Morgunblaðið - 28.07.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.07.1984, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1984 Án lan^búnaðar, engínn íslendingur eftir Dagrúnu Kristjánsdóttur Svo einfalt er það. Við hefðum hreinlega ekki verið til sem þjóð, ef ekki hefði verið landbúnaður frá fyrstu tíð til þessa dags, eða vill einhver svara því á hverju landsmenn hefðu getað lifað í þessu landi í ellefu aldir án kúa og án kinda — og þar af leiðandi án bænda, sem orðið hafa fyrir hörð- um árásum frá ýmsum í fjölmörg ár? En bændur eru þolinmóðir og álíta sennilega að bezt sé að láta þetta sem vind um eyru þjóta. Oft er það góð aðferð til að kveða niður þann draug sem upp hefur verið vakinn, en þessi er lífseigur og engin ellimörk á honum að sjá, enda alinn á kjarngóðu fæði, kjöti og mjóik. Þó að haldið sé fram þvættingi um að landbúnaður sé óþarfur og þjóðinni einungis baggi á herðum, þá holar dropinn stein- inn og mikill hluti landsmanna virðist vera farinn að trúa þessum vanhugsaða áróðri og telur land- búnaðinn vera höfuðóvin íslenzku þjóðarinnar. En á þá þjóðin landbúnaðinum ekkert að þakka? Vanþakklæti hefur aldrei þótt dyggð og mér virðist sem íslendingar gleymi því að þeir eiga bæði bændum og búfé líf sitt að launa allt fram á þennan dag, hingað til hefur það ekki þótt neitt lítið, en ef til vill eru viðhorf- in í því sem öðru breytt og það ekki talið þakkarvert þótt lífi sé bjargað. Það þarf ekki að leita langt aftur að árum til þess að sjá og skilja sannleikann sem í þess- um orðum mínum felast. Hvernig fæðu neyttu fslendingar frá land- námsöld og fram undir þennan dag? Var ekki aðaluppistaðan kjöt og mjólk? Og hvernig ferðuðust menn í þessu landi allt fram undir miðja tuttugustu öld? Voru ekki hestarnir aðalsamgöngutækið? Hvernig sem á allt er litið, þá eru bændur ásamt búfé sínu undir- staða og lífgjafar íslensku þjóðar- innar, en nú er allt kapp lagt á það að niða niður og ófrægja þessa at- vinnugrein sem ætti í raun að vera mest heiðruð allra. Sumir telja jafnvel að leggja ætti niður alian landbúnað og kaupa erlendis frá allar þær vörur. En hvernig liti það út? Tökum fyrst atvinnuna sem þúsundir manna hafa af þess- ari grein atvinnulífsins. Mundi það ekki bögglast fyrir íslenzkum stjórnvöldum að útvega aðra at- vinnu í staðinn? Ég hef ekki tölur um alla þá sem sinna þessum störfum beint og óbeint, en þær yrðu ógnvekjandi í ekki stærra þjóðfélagi en þessu, væru þær tala atvinnulausra og er það eitt næg ástæða til þess að heiðra landbún- aðinn, hve mörgum hann veitir at- vinnu. Fyrst bændum, sem er álit- legur hópur, síðan enn stærri hóp sem vinnur við slátrun, úrvinnslu kjötvara, dreifingu og afhendingu. Sama er að segja um mjólkurvör- ur, þar vinnur fjöldi fólks við vinnslu og dreifingu og ekki má gleyma ullariðnaðinum, öllum þeim fjölda sem vinnur við hann. Það þarf að þvo ullina, kemba, spinna, prjóna og sauma áður en þetta er afhent til viðskiptavin- anna sem að stærstum hluta eru útlendingar og fæst þar af leið- andi dýrmætur gjaldeyrir fyrir, sem íslendingum veitir sízt af. Skinnaiðnaður er nokkur og ef- laust mætti nefna fleira sem veitir atvinnu í sambandi við landbún- aðinn. Hvar væri allt þetta fólk statt ef kaupa ætti allar þessar vörur utanlands frá? Hvernig væri þá gjaldeyrisstaða þjóðar- innar? Gafst það svo vel á dögum einokunarverzlunarinnar að eiga allar lífsbjargir undir útlending- um að það sé til að sækjast eftir I annað sinn? Þó höfðu landsmenn þá búfénað sinn og þurftu ekki að vera upp á aðra komnir með kjöt, mjólk og ull til klæðnaðar. Yrði farið eftir ofstækisfullum áróðri og landbúnaður lagður niður, þá væru landsmenn háðir öðrum þjóðum langt umfram það sem hættulaust gæti talist. Við flytjum inn mikið af vörum og langt umfram það sem þörf er á, því að mikið af þessum inn- flutningi er hreinasta skran og al- gjör óþarfi (hversvegna ekki að fjargviðrast út af því, þar er gjald- eyri og fé landsmanna sóað í gegn- darleysi) og væri því lífi þjóðar- innar í engu hætt, jafnvel þó að ófyrirsjáanlegar orsakir yrðu til þess að tæki fyrir þann innflutn- ing, en hamingjan hjálpi þessari þjóð, ef að þar við bættist að dag- legar lífsnauðsynjar eins og mjólkurvörur og kjöt væru þar á meðal, svo og ull. Það getur allt gerst í samgöngumálum milli landa og ef stríð brytist út, hvar stæðum við þá allslaus? Hvernig hefði þetta dæmi gengið upp 1914-1918 og aftur 1939-1945? Hver vill ábyrgjast að sama stða komi ekki upp enn? Vissulega vona allir í lengstu lög að þær harmsögur endurtaki sig ekki, en hver veit? Það er mikið talað um offram- leiðslu. Rétt er það að hún er meiri en landsmenn þurfa á að halda í bili, en fjölgar ekki þjóðinni jafnt og þétt og fækkar ekki bændum jafnt og þétt? Getur ekki skeð að endar mætist áður en varir? Má ekki líka virða það við þessa stétt að hún reynir sjálf að stilla í hóf framleiðslu, sér — að öllu eðlilegu — í óhag. Bændur gangast undir allskonar aukaskatta til þess eins að gera þeim óhægt um vik að framleiða umfram þörf, eða eins mikið og þeir gætu ef þeir mættu. Auðvitað væri það þeim í hag að mega framleiða eins mikið og þeir geta alveg eins og það er sjómann- inum i hag að geta veitt sem mest. Það mundi taka á taugarnar hjá einhverjum að vera þannig sýnd veiðin, en ekki gefin. Hefur nokk- ur hugleitt það að bændur eru eina stétt landsins sem fer ekki i verkfall til að knýja á um hærra verð fyrir vörur sínar, þeir heimta ekki eða krefjast neins, eins og all- ar aðrar stéttir landsins, og jafn- vel örfáir menn geta valdið stór- skaða hjá öðrum með heimtufr- Dagrún Kristjánsdóttir „Hvernig sem á allt er litið, þá eru bændur ásamt búfé sínu undir- staða og lífgjafar ís- lensku þjóðarinnar, en nú er allt kapp lagt á það að níða niður og ófrægja þessa atvinnu- grein...“ ekju sinni, þar á meðal hafa bændur orðið fyrir stóru tapi vegna verkfalla hjá öðrum stétt- um og orðið að hella niður hundr- uðum lítra af mjólk, en engum dettur í hug að finnast það ósanngjarnt. Það mundi heyrast ramakvein um gjörvalla íslandsb- yggð ef bændur dirfðust að fara í verkfall til að hafa áhrif á verðlagningu búvara, þó að ölium öðrum stéttum sé það bæði leyfilegt og oft lögð blessun yfir með samúðarverkfalli ann- arra, sem í raun kemur það ekkert við. Það eru mörg orð og stór sem fallið hafa í garð bænda vegna offramleiðslu, en hve mörg og stór yrðu þau orð ef það vantaði jafn- mikið. Hve mörg heimilin yrðu þá ekki að vera mjólkurlaus og kjöt- laus langtímum saman og hvernig yrði því tekið? Ég held að það yrðu ekki færri óánægðir þá með fram- mistöðu bænda ef fólk þyrfti að fara að standa í biðröðum til þess að fá úthlutað einhverri hungurl- ús, sitt af hvoru, eins og gerist í þeim löndum þar sem skortur er á þessum vörum. Sagt er, að hver og einn upp- skeri eins og hann sái, en ég held að bændur þessa lands geri það ekki, þegar litið er á viðhorf fólks til þessarar atvinnugreinar, því að VERA ÚT ER komið 3. tbl. tímaritsins Veru 1984. Stærstur hluti blaðsins fjallar um tíðahvörfín. Rætt er um þau mál við þrjár konur og einnig er fjallað um hvað karlar í læknastétt hafa sagt um tíðahvörf. I ritinu er spjallað við Ástu Aðalheiði Garðarsdóttur verkakonu í þættinum Konur og vinnumarkaðurinn o.m.fl. í bréfi til lesenda kemur fram að hingað til hafi VERA eingöngu verið unnin í sjálfboðavinnu, en nú hefur Sonja B. Jónsdóttir verið ráðin til að hafa yfirumsjón með útgáfunni. Einnig kemur fram að frá og með þessu tölublaði sé út- gáfan í höndum Kvennaframboðs- ins í Reykjavík og Kvennalistans, sem gert hafa með sér helminga- Frá konu til konu KVENNALISTINN hefur gefið út ritið „Frá konu til konu“. Þar er að finna frásögn af aðdraganda Kvennalistans, nokkrar konur eru spurðar hvað brýnast er að gera til að bæta hag kvenna, sagt er frá stefnu Kvennalistans o.fl. Umsjón höfðu Kristín A. Árnadóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Sigur- björg Aðalsteinsdóttir. Forsíða ritsins Guðspjall dagsins: Matt. 5.: Réttlæti faríseanna. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friöriksson. Sr. Hjalti Guömundsson. Sunnu- dagstónleikar kl. 17.00. Dómorg- anistinn leikur á orgel kirkjunnar i 3 stundarfjóröunga. Aögangur ókeypis. Elliheimilið Grund: Messa kl. 10.00 Sr. Árelíus Níelsson. ÁSKIRKJA: Vegna safnaöarferö- ar á Snæfellsnes fellur guösþjón- usta niöur 29. júlí. Sr. Arni Berg- ur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 10.00. Organleikari Guöni Þ. Guömundsson. Sr. Ólafur Skúlason. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Organleikari Gústaf Jó- hannesson. Sr. Karl Sigur- björnsson. Þriöjudagur, fyrir- bænaguösþjónusta kl. 10.30, beöiö fyrir sjúkum. Náttsöngur á miövikudagskvöldum fellur niöur. Landspítalinn: Guösþjónusta kl. 10.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Tómas Sveinsson. Borgarspítalinn: Guösþjónusta kl. 10.00. Sr. Tómas Sveinsson. KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 11.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Miövikudagur fyrir- bænamessa kl. 18.20. Sr. Guö- mundur Óskar Ólafsson. SELJASÓKN: Guösþjónusta í Ölduselsskólanum kl. 11.00. Alt- arisganga. Ath. þetta er síöasta guösþjónustan fyrir sumarleyfi starfsfólks. Næsta guösþjónusta veröur í september. Fyrirbæna- samvera Tindaseli 3, fimmtudag- inn 2. ágúst kl. 20.30. Sóknar- prestur. HVÍT ASUNNUKIRK JAN Fíla- delfía: Almenn guösþjónusta kl. 20. Ræöumenn Yngvi Guönason og Gunnar Bjarnason. HJALPRÆDISHERINN: Sam- koma kl. 20.30. Ingibjörg og Óskar Jónsson stjórna og tala. BESSASTAÐAKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 14. Sr. Bragi Friö- riksson. INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guösþjónusta kl. 10.00. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organ- isti Siguróli Geirsson. Ath. breyttan messutíma. Sr. Ólafur Oddur Jónsson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 11. Sóknarprestur. STRANDARKIRKJA: Messa kl. 14.00. Sr. Tómas Guðmundsson. SKÁLHOLTSPREST AK ALL: Messa í Bræöratungukirkju ki. 14.00. í Skálholtskirkju veröa sumartónleikar í dag, laugardag, kl. 16. Á sunnudaginn veröur tónastund t kirkjunni kl. 20.30. Anna Toril og Þröstur Eiríksson leika á orgel kirkjunnar og á sunnudagskvöld kl. 21 veröur messa. Sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Kvöldvaka í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.30. Sunnudags guösþjónusta kl. 14.00. Organisti Einar Sig- urösson. Sóknarprestur. INNRA-HÓLMSKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 14.00. Sr. Jón Ein- arsson. EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sigfús Yngvason æsku- lýösleiötogi þjóökirkjunnar á Ak- ureyri prédikar. Organisti Krist- ján Gissurarson. Sóknarprestur. svo margir virðast horfa rauðum augum á þessar krónur sem fara í útflutningsbætur, eins og sálar- heill þeirra sé undir þeim komin. Betur færi ef þetta væru einu krónurnar sem færu fyrir lítið í þessu landi eyðslu, sóunar og fá- nýtis, — þar sem allt er mælt í peningum, prjáli og vitleysu. Hér kann enginn að fara með fjármuni og það gildir jafnt um einstakl- inga og hið opinbera. Mælikvarð- inn er aðeins einn til í þessu landi og hann er meiri peningar og meiri eyösla, þar kemst ekkert annað að, og hvað munar þá þjóð um nokkur hundruð milljónir, sem kann hvort eð er ekki með peninga að fara og hugsar ekki um annað en fánýta eyðslu, ef ekki til þarfra hluta endrum og eins, þá í botn- lausa hít eyðsluseminnar. Enginn virðist heldur hafa hugsun á þvi, að þó verð landbúnaðarvara sé tal- ið af öllum eða flestum of hátt, þá eru það ekki bændur sem fá þá upphæð sem neytendur þurfa að gefa fyrir hana, heldur eru það milliliðirnir sem svelgja í sig eins stóran hlut eða stærri. Því ekki að fjargviðrast út af milliliðakostn- aðinum, þegar kvartað er um of hátt verð á þessari vöru? Ef bændur gætu selt hana beint og milliliðalaust, þyrfti engum að blöskra verðið og ef út í það er farið, þá virðist það ofurlítið und- arlegt verðmat sem neytendur leggja á vörur yfirleitt. Sé það al- gjör óþarfi og t.d. algjörlega nær- ingarsnauð vara, sem einhvern langar í, þá skiptir engu máli með verðið, það má vera margfalt á við það sem mjólkurlítrinn kostar eða kjötkílóið, allt er keypt rándýrt ef hugurinn girnist, hve óþarft sem það er, en holl og góð matvara eins og mjólkurvörur og kjötvörur sem eru nauðsynlegar, þær mega ekki kosta svo sem neitt. Og er það ekki rökrétt að álíta, að því hærra kaup sem fólkið sjálft, sem vinnur við úrvinnslu þessara vara, krefst, því hærra hlýtur verðið endanlega að verða. Það er því ljóst, að bændur eiga ekki alla þá sök sem á þá er borin, ef þeir eiga þá nokkra aðra en þá að vera duglegir við að framleiða lífsviðurværi þjóðarinn- ar, sem hún getur engan veginn án verið. Nær væri að beita kröftum sínum í það að leiðbeina fólki með skynsamlegri lífshætti en það hef- ur tamið sér en að ófrægja bænd- ur með síendurteknum áróðri sem er bæði óskynsamlegur og órökvís. Dagrún Kristjánsdóttir er búsett á Akureyri. Forsíða tímaritsins Veru. félag. Áður sá Kvennaframboðið um útgáfu blaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.