Morgunblaðið - 28.07.1984, Blaðsíða 48
AUSTURSTRÆTI22 AUSTURSTRÆT! 22
INNSTRÆTI, SÍMI 11340 _________INNSTRÆTI, SlMI 11633
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Skiptaráðandamálið:
Enn einn settur
í gæsluvarðhald
ENN EINN maður var í fyrradag
úrskurðaður í gæsluvaröhald í
tengslum við Skiptaráðandamálið
svonefnda að kröfu Rannsóknar-
lögreglu ríkisins. Verður hann í
gæsluvarðhaldi til 8. ágúst. Að sögn
Erlu Jónsdéttur, deildarstjóra hjá
RLR hefur maður þessi, sem er 26
ára gamall, ekki komið við sögu hjá
Rannsóknarlögreglunni áður.
Rannsókn málsins gengur að
sögn Erlu vel. Annar þeirra, sem
úrskurðaður var í gæsluvarðhald,
játaði aðild sína að stuldi banka-
bókanna strax en hinn neitaði öll-
um sakargiftum. Breytti ekki
framburði sínum þótt félagi hans,
svo og þriðji aðili í málinu stað-
festu þáttöku hans. Hann hefur
enn ekki játað en rannsókninni
miðar í rétta átt. „Þetta gengui
svona hægt og bítandi," sagði Erla
Jónsdóttir.
Trésmíðafélag Reykjavíkur:
Munu ekki segja
upp samningum
Trúnaðarmannaráð Trésmiða-
félags Reykjavíkur samþykkti að
nýta ekki að sinni heimiid þá sem
aimennur féiagsfundur hafið gefið
því til uppsagnar samningum.
Trúnaðarmannaráðsfundur verður
í Trésmiðafélögum Akureyrar og
Hafnarfjarðar á mánudagskvöldið
og sagði Benedikt Davíðsson, for-
maður Sambands byggingamanna
búast við svipaðri niðurstöðu
þeirra funda.
Ennfremur sagði Benedikt að
samningar hefðu verið í gangi
milli aðila að undanförnu í sam-
ræmi við ákvæði gildandi samn-
28 punda
hængur
úr Grímsá
HÆNGUR, 28 pund að
þyngd, veiddist í Grímsá í
Borgarfirði um eftirmiðdag í
fyrradag og er stórfiskurinn
nú við góða heilsu í fiskakeri
hjá Sturlu bónda Guð-
bjartssyni í Fossatúni. Þar
verður hann geymdur ásamt
fleiri löxum þar til í haust,
er hann verður kreistur vgna
klaks. Það var Bandaríkja-
maðurinn Nathaniel Reed,
sem veiddi fiskinn á flugu af
gerðinni „Black Sheep“ núm-
er 6. Veiðistaðurinn
Hrosshylur.
var
ings og væri ekki útilokað að tæk-
ist að ná samkomulagi án átaka.
Starfsmannafélagið Sókn hélt
almennan félagsfund á miðviku-
dagskvöldið. Fór fram óformleg
skoðanakönnun um uppsögn
samninga og varð sú niðurstaðan
að segja samningum upp. Að-
spurð um hvort fundurinn hefði
verið fjölmennur sagði Aðalheið-
ur Bjarnfreðsdóttir, formaður
Sóknar svo ekki hafa verið, enda
ekki við því að búast á þessum
árstíma.
Flest félög járniðnaðarmanna
og rafiðnaðarmanna hafa í undir-
búningi að segja upp samningum,
ef þau hafa ekki þegar gert það
og fjörutíumanna fundur Félags
bókagerðarmanna samþykkti í
fyrrakvöld með einu mótatkvæði
að segja upp samningum.
Morgunbla8ift/Ámi Sæberg.
Vinnuskóla slitiö á Þingvöllum
Vinnuskólar Reykjavíkur og Kópavogs luku starfsemi sinni á þessu sumri
nú fyrir helgina og var farið í ferö til Þingvalla af því tilefni. Rúmlega eitt
þúsund unglingar voru þar saman komnir á þeim sögufræga staö og er
ólíklegt að þar hafi fleira fólk verið saman komið í einu síðan á þjóðhá-
tíðinni 1974. Séra Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður ávarpaði unglingana
og rakti sögu staðarins, síðan var farið í þjónustumiðstöðina þar sem
HLH-flokkurinn skemmti og því næst voru steiktar pylsur og ýmislegt
fleira sér til gamans gert.
Fimm slys
og yfir
tuttugu
árekstrar í
umferðinni
MIKLAR annir voru hjá lög-
reglunni í Reykjavík í gær
vegna árekstra og slysa í um-
ferðinni, en á tímabilinu frá
klukkan sex í gærmorgun og
fram að kvöldmat var lögreglan
kvödd út alls 23 sinnum vegna
umferðaróhappa. í fimm tilfell-
um var um að ræða slys á fólki.
Ekið var á gangandi veg-
faranda á mótum Miklu-
brautar og Réttarholtsvegar
laust fyrir klukkan sjö í
gærmorgun. Þá varð maður
fyrir dráttarvél við Sævar-
höfða um klukkan 14.00. Lítill
sendiferðabíll valt á Miklu-
braut á móts við Bæjarnesti
laust fyrir klukkan 17.00 og
var ökumaður fluttur á slysa-
deild. Um hálfsjö leytið í
gærkvöldi var tilkynnt um
tvö umferðarslys og var ann-
að þeirra á mótum Lang-
holtsvegar og Skeiðarvogs, en
þar lentu þrír bílar í árekstri
og var tvennt flutt á slysa-
deild. í hinu tilfellinu var um
að ræða slys við Lækjargötu,
en þar varð barn fyrir bifreið.
Ekki fengust nánari upplýs-
ingar um hversu alvarleg slys
þessi voru, er Morgunblaðið
leitaði eftir upplýsingum þar
að lútandi hjá slysarannsókn-
ardeild lögreglunnar í gær-
kvöldi. 1 þessu sambandi má
geta þess, að um næstu helgi
er verslunarmannahelgin,
mesti umferðartími ársins,
og er því full ástæða til að
brýna fyrir fólki, að aldrei er
of varlega farið í umferðinni.
Vandi sjávarútyegsins:
Engar tillögur komnar
fram í ríkisstjórninni
Sól fyrir
sunnan
SAMKVÆMT veðurspám á að
létta til á SV-landi nú um helg-
ina og lýkur þar með 18 daga
vætutíð í þessum landshluta. Að
sögn Hafliða Helga Jónssonar,
veðurfræðings er talið að sólin
endist eitthvað fram yfir helgi,
og jafnframt að rigningin setjist
að á Norður- og Austurlandi, en
þar hefur verið einmuna tíð að
undanförnu.
— Ágreiningur milli stjórnarliða
— Þingflokkarnir funda á mánudagsmorgun
ENGAR TILLÖGUR liggja enn fyrir hjá ríkisstjórninni um
framtídarlausn á vanda sjávarútvegsins og þá einkum útgerð-
arinnar. Fyrirhuguðum ríkisstjórnarfundi í gærmorgun var,
samkvæmt heimildura Morgunblaðsins, frestað vegna þess,
að sjávarútvegsráðherra hafði ekki tilbúnar tillögur sínar.
Ýmsar skammtímaleiðir hafa verið ræddar innan ríkisstjórn-
arinnar, en verulegur ágreiningur er milli ráðherra Sjálfstæð-
isflokksins og Framsóknarflokksins, sérstaklega hvað varðar
hugmyndir um niðurgreiðslu á olíu. Þá er einnig, samkvæmt
heimildarmönnum Morgunblaðsins, ágreiningur innan ríkis-
stjórnarinnar um leiðir í peningamálum, sem tengjast úrræð-
um til lausnar vanda útgerðarinnar.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu töldu útgerðar-
menn á Austfjörðum hugmyndir
stjórnvalda ekki gefa tilefni til
þess, að hætta við rekstrarstöðv-
un. Það hefði sýnt sig að góður
vilji stjórnmálamanna dygði
skammt. Rætt hefur verið um
skammtímaaðgerðir svo sem
hækkun hlutfalls afurðalána,
gengissig innan settra marka fjár-
laga eða um 3% og niðurgreiðslu á
olíu. Útgerðarmenn á Austurlandi
fóru fram á að hlutfall afurðalána
yrði hækkað í 84% af verðmæti
birgða í stað rúmlega 50% nú.
Þá hefur einnig verið til um-
ræðu innan ríkisstjórnarinnar að
endurgreiða söluskatt á smurn-
ingsolíu til útgerðar samkvæmt
tillögu Halldórs Ásgrímssonar og
er vilji til að gera slíkt. Hins vegar
hafa ekki enn fundist leiðir til að
reikna út hlut útgerðarinnar i
kaupum á smurolíu, þar sem fleiri
aðilar nota hana. Aftur á móti
hefur ekki komið til greina að
lækka vexti á vanskilaskuldum út-
gerðar, hugsanlega verður frekar
farið út í að hækka vexti á þeim.
Skuldbreyting útgerðarinnar
hefur mikið verið rædd, með það
fyrir augum að flýta henni. Og í
framhaldi af því er líklegt að þeir
útgerðarmenn sem ekki geta veitt
90% veð af vátryggingu fyrir
skuldum eigin skipa verði teknir
til gjaldþrotaskipta, en samþykkt
um þetta liggur fyrir af hálfu rík-
isstjórnarinnar, en einhver
ágreiningur er innan Sjálfstæðis-
flokksins um þær aðgerðir, og fara
skoðanir manna eftir því hvaðan
af landinu þeir koma.
Næsti ríkisstjórnarfundur hef-
ur verið boðaður í hádeginu á
mánudaginn og er vonast til að
formlegar tillögur liggi fyrir á
honum, en um morguninn munu
þingflokkar Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins funda.