Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 67
þó ekki tækist honum að gera neinn bindindismann úr mér. Ég hef oft furðað mig á því, að Þ.Þ.V. skyldi velja mig fram yfir marga mæta menn, til þess að vinna fyrir sig. Ég trúi því að þar hafi æðri máttarvöld spilað inn i. Nú er Þorsteinn kominn á þeirra fund. Stormasömu, eril- sömu, en giftudrjúgu starfi hefur verið skilað. Minnisvarðarnir eru óbrothættir og minningin um góð- an mann gleymist ekki þeim sem kynntust. Ég votta þeirri góðu konu Ingigerði Jóhannsdóttur, sem hitaði margan góðan kaffi- sopann fyrir okkur Þorstein, svo og öðrum ættingjum mina dýpstu samúð. Ólafur Haraldsson Þorsteinn Þórður Víglundsson, fyrrverandi skólastjóri í Vest- mannaeyjum, lést þriðja þessa mánaðar í Landakotsspítala í Reykjavík. Hann fæddist á að Melum í Mjóafirði 19. okt. 1899. Foreldrar hans voru Víglundur Þorgrímsson og kona hans, Jónína Guðrún Þorsteinsdóttir. Var faðir hans Snæfellingur að uppruna, en móðir hans af Hurðabaksætt í Borgarfirði vestra. Þau slitu sam- vistir þegar Þorsteinn var á barnsaldri, og var hann frá átta ára aldri í fóstri í Hóli í Norðfirði hjá Stefaníu Guðjónsdóttir frá Hlíð í Hrunamannahreppi og Vigfúsi Sigurðssyni, sjó- og út- gerðarmanni frá Kúfhóli í Land- eyjum. Fjórðungi bregur til fósturs, segir máltæki, og er mér sagt að Þorsteinn hafi á unglingsárum mótast af Vigfúsi fóstra sínum. Að þeirrar tíðar hætti hefur Þorsteinn snemma farið að leggja hönd að verki, og má geta þess að 14 ára reri hann frá Norðfirði sem fullgildur háseti hjá fóstra sínum. En hugur sveinsins stóð til mennta og naut hann þegar á unglingsárum tilsagnar ágætra kennara, og má þar til nefna Sig- dór Brekkan og Valdimar Snævar, sem báðir voru þá virtir skóla- menn á Norðfirði. Næsti áfangi á menntabraut- inni var búnaðarskólinn á Hvann- eyri og lauk Þorsteinn prófi í bú- fræði vorið 1919. Sennilegt er að Halldór Vilhjálmsson, bænda- höfðingi og skólastjóri á Hvann- eyri, hafi hvatt efnilega nemendur til frekara náms í búvísindum. Að minnsta kosti er víst að hugur Þorsteins stefndi til náms í búnað- arháskólanum í Ási í Noregi. Með það markmið í huga stundaði hann nám í þrjá vetur í Noregi. Fyrst í Lýðháskólanum í Voss og síðar í Menntaskólanum á Volda þar sem hann lauk stúdentsprófi í sögu, norsku og stærðfræði 1924. En draumurinn um háskólavist að Ási rættist ekki. Þar var fjár- skortur þröskskuldur í vegi, svo hitt að Þorsteinn fann sig knúinn til að leggja fósturforeldrum sín- um lið, sem þá höfðu misst einka- son sinn og orðið fyrir brunatjóni. Haustið 1926 innritaðist Þor- steinn svo í Kennaraskóla íslands og lauk þaðan kennaraprófi vorið Í927. Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseti, var þá fræðslumálastjóri auk þess sem hann kenndi við skólann og hefur þá að sjálfsögðu kynnst Þorsteini. Hvatti nú Asgeir Þor- stein til að fara til Vestmannaeyja og taka við skólastjórn ungl- ingaskólans þar. Varð það að ráði, og þar með varð hann skólastjóri unglingaskóla Vestmannaeyja til 1930, að skólanum var breytt í Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja. Þá var Þorsteinn að tillögu Ás- geirs skipaður skólastjóri og gegndi hann því starfi til ársins 1963. Saga Þorsteins sem skólastjóra og skólamanns hér í Eyjum er löng og verður ekki rakin hér, en aðeins minnt á, að það kom í hlut hans að byggja hér upp mennta- stofnun, sem með tímanum vann sér traustan sess og viðurkenn- ingu í bæjarfélaginu. Þar liggur mikil vinna að baki, sem ekki var alltaf metin sem skyldi. Þorsteinn var afbragðs kennari og bar um- hyggju fyrir nemendum sínum. Hann vildi koma öllum til nokkurs þroska. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 Bygging skólahúsnæðis var einn þáttur í baráttu Þorsteins fyrir bættum hag gagnfræðaskólans. Þar voru lengi vel hindranir á vegi, en með harðfylgi Þorsteins og stuðningi mætra manna reis gagnfræðaskólabyggingin af grunni í túninu sunnan við Landa- kirkju. Það var á sínum tíma stór sigur í skólamálum Vestmanna- eyja. En Þorsteinn kom víðar við í málefnum Vestmannaeyja. Hann var einn af stofnendum Sparisjóðs Vestmannaeyja 1943. Þar var hann lengi formaður stjórnarinn- ar og sparisjóðsstjóri til 1974 að hann sagði því starfi lausu að eig- in ósk. Ég sem þessar línur rita kynntist Þorsteini í því starfi þar sem ég átti um árabil sæti með honum í stjórninni, og minnist þess að laun hans hjá Sparisjóðn- um voru aukaatriði, en höfuðmálið að sjóðurinn dafnaði og gengdi sínu hlutverki í þágu bæjarbúa. Þorsteinn ar samvinnumaður og vann að stofnun Kaupfélags Al- þýðu 1932 og síðar, árið 1950, stofnaði hann Kaupfélag Vest- mannaeyja, sem starfar enn hér í bænum. Þorsteinn var vel ritfær, og skrifaði blaðagreinar hér heima, og einnig í norsk blöð og rit. Hann var um skeið fréttaritari Ríkisút- varpsins og Bergens Tidende. Þá var Þorsteinn um árabil ritstjóri Framsóknarblaðsins hér í Eyjum. En á ritvellinum mun hans lengst minnst fyrir ársritið Blik, sem hann gaf út og ritstýrði í áratugi. Þar er að finna mikinn fróðleik og frásagnir um menn og málefni hér í Vestmannaeyjum. Þorsteinn átti vinum að fagna í Noregi, og hafði sambönd við þá. Að áeggjan þeirra hófst hann handa um samningu íslensk- noskrar orðabókar. Ef svo mætti segja var það verk þrettán ára tómstundavinna. Norðmenn virtu þetta framlag að makleikum og heiðruðu Þorstein með ólafsorð- unni. Einnig var hann kjörinn heiðursfélagi í Vestmamannlaget í Bergen. Þorsteinn átti sæti sem fulltrúi Framsóknarflokksins í bæjar- stjórn Vestmannaeyja á árunum frá 1950 til ’54. Mér er minnis- stæður opinn bæjarstjórnarfund- ur, sem haldinn var í Samkomu- húsi Vestmannaeyja, þar sem fjöldi bæjarbúa var mættur. Fyrir lá tillaga þess efnis að leggja niður Bæjarútgerð Vestmanna- eyja og selja tvo togara sem rekst- urinn byggðist á. Ástæðan fyrri tillögunni var hallarekstur út- gerðarinnar. Þorsteinn studdi til- löguna með einurð og afli, enda þótt hann vissi að afstða hans væri ekki vinsæl meðal bæjarbúa. Þannig var Þorsteinn. Hann fylgdi sannfæringu sinni. Þessi ráðstöf- un gjörbreytti fjárhagsstöðu bæj- arins til bóta. Árið 1935 hóf Þorseinn söfnun í því skyni að koma á fót byggða- safni hér í Eyjum. Seinna varð hann formaður byggðasafns- nefndar kaupstaðarins. Þessi hugmynd að stofná byggðasafn varð fljótlega að raunverulegu fyrirtæki, sem hlóð utan á sig ár frá ári. Bæjarbúar afhentu Þor- steini gjarnan áhöld og tæki, sem vegna breyttra atvinnuhátta voru að missa gildi sitt, og með árunum varð hér um heilt byggðasafn að ræða. Hvað Þorsteinn var trúr þessu hugðarmáli sínu kom best fram eftir að jarðeldarnir brutust út hér á Heimaey. Þá var hann kom- inn á áttræðisaldur og lagði á sig fleiri ferðir til að bjarga byggða- safninu og koma því í örugga geymslu. Safnahús Vestmannaeyja reis af grunni á Stakkagerðistúninu og 15. apríl 1978 afhenti Þorsteinn bæjarfélaginu safnið og er mér kunnugt um að hann fagnaði þeirri stund, að vita það komið í örugga vörsíu í nýjum og góðum húsakynnum. Sama dag var Þorsteinn kjörinn heiðursborgari Vestmannaeyja. Þann 15. janúar 1926 kvæntist Þorsteinn Ingigerði Jóhannsdótt- ur frá Krossi í Mjóafirði, sem lifir mann sinn eftir langt og farsælt hjónaband. Hann minntist oft á hana Ingu sína og gat þess m.a. hvað það væri gott að koma heim í heimiliskyrrðina eftir langan og strangan vinnudag. „Góða konu hver hlýtur hana,“ segir í ritning- unni. Þorsteinn var einn af þeim, og ég held að óhætt sér að fullyrða, að hún eigi sinn óbeina þátt i því mikla starfi, sem hann orkaði á lífsleiðinni. Börn þeirra eru: Stefán kennari, kvæntur Erlu Guðmundsdóttur, Kristín Sigríður, kona Sigfúsar Johnsen kennara, Víglundur Þór læknir, kvæntur Fríðu Daníels- dóttur, Inga Dóra sjúkraliði, kona Guðmundar Helga Guðjónssonar deildarstjóra. Uppeldisdóttir er Anna Pálína Sigurðardóttir kona Guðlaugs Guðjónssonar verslun- arstjóra. Hér í Eyjum bjó fjölskyldan lengst af i Goðasteini við Kirkju- bæjabraut, en eftir jarðeldana settust þau Þorsteinn og Inga að í Hafnarfirði að Hjallabraut 5. Ég vil svo að lokum þakka Þorsteini samfylgdina og votta Ingu og allri fjölskyldunni dýpstu samúð. Blessuð veri minning Þorsteins Þ. Víglundssonar. Sigurgeir Kristjánsson Kvöldið annars dags septem- bermánaðar var óvenjufagurt i Reykjavík. Það var einhvern veg- inn óhugsandi að gera sér i hug- arlund að marglitar pensilstrokur vesturhiminsins væru i rauninni síðustu skímur jarðvistar afa mins og nafna. En þegar harma- fregnin um andlát hans barst um nóttina eftir, var eins og hið fagra haustkvöld hefði verið táknrænn minnisvarði um hinn ötula yrkja menningar- og menntagarðsins. Minnisvarði um mann sem helgaði líf sitt og fórnaði sér í þágu bætts þjóðfélags, menntunar og jafn- réttis, og ruddi slíka vegi í frjóa mold Vestmannaeyja að hans verður ávallt minnst í menning- arsögu byggðarlagsins. Norðmaður einn sem fylgst hafði gjörla með starfi Þorsteins Þ. Víglundssonar sagði eitt sinn við mig að starf hans væri ekki minna en þrjú ævistörf. Ég þóttist alltaf sjá í starfi hans sterkan samhljóm, þar sem öll verkin mið- uðu að sama takmarki og voru samofin hugsjónum hans. Með komu sinni til Vestmannaeyja nokkru fyrir byrjun kreppunnar miklu hófst hann handa við að endurbæta unglingamenntun, sem mjög var ábótavant. Byrjað var í fábrotnu húsnæði með örfáa nem- endur, þar sem skylduverk út- vegssamfélagsins kölluðu flestar vinnufærar hendur til starfa. Eft- ir nær fjögurra áratuga starf var risinn Gagnfræðaskóli með hundruð nemenda; bygging sem Þorsteinn hafði sjálfur unnið að hörðum höndum samhliða kennsl- unni og mörgum öðrum verkefn- um. Tema lífs hans um að bæta kjör hinna verst settu gengur eins og rauður þráður í gegnum starf hans öll þau ár sem hann var virk- ur í starfi í Eyjum. Það er ekki nokkur vafi á að stofnun Spari- sjóðs Vestmannaeyja var þaul- hugsað mótvægi gegn einhæfri bankapólitík útgeröarstaðarins á þeim tímum. Velferðarríkið sem nú blómstrar fyrir innan Ægisdyr Heimaeyjar á ekki síst stofnun Sparisjóðsins líf sitt að launa. Aðkomumaðurinn Þorsteinn Þ. Víglundsson var fljótur að koma auga á þá mikiu arfleifð sem fólg- in var í hvers kyns minjum og munum sem tilheyrðu hinu gamla sjósóknarsamfélagi Eyjanna. Samhliða skólastjóra- og spari- sjóðsstjórastarfinu lagði hann með minjasöfnun sinni grundvöll- inn að Byggðasafni Vestmanna- eyja og beitti sér á efri árum fyrir byggingu hins myndarlega safna- húss sem nú hýsir byggðasafn, bóka- og skjalasafn. Áratugum saman skrifaði hann Blik, fyrst sem skólarit en síðar ársrit Vest- mannaeyja. Ritið er nú geymd gíf- urlegs fróðleiks um sögu byggðar- lagsins. Önnur hugsjónamál bættust í hópinn og hann hóf gerð íslensk- norskrar orðabókar á sjötta ára- tugnum. Ekki var hægt að bæta tímum við sólarhringinn og vinnu- álag dagsins heldur aðeins hægt að hefja vinnudaginn fyrr. Klukk- an fimm á morgnana var sest við skriftir og unnið fram til klukkan sjö, þegar skyldur skólastarfsins kölluðu. Svona voru morgnarnir í Goðasteini, húsi þeirra Ingigerð- ar, í mörg ár. Mér er það minnis- stætt sem ungum drenghnokka að einhvern tíma þegar ég gisti í Goðasteini að vetrarlagi og var árrisull og reikaði fram í morg- unsvala stofuna þá sat orðabókar- maðurinn í þykkri vírúlpu með lopagriflur á höndum og skrifaði. Hann sagði mér þá að hann væri langt kominn með essið! Ég hef farið nokkrum orðum um vinnuna, sem í lífi og starfi nafna míns var helgur dómur. Það er ekkert undarlegt að hugsjóna- menn af því tagi sem Þorsteinn Þ. Víglundsson var, setji varanleg spor í lífsmótun náinna ættingja sinna. Við náin kynni bættist svo 71 við, að hinn á ytra borði hrjúfi athafnamaður hafði að geyma ástríkan fjölskyldumann. Fjöl- skyldulíf í Goðasteini einkenndist af ástúð þeirra hjónanna og ákaf- lega mikilli gagnkvæmri virðingu, sem ekki fór fram hjá afabörnun- um. Mér varð þá ljóst að mikið af verkum hans var á vissan hátt samvinnuverkefni þeirra hjón- anna. Amma var hinn ráðagóði bakhjarl sem veitti honum stuðn- ing í hvívetna. T.d. var fbúðarhús þeirra hjóna notað sem allt í senn skóli, náttúrugripa- og byggðasafn í langan tíma. Saga Þorsteins Viglundssonar verður ekki skrifuð í svo fáum lín- um og fátæklegum. Hafi hann þökk fyrir veganestið. Það er erf- itt að sjá á bak slíkum manni og söknuðurinn sár ekki síst elsku- legri ömmu minni. Én það hug- hreystir að vita að hann situr ekki aðgerðarlaus úti f jaðri sólarlags- ins, heldur safnar efni í nýja bók. Þorsteinn I. Sigfússon + Ástkær eiginmaöur og faöir, tengdafaöir og afi, JÓN KRISTJÁN SUMARLIÐASON, Víövangi 5, Hafnarfiröi, lést í Ðorgarspítalanum þriöjudaginn 4. september. Jaröarförin augtýst siöar. Béra Jónadóttir, börn, tangdabörn og barnabörn. t Móöir okkar. tengdamóöir, amma og langamma, KRISTÍN INGIMARSDÓTTIR, er lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 3. september. veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 12. september kl. 13.30. Anna Hjélmarsdóttir, Baldvin Magnúaaon, Aðalsteínn Hjélmarsson, Margrét Árnadóttír, Guöbjörg Hjélmarsdóttir, Pétur Þorlaifsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móöir okkar og tengdamóöir, MAGDALENA JÓSEFSDÓTTIR, Efstasundí 55, éóur Stigahlíö 24, Reykjavfk, verður jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 11. september kl. 15.00. Jarðsett veröur í kirkjugaröinum við Suöurgötu. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á líknarsjóöi. Hulda Valdimarsdóttir, Birgir Valdimarsson, Helga Valdimarsdóttir, Elias Valgeirsson, Margrét Jónsdóttir. I + Systir okkar, móöir, tengdamóöir og amma, JÓHANNA BJARNADÓTTIR, hjúkrunarkona, Laugarnesvegi 100, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. september kl. 13.30. Guötríöur Bjarnadóttir, Guólaugur Bjarnason, Laufey Bjarnadóttir, Bjarni Björnsson, Bragi Björnason, Ingibjörg Garöarsdóttir, Katrfn Magnúsdóttir, fvar Jónsson, Magnús Danfel Karlsson, Jóhanna Frföur Bjarnadóttir, Björn Jón Bragason, Margrét Hanna Bragadóttir. + Sonur minn, SIGURÐUR H. SIGURJÓNSSON, blfreiöastjóri, Lundarbrekku 6, Kópavogi, veröur jarösunginn þriöjudaginn 11. sept. kl. 10.30 frá Fossvogs- kirkju. Blóm og kransar afþakkaölr en þeim sem viidu mlnnast hans er bent á líknarstofnanir. Marfa Þ. Pétursdóttfr, Bólstaöarhlíö 40.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.