Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 63 Nýtt gat í beltið er stefna ríkis- stjórnarinnar — segir Þröstur Ólafsson í Dagsbrún BOÐAÐ var til almenns félagsfund- ar hjá verkamannafélaginu Dags- brún í Iðnó í ga r, þar sem leitað var eftir verkfallsheimild hjá félags- mönnum til handa trúnaðarmanna- ráði félagsins. Þröstur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Dagsbrúnar, kvað gífurlega óánægju vera með kjör meðal fé- lagsmanna og hefðu menn á vinnustaðafundum krafist þess að verkfallsheimildar yrði leitað. Hann sagði að þeir leituðu eftir verkfallsheimild vegna þess að þeir sæju ekki annan kost miðað við stöðuna í samningaviðræðun- um. „Ég held að menn hafi næstu 7—10 daga til þess að komast að niðurstöðu, sem getur verið þol- anleg fyrir báða aðila, þannig að ekki þurfi að koma til verkfalls- boðunar og alls sem henni fylgir. Það er ekki lengri tími en það til stefnu. Ríkistjórnin er mjög strangt með puttann á þessu og þó margir atvinnurekendur treysti sér til að borga hærri laun fá þeir það ekki fyrir Vinnuveitendasam- bandinu og ríkisstjórninni. Við vitum að boðskapur ríkisstjórnar- innar til launafólks er að það búi til nýtt gat í beltið," sagði Þröstur ólafsson að lokum. Á þessum uppdrætti má sjá umfang sýningarsvæðisins. Lengst til hægri er Laugardalshöllin, í miðjunni er 100 metra löng skemma, sem verður reist sérstaklega vegna sýningarinn- ar og loks er minni skemma. „Icelandic Fisheries Exhibition“: Stærsta sýn- ing hér á landi til þessa Sjávarútvegssýingin „Icelandic Fisheries Exhibition", sem haldin verður í Laugardal dagana 22. til 26. september næstkomandi, verður stærsta sýning hér á landi til þessa að sögn Þórleifs Ólafssonar, eins umboðsmanna sýningarinnar bér á landi. Framleiðsla á fimmta hundrað fyrirtækja verður þar sýnd á um 200 básum, en sýningarsvæðið verður alls um 10.000 fermetrar. Til þess að koma þessu öllu fyrir verða byggðar tvær stórar skemmur, önnur þeirra alls um 2.500 fermetrar, 100 metra löng og 25 metra breið, og verður grunn- flötur hennar mun stærri en Laugardalshallarinnar. Þórleifur Ólafsson sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins, að alls myndu um 100 íslenzk fyrirtæki kynna framleiðslu sína á sýningunni. Þetta væri mjög mikilvægur þátt- ur í kynningu íslenzkra iðanaðar- vara fyrir sjávarútveg, þar sem mikill fjöldi erlendra gesta væri væntanlegur á sýninguna. Vitað væri að erlendis litu menn upp til Islendinga vegna þess hve fram- arlega þeir stæðu á þessu sviði og mikilvægt væri að vel tækist til. Þá væri þetta kærkomið tækifæri fyrir fólk úr sjávarútvegi hér á landi til að kynnast þvi, sem á boðstólum er hverju sinni. Gísli Jósefsson opnar sýningu í GÆR, laugardaginn 8. septem- ber, kl. 14.00 opnaði Gísli Jósefs- son málari málverkasýningu í Hamragörðum, Hávallagötu 24. Þetta er fyrsta sýning Gísla. Hann hefur unnið við húsamálun í 30 ár hér í Reykjavík. Gísli hefur málað og teiknað myndir allt frá barnæsku, lærði smávegis í Myndlistaskólanum í málaradeild fyrir allmörgum árum en hefur annars lært mest af eigin reynslu. Gísli er Vestfirðingur að ætt. Sýning hans er opin frá 8.—16. september, kl. 14.00—22.00 dag- lega. Á sýningunni eru 35 olíu- málverk og eru þau flest til sölu. RÁÐGJAFINN FARARSTJÓRIÞINN í FRUMSKÓGIVAXTA 5PYRÐU MAm im A MVAÐA MEIKMIMCö ÞÚ EICÖIK AÐ LEQOJA RAÐCöJAEIMM 5ÉM EUÓTJ MVAÐ ÞÉM EM EYMIM BE5TU. MAMM B/EÐUB ÞÉB MEILT. Inn á hvaða reikning átt þú að leggja ? Lagðir þú inn á réttan reikning í gær? Hvort hentar þér betur hjá okkur sparireikningur með 26% ársávöxtun eða spariskírteini með 26% ársávöxtun ? Wið erum ekki undrandi þótt þú standir ráðþrota í waxtamálum. 5purningarnar um áwöxtun fjár hafa aldrei verið eins erfiðar og einmitt nú. Með þ\j\ að spyrja Háðgjafann \ Útvegsbankanum færðu 5vör 5em skýra hvað þér er fyrir bestu. Hann ræður þér heilt. BAÐGJAEIMM EB TVÍM/EL/\LAU5T Em/\B5TJÓBI ÞIMM / VAXTAFBUM5MÓGIMUM. homdu á einhwern afgreiðslustað Útvegsbankans og spyrðu eftir Ráðgjafanum. ÚTVEGSBANKINN EINN BANKI • ÖLL WÓNUSTA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.