Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 Verkefnalisti stjómarflokkanna: Hallalaus fjáriög forsenda árangurs — segir Magnús Gunnarsson, framk. VSÍ Kaupskerðing áfram lífankeri ríkisstjórnar- innar, segir Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ í hinu nýja samkomulagi stjórnarflokkanna er lögö áhersla í nýsköpun atvinnulífsins og aö miöaö sé aö því, að skapa grundvöll til að hleypa nýju blóði í íslenskt atvinnulíf. Þar segir ennfremur aö meö framkvæmd þess ætti að vera unnt að tryggja áframhaldandi stööugleika í þjóöfélaginu og nýja framfara- sókn til betri lífskjara. Morgunblaðið leitaöi álits Ásmundar Stefánssonar, forseta Alþýðusambands íslands. og Magnúsar Gunnarssonar, framkvæmda- stjóra Vinnuveitendasambands Islands, á þeim hugmyndum sem þar koma fram, einkum með tilliti til atvinnu- og kjaramála. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði m.a.: „Það er augljóst að samkomulag stjórnarflokkanna miðar að því að halda kjaraskerð- ingunni áfram á næsta ári, það er að segja, kauphækkanir eiga að verða minni er. verðhækkanir. Það er líka ljóst, að rikisstjórnin ætlar sér að ná því markmiði, ekki bara með almennum aðgerðum heldur líka með lögboðum, því það er skýrt tekið fram, að það eigi áfram að vera i lögum bann við verðtrygg- ingu launa. Að visu stendur þar, að það eigi að gerast að höfðu samráði við aðila vinnumarkaðarins, en niðurstaðan er fyrirfram ákveðin, því fyrir mönnum er valið eitt að ráða því, hvort eigi að vera hampur eða nælon í hengingarólinni. Þetta sýnir fyrst og fremst, að kaup- skerðing á áfram að vera lífankeri þessarar ríkisstjórnar," sagði Ás- mundur Stefánsson. Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, hafði m.a. þetta um málið að segja: „Mér virðist sem kjarninn í þessum tillögum byggist á þeirri hugsun og skoðun að betri lífskjör verði því aðeins tryggð, að atvinnulífið sé öflugt og arðbært. Ég hlýt að vera sammála þeirri stefnu og að það sé lykillinn að framtíðaruppbyggingu. En til að geta framfylgt þessum hugmynd- um um uppbyggingu atvinnulifs- ins, er nauðsynlegt að unnt verði að setja fram hallalaus fjárlög. Og ég verð að viðurkenna það, að ég dreg það í efa, að mönnum takist að koma sér saman um slika lausn og hef þá í huga þau átök sem urðu i vetur út af sama vanda. Jafnframt hef ég verulegar áhyggjur af því, að í tillögunum eru ekki neinar þær lausnir sem að leysa fyrirsjáanleg- an vanda útgerðarinnar og fisk- vinnslunnar. Eg held að sá vandi sé svo mikill að það verði erfitt að komast fram úr næsta ári án þess að takast á við hann. Það svigrúm fyrir kauphækkanir sem þarna er gefið er á engan hátt i tengslum við afkomu okkar meginútflutnings- greina," sagði Magnús Gunnarsson. í samkomulagi stjórnarflokk- anna er kveðið á um að tekjuskatt- ur af almennum launatekjum verði afnuminn í áföngum. Magnús kvaðst vera sammála afnámi tekju- skatts, enda vakti hann einna fyrstur máls á þessu atriði. Hins vegar kvaðst hann vilja mæta tekjutapi ríkissjóðs með samdrætti i ríkisbúskapnum fremur en álagn- ingu eyðsluskatta. Ásmundur sagði að tillögur um afnám tekjuskatts- ins væru góðra gjalda verðar, en hins vegar ætti að mæta tekjutapi rikissjóðs með skattlagningu eyðslu, og sú eyðsla sem hugsað væri til, væri greinileg útgjöld til matvöru og húsbygginga. I sam- komulaginu kæmi nefnilega fram, að leggja ætti fyrir þing frumvarp um virðisaukaskatt, sem þýtt gæti söluskattsálagningu á matvöru, sem nú væri undanþegin sölu- skatti. Eins myndi söluskattur falla á húsbyggingar, sem nú væru að hálfu undanþegnar söluskatti. Sagði Ásmundur að sér finndist þetta ekki lýsa miklum skilningi á erfiðleikum þeirra sem erfiðast eiga í þjóðfélaginu. Höskuldur Ólafsson um slæma lausaQárstöðu: Hefur áhrif um allt þjóðfélagið „ÉG GET ekki séð annað en þaö séu óbemju erfiöleikar framundan á fjár- málasviðinu. Staöa bankanna er verri en hún hefur veriö um háa herrans tlð og þaö gefur augaleið aö þaö kemur til meö aö hafa áhrif út um allt þjóö- félagiö á næstu vikum og mánuöum," sagöi Höskuldur Ólafsson, banka- stjóri Vershinarbankans, er Morgun- blaöiö innti hann álits á frétt blaðsins um versnandi lausafjárstööu bank- anna. í fréttinni kom einnig fram, að hjá Verslunarbankanum einum hefur innlánsaukning orðið hlut- fallslega meiri en aukning útlána og um það sagði Höskuldur m.a.: „Það er rétt, að við erum með hag- stæðara hlutfall en aðrir bankar milli innlána og útlána. Við höfum haft hagstæða þróun núna síðustu vikurnar í innlánum og vaxtabreyt- ingin sem var gerð í sfðasta mánuði hefur hlúð að innlánaaukningu hjá okkur,“ sagði Höskuldur ólafsson. „Við kynntum við vaxtabreytinguna athyglisverða nýjung, einir banka, sem var Kaskóreikningurinn, og hann hefur hlotið mjög góðar við- tökur. Markaðurinn virðist hafa svarað mjög vel þeirri hugmynd sem við settum þar fram og það hefur greinilega verið þörf fyrir þennan möguleika. Þetta hefur sem sagt stuðlað að aukinni innláns- þróun hjá okkur.“ Höskuldur sagði ennfremur að jafnframt hefði verið haldið fast utan um útlán, eins og framast hefði verið unnt og kæmi það m.a. fram f þessum samanburði við út- lán og innlán annarra banka. „Við höfum reynt að halda uppi ábyrgri stefnu f þessum efnum. Megin við- fangsefnið hjá okkur, eins og öðr- um, hefur auðvitað verið að koma lausafjárstöðunni við Seðlabank- ann í lag og okkur hefur tekist að vinna verulega á f þeim efnum nú síðustu vikurnar," sagði Höskuldur Ólafsson. Leiðrétting í FRÉTT Morgunblaðsins í gær um útför Þorvalds Skúlasonar listmálara er sagt að Hlíf Sigurð- ardóttir hafi leikið á fiðlu. Rangt er farið með föðurnafn hennar, hún er Sigurjónsdóttir. Þá er rangt farið með nafn Othars Hanssonar í fréttinni. í frásögn af fundi Landssam- bands sjálfstæðiskvenna á bls. 16 er föðurnafn séra Heimis þjóð- garðsvarðar rangt, hann er Steins- son. Velvirðingar er beðist á þessum mistökum. Sinfóníuhljómsveitinni vel tekið á tónleikaferðalagi um Vesturland Rut Ingólfsdóttir spilaði einleik meö hljómsveitinni, hún spilaöi ballööu og pólonesu eftir Vieuxtemps. „Viljum fá hljóm- sveitina sem oftast“ Sinfóníuhljómsveit íslands var vel tekið þegar hún spilaði í félags- heimilinu Dalabúð, { Búðardal, sl. fostudagskvöld. Tónleikagestir klöppuöu hljómsveitina tvisvar upp, söng þá Kristinn Sigmundsson meö hljómsveitinni Kampavínsaríuna úr óperunni Don Giovanni og hljóm- sveitin spilaði „Ólgandi blóð“ eftir Johan Strauss. Hljómsveitarmeðlimir sem blm. ræddi við voru sammála um að mjög ánægjulet væri að spila úti á landi. Þetta eru erfiðar ferðir og bið- tíminn oft mikill hjá tónlistar- fólkinu.En þeir sögðu að það væri alls staðar tekið höfðinglega á móti þeim. Aðstaðan á hverjum stað er mismunandi. Fyrir tónleika í Dalabúð mátti sjá tónlistarmenn- ina í öllum hornum að æfa sig, og konsertmeistarann hitti blm. þar sem hún var að æfa sig á kvenna- klósettinu! „Okkur ber skylda til að heim- sækja landsbyggðina og við reyn- um að nota haustin og vorin til þess,“ sagði Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri, þegar blm. hitti hann þar sem hann var að selja miða á tónleikana. — Hvað um þá gagnrýni að þið farið með „léttari* efnisskrá út á land? „Það hefur sýnt sig að aðsóknin er ekki góð ef við erum með þunga efnisskrá, fólk vill létta tónlist og aðgengilega og við eig- um að leika það sem fólkið vill. Það þjónar engum tilgangi að 'leika fyrir tómu húsi. Við förum ekki með fullskipaða hljómsveit Einsöngvarí i tónleikunum var Krístínn Sigmundsaon. Hann sagöi aö eitt það skemmtilegasta sem hann gerði værí aö syngja úti á landi. út á land, því að það er ekki pláss fyrir hana í þessum litlu húsum, svo við verðum að velja efnis- skrána eftir því.“ í hléi hitti blm. hjónin Friðrik Hjartar og önnu Nílsdóttur, bú- sett í Búðardal. „Við vildum sem oftast fá slíka gesti, því þetta er mjög gaman. Hér er líka vaxandi áhugi fyrir klassískri tónlist,“ sögðu þau. Aðrir tóku í sama streng. „Mér finnst mjög gaman að vinna með hljómsveitinni," sagði hljómsveitarstórinn Klauspeter Seibel, eftir tónleikana. Tónlist- arfólkið er mjög þolinmótt, en þessar ferðir eru erfiðar. Það leggur sig allt fram og spilar eins vel hér og í Reykjavik, og er ég mjög ánægður með það. ísland er frábært land. Ég á eftir að stjórna hljómsveitinni í vetur og hlakka til þess, sérstaklega að stjórna flutningi á „Hollendingn- um fljúgandi“ eftir Wagner.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.