Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 56
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 Ásgeir Siguruinsson ætlar að skora fyrir ísland Landsleikur íslands og Wales á miðvikudaginn markar upphafið að samstarfi Ásgeirs Sigurvinssonar og Arnarflugs til landkynningar í Evrópu. Hvort sem Ásgeir skorar mörk fyrir ísland í leiknum gegn Wales eða ekki, er víst að með þátttöku sinni vekur hann athygli á ættlandi sínu og þjóð. Og ef viðþekkjum hann og félaga hans rétt munu úrslit leiksins verða á þá leið að eftir verður tekið víða um heim. Með sinni alúðlegu framkomu og leikni og hraða á vellinum á Ásgeir eftir að skora oft fyrir ísland á næstu misserum - á knattspyrnuvellinum og í hugum milljóna manna um alla Evrópu. Áfram ísland! Flugfélag með ferskan blæ Lágmúla 7, sími 84477 Frances Dee og Darby Jones í mynd Jacques Tourneaur I Walked With a Zombie. Gamalt og gott eða vont Myndbönd Árni Þórarinsson Yfir gömlum bíómyndum er ein- hver sérstakur sjarmi. Breytir þá engu hvort myndirnar eru veru- lega góðar eða verulega slæmar. Maður gerir á margan hátt aðrar kröfur til gamalla bíómynda en nýrra, eða öllu heldur býst við öðru; ekki endilega einhverju verra, aðeins einhverju öðruvísi. Alveg eins og maður á von á öðr- um hlutum í skáldsögu frá 19. öld- inni en sögu sem skrifuð var í fyrra. Sjónvarpið sýnir annað slagið gamlar myndir og það gera bíóin reyndar líka. En það er myndbandið sem nú á dögum er hið varanlega athvarf gömlu myndanna. Úrvalið af gömlum og góðum "Wómyndum á myndbandaleigun- um er því miður býsna gloppótt og þá miða ég við myndir fram undir 1955. Það þarf bæði að verða vand- aðra og fjölbreyttara. En samt er eitthvað forvitnilegt að finna í hillunum og mest er úrvalið á Myndbandaleigu kvikmyndahús- anna. Slatti af gömlum klassíker- um er á flestum stærri leigunum og margar þeirra bjóða jafnframt upp á þá syrpu sem ég ætla að minnast á í dag. Hér er um að ræða spólur og hefur hver að geyma tvær gamlar blómyndir (sem sagt tvær myndir á verði einnar) og settar eru á markað af breska fyrirtækinu Kingston Vid- eo. Þær láta ekki mikið yfir sér í hillum myndbandaleiganna þesar spólur, í litlum og illa hönnuðum pappaöskjum sem flestar eru orðnar dálítið snjáðar. En á þeim má finna afþreyingu sem einatt er góð kvöldskemmtun. Mér er að vísu alveg hulin ráð- gáta hvernig þessar myndir eru valdar og settar saman í pró- gramm. Þarna ægir saman ensk- um og amerískum þrillerum, söngleikjum, hrollvekjum, gam- anmyndum og dramatískum myndum. Margar þeirra eru af öðrum og þriðja gæðaflokki en hafa sinn sjarma og sitt skrýtna skemmtigildi þrátt fyrir það. Cary Grant, Myrna Loy og Melvyn Douglas {gamanmyndinni Mr. Blandings Builds His Dream House. Nýtt fyrir- tæki um myndbönd FÉLAGIÐ Nýmynd hf. var stofnað í júní sl. og er heimili þess og varnar- þing í Reykjavík. Tilgangur félags- ins er að vinna auglýsingar, fræöslu- og kynningarefni á myndbönd og veita alhliða þjónustu á því sviði. Stofnendur félagsins eru fyrir- tækin Myndbær hf., Varp hf., Skyggna, Passamyndir hf., og eft- irtaldir einstaklingar, Rafn Jóns- son, Ásmundur Einarsson, Böðvar Guðmundsson, Einar Guömunds- son, Friðgeir Axfjörð, ísidór Her- mannsson, Oddur Gústafsson, Ómar Magnússon, Valdimar Leifsson, Maríanna Friðjónsdótt- ir, Sigurður Grímsson, Sigurður Þorri Sigurðsson, Örn Sveinsson, Baldur Hrafnkell Jónsson og Valdemar Gísli Valdemarsson. Flestir stofnenda eru eða hafa verið starfandi hjá sjónvarpinu. Stjórn félagsins skipa Böðvar Guðmundsson formaður og Krist- ján P. Guðnason og Jóhann Briem, meðstjórnendur. Til vara eru Isi- dór Hermannsson og Rafn Jóns- son.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.