari - Stálfelgurogfl. ogfl...
verð aðeins kr. 220.000
Útborgun aðeins
50 JHlsimd krónur
Eftirstbðvar á 8 mánuðum
Mjög takmarkaður fjökli bila
-en peirerutil afgreiðslu strax
TÖGGURHE
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMAR 81530-83104