Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 Útgefandi iMabib hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Bankarnir í strand Viðskiptabankarnir hafa tilkynnt að tekið verði fyrir ný útlán, hert verði á hvers konar innheimtuaðgerð- um vegna vangoldinna lána og framvegis verði ekki hægt að semja um lengingu lána í þeim mæli sem áður hefur tíðkast. Hér er um harkalega aðgerð að ræða. Lengi hefur blasað við að útlán hafa verið langt umfram innlán í bönkunum. Ríkisbankar hafa getað brúað bilið að verulegu leyti með því að taka lán erlendis. í ágúst- mánuði einum versnaði lausa- fjárstaða bankanna um 614 milljónir og um síðustu mán- aðamót námu yfirdráttar- skuldir viðskiptabankanna hjá Seðlabanka og erlendis rúm- lega 3,4 milljörðum króna. í stuttu máli má segja, að nú hafi verið tekið fyrir frekari skuldasöfnun af þessu tagi og bönkunum settar þær skorður að gera upp við lánardrottna sína í stað þess að verja fjár- munum sínum til nýrra út- lána. Það er alvarleg stað- reynd þegar einn bankanna, Útvegsbankinn, skuldar 47,9% af innlánum sínum, næst hæst er hlutfallið hjá Landsbank- anum eða 21,4%. „Er staða bankanna nú verri en hún hef- ur verið í áratugi," segir í fréttatilkynningu viðskipta- bankanna. í þessari sömu tilkynningu segir, að frá stöðvun á nýjum útlánum, að reglubundnum rekstrarlánum atvinnuveg- anna undanteknum, verði ekki „unnt að víkja fyrr en ljóst er, að sparnaður hafi aukist, eft- irspurn eftir lánum minnkað og lausafjárstaða bankanna komist í eðlilegt horf.“ Við- skiptabankarnir skýra hina erfiðu stöðu með því að vísa til þess að afkoma sé erfið í ýms- um atvinnugreinum og fyrir- tækjum og rauntekjur al- mennings hafi lækkað; nei- kvæðir raunvextir hafi deyft tilfinninguna fyrir því, hvað greiðslubyrði lána felur í sér; með endurteknum skuldbreyt- ingum hafi verið alið á þeirri trú, að ætíð sé unnt að fá frestun á umsömdum greiðsl- um. Undir öll þessi almennu rök hljóta menn að taka. Lykil- setningin í tilkynningu við- skiptabankanna er þó þessi: „Á hinn bóginn hafa menn of seint brugðist við þessu á þann eina hátt, sem getur leitt til árangurs, þ.e. með því að sníða sér stakk eftir vexti." 1 fram- haldi af þessu hljóta spurn- ingar eins og þessar að vakna: Hvers vegna hafa bankarnir ekki fyrr séð að sér? Var óhjákvæmilegt að haga sigl- ingunni þannig að bankarnir strönduðu? Ekkert þjóðfélag og alls ekki hið íslenska þolir til lengdar aö bankar hætti að lána út peninga, enda er það jafn ríkur þáttur í starfi banka að lána út fé eins og að kalla eftir innlánum. Innan skamms tíma mun hrikta í fyrirtækjum vegna útlána- stöðvunarinnar. Keðjuverkun- ina af lokun bankanna sér enginn fyrir en þó er á flestra færi að geta sér til um hver hún verður. Það þarf kannski ekki verkföll til að stöðva at- vinnufyrirtækin. Afkoma ríkissjóðs á þessu ári ber þess glögg merki hve þenslan hefur verið mikil, eins og jafnan áður nýtur hann góðs af aðflutningsgjöldum og söluskattstekjum vegna mikils innflutnings. Á hinn bóginn blasir einnig við að ekki hefur verið tekist á við vanda sjáv- arútvegsins af þeirri festu sem þarf, alltof langan tíma hefur tekið að framkvæma skuld- breytinguna margræddu sem heitið var á fyrri hluta árs. Margt bendir til að menn hafi beinlínis gefist upp fyrir þeim vanda. Þetta tvennt, of mikill innflutningur og óuppgerðir reikningar fyrirtækja í sjávar- útvegi, stafar að skorti á markvissri stefnu ekki síst í bönkunum sjálfum. Hinn 13. ágúst hlutu bank- arnir frelsi til að ákveða vexti sjálfir. Þar var um langþráöan áfanga að ræða. Með öllu er rangt að tengja núverandi erf- iðleika og vaxtafrelsið saman, ef rétt væri á málum haldið ætti frelsið einmitt að auð- velda bönkunum að takast á við vandann. Þeir þurfa ekki síður að auglýsa það fyrir viðskiptavinum sínum að það sé dýrt að taka lán en hve hag- kvæmt það sé að geyma fé á bankabókum. Ríkisstjórnin hefur mótað efnahagsramma til nokkurrar framtíðar. Þar er ekki slakað á, enda standa efni þjóðarinn- ar ekki til þess. En enginn efnahagsrammi þolir í senn lækkun á útflutningsafurðum, stöðvun á fjárstreymi úr bönk- um vegna skuldasöfnunar bankanna sjálfra og hækkun launa vegna verkfallshótana og verkfalla. Áhugi Búlgara á N or ður slóðum úlgarar eru um margt merkileg þjóð. Þeir hafa mikinn áhuga á norður- slóðum. Fyrir nokkru skrifaði búlgarska flugfélagið undir samning við ferða- skrifstofu í Kirkenes, sem liggur skammt frá landamærum Sovétríkj- anna, um að flytja mörg þúsund farþega frá Búlgaríu til Norður-Noregs á næsta ári. Þessi áhugi Búlgara á ferðalögum til Norður-Noregs hefur vakið sérstaka eftirtekt þar og víðar. Búlgarar þurfa að tryggja sér rétt til lendingar í Norður-Noregi, en þau rétt- indi hafa þeir ekki enn. Talið er ólíklegt, að norsk stjórnvöld ljái máls á því. Á sama tíma og Búlgarar vilja flytja mörg þúsund landa sinna til þess að skoða fegurð Norður-Noregs, leita Sov- étríkin eftir lendingarrétti fyrir Aero- flot á svipuðum slóðum og segja, að til- gangurinn sé að gefa Norðmönnum kost á því að heimsækja sólarstrendur Sov- étríkjanna við Svartahaf. Óneitanlega hefur það vakið athygli í Noregi, að sov- ézka flugfélagið skuli telja mestar líkur á farþegum frá Norður-Noregi, þar sem fæstir Norðmenn búa. Áhugi Búlgara og Sovétmanna á að hefja reglulegt flug til Norður-Noregs, er íhugunarefni. Fyrir 13 árum kom hingað til lands búlgarskur forsætisráð- herra. Eitt þeirra skjala, sem hann lagði á borð íslenzkra ráðherra í viðræðum við þá var uppkast að loftferðasamningi milli íslands og Búlgaríu. Þessi ráða- maður lýsti sérstökum áhuga Búlgara á að hefja fastar áætlunarferðir milli ís- lands og Búlgaríu! Það fer auðvitað ekkert á milli mála, hvað er að gerast, hvort sem um er að ræða þessi tilmæli Búlgara til íslend- inga fyrir 13 árum, eða áform þeirra nú um reglulegt flug til Norður-Noregs. Hér er auðvitað á ferðinni tilraun til þess að hefja víðtæka njósnastarfsemi í skjóli farþegaflugs. Brautryðjendastarf I Morgunblaðinu um þessa helgi er frásögn í máli og myndum af fyrirhug- uðum byggingaframkvæmdum Hag- kaups í nýja miðbænum. Þetta eru ein- hverjar viðamestu framkvæmdir, sem einkafyrirtæki á íslandi hefur lagt út í og eiga vafalaust eftir að marka nokkur þáttaskil í verzlunarsögu landsmanna. Saga þessa fyrirtækis er ævintýri. Fyrir aldarfjórðungi hóf verzlunin starfsemi sína í gömlu fjósi við Eskihlíð með því að bjóða vörur á lægra verði en hér hafði tíðkast. Afstaða manna til Hagkaups á þeim tíma var afar misjöfn. Sumir kaupmenn og heildsalar litu fyrirtækið hornauga og töldu hagsmun- um sínum ógnað. Margir borgarar töldu ekki við hæfi að verzla á þessum stað. Síðan hefur Hagkaup vaxið með risa- skrefum og er nú tvímælalaust einhver sterkasta brjóstvörn gegn innrás SÍS- veldisins í smásöluverzlun á höfuðborg- arsvæðinu. Hagkaup, Vörumarkaðurinn og fleiri fyrirtæki áttu mestan þátt í að brjóta niður gamla og staðnaða verzlun- arhætti og kynna nýjungar, sem hafa skipt sköpum og orðið neytendum til mikilla hagsbóta. Það eru slík fyrirtæki sem hafa brotið niður gamalt kerfi hafta og verðlagsákvæða, sem stjórn- málamönnum var bersýnilega um megn að afnema. Á síðustu vikum hefur Hagkaup haft forystu um að brjóta niður gamalt ein- okunarkerfi í kartöflusölu. Verzlunin hefur áður gert úreltu einokunarkerfi Sölusamtaka bænda gramt í geði með margvíslegum hætti, svo sem þegar ódýrari jógúrt frá Húsavík var flutt til höfuðborgarinnar. Ekki má gleyma þeirri einvígisáskorun á hendur SÍS- veldinu, sem fólst í ákvörðun fyrirtæk- isins um að opna stórverzlun í höfuðvígi Sambandsins á íslandi, Akureyri, með þeim árangri, að vöruverð í höfuðstað Norðurlands hefur lækkað verulega. Að baki slíkum nýjungum í verzlun- arháttum liggur ekki fyrst og fremst von eigenda um hagnað, heldur mikil hugsjón, enda fer það ekki á milli mála, að stofnandi og aðalforystumaður þessa fyrirtækis, Pálmi Jónsson, er fyrst og fremst hugsjónamaður, sem hefur haft ótrúlega víðtæk áhrif á framvindu okkar samfélags, sérstaklega síðustu 10 ár eða svo. Kjör launþega Á mánudag hefst, að öðru óbreyttu, verkfall prentara og er það fyrsta verk- fa.ll, sem boðað er á þessu hausti. Framundan er síðan boðað verkfall opinberra starfsmanna, sem hefst snemma í október hafi samningar ekki tekizt. Um miðjan september hefst verkfall í sláturhúsum á Suðurlandi. Verkfall opinberra starfsmanna stóð yfir haustið 1977 og var hið harðvítug- asta og erfiðasta, sem háð hafði verið á íslandi árum ef ekki áratugum saman. I kjölfarið á því fylgdu tilraunir þáver- andi ríkisstjórnar til þess að ná tökum á verðbólguþróun með lagasetningu og ófarir Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks í kosningunum sumarið 1978. Þegar litið er yfir þá sögu alla, frá samningum í júní 1977, verður ekki sagt, að hún hafi orðið Iaunþegum í landinu til framdráttar. óumdeilt er, að almenn launakjör á íslandi halda ekki til jafns við það sem tíðkast í nálægum löndum. Á ferð um frystihús í sumar, þar sem upplýst var, að starfsfólk hefði með bónus 12—14 þús. krónur á mánuði, vaknaði sú spurn- ing í huga höfundar þessa Reykjavíkur- bréfs, hvar þjóðin væri á vegi stödd úr því að höfuðatvinnuvegur hennar gæti sannanlega ekki greitt hærra kaupgjald en þetta. I skoðunarferð um myndarlega saumastofu í höfuðborginni, var upp- lýst, að starfsstúlkur hefðu svipuð laun þeim sem áður voru nefnd úr frystihús- inu með bónus. Um það er ekki deilt, að laun af þessu tagi duga ekki til lífs- framfæris á Islandi. Enda er það nátt- úrulega svo, að afkoma flestra fjöl- skyldna byggist á vinnu og tekjuöflun tveggja einstaklinga. Engum er þetta betur ljóst en atvinnurekendum sjálf- um. Einn af forráðamönnum frystiiðn- aðarins hafði orð á því við höfund Reykjavíkurbréfs fyrir skömmu, að frystiiðnaðurinn fengi alls ekki viðun- andi starfskrafta með þeim launum, sem í boði væru. Sömu sögu segja nú forráðamenn rík- isstofnana, sem telja, að hið opinbera sé að missa hæfustu starfskraftana til einkarekstrarins, sem hafi meiri mögu- leika á sveigjanleika í launagreiðslum. Ríki og ríkisstofnanir séu yfirleitt ekki samkeppnisfær um vinnuafl við einka- reksturinn. Áratugum saman hafa lífskjör hér byggzt á mikilli yfirvinnu. Hún hefur hins vegar lagzt að verulegu leyti niður í nálægum löndum. Þess hefur gætt hin síðari ár, að fólk er orðið þreytt á yfir- vinnu. Á fjölmennum vinnustöðum gæt- ir tregðu hjá launþegum að vinna yfir- vinnu. Skattakerfið er orðið svo ágengt, að margir telja að það borgi sig alls ekki að hafa miklar tekjur af yfirvinnu. I umræðum um þessi mál er lítið tal- að um hlutskipti lífeyrisþega, en líklega eru þeir, þegar á heildina er litið, sá hópur, sem hefur hvað lélegasta af- komu, en sættir sig um leið bezt við það. Annar þáttur þessa máls er svo sá, að sennilega er efnamunur í landinu að verða mjög mikill og meiri en áður var, sem er hættulegt svo fámennu samfé- lagi. Það er óhætt að fullyrða að allir þeir, sem hafa einhverja möguleika á að svíkja undan skatti, gera það nú orðið. Neðanjarðarhagkerfið er að likindum margfalt stærra en menn hafa talið. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 43 Vera má, að það sé skýringin á því, að I efnahagslíf þjóðarinnar sýnist blóm- legra í reynd en opinberar tölur gefa tilefni til að ætla. Samkomulag stjórn- arflokkanna um afnám tekjuskatts í áföngum, er sanngirnismál, sem áreiðanlega er fagnaðarefni, þeim hluta þjóðarinnar, sem stendur undir beinum skattgreiðslum. Staða atvinnu- veganna Það verður ekki deilt um það, að launakjör á Islandi eru ekki sambærileg við það, sem tíðkast í öðrum löndum í okkar heimshluta. En það verður heldur ekki deilt um þá augljósu staðreynd, að undirstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar, út- gerð og fiskvinnsla, geta ekki borgað hærri laun. Leiði kjarasamningar á þessu hausti til umtalsverðra kaup- hækkana mun það óhjákvæmilega hafa í för með sér gengisbreytingar og nýja verðbólguöldu. Þar með hafa engin áhrif orðið til góðs af þeim launahækk- unum. Þetta er sú sjálfhelda, sem allar umræður um kjaramál eru komnar í. Staðreyndir um afkomu útgerðar og fiskvinnlu liggja á borðinu. Aflasam- dráttur er mikill. Verðlag á nánast öll- um sjávarafurðum okkar erlendis hefur ýmist staðið í stað eða farið mjög lækk- andi. Hugsanlegt er, að við verðum að setja síld í bræðslu á þessu hausti, vegna þess að markaðir finnast ekki fyrir síldarafurðir. Fróðir menn telja, að enginn fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir veiðum og vinnslu á loðnu í haust. Þorskblokkin hefur lækkað, en verði þorskflaka hefur verið haldið uppi á Bandarikjamarkaði. Markaðshlutdeild íslendinga hefur þó minnkað stórlega, eins og fram kemur í viðtali við Jón Ingvarsson, stjórnarformann Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, sem birtist í Morgunblaðinu nú um þessa helgi. Jafn- vel aðrar tegundir sjávarafurða, eins og rækja og hörpudiskur, hafa orðið illa úti í verðlagsþróun erlendis. Þegar allt þetta kemur saman er spurningin miklu fremur sú, hversu langt er í það, að út- gerð og fiskvinnsla stöðvist en að þessar atvinnugreinar geti staðið undir kaup- hækkunum. Auðvitað er afkoma atvinnuvega mis- jöfn og sumar greinar standa betur að vígi en aðrar til þess að bæta kjör starfsmanna sinna. En samhengið í þjóðfélagi okkar veldur því, að það er ekki einfalt fyrir forráðamenn þeirra atvinnugreina, að bæta kjör starfs- manna sinna, þótt þeir gjarnan vildu. Það hefur verið eitt helzta gagnrýnis- efni forráðamanna í sjávarútvegi og fiskvinnslu, og raunar forystumanna landsbyggðarinnar einnig á stjórnvöld, að þenslan á suðvesturhorninu á þessu sumri, sé óhófleg. Atvinnugreinar á borð við byggingariðnaðinn yfirbjóði vinnuaflið þannig, að undirstöðuat- vinnugreinar séu ekki samkeppnisfærar um vinnuafl. Það er gömul saga og ný, að hækki laun verulega í einni atvinnu- grein, færast þær launahækkanir á skömmum tíma yfir í aðrar. Minna má á eitt helzta vandamál viðreisnartíma- bilsins, þegar velgengni í síldveiðum og síldarvinnslu leiddi til mikilla tekna þar, sem urðu til þess, að starfsfólk í öðrum atvinnugreinum krafðist hins sama, þótt þær atvinnugreinar gætu engan veginn undir því staðið. Forsvars- menn Sláturfélags Suðurlands standa frammi fyrir verkfalli í sláturhúsum fé- lagsins. Þeir veittu einum starfshópi í fyrirtækinu launahækkun í sumar og nú krefjast aðrir hins sama. Frammi fyrir þessu standa forráðamenn þeirra at- vinnufyrirtækja sem hugsanlega gætu greitt hærri laun. Þeir horfast í augu við það, að þeir eru ekki einir í heimin- um og ákvarðanir þeirra um launa- hækkanir geta haft afdrifaríkar af- leiðingar fyrir efnahagslífið í heild sinni. REYKJAVÍKURBRÉF laugardagur 8. september Hvar erum vid á vegi stödd? Við stöndum andspænis tvennu: I fyrsta lagi, að launakjör og þar með lífs- kjör á íslandi eru langt frá því að vera sambærileg við það, sem nú tíðkast í nálægum löndum. Ef það ástand varir lengi, verður afleiðingin sú, að yngra fólk, sem hefur aflað sér menntunar og kynnzt öðrum þjóðum, mun hneigjast til þess að hazla sér völl í öðrum löndum, flytja til útlanda og koma í heimsókn til íslands í sumarfríum á sama hátt og við hin heimsækjum sveitina okkar, þegar sól er hæst á lofti. I öðru lagi er það óhrekjanleg staðreynd, að þrátt fyrir mikil auðævi hafsins í kringum landið og miklar orkulindir á landi, höfum við haldið þannig á málum í einn og hálfan áratug frá því að viðreisnartímabili lauk, að höfuðatvinnugreinar okkar geta ekki greitt fólki þau laun, sem sjálfsagt þykir, að atvinnufyrirtæki í nálægum löndum greiði sínum starfs- mönnum. Hvað hefur gerzt? Það er stundum haft á orði að litlu skipti hverjir sitja við stjórnvölinn, stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar séu allir eins og þess vegna sé það ekk- ert höfuðatriði, hverjir sitja í stjórnar- ráðinu. Þetta er rangt. Við erum nú að uppskera afleiðingar lélegrar stjórnar á málefnum þjóðarinnar frá því að við- reisnartímabilinu lauk. Á sama tíma og aðrar þjóðir, sem við eigum mest sam- skipti við, hafa rifið sig upp, tekizt á við vandamál sín, byggt upp nýjar atvinnu- greinar og búa nú við blómlegan efna- hag og góð lífskjör, stöndum við frammi fyrir hrikalegum vandamálum, mikilli skuldasöfnun erlendis, kolrangri fjár- festingu innanlands og alvarlegri van- rækslu við uppbyggingu nýrra atvinnu- greina. Þetta er í stærstu dráttum skýr- ingin á því, hvers vegna verkalýðsfor- ingjar og forystumenn í atvinnulífi eru í algjörri sjálfheldu, þegar semja skal um kaup og kjör á vinnumarkaðnum. Hið eina, sem þessir menn raunveru- lega geta gert, er að sameinast í kröfu- gerð á hendur stjórnvöldum og stjórn- málamönnum um, að þeir ræki skyldu- störf sín betur í alþjóðarþágu. Sjávarútvegurinn er frumrótin Hvað sem öðru líður eru útgerðin og fiskvinnsla þær atvinnugreinar, sem við byggjum afkomu okkar á og munum gera um langa framtíð. Frumrótina að vandamálum í efnahags- og atvinnulífi okkar er að finna í sjávarútvegi. Þar hefur verið lagt út í stórkostlega offjárfestingu á einum og hálfum ára- tug, sem kemur nú fram í lélegum lífskjörum landsmanna. Hingað til hafa það þótt gleðitíðindi þegar nýir togarar koma til hafnar í sjávarplássum víðs vegar um landið, en áreiðanlega er svo um fleiri en höfund þessa Reykjavík- urbréfs, að ástæða er orðin til að líta á slíkar fréttir, ekki sem gleðitíðindi, heldur sorgarfregnir, vegna þess að enn eitt dæmið um rangar ákvarðanir í fjár- festingarmálum hefur siglt í höfn. Auðvitað er hæpið að kenna einum um fremur en öðrum. En þó verður ekki vikizt undan því, að leggja höfuðábyrgð- ina á herðar alþingismanna sjálfra sem hafa bai zt um á hæl og hnakka hver fyrir sit' kjördæmi og fyrir einstök byggðarló,- í kjördæmunum, að útvega fjármagn til togarakaupa, jafnvel þótt engar fjárhagslegar forsendur hafi ver- ið fyrir þeim kaupum. Nú er mikið talað um það, að dauft sé yfir atvinnulífi úti á landi, en þensla sé á Reykjavíkursvæð- inu. Það er ósköp eðlilegt, að dauiv é yfir atvinnulífi á landsbyggðinni vegna þess að afleiðingar fjárfestingar, sem ekki verður staðið undir, eru að koma fram af fullum þunga. Það er höfuðsynd núverandi ríkis- stjórnar, að á því rúma ári, sem hún hefur setið að völdum, hefur hún nánast ekkert gert til þess að takast á við þessi vandamál. Það er engin lausn að breyta skuldum í lengri lán. I yfirlýsingu stjórnarflokkanna, sem birt var í gær, föstudag, er ekki að sjá nokkur merki þess að takast eigi á við höfuðvandann í útgerð og fiskvinnslu. En ef til vill er það undanskilið. Forsvarsmenn einkarekstrar í sjávar- útvegi segja, að með þeim ákvörðunum, sem teknar hafa verið á undanförnum misserum um kvótakerfi og fleira, hafi grundvöllur verið lagður að lausn á vandamálum sjávarútvegsins. Hins veg- ar eigi eftir að sjá, hvort stjórnmála- mennirnir láti lögmál efnahags- og at- vinnulífs koma fram af fullum þunga innan þessa ramma. Hvort þeir láti það gerast, að fyrirtæki, sem enginn grundvöllur er lengur fyrir, stöðvist, þótt afleiðingarnar fyrir einstök byggð- arlög verði mjög alvarleg. Þessir menn segja sem svo, að komi stjórnmála- mennirnir enn einu sinni til skjalanna með bráðabirgðaráðstafanir til þess að halda vonlausum atvinnufyrirtækjum gangandi, sé útilokað að sjávarútvegur- inn rétti við. Sparnaðurí ríkiskerfinu Á næstu vikum verða mikil átök um það innan ríkisstjórnarinnar og stjórn- arflokkanna, hvernig standa skuli að af- greiðslu fjárlagafrumvarps fyrir næsta ár. I stjórnarandstöðu hafði Sjálfstæð- isflokkurinn stór orð um nauðsyn þess að draga úr útgjöldum hins opinbera. Þegar flokkurinn hefur farið með fjár- mál ríkisins, hefur minna orðið um efndir. Núverandi ríkisstjórn hefur þó haft uppi nokkra viðleitni í þessa átt. Það er nánast föst regla, að ríkisfjöl- miðlarnir verði vettvangur mikilla upp- hrópana af hálfu hagsmunasamtaka, sem telja gífurlegt hneyksli á ferðum, ef einhvers staðar á að draga úr útgjöldum skattgreiðenda. Það er alveg sama, hvort þessar tilraunir eru gerðar í skóla- eða heilbrigðiskerfinu, þar sem útgjaldaaukning er einna mest nú á tímum, eða annars staðar. Þetta eru furðuleg viðbrögð, vegna þess að félagsmenn í samtökum t.d. kennara og heilbrigðisstétta, sem hér koma við sögu, eru auðvitað einnig skattgreiðendur. Og það er verið að gera tilraun til þess að draga úr skattbyrði þeirra með samdrætti í útgjöldum. Það eru gleðitíðindi fyrir skattgreiðendur þegar hagsmunahópar hefja harða hríð að ríkisstjórninni vegna niðurskurðar á útgjöldum. I hvert skipti sem það gerist er það vísbending um, að ríkisstjórnin sé að vinna skyldustörf sín með nokkr- um árangri. „Hingad til hafa það þótt gleðitíðindi, þegar nýir togarar koma til hafnar í sjáv- arplássum víðs vegar um landið, en áreiðan- lega er svo um fleiri en höfund þessa Reykjavik- urbréfs, að ástæða er orðin til að líta á slíkar fréttir, ekki sem gleðitíð- indi, heldur sorgarfregn- ir, vegna þess, að enn eitt dæmið um rangar ákvarðanir í fjárfest- ingarmálum hefur siglt í höfn.M
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.